Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
Sérstæð sakamál
Morðinginn hafði
handjárnin tilbúin
Þau voru hins vegar úr sykri og
voru skreyting á afmælistertu. Lög-
reglan kom aftur meö handjárn úr
haldbetra efni eftir að ný vísindaupp-
götvun geröi henni kleift aö finna
manninn sem hafði myrt tvær ungar
stúlkur eftir aö hafa misboðið þeim
gróflega.
Hvaö áttu þeir sameiginlegt, maö-
urinn sem ekið haföi með grátandi
barn í aftursætinu á bíl sínum og
visindamaöurinn sem sat viö smá-
sjána í rannsóknarstofu sinni? Þeir
höíöu aldrei séð hvor annan en nöfn
þeirra verða oft nefnd í sömu and-
ránni sakir uppgötvunar sem er talin
ein sú merkasta, ef ekki sú almerk-
asta, á sviöi afbrotafræðinnar á þess-
ari öld því aö hún gefur öruggari
vísbendingar um glæpamenn en
fingraför. Sagan af mönnunum
tveimur verður nú sögð hér á eftir.
Tvö morð
Framin voru tvö morð í greiía-
dæminu Leicester á þremur árum
og ollu þau rannsóknarlögreglunni
þar miklum heilabrotum. Það fyrra
var framiö kalt nóvenjberkvöld 1983.
Þá var fimmtán ára skólastúlka,
Lynda Mann, á leiö heiman að frá
sér í smábænum Narborough til þess
að heimsækja vinkonu sína í ná-
grannabænum Enderby. Hún komst
aldrei á leið'arenda og alla nóttina
stóð yfir leit að henni. Daginn eftir
fannst svo lík hennar á fáförnum
stíg.
Tæpum þremur árum síðar var svo
framið annað morð á þessum slóðum
og var margt likt með þvi og fyrra
morðinu. í það sinn var fómardýrið
fimmtán ára gömul stúlka, Dawn
Ashworth frá Enderby. Lík hennar
fannst 2. ágúst 1986 á stíg milli bæj-
anna tveggja.
Kynferðisglæpir
Ljóst var að kynferöislega brengl-
aður maður hafði verið að verki í
bæði skiptin. Lynda Mann haföi orð-
ið fyrir heiftarlegri líkamsárás og
hlotið marga áverka en síöan hafði
henni verið nauðgað og þar á eftir
hafði vasaklút hennar verið brugöið
um háls hennar og hún kyrkt. Lynda
hafði verið lagleg og kát stúlka og
lögreglunni tókst ekki að finna neitt
sem bent gat til þess hver morðing-
inn var. Það eina sem hugsanlega gat
komið henni á sporið var dáhtill
sæðisdropi sem fannst á jöröinni viö
hliö líksins. Var hann vandlega
geymdur.
Er leit varð gerð á staðnum þar sem
lík Dawn Ashworth fannst var sæðis-
dropi sömuleiðis eina hugsanlega
vísbendingin. Var hann sömuleiðis
tekinn til geymslu.
Colin Pitchfork. Myndin er tekin á brúðkaupsdaginn.
Handtaka
Nokkru eftir að síðara morðið var
framið var því veitt athygli að ungur
maður, Richard nokkur Buckland
frá Leicester, tók að venja komur
sínar á staðinn þar sem lík Dawn
Ashworth haföi fundist. Lögreglan
tók hann til yfirheyfslu enda grnnaði
hún hann um bæði morðin. í fram-
haldi af handtökunni voru bæði sæð-
issýnin og blóösýni send til vísinda-
manns við Leicesterháskólann, Dr.
Ians Jeffreys, en hann haföi þá fyrir
skömmu gert mjög merka uppgötv-
un. Honum haföi tekist aö sýna fram
á að íkonin í deoxyríbósakjamsýru,
DNA, hvers einasta einstaklings hafa
að geyma sérstakt táknróf sem er
mismunandi hjá hverjum og einum
og getur því veriö nákvæmari vís-
bending en fingraför. Eru líkumar á
því að vísbendingin sé röng aðeins
ein á móti tuttugu og fimm milljón-
um. Það er því ekki að furða þótt
margir telji þetta merkustu upp-
götvun á sviði afbrotafræðinnar á
þessari öld.
Meira um uppgötvunina
Til þess að hagnýta megi þessa
nýju uppgötvun til að finna glæpa-
mann eða staðfesta hver einhver er
dugar að fyrir hendi sé sýni af blóði,
hári eða sæði. Meira að segja eitt ein-
asta hár af höföi manns dugar því
að DNA-sameindimar hafa sérstaka
byggingu hjá hverjum og einum.
Stafar það af því að DNA, efni íkon-
anna eða genanna, ræður röð núkle-
tíða innan kjarnsýrusameinda sem
myndast í viök'omandi frumu. Mögu-
legt er að ljósmynda DNA-mynstrin
og nota myndirnar til samanburðar,
rétt eins og gert er þegar tölvur era
látnar vinna úr strikum á vörum sem
seldar em í matvöruverslunum og
víðar.
Ekki sá seki
Þegar Dr. Jeffreys hafði rannsakaö
sýnin þijú sem honum vom send
lýsti hann því yfir að Richard Buck-
land, ungi maðurinn sem handtek-
inn hafði verið, gæti ekki verið sá
seki. Ljóst væri hins vegar að sami
maður heföi myrt bæði Lindu Mann
og Dawn Ashworth. Buckland var
látinn laus og beðinn um að blanda
sér ekki frekar í málefni lögreglunn-
ar en í yfirheyrslum haföi hann þá
játað á sig bæði morðin. Lögreglan
var því engu nær en hún haföi verið
fyrir handtöku hans.
5.500 blóðsýni
Allir karlmenn á aldrinum þrettán
ára til fimmtugs í héraðinu vom nú
hvattir til þess að láta taka úr sér
blóðsýni. Alls gáfu 5.500 sig fram en
tveir menn neituðu að láta taka úr
sér blóð. Bar annar þeirra við trúar-
legum ástæðