Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Side 18
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988.
(.J8
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiöslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Lögfræðingar
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráða lögfræðing til
starfa. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist ráðuneytinu í síðasta lagi 29.
júní nk.
1. júní 1988.
Viðskiptaráðuneytið
GUOSS
BÍ|Á’
BOH
ULTRA
GLOSS
endist langt umfram
hefðbundnar bóntegundir.
HVERSVEGNA?
Ultra Gloss er „paint sealant" með glergrunni og gufar því ekki
upp f sumarsólinni og eyðist, eins og vaxbón gera. Ultra Gloss
ver lakkió upplitun af völdum sólarljóss. Ultra Gloss styrkir
lakk bílsins gegn steinkasti.
Utsölustaóir:
ESSO
- stöðvarnar
Brautarholti 20
í sérmatsal:
„A La Carte“
Úrval Ijúffengra sérrétta
Leyfid bragdlaukunum aó njóta sín
Aðeins þaó besta er nógu gott
fyrir gesti okkar
l setustofu, á bamim
eða í danssal:
Smáréttir
frá kl 11.30-02.30
•
Húsið opið fóstudag
og laugardag kl. 18-03
•
Glæsiteg utanáliggjandi gleriyfta flytur gesti
upp í Mánaklúbbinn.
Láttu nú verða afþví að bjóða konunni í
Mánaklúbbinn, perlu íslensks skemmtanalífs
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi
Pantió borð tímanlega, símar 29098 og 23335
Viðskipti
Markaðurinn í Bou-
logne hagstæður
Ekki er enn hægt aö sjá hvaða áhrif
hinn mikh eiturfaraldur viö Noreg
og Danmörku hefur á fiskmarkaði í
stærstu markaðslöndunum. Gera má
ráð fyrir aö samdráttur veröi í út-
flutningi frá Noregi og Danmörku en
það mun að líkindum fyrst og fremst
koma fram á laxamarkaðnum.
Að undanfórnu hefur markaður-
inn í Boulogne staðið nokkuð vel og
virðist hann vera nokkuð jafn frá
einni viku til annarrar. Nokkur
dæmi um verð frá Frakklandi:
Þorskur frá 81 til 142 krónur kílóið.
Ýsa 52 til 127 krónur kílóið. Grálúða
85 til 112 krónur kg. Ufsi 34 til 94
krónur kílóið. Blálanga 49 til 98 krón-
ur kílóið og karfi 80 til 97 krónur
kílóið.
England
Bv. Náttfari seldi afla sinn í Grims-
by 31. maí, 120 tonn, fyrir kr. 5,9
millj. króna.
Meðalverð var 59,47 krónur kílóið.
Stór þorskur 46 kr. kg, meðalstór
þorskur 38,80 kr. kg, smáfiskur 36
kr. kg. Ýsa, meðalstór, 46 kr. kg.
Koh 62 kr. kg.
Bv. Huginn seldi afla sinn í Grims-
by 31. maí fyrir 5,8 milljónir króna.
Meðalverð var kr. 62,16. Þorskur var
seldur á 56,80 kr. kg, meðalstór
þorskur á 48 kr. kg, smáfiskur 48 kr.
kg, og sérlega smár fiskur á 37,50 kr.
kílóið. Stór ýsa 68 kr. kg, meðalstór
ýsa 61 kr. kg, og smáýsa 58,40 kr. kg.
Sólkoli 60 kr. kg, og stórlúöa 169 kr.
kg.
Fiskur seldur úr gámum var alls
504 lestir, dagana 23. til 27. maí. Með-
alverð var 75,47 kr. kg. Þorskur 76,56
kr. kg. Ýsa 85,45 kr. kg. Koli 60,34 kr.
kg. Blandaður flatfiskur 84,35 kr. kg.
31. maí var seldur fiskur úr gámum
alls 230 lestir fyrir 15,3 millj. kr.
Þorskur seldist á 64,83 kr. kílóið. Ýsa
seldist á 87,93 kr. kg. Koh 62 kr. kg.
Góð afkoma hjá
norskum togurum
Norski togarailotinn aflaði fyrir 815
millj. norskra króna árið 1987.
Hagnaður togaraútgeröarinnar var
2,3 millj. norskra króna. Alls veiddu
Fiskmarkaðurirm
Ingólfur Stefánsson
þeir 100.000 tonn af slægðum fiski og
hausuðum, segir aðalritari félags
togaraeigenda, Aril Wiik.
Veiðarnar stunduðu 52 togarar, var
aíkoman hjá mörgum mjög góð en
þó voru skip sem voru með tap. Út-
haldstími skipanna var 279 dagar og
er það 34 dögum lengra úthald en var
hjá flotanum árið 1986, en þá var
kvótanum beitt sem stýrikerfi.
Meðalveiði ísfisktogaranna var
1.895 tonn af slægðum og hausuðum
fiski. Hjá þeim togurum, sem heil-
frystu aflann, var meöalafli 2.258
lestir, miðað við slægðan fisk og
hausaðan.
Hjá verksmiðjutogurunum, sem
vinna aflann um borð, var hann 1.781
tonn miðað við slægðan og hausaðan
fisk.
