Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Síða 24
24
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988.
: ‘FlMMf UDAÖUR' k JÚNÍhð88.
íþróttir
DV I>V
Frétta-
stúfar
Lakers komiö yfir
Los Angeles Lákers tók í fyrri-
nótt forystu í einvíginu viö Dailas
Mavericks í undanurslitum
NBA-deildarinnar í körfuknatt-
leik. Lakers vann öruggan sigur,
119-102, og hefur þá unniö þijá
leiki en Dallas tvo. Það liö, sem á
imdan vinnur íjóra leiki, kemst í
úrslitin.
Heimsmethafi úr leik
Victor Davis, heimsmethafi í 200
m bringusundi karla, keppir ekki
fyrir hönd Kanadamanna á
ólympíuleikunum í Seoul. Hann
varð þriöji á úrtökumóti í Mon-
treal á þriðjudaginn, á fimmta
besta heimstímanum í ár, en þeir
tveir sem urðu á undan honum,
Jon Cleveland og Cam Grant,
verða fulltrúar Kanada í Seoul.
Þetta var fyrsti ósigur Davis í
heimalandi sinu í átta ár en hann
er orðinn 24 ára og sagði eftir
sundið aö hann væri farinn aö
missa niöur úthald til að synda
þetta langt.
Óvæntur sigur Finna
Finnar unnu óvæntan útisigur á
Austurríkismöimum, 2-0, í
ólympíukeppninni í knattspymu
í fyrrakvöld. Þjóðirnar urðu jafn-
ar og neðstar í E-riöli með 4 stig
en Júgóslavar fengu 13, Tékkar
12 og Belgar 7 stig.
Svíi til Sporting
Enn einn sænski knattspyrnu-
maðurinn er kominn suöur á
bóginn - Sporting Lissabon gekk
í gær frá fimm ára samningi við
Hans Eskilsson, 22 ára miðherja
fró Hammarby. Eskilsson skoraöi
mark i sínum fyrsta landsleik í
vor, gegn Sovétmönnum á páska-
mótinu í Berlín.
Japan tilnefnir Nagano
Japanir eru komnir í slaginn um
vetrarólympíuleikana sem
haldnir verða árið 1998. Þeir tfi-
nefndu í gær Nagano, vinsæla
skiðaparadís 170 km norðvestur
af Tókió, sem keppnisstaö. Þrjú
ár eru þangað til alþjóða ólymp-
íunefndin kemur saman í Birm-
ingham á Englandi til að ákveða
hvar þessir leikar fara fram.
Torfi þjálfar Val
Torfi Magnússon, reyndasti
landsliðsmaður íslands í körfu-
knattleik, hefur verið ráðinn
þjálfari Valsmanna fyrir næsta
keppnistímabil. Torfi hefúr leikið
með Val vel á annan áratug og
ijálfaði liðið um skeið auk þess
að leika með því, en tekur nú við
á ný af Steve Bergman. Hann
hyggst hætta að leika sjálfur og
einbeita sér aö þjálfuninni, en
hætt er við að sem þjálfara gangi
honum illa að fylla þaö skarö sem
hann skilur sjálfur eftir i liðinu!
Elkjær til PSV?
PSV Eindhoven, hollensku Evr-
ópumeistamir í knattspymu,
haía hug á að fá danska landsliðs-
manninn Preben Elkjær til liðs
við sig. Elkjær leikur með Verona
á ítah'u og á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum þar, en félagið er til-
búið til að selja hann. Ajax hafði
einnig áhuga á honum, en ræöur
engan veginn við þá upphæö sem
Verona setur á hann.
Jeppesen tii Stavanger
Bjarne Jeppesen, sem var þjálfari
og leikmaöur með dönsku meist-
urunum i handknattleik, Kold-
ing, sl. vetur og lék m.a. gegn
Víkingum í Evrópukeppninni,
hefur verið ráöinn þjálfari hjá
norska félaginu Stavanger. Hann
tekur við af landa sínum, lands-
liösmanninum Morten Stig
Christiansen, sem er á heimleið
og hefur veriö ráðinn íþrótta-
'fréttamaður hjá danska sjón-
varpinu.
