Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Side 23
J FÍMMTUDAGUR '2. JÚKT 1988.
23
Lífsstíll
Brauöíö .er tilbúið til neyslu með salati, osti eða bara köldu smjöri.
Tilraunaeldhús DV:
Gamaldags
bitabrauð
Þessi stóri brauöhleifur stendur
stutt við á borðum, svo gott er brauð-
ið. Svona brauðhleif er upplagt að
baka þegar von er á mörgum gestum.
Bera má brauðið fram meö smjöri
og ostum, grænmetis- eða pastasalati
eða góðri heitri súpu.
Hráefni
50 g pressuger (5 tsk. þurrger)
5 dl mjólk (súr)
'A dl matarolía
1 'A tsk. salt
8 dl rúgmjöl
ca. 5 dl hveiti
Rúgmjöl, mjóik, olía og ger hrært
vel saman. Hluti hveitisins hnoðað
saman við. Brauðið hnoðað og látið
hefast í skálinni.
Mjólk og olía er hitað upp í 37° og
hellt yfir gerið. Gerið er látið leysast
vel upp. Salt og allt rúgmjölið hrært
saman við. Hluti af hveitinu hnoðað
saman við þar til deigið er hætt aö
loða við borð og hendur.
Deigið er látið hefast í skálinni
undir rökum, heitum dúk í 30-40
mínútur. Ef með þarf má hnoða
meira af hveiti saman við. Búið til
Hráefnið sem notað er í brauðið:
hveiti, rúgmjöl, mjólk, olía, ger og
salt. DV myndir: Brynjar Gauti
stóran hlemm (30 sm þvermál) og
skerið í tvo hringi og 4 línur þvert
yfir brauðið (sjá mynd). Brauðið er
sett á smurða plötu eða bökunar-
pappír og látið hefast aftur undir dúk
í 30 mínútur.
Bakið brauðið við 200° í miðjum
ofni í 30 mínútur.
Berið fram volgt eða kalt með
smjöri. -jj
Þegar brauðið hefur hefast er það
hnoðað upp aftur og mótað i hring.
Skornir eru tveir hringir og línur
þvert yfir.
Áður en brauðið er sett í ofninn er gott að pensla það með þunnu lagi af
köldu vatni. Þá myndast góð skorpa.
PBL
*TT' > í3imi' ■ - i
BMW 318 I árgerð 1987. 4ra dyra
sem nýr, ekinn aðeins 14.000 km,
sjálfskiptur, vökvastýri, áifelgur,
sumar-/vetrardekk, útvarp/segul-
band, litur steingrár, skipti gætu
komið til greina á ódýrari nýlegum
smábíl, einnig greiðsla með
skuldabréfi. Verð 1 millj. Ennfremur
árg. 1985.
Subaru Justy J-12 4x4 árgerð 1988.
Ekinn 11.000 km, 5 gíra, sóllúga,
útvarp/segulband, litur dökkblár,
skipti koma til greina á ódýrari bif-
reið ca. 200.000. Verð 500.000. Enn-
fremur árgerðir 1985,1986 og 1987.
GMC JIMMY árgerð 1987. Einn með
öllu, ekinn 20.000 km, álfelgur, cru-
isecontrol, rafmagn í rúðum og
læsingum, leðuráklæði, 6 cyl. sjálf-
skiptur, o.fl., o.fl.. Skipti gætu komið
til greina á nýlegum fólksbil. Verð
1.340.000. Ennfremur árgerð 1984-
1985.
MMC Pajeró diesel Turbo styttri
gerð, árgerð 1986. Ekinn aðeins
39.000 km, 5 gira, vökvastýri, út-
varp/segulband, litur hvítur, skipti
gætu komið til greina á ódýrari bif-
reið. Verð 910.000.
Volvo 740 GL árgerð 1988. Nýr bíll.
Ekinn 4.000 km, 5 gíra, vökvastýri,
litur hvítur. Skiptir gætu komið til
greina á ódýrari bifreið. Verð
1.200.000.
Toyota Corolla Twin Cam árgerð
1987. Ekinn 58.000 km, 5 gira, bein
innspýting, álfelgur, útvarp/segul-
band, litur hvítur. Skipti gætu komið
til greina á ódýrari bifreið. Verð
590.000.
Fyrstí tauþvottaíðgúHnn á Islandi,
bio-íva slær öllu við.
Tauþvottalögur hefur á síðusiö^rum rutt sér til
rúms bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og nú
kynnum við hann hér á landi.
Bio-íva er
• fíjótandi þvottaefni fyrir þvottavélar 'A
• á svipuðu verði og þvottaduft
• notað á sama hátt og þvottaduft
• selt í 1 I og 2 I brúsum
• með ensýmum
• með 15% kynnincjarafslætti
• aigjör nýjung á íslandi
Bio-íva nær fullri virkni um leið og það blandast
við þvottavatnið. Virkni þess er einstök á lægri
hitastigum (40°-60°C). Bio-íva inniheldur m.a.
ensým sem leysa auðveldlega upp erfiða bletti
(svita, súkkulaði, egg'ahvítu, blóð, grasgrænu,
olíuóhreinindi o.fl.). Með bio-íva er forþvottur
því óþarfur.
Þú sparar tíma með því að nota bio-íva
(forþvottur er óþarfur) og þú færð ilmandi og
tandurhreinan þvott með bio-íva.
SAPUQERDIN
Lyngási 1 Garðabæ, stmi 651822
ÍRRTgU
0PIÐ LAUGARDAG
KL. 10-17.30.
Væntanlegir kaupendur ath. Aldrei
fyrr hefur verið eins mikið úrval
nýrra bíla og nú. Greiðslukjör við
allra hæfi.