Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Síða 36
-36
'PIMMTUDAGfUR 2. JÚNÍ T988.
Lífsstfll
Veturinn 1988-1989:
Jakkarvinsælir
Jakkar verða mjög vinsælir
næsta vetur ef spár tískusérfræð-
inga rætast. Sniöin verða mjög mis-
munandi en mikiö ber þó á stuttum
aðskomum jökkum, einkum tii að
nota á kvöldin. Stórir jakkar halda
þó velli áfram, þótt ekki verði þeir
jafnvinsælir og stuttu jakkarnir.
Daufir litir
Litirnir eru dempaðir. Gráir,
brúnir og bleikir tónar eru áber-
andi og svart verður vinsælt í
kvöldfatnaöinum. Ýmiss konar
klútar, sjöl og treflar verða notaöir
til aö lífga upp á vetrarfatnaðinn
að deginum og kennir þar ýmissa
grasa, röndótt, rósótt, skræpótt og
einlitt og litirnir eru oft skærir og
fjörlegir, ólikt því sem gerist í dag-
og kvöldfatnaðnum.
Dragt hönnuð af hinum fræga Yves
St. Laurent. Jakkínn er, eins og sjá
má, þröngur, stuttur og aðskorinn.
Stór og efnismikiil jakki úr ull sem
notaður er yfír þröngt og stutt pils.
Hönnuður hans er Perry Ellis.
Dragt úr kasmirull. Eins og sjá má er jakkinn stuttur og aðskorinn og
síddin á pilsinu rétt fyrir ofan hné. Dragtin er hönnuð af Oscar De La
Renta og var sýnd i New York nú fyrr i vor.
Marc Jakobs hannaði þessa glæsilegu samkvæmisjakka og sýndi i New
York nú í vor.
Pilsin sikka
POsin síkka næstá vetur og stystu
pilsin ná niður undir hné svo ganga
allar síddir allt niður á ökkla.
GervieM eiga ekki upp á pall-
borðið næsta vetur, Fótin eiga að
vera úr náttúrlegum efnum, ull,
bómull, leðri og svo framvegis.
Það ættu að vera kærkomnar
fréttir fyrir okkur hér á íslandi að
buxur verða mikið í tisku næsta
Tískan
vetur bæöi sem kvöld- og dagfatn-
aður. Sniðin eru margbreytileg þó
virðast skálmarnar vera aö víkka.
Við buxumar eru mikið notaöir
jakkar og ýmiss konar toppar.
En ef að líkum lætur verður vetr-
artískan fjölbreytt og allir eiga að
geta fúndiö eitthvaö við sitt hæfi.
-J.Mar
Stuttur jakki sem er tekinn saman
í mittinu með belti. Dragtin er úr
þunnri ull og með henni er notað-
ur breiður, röndóttur trefill. Perry
Ellis sýndi þessa samsetningu i
New York i vor.
Armbandsúrin stór og smá
Úr með stórum skifum eru vinsæl um þessar mundir.
DV-myndir KAE
í tískuvöruverslunum er nú hægt
aö fá úr á veröbilinu 1000-3000
krónur. Er hér um að ræða tískuúr
sem í flestum tilvikum em fram-
leidd í Hong Kong og flutt hingaö
í gegnum England. Flest þessara
úra eru quartsúr og ganga fyrir
rafhlöðum. Verslanirnar taka ekki
ábyrgð á þeim, eins og yfirleitt er
gert þegar dýrari úr eru keypt hjá
úrsmiðum.
Þríhyrnd og kringlótt
Mörg þessara úra em mjög falleg.
Skífurnar eru stórar. Oft er að
finna á þeim bæði rómverska og
venjulega tölustafi. Umgjörðin er
oft skreytt ýmiss konar útflúri, svo
og skífurnar. Mest ber á kringl-
óttum úmm með stórri skífu. Auk
þess em á markaðnum þríhyrnd
úr, ferköntuð úr og á einum stað
fundum við sporöskjulagað úr.
Flest úrin, sem við sáum, voru
úr stáli. En svo mátti finna gyllt
úr og sum voru messinglituð.
Mikill verðmunur
Mikill verðmunur getur veriö á
tískuúmm mHli verslana. Við Ht-
um inn í þrjár verslanir og skoðuð-
um úrvalið þar.
í versluninni Herramenn á
Laugaveginum vora til nokkrar
gerðir af úrum og kostuðu aUar
gerðimar 2950 krónur.
í verslunum 17 á Laugaveginum
og í Kringlunni var langfjölbreytt-
asta úrvalið. Þar var hægt að fmna
úr frá 1000 krónum og upp í 3000
krónur - mörg hver iqjög sérstök.
Þar voru meðal annars til þríhymd
úr, úr með tveimur skífum, stór
kringlótt úr og fleiri gerðir. Ýmist
voru úrin í 17 með leðurólum eða
keðjum. í Cosmo í Kringlunni voru
til tvær gerðir af úrum. Önnur
gerðin var til í þremur Htum, tveim
gylltum og einum stáUit með sam-
litri keðju. Þau kostuðu 1590 krón-
ur. Svo var tU ferkantað stálúr og
kostaði það tæpar 3000 krónur.
Þeir sem hyggja á að kaupa sér
tískuúr ættu að fara í fleiri verslan-
ir en eina því það getur munað aUt
að 1500-2000 krónum á mjög svip-
uðum úmm.
Setja svip á klæðnaðinn
Óneitanlega setja slík tískuúr
mikinn svip á klæðnað og útlit
fólks. Þau fara einkum vel við gróf-
ari fatnað, þó það sé hægt að finna
úr sem hægt er aö bera með hvaða
fatnaöi sem er.
En hversu vel tískuúrin endast
skal ósagt látið. Tískan er forgengi-
leg og ef til vill mun enginn láta sjá
sig með armbandsúr með stórri
skífu effir nokkra mánuði.
Úrvaliö af tískuúrum er með ólíklndum fjölbreytt.