Landsleikir i Evrópu í gærkvöldi:
Danir lágu í
Kaupmannahöfn
- Svíar tóku Spánverja í kennslustund, 1-3
Nokkrir vináttulandsleikir fóru
fram í gærkvöldi víðs vegar um Evr-
ópu. Þeim þjóðum, sem keppa í úr-
slitakeppni Evrópumótsins sem hefst
í Vestur-Þýskalandi 10. júní, gekk
misvel í leikjum sínum í gærkvöldi.
Danir léku gegn Tékkum í Kaup-
mannahöfn og máttu þola ósigur,
0-1, en Danir hafa ekki sigrað Tékka
síðan 1922 eða í alls 14 leikjum.
• Lubos Kubik skoraöi eina mark
leiksins á 11. mínútu. Dönum tókst
aldrei að ógna Tékkum að neinu
marki. Sören Lerby þurfti að yfirgefa
völlinn um miðjan fyrri hálfleik
vegna meiðsla og Morten Olsen var
skipt út af í hálfleik en hann átti við
smávægfieg meiðsli aö stríða. Áhorf-
endur: 23.700.
• írar, sem unnið höfðu átta leiki
í röð, geröu markalaust jafntefli við
Normenn í Osló. írar voru mun nær
sigri og fóru illa með góð marktæki-
færi. Irar mæta Englendingum 12.
júní í úrslitakeppni Evrópumótsins í
Stuttgart.
• Wales sigraði Möltubúa 2-3 í
Valetta á Möltu en Möltubúar höfðu
forystu í hálfleik, 2-1. Hughes, Rush
og Horner gerðu mörk Wales. Bus-
uttil gerði bæði mörk Möltu. Áhorf-
endur: 7000.
• Sovétmenn sigruðu Pólveija 2-1
í Moskvu eftir að Pólveijar höfðu
haft 0-1 forystu í hálfleik. Litov-
chenko gerði fyrra mark Sovét-
manna en Protasov það síðara úr
vítaspyrnu. Dzekanowski geröi mark
Pólverja.
• Hollendingar léku gegn Rúmen-
um í Amsterdam og sigruðu 2-0.
Hollendingar léku án Ruud Gullit
sem á við smámeiðsli að stríöa og að
auki lék Marco Van Basten ekki
heldur meö. Fjarvera þessara lykfi-
manna í hollenska liðinu gerir sigur
þeirra enn stærri. John Bosman og
Wim Kieft gerðu mörk hollenska
liðsins. Áhorfendur: 12.000.
• Svíar hafa fimasterku liði á aö
skipa um þessar mundir en þeir
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Spán-
verja 1—3 í Salamanca á Spáni eftir
1-2 forystu í hálíleik. Svíar léku
Spánverja oft grátt í leiknum. Joa-
kim Nilson, Dennis Schiller og Mats
Magnusson skoruðu mörk Svía en
Emilio Butragueno skoraði eina
mark Spánverja. Áhorfendur: 26.000.
-JKS
• írar máttu sætta sig við markalaust jafntefli í landsleik gegn Norðmönnum í Osló i gærkvöldi. Sigurganga þeirra var þ
með rofin því þeir höfðu unnið síðustu átta leiki sína. Á myndinni freistar Norðmaðurinn Erland Johnsen þess að stöði
írann Frank Stapleton. Símamynd/Reut
Framkvæmdastjóri Juventus:
Dino Zoff ráðinn
Dino Zoff, þjálfari ólympíuliðs ítala
sem sigraði íslendinga um síðustu
helgi, var í gær ráðinn framkvæmda-
stjóri Juventus. Zoff tekur við starfi
af Rino Marchesi.