Norska sjávarútvegsráðuneytið
hefur bannað að slægja fisk án þess
að hann sé blóðgaður áður. Þetta
bann hefur valdið miklum vandræö-
um fyrir flotann. Margir hafa fjárfest
í dýrum slægingarvélum og fiski-
menn halda því fram að þau lönd,
sem kaupa fiskinn, séu ekki með slík-
ar reglur og þess vegna sé alveg
óþarfi fyrir Norðmenn að setja þetta
bann á. Skipin, sem koma daglega
að landi, verða að blóðga allan fisk,
síðan er hann slægður í landi og þyk-
ir sjómönnum mikill kostnaður við
slæginguna. Til stendur að veita und-
anþágu frá slægingarákvæðunum til
1. ágúst en enginn veit hvað þá tekur
við.
Innflofish 15. maí 1988
Eftir smávægilega hækkun á frosn-
um fiski í apríl hefur fiskur nú fallið
ört í verði á bandarískum markaði.
Sérstaklega á þetta við um dýrari
tegundir, svo sem dýrustu tegundir
af flatfiski.
Einnig hefur verðið á Alaska
„pollack“ fallið. Flestar aðrar teg-
undir hafa farið hægar niður í verði.
Verðið á þorskblokk var 15. maí 1,90
$ lb. og 1,80 $ lb.
U.S. innflutningur á frosnum fiski
1986/87. 1986 1987
Þorskur 74017 66402
Ýsa 7107 8577
Ufsi 4582 3938
Koli 3006 2553
„Hake“ 843 1855
1725 1537
Annað 5009 5449
Alls 10583 11396
1986 1987
Ýsa 1898 4897
Síld 5785 4603
Makríll 2066 3902
„Hake“ 1344 2679
„Blue whiting“ 1142 1988
472 1934
„Alaskan pollack" 192 1507
Heilfryst 1986 1987
Lifur, hrogn 2194 1093
Hesta-makríll 1298 1043
Þorskur 8026 2773
Smá-þorskur 5495 8598
Annað 13251 12388
Alls 39071 45265
U.S. innflutningur í tonnum:
Þjóðir 1986 1987
Noregur 33545 36226
ísland 30488 30147
Danmörk 21285 20400
Kanada 8498 6927
Holland 5373 6016
Aðrir 36170 35860
Alls 135358 135577
Frosinn og nýr fiskur í jan. 1988:
Lönd 1987 1988
Kanada 7998 10923
ísland 4230 2857
Danmörk 1523 1338
Noregur 842 1147
Kórea 425 168
U.K. 432 185
Aðrir 2279 1898
Alls 17729 18516
Fréttir
Frá Ólafsvíkurhöfn. DV-mynd ÁEA
Hafnarframkvæmdir fyrir
40 milljónir króna í ár
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafsvflc
Mikil þrengsli eru nú að verða í
höfninni í Ólafsvík. Stafar það af því
að bátaflotinn fer stöðugt stækkandi
og fjöldi aðkomubáta eykst með degi
hyerjum. Á vertíðum eru hér yfir-
leitt a.m.k. 10 aðkomubátar en á
sumrin eru hér iðulega milli 30 og
40 aðkomutrillur.
í dag er heildarflöldi smábáta und-
ir 10 brúttólestum kominn á sjöunda
tuginn og búist er við að enn eigi
eftir aö bætast við þann flölda. Ein
lítil flotbryggja er í höfninni en hún
getur engan veginn sinnt öllum þess-
um flölda smábáta, og í landlegum
er ekki óalgengt að tíu trillur séu í
röð hver utan á annarri út frá öhum
hliðum flotbryggjunnar. Úrbóta er
þörf og nú stendur til að stækka flot-
bryggjuna til muna, allt að 40 metr-
um.
En aöalframkvæmdirnar liggja þó
í stálþih sem reka á niður í vestur-
hluta hafnarinnar og kemur þá við-
legupláss stærri bátanna til meö að
stækka mikið. Framkvæmdir viö
þessa stækkun hófust fyri nokkrum
árum en fóru af stað fyrir alvöru í
fyrra þegar dýpkunarfleki Köfunar-
stöðvarinnar kom hingaö og mokaði
upp ógrynni af efni úr bryggjustæð-
inu. í ár er ætlunin að koma niöur
stálþili og er reiknað með fram-
kvæmdum upp á allt að 40 mihjónir
króna.
Gnmsey:
Allt fé skorið
vegna riðuveiki
Gylfi Kristjánasan, DV, Akureyii;
AUt bendir til þess að í haust
verði allt fé í Grímsey skorið niö-
ur vegna riðuveiki sem þar hefur
fundist í fénu.
Það mun hafa verið sl. vetur
sem grunur vaknaöi um að riðu-
veiki væri fyrir hendi í fé í Gríms-
ey. Þar hafa verið hátt í 300 kind-
ur. Sýni, sem send voru til rann-
sóknar, staöfestu aö um riðuveiki
væri aö ræða og í framhaldi af
því má telja víst að í haust verði
öUu fé í eyjunni fargað.
Grímseyingar verða því að vera
flárlausir næstu tvö árin en geta
hafið sauðflárbúskap aftur að
þeim Uönum.
Flutninga-
bíll vatt
Gyifi Kxistjánsson, DV, Akureyri:
Flutningabíll valt út af veginum
hjá Merkigili í Hrafnagilshreppi
í fyrradag. Ekki er vitaö hvað olli
veltunni en flutningsbíllinn
skemmdist talsvert.
Ökuraaðurinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri en hann
kvartaöi m.a. um verk í baki.