Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Síða 21
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988.
21
Lífsstm
DV prófar kínverskar vorrúllur:
Sami framleiðandi að
bestu og verstu rúllunum
Við bragðprófun á kínarúllum, sem
DV hefur gert, kom framleiðsla ís-
lenska framleiðandans best og verst
út. íslenski framleiðandinn er Kína-
eldhúsið; Auk íslensku rúllanna
voru prófaðar rúllur frá tveim er-
lendum framleiðendum. Þrjár teg-
undir voru frá Daloon en ein frá
Kreatina.
Allar þessar rúllur eru ætlaðar til
steikingar á pönnu eða hitunar í ofni.
Allar tegundirnar voru hitaðar í ofni
samkvæmt leiðbeiningum framleið-
enda.
2. Vorrúllurfrá Daloon
Þessi tegund varð númer tvö í
könnuninni. Innihaldslýsingar og
leiðbeiningar eru allar á dönsku.
Mjög góðar upplýsingar eru um vör-
una á umbúðunum en gagnast lítið
islenskum neytendum.
Meðaltalseinkunn var 3,16. Um-
sögnin var of bragðdauft, flatt, feitt
kjöt og of mikill laukur. Fjöldi rúlla
í pakkanum eru 5 og samanlögð vigt
450 g. Verðið fyrir 450 g er 225 kr. eða
500 kr. fvrir kílóið.
Vorrúllurnar tilbúnar fyrir dómnefndina.
Dómnefndina skipuðu sex manns
og gáfu þau einkunnir á bilinu 1-5.
Besta einkunn er 1 og sú lakasta er
5. Einkunnirnar eru teknar saman
og deilt í með 6 til að fá meðalein-
kunn. í upptalningu hér á eftir verð-
ur byrjaö á þeim rúllum sem fengu
bestu einkunn eöa lægstu tölu. End-
að er á tegundinni sem fékk verstu
einkunn eða hæstu tölu.
1. Nauta-vorrúllurfrá Kína-
eldhúsinu
Þessar vorrúllur fengu bestu ein-
kunn fyrir bragðgæði. Upplýsingar
framleiðanda um innihald eru: Úr-
valskjöt, grænmeti, hveiti, krydd og
olía. Engum lit eða rotvarnarefnum
bætt í vöruna.
Þessi tegund fékk í meðaltalsein-
kunn 3. Umsögnin var skást, besta
hráefnið. Umbúðir eru til fyrirmynd-
ar að undanskildu því að ekki er get-
ið um þyngd vörunnar. Við vigtun
reyndist hún vera 400 g og eru fimm
rúllur í pakkanum. Verðið fyrir 400
g er 244 eða kr. 610 fyrir hvert kíló.
Umbúðir íslenska framleiðandans
eru þær einu sem eru með innihalds-
lýsingu og meðferð á íslensku, sem
er stór kostur.
3. Vorrúllurfrá Daloon
í þessum pakka eru 4 rúllur merkt-
ar „Det lette kökken". Þessi tegund
varð númer þrjú með meðaleinkunn-
ina 3,33. Umsögnin var of mikið deig-
bragð, of lítið kjöt. Umbúðirnar eru
fallegar, innihaldslýsingar og dag-
merkingar í góðu lagi. En sem fyrr
eru upplýsingarnar allar á dönsku
og það fyrir íslendinga.
Rúllurnar eru íjórar og vega sam-
tals 400 g. Pakkinn með 400 g kostar
kr. 204 eða kr. 510 fyrir kílóið.
4. Kínarúllurfrá Daloon
Þessi tegund varð númer 4 í röð-
inni með meðaleinkunn 3,91. Um-
sögnin var bragðdauft, of mikill
laukur og vont. Sama er um umbúð-
ir að segja og aörar erlendar umbúð-
ir.
Verðið fyrir 5 rúllur, sem vega
samtals 450 g, er kr. 225 eða 500 kr.
fyrir hvert kíló.
5. Vorrúllur frá Kreatina
Þessar rúllur fengu einkunnina 4
samanlagt. Umsögnin var mikið, en
ekki gott krydd. Kryddið yfirgnæfir
allt og deigið of þykkt. Hér er sama
að segja um umbúðirnar. Vel dag-
Dómnefndin að störfum.
Kinversku vorrúllurnar fyrir eldun. Tvær tegundir frá innlendum framleið-
anda og fjórar frá erlendum.
DV-myndir: Brynjar Gauti
merktar, greinargóðar innihaldslýs-
ingar o.s.frv. En því miður allt á
dönsku.
Heildarþyngd fyrir 5 rúllur er 450
g. Pakkinn kostar 236 kr. eða hvert
kíló kostar kr. 524.
Lamba-rúllurfrá Kína-eld-
húsinu
Þessar rúllur komu verst út úr
bragöprófinu. Umsögnin var olíu-
bragö, remmu- og fitubragð. Þessar
rúllur fengu meðaleinkunnina 4,41.
Það er sama að segja um umbúðirnar
eins og hinar frá þessum framleið-
anda. Innihaldslýsingar og dagmerk-
ing í góðu lagi og þaö á okkar tungu-
máli. Hins vegar vantar alveg að geta
um þyngd vörunnar, sem er galli
þegar verið er að gera samanburð.
Verðið fyrir 5 rúllur, 400 g, er kr.
244. Hvert kíló kostar því 610 krónur.
Enginn af þessum tegundum var
áberandi vond eða góö. Allar umbúð-
ir eru í góðu lagi hvað útlit varöar.
Innihaldslýsingar og dagmerkingar í
góðu lagi.
Leiðbeiningar á erlendum
tungumálum
Megingalli við erlendu framleiðsl-
una er hins vegar útlendu leiðbein-
ingarnar. í sjálfu sér er ekki flókið
mál fyrir meginþorra fólks að skilja
einfaldar leiðbeiningar á dönsku.
Hins vegar er þaö æöi hvimleitt til
lengdar að íslendingar skuli alltaf
þurfa að sætta sig við innflutning
erlendis frá og ekki gerð tilraun til
að þýða meginmálið. Islendingar eru
ábyggilega sú þjóð sem veröur að
aðlaga sig alls lags tungumálum við
matargerð. Það má kannski segja að
ekki sé fokið í flest skjól, þegar leið-
beiningar eru enn með latneska staf-
rófinu. Fyrir hefur komið að innflutt-
ar umbúðir eru á arabísku eða
grísku.
-JJ
Teppi á
stigaganginn
sem þola mikið
og endast lengi!
í Teppalandi færðu teppið á stigaganginn.
Úrvalið er fjölbreytt og verðflokkar margir.
Hæstu gæðaflokkar.
Hjá okkur færðu ráðgjöf fagmanna.
VIÐ GERUM TILBOÐ ÁN SKULDBINDINGA.
fgP