Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Síða 34
34
Lífsstfll
Gamalt og nýtt:
FIMMTUD'AGUR'l"JUNÍ'l988.
Öðravísi en aðrir
Þaö er hægt aö kaupa sér fatnað
sem kemur ekki allt of mikið viö
pyngjuna og líta samt sem áður vel
út. Þaö komust þær að raun um, Sig-
rún Hermannsdóttir og Þórey Jóns-
dóttir, þegar þær komu við í verslun-
um Fríðu frænku og Spútnik á Vest-
urgötu 3. Þessar verslanir selja báðar
fatnað sem keyptur er inn í Hollandi
og fluttur hingað til lands. Fríða
frænka selur eingöngu notaðan fatn-
að en Spútnik nýjan.
Rifnu gallabuxurnar kosta 2.500
krónur, toppurinn kostar 2.550 krón-
ur, jakkinn, sem er úr köflóttu ullar-
efni og fóóraóur til hálfs, kostar 2.400
krónur. Alls kostar því fatnaðurinn
7.450 krónur.
Ein flík af sömu gerð
í Fríðu frænku fæst mikið úrval
af alls konar notuðum fatnaði, kjól-
um, buxum, skyrtum, kápum, jökk-
um, skóm, pilsum og svo mætti lengi
telja.
Yfirleitt er ekki til nema ein flík
af hverri gerð og eitt númer. Það
getur því verið dálítið tilviljanakennt
hvað finnst á hvern og einn. En núm-
er eitt tvö og þrjú er að gefa sér góð-
an tíma til að gramsa, máta og skoða
því að flíkunum ægir hreint og beint
saman og fólk verður að gefa sér tíma
til að athuga hvaö er á boðstólum.
í Spúttnik fæst sama flíkin hins
vegar í mörgum númerum og stærð-
um og þar er ágætisúrval af ýmiss
konar fatnaði. Þar fæst til aö mynda
mikið af alls kyns jökkum og buxum.
Vöruvöndun
í sumum tilfellum er erfitt að
henda reiður á því hvaða efni eru í
flíkunum auk þess sem í mörgum
tilfeUum skortir allar leiðbeiningar
um hvernig á að hreinsa eöa þvo
þennan fatnað.
Því skíptir miklu að reyna að gera
sér grein fyrir því hvaða efni eru í
flíkunum. Síöan má athuga hvernig
best muni að hreinsa þær svo að þær
eyðileggist ekki í fyrsta þvotti.
Sá fatnaður, sem seldur er í Fríðu
frænku, er eins og áður sagði notað-
ur og yfirleitt eldri en 25 ára.
Fólk ætti að athuga hvort hann er
mikiö slitinn eða hvort hann lítur
út fyrir að vera nýr. Sé flíkin lítið
slitin og vel saumuð og hafi verið vel
með hana farið er ekkert sem mælir
á móti því að hún endist eins og um
nýja flík sé að ræöa.
Skapa eigin stíl
Það getur oft á tíðum verið góð
Hvit smókingskyrta á 970 krónur, vesti, sem hægt er
að snúa við, á 890 krónur, bindi sem kostar 350 krón-
ur, axlabönd á 500 krónur, smókingstuttbuxur á 1980
krónur og sokkabuxur á 680 krónur. Alls krónur 5.370.
DV-myndir KAE
Jakkinn, sem Þórey klæðist, er úr ull með ekta silki-
fóðri, hann kostar 3.500 krónur. Kjóllinn, sem er úr flau-
eli, kostar 2.800 krónur en skórnir kosta 800 krónur.
Toppurinn, sem Sigrún klæðist, er alþakinn pallíettum
og skreyttur með glitrandi steinum. Hann kostar 3.500
krónur. Buxurnar kosta 900 krónur en jakkinn, sem hún
hefur á öxlinni, er amerískur frá því um 1950. Hann er
úr glansefni og hægt að snúa honum við. Hann kostar
einnig 3.500 krónur. Skórnir kosta 1400 krónur.
Alls kostar þvi fatnaður Þóreyjar 7.100 krónur en það
sem Sigrún klæðist kostar 9.300 krónur.