Aðstoðarmaður Zoff verður Gaet-
ano Sciera. Zoff, sem er 45 ára aö
aldri, lék 112 landsleiki í marki ítala
og er af mörgum talinn besti mark-
vörðursemuppihefurverið. -JKS
Stúlknaliðið ekki á NM:
Danir neita íslend-
ingum og Færeyingum
um þátttöku
- A-landsliðið til Danmerkur í haust
Stúlknalandshði íslands í knatt-
spymu, 16 ára og yngri, hefur verið
neitað um þátttöku í Norðurlanda-
mótinu í þeim aldursflokki en það fer
fram í Danmörku í sumar. Eins og
DV hefur áður sagt frá var þátttöku-
tfikynning send til Noregs þar sem
mótið átti upphaflega aö fara fram
en síðan var það fært til Danmerkur.
Þangað var þátttakan ekki sérstak-
lega tfikynnt og Danir hafa nú end-
anlega neitað aö taka á móti íslenska
liðinu, segja fyrirvarann of stuttan.
Færeyingar fá nákvæmlega sömu
meöferð. í sárabætur hafa Danir boð-
ið A-landsliöi kvenna til Danmerkur
í haust og nokkuð öruggt er að af
þeirri ferð verður.
Stúlknaliðið hefur æft fyrir Norö-
urlandamótið í fjóra mánuði og von-
brigöin eru því skiljanlega mikil. í
staðinn verður farið með stúlkurnar
á alþjóðlegt mót á Norðurlöndum í
sumar, líklega til Danmerkur. -VS
KR-ingar drógu sína menn út úr U-21 árs landsliðinu:
„Alagið á strákunum
er orðið of mikið“
- þeir voru sjálfir reiðubúnir að leika, segir formaður landsliðsnefndar
Eins og kimnugt er léku íslendingar Aö öðru leyti vil ég ekki tjá mig frekar koma upp. Við höfum ekki ákveðið
og Svíar vináttulandsleik í Vest- um þetta mál á þessu stigi,“ sagði Júrí hvernig við tökum á þessu máli en það
mannaeyjum i fyrrakvöld. Liðin voru Sedov, þjálfari landsliösins U-21 árs í verður rætt sérstaklega um það á
skipuð leikmönnum 21 árs og yngri. samtali við DV. næstu dögum," sagði Steinn Halldórs-
Isiendingar léku án þriggja sterkra son.
leikmanna úr KR, þeirra Þorsteins „Strákarnir vildu leika“
Guðjónsonar, Rúnars Kristinsonar og „Við erum að sjálfsögðu ekki ánægð- „Of mikið álag“
ÞorsteinsHalldórssonar.enþeirfengu ir með að KR-ingamir tóku ekki þátt „Þaö er alltaf leiðinlegt að þurfa að
ekki leyfi félags síns til að taka þátt í í landsleiknum gegn Svíum. Við teljum bregöast svona við en þessi leikur kom
þessum leik. að ekki hafi verið mikhr erfiðleikar upp á með mjög skömmum fyrirvara
Hefur þessi ákvörðun KR-inga vakið við að færa leik KR og Völsunga aftur og ef við heföurn vitað af honum heföi
mikla athygli enda hefur það verið um einn dag. Þegar við inntum stjórn undirbúningur okkar fyrir leikinn
metnaður hvers knattspyrnumanns að knattspymudeildar KR skýringa á því gegn Völsungi orðið öðmvisi. Álagið á
klæðast landshðspeysunni. Til að fá aö gefa ekki umrædda leikmenn lausa þessum strákum er orðið of mikiö,
nánari skýringu á þessu fengum viö i þennan leik fengum við það svar að Þorsteinn Guðjónsson var t.d. að spila
þá sem hlut eiga að máh tfi að segja KR-ingar væru búnir aö skipuleggja með ólympíulandshðinu á sunnudags-
sittáht. leikinngegn Völsungi og af þeim sök- kvöldiö og það heföi verið of mikiö
um gæfu þeir ekki leikmennina lausa fyrir hann aö leika annan landsleik
„Akvörðun félags“ í landsleikinn,“ sagði Steinn Halldórs- tveimur dögum síðar. Það hefði engu
„Það var slæmt að vera án þessara son, formaöur landshösnefndar undir breytt að færa leikinn við Völsung aft-
leikmanna sem em mjög sterkir og 21 árs í samtali við DV. ur um einn dag,“ sagði Gunnar Guð-
styrkja liöiö mikið. Þaö er hins vegar „Við vitumaðstrákarnirvorureiðu- mundsson, formaður knattspymu-
ákvörðun hvers félags hvort það lætur búnir að leika landsleikinn. Þaö er allt- deildar KR.
