Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 16. JTJLl 1988.
Þótt halda mætti að þessi væri latur vegna óburstaöra skónna þá mætti frekar segja aö hann væri hirðulaus.
Latur maður mundi aldrei nenna að klæða sig i svona bomsur. - Svolítið kærulaus en er sennilega ekkert að spá
í hvað öðrum finnst og lætur notagildið ráða. Kaupir skó sem hann notar allan ársins hring i mörg ár. - Gefur til
kynna ákveöna, innibirgða reiði. Líklega laumukommi. Þessi maður getur verið til alls vis. Margir myndu van-
treysta honum.
Sá sem vonar að sér falli velgengni i skaut. Klæðist eins
og tískan býður og vonar að fólk veiti sér eftirtekt. -
Maður sem vill vera töffari, gljáfægður og er yfirborðs-
kenndur. - Sterkur persónuleiki. Jafnvel skapofsamaður.
Uppstökkur. Sparkar frá sér og slær menn ef hann
mætir andstreymi.
Sá þreytti. Að öllum líkindum þunglyndur. - Þessúm er
sama. Er líklega listmálari og hefur enn rauðvínið frá
kvöldinu áður i „kerlinu". Þjáist af minnimáttarkennd. -
Fremur yfirborðskenndur en mjúkur inn við beinið. Eyö-
ir ekki peningum i föt en er líklegur að eyða þeim í
aðra vitleysu. - Afslappaður og hefur ekki áhyggjur af
útlitinu.
Þessi stúlka er framhleypin og ágjöm. Hugguleg úr
fjarska en gæti verið með örlitla minnimáttarkennd. -
Leitar í fataskáp afa og ömmu til að reyna að vera öðru-
visi. Finnst tiskan i dag „hallærisleg". - Myndarleg kona
í sumarskapi. Skómir mættu vera hreinni. Ekki nægilega
hirðusöm, svolitið stressuð.
Snobbuð. Ósjálfstæð i hugsun. Duttlungafull. - Þessi vill
vera fin á háhæluðum skóm en vill þó hafa þá sæmilega
þægilega. Henni er annt um heilsu sína því hún er í
þykkum sokkum í háhæluðum skóm, þrátt fyrir aö það
sé hræðilega púkó. - Ung kona, húsmóðir, slétt og felld.
Skómir koma
upp um þig
- fótabúnaðurinn lýsir persónu fólks
Skomir sem við göngum í segja
heilmikið, ef ekki allt, um hvaða
manneskju við höfum að geyma.
Svo er að minnsta kosti áht margra
og víst er að mikið er til í því.
Skór setja endapunktinn á klæðnað
fólks og framkomu. Með skófatnað-
inum gefum við upp ákveðna mynd
af okkur sjálfum.
„Hann var ósköp myndarlegur og
almennilegur í fyrstu viðkynningu.
En þegar hann stóð upp og skórnir
hans komu í ljós þá hrundi allt sam-
an. Ijósbleikir skór við grænar bux-
ur. Þessi maður var ekki fyrir mig.“
Með skónum undirstrikum við per-
sónu okkar og segjum öðrum hvað
við viljum vera. Skórnir koma alltaf
upp um fólk. Þeir eru leiðarvísir að
innri manni fólks.
Skór geta látið okkur líða betur,
eða verr eftir atvikum. Sálfræðingar
segja að skór geti gefið til kynna
hvers konar mynd við viljum að hitt
kynið fái af okkur. Þaö er að segja
hvaöa augum við lítum okkur sjálf
sem kynferðislegar verur. Til dæmis
þykja opnir leöurskór meira „sexý“
en kínaskór, og mokkasínur frekar
en „bomsur". Litur skónna skiptir
líka töluverðu máh. Svartir og brún-
ir skór hafa óhk áhrif og rauðir eða
hvítir.
Helgarblaöið efndi tii smá „rann-
sóknar“ á þessu alvarlega máh og
dreif sig með ljósmyndara niður í
Austurstræti einn bhðviðrisdaginn í
vikunni. Þar voru myndaðir skór
þeirra sem trítla um götur borgar-
innar, skór af hinum ýmsu gerðum.
Enda er það fjölbreytilegur hópur
fólks sem arkar um strætin.
Skipuð var sjö manna dómnefnd
sem fékk myndirnar af skónum til
athugunar og reyndi að persónugera
manneskjuna sem var að baki viö-
komandi skóm. Með þessum hætti
kom í Ijós hve skór segja í raun mik-
ið um eigandann og notandann en
geta þó virkað mismunandi á annað
fólk, eins og vera ber.
-RóG.
Ósmekkleg en þægileg. Lífsgæðakapphlaupið snertir hana ekki. Hagsýn
og lífsglöð. Ákveðin og formföst. Þykku sokkarnir benda til ákveðinnar
hagsýnnar hugsunar. - Hún veit aö hér er allra veðra von. Léttu sandalarn-
ir benda þó til ákveðins léttlyndis. - Náttúruunnandi. Sveitastúlka að eðli
en hefur villst á mölina. Vill láta sér líða vel í fatnaðinum en er dálitið á
kant við útlitið sem hún er að reyna að skapa sér.
Leiðindagaurinn. Skómir eru svo vel burstaðir og glansandi aö viðkom-
andi hlýtur að vera i meira lagi smámunasamur og eftir því þröngsýnn.
Sennilega sjálfstæöismaður. - Hagsýnn maður sem hefur fjárfest í notaleg-
um og sæmilega sterkum skóm á útsölu. - Snyrtilegur hippi. - Passar að
enginn geti fundið höggstað á sér. Líklega með minnimáttarkennd. - Bein-
skeyttur viðskiptamaður sem horfir á útlínur kvenþjóðarinnar í matartiman-
um. - Giftur.
Þessar I kfnaskónum vilja vera öömvfsi en aðrir og vekja athygll á sér. Frekar, en gætu verið skemmtilega frekar.
- Kínaskór bera ekkl vott um þroskaðan listrænan smekk. Þelr sem klæöast slikum skóm eru þeir sem hugsa
meira um notagildi hlutanna en fagurfræðllegt gildi þeirra. - Frjálslegur hugsanagangur fylgir þeim sem klæðast
kínaskóm. - Óstressaö skólafólk sem notar liklega skóna lika sem inniskó.
DV-myndir JAK