Rómantíkin allsráðandi. Sigrún er í fóðruðum Ijósfjólu-
bláum kjól með áþrykktum fiðrildamyndum, hann kost-
aði 1800 krónur en slæðan, sem hún hefur i hárinu,
kostar 300 krónur. Pilsið, sem Þórey klæðist, er úr
hvítu bómullarefni með handbróteruðum bekk að neð-
an. Það kostaði 2.400 krónur. Innan undir pilsinu er
hún í Ijósfjólubláu taftpilsi sem kostar 500 krónur. Topp-
urinn, sem hún klæðist við pilsið, er einnig úr hvítri
bómull með blúndubekk i hálsinn og kostar 1200 krón-
ur. Hvítu blúnduhanskarnir kostuðu 150 kr. og hatturinn
1200. Taskan kostaði svo 2.800 krónur. Alls kostar því
fatnaður Sigrúnar 2.100 krónur en það sem Þórey klæð-
ist kostar 5.350 krónur fyrir utan töskuna.
hugmynd að kaupa sér eitthvaö af
notuðum ódýrum flíkum og blanda
þeim saman við þann tískufatnað
sem á boðstólum er. Meö því móti
er oft hægt aö lækka fataútgjöldin
töluvert.
Hægt er að fá allt öðruvísi fatnað
í þessum tveimur verslunum en fæst
víðast hvar annars staðar. Það ætti
því að vera tiltölulega auðvelt að
skapa sér sinn eigin stíl með því að
láta hugmyndaflugið ráöa.
Sami grauturinn
Því heyrist oft fleygt að allir klæði
sig eins. En þeir eru hins vegar til
Einkennisjakki, stór og mikill, á 3.000
krónur.
sem vilja skera sig úr í klæðaburði
og þeir leita til verslana sem selja
annars konar fatnað. En hvað er
„annars konar fatnaður“? Að öllum
líkindum er hann ekki til þvi að þaö
sem þykir hallærislegt í dag þykir
smart á morgun. í fyrra heföi enginn
látið sjá sig í rifnum gallabuxum en
í dag þykir þaö „flott“. Svo er það
spurningin með morgundaginn,
kannski verða allir komnir í gamlar
Álafossúlpur þá.
Hvítir náttkjótar
Þær Sigrún og Þórey byrjuðu á því
að fara í Fríðu frænku og máta fót.
Þar fékkst mikið af hvítum náttkjól-
um af ýmsum gerðum. Margir voru
með blúndum og útsaumi og sumir
voru skreyttir með handbróteruðum
bekkjum að neðan. Vinsælt hefur
verið í vor og sumar að kaupa slíka
náttkjóla til að nota sem venjulega
kjóla. En því miður voru þeir ýmist
of stórir eða of litlir á þær stöllur.
Þar fékkst líka jakki úr ullarefni með
silkifóðri og vakti hann mikla hrifn-
ingu þeirra Sigrúnar og Þóreyjar.
Mikið úrval var af alls konar kjól-
um og samkvæmisfatnaði. Við rák-
umst á ákaflega fallegan flöskugræn-
an kjól með flauelsáferð sem gæti
hafa verið í brúki fyrir svo sem þrjá-
tíu árum eða svo.
Einnig rákumst viö á topp, alsettan
pallíettum, semilíusteinum og ýms-
um glitrandi steinum sem greinilega
var kominn til ára sinna.
Þarna var líka stór karfa með víð-
um buxum með glansáferð. Mjög ein-
faldar að allri gerð og mjóum teygju-
streng. Sigrún var ekki lengi að næla
sér í einar slikar til að nota við topp-
inn. í Fríðu frænku fæst mikið úrval
alls kyns skartgripa. Við rákumst á
plasteyrnalokka og nælur með glitr-
andi gervisteinum. En svo eru einnig
á boðstólum skartgripir úr ekta
málmum.
Rifnar gallabuxur
Þá var haldið niður í Spúttnik og
litið á úrvalið þar. Það fyrsta sem við
komum auga á þar voru smóking-
buxur sem náðu niður á hné. Þær
voru mjög víðar, enda er þeim ýmist