landsliöum leikmenn í té hverju sinni. af leiðinlegt þegar mál af þessu tagi -JKS/VS
Mjólkurbikarinn í knattspymu -1. umferð:
ÍBÍ-menn með BÍ og unnu Sljömuna
Liðsmenn ÍBÍ léku fyrir hönd Bad-
mintonfélags ísafjarðar í gærkvöldi
og sigruðu Stjörnuna 2-0 í 1. umferö
Mjólkurbikarsins á ísafjarðarvelli.
Allt lið ÍBÍ er gengið til liðs við BÍ
eins og áöur hefur komið fram en
leikmennirnir eru ekki löglegir fyrr
en 9. júní. Aö sögn talsmanns BÍ í
gærkvöldi fékkst leyfi hjá KSÍ til að
nota ÍBÍ-leikmennina þar sem um
bikarleik var að ræöa og vegna þess
að BÍ er aðili að ÍBÍ! Það voru Örn
Torfason og Stefán Tryggvason sem
skomðu mörkin og sendu með því
Garðbæingana út úr bikarkeppninni.
• Njarðvík-Víkveiji 3-2. Fimm
mörk í Njarðvík og fyrir heimamenn
skoruðu Helgi Arnarsson, Haukur
Jóhannesson og Elías Georgsson.
Efnilegur nýliöi, Jón Örn Guöbjarts-
son, skoraði glæsilegt skallamark í
sínum fyrsta bikarleik með Víkverj-
um og hitt mark Reykjavíkurliðsins
gerði Svavar Hilmarsson.
• Léttir-Hafnir 0-3. Öruggt hjá
Hafnamönnum og mörk þeirra á
gervigrasinu gerðu Halldór Hall-
dórsson, Guðni Sveinsson og Bjarni
Kristjánsson.
• Ægir-Fyrirtak 2-1. Fyrsti sigur
Ægismanna eftir sameiningu ölfus-
árósaliðanna. Jón Hreiðarsson úr
Þorlákshöfn skoraði fyrra markið og
Sigmundur Traustason frá Eyrar-
bakka gerði sigurmarkið.
• Hvatberar-Þróttur R. 0-5. Þrótt-
arar unnu frekar auðveldan sigur á
4. deildarliðinu á Seltjarnarnesi. Sig-
urður Hallvarðsson skoraöi 3 mark-
anna, Daði Harðarson og Páll Þórð-
arson eitt hvor.
• Ernir-ÍR 0-6. Nýja liðið á Sel-
fossi barðist hetjulegri baráttu gegn
2. deildarhði ÍR en fékk á sig þrjú
mörk á lokamínútunum. Knútur
Bjarnason 2, Bragi Björnsson 2, Hall-
ur Eiríksson o'g Einar Ólafsson gerðu
mörk ÍR.
• Augnabhk-Víkingur Ó. 2-0.
Augnablik er eitt Kópavogsliða kom-
ið í 2. umferð og þeir Alexander Þór-
isson og Sigurður Halldórsson skor-
uðu gegn Olsurum.
• Árvakur-Skotfélagið 2-1. Sig-
urður Indriðason og Magnús Jóns-
son, KR-ingarnir gamalkunnu,
tryggðu Árvakri sæti í 2. umferð en
Stefán Stefánsson kom Skotfélaginu
á blað.
• Valur Rf.-Höttur 2-1. Valur Ingi-
mundarson körfuknattleiksmaður er
þjálfari og leikmaöur með Val á
Reyðarfirði, og hann skoraði bæði
mörkin fyrir nafna sinn. Árni Jóns-
son svaraði fyrir Hött.
• Þróttur N.-KSH 2-0. Mörk
Bjama Freysteinssonar og Guðbjarts
Magnasonar dugðu Norðfirðingum
til að sigrast á Suðuríjarðablönd-
unni.
•. Leiknir R.-FH. Frestað til mánu-
dags. -SJS/ÆMK/SH/VS
• Wolfgang Schmidt keppir á
2
íþróttir
Skeytið loksins komið:
Lárus er
löglegur
- getur leikið með
Lárus Guðmundsson er orðinn lög-
legur með Víkingi og getur leikið
með gegn Fram í 3. umferð 1. deildar
keppninnar næsta sunnudagskvöld.
Skeytið frá vestur-þýska knatt-
spymusambandinu, sem lengi hefur
verið beðið eftir, barst loksins skrif-
stofu KSÍ í gærmorgun.
„Það er mikill léttir að þetta leiö-
indamál skuli vera úr sögunni,“
sagði Lárus í gær þegar DV flutti
honum fregnir af skeytinu. „Þjóð-
veijar eru á margan hátt ótrúlegir,
sérstaklega þeir hjá Kaiserslautem.
Þeir gáfu mér strax leyfi til aö fara
og leika með Víkingi en síðan fengu
þeir bakþanka, hafa sjálfsagt haldið
að ég ætlaði að leika á þá, og létu
Víkingi gegn Fram
málið bara liggja kyrrt þangað til ég
fór að ýta á eftir því,“ sagöi Lárus
sem samkvæmt samningi er bundinn
Kaiserslautern tfi fimm ára ef hann
verður ekki seldur til annars at-
vinnufélags.
Þó Lárus- sé ekki kominn í fulla
æfingu ætti hann að styrkja lið Vík-
inga á sunnudaginn. „Ég á töluvert
eftir til aö komast í mitt besta form,
enda er ég rétt búinn að ná mér eftir
slæma tognun sem hindraði mig í að
æfa í 7-8 vikur. Það verður erfitt fyr-
ir mig að leika á fullu í 90 mínútur
þannig aö ég einbeiti mér að því að
nýta reynsluna og vera Víkingsliö-
inu eins mikill styrkur og mögulegt
er,“sagðiLárus. -VS
Grasið á Húsavík á langt í land:
Víxlað við Val?
- allt betra en mölin, segja Valsmenn
Jóhannes Siguijónsson, DV, Húsavik:
Ljóst er að ekki verður hægt að
nota grasvöllinn á Húsavík þegar
Völsungar eiga að taka á móti ís-
landsmeisturum Vals í 4. umferö 1.
deildarinnar næsta miðvikudags-
kvöld, 8. júní.
Grasið er enn það viðkvæmt að
ekki er hættandi á að byrja að leika
á þvi svo snemma en öruggt má telja
að það verður tilbúið þegar Þórsarar
koma í heimsókn 20. júní.
Völsungar hafa hug á að víxla
heimaleikjum við Valsmenn, leika
viö þá á Hlíðarenda í næstu viku en
á Húsavík í síðari umferðinni.
„Við höfum ekki heyrt af þessu en
það er engin spurning að við viljum
allt frekar en að leika á möl. Við tök-
um örugglega vel i þetta mál ef Völs-
ungarnir hafa samband við okkur.
Völlurinn okkar er aö vísu ekki
nærri því nógu góöur en ég sé ekki
aö það breyti neinu hvort við byrjum
að leika á honum 8. eöa 13.,“ sagði
Eggert Magnússon, formaður knatt-
spyrnudeildar Vals, í samtali viö DV
í gær.
-JS/VS
Aftur leikið í 1. deild í kvöld:
KR fær Völsunga
í vesturbæinn
Fyrsti 1. deildar leikurinn á KR-
velhnum á þessu ári verður háður í
kvöld. KR-ingar fá Völsunga í heim-
sókn kl. 20 og er þetta fyrsti leikurinn
í 3. umferð deildarinnar.
Bæði lið tefla fram sínum sterkustu
leikmönnum. Þorfinnur Hjaltason
ver mark Völsungs í fyrsta skipti á
þessu tímabih en hann missti af
fyrstu tveimur umferðunum vegna
veikinda. Snævar Hreinsson lék ekki
með Húsvíkingunum gegn ÍA í 2.
umferð vegna meiðsla en er orðinn
heill. Sömu sögu er að segja af KR-
ingnum Sæbirni Guömundssyni sem
ekki gat leikið með KR í Keflavík í
2. umferðinni - hann er orðinn heill
heilsu. -VS
Flugleiðamótið í frjálsum:
Heimsmethafi
meðal keppenda
Flugleiðamótið í fijálsum íþróttum
verður haldið á Laugardalsvelli 21.
júní. Þetta er eitt af stærri mótum í
fijálsum íþróttum hér á landi og er
ætlun Frjálsíþróttasambandsins að
fá hingað til lands á mótið fræga
kastara. Virðist sú ráðagerð ætla að
bera góðan árangur.
Fyrrverandi heimsmeistari í
kringlukasti, Wolfgang Schmidt frá
Vestur-Þýskalandi, hefur gefið
ákveöið svar um að keppa á mótinu.
Heimsmet Schmidt var á sínum tíma
71,16 metrar og stóð í fimm ár.
Schmidt keppti þá fyrir hönd Aust-
ur-Þjóðverja en féll í ónáö og keppti
ekkert í fjögur ár. Á sl. hausti fékk
Schmidt að flytjast til Vestur-Þýska-
lands og hefur hafið æfingar af full-
um krafti á nýjan leik. Hann á best
í ár 65,84 metra.
Góðar líkur eru á að annar Vestur-
Þjóðverji keppi á mótinu en það er
Alwin Wagner sem á best 64,36 metra
í ár. Á sl. ári var hann í 5. sæti á
heimslistanum yfir kringlukastara.
-JKS
UTANKJÖRFUNDARAT-
KVÆÐAGREIÐSLA
vegna forsetakosninganna 1988 hefst í Ármúlaskóla,
Ármúla 10, laugardaginn 4. júní en ekki mánudaginn
6. júní 1988.
Opið er frá kl. 10-12, 14-18 og 20-22 virka daga.
Á sunnudögum og 17. júní frá kl. 14-18.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík
FRA MENNTAMALARAÐUNEYTINU:
Lausar stöður við íramhaldsskóla.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus til um-
sóknar kennarastaða í þýsku og einnig kennarastaða
í stærðfræði og eðlisfræði.
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla er laus 'A kennara-
staða í vélritun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Plasmaskurðarvélar
frá
mSGRr=ionic
með sjálfvirka
eftirkælingu, brennir
gegnum málaða og
húðaða fleti.
Gæðavélar á
gæðaverði.
PDX 70 sker 12mm (max
20mm) Kr. 133.825,-
PDX 40 sker 5 mm (max
9mm) Kr. 56.313,-
Skeifan 11 - Sími 68 64 66
Pósthólf 8060-128 Reykjavii.
SEBASTIAN
Í HÁRID
*v<*
ALHLIDA HÁRSNYRTING
STEYPUM ACRYLIC NEGLUR
ULJA SVEIN8JÖRNSD.
KRISTÍN ÓSKARSD.
MARTA ÞYR GUNNDÓRSD.
HÁRSNYRTISTOFA
LAUGAVEGI 27. S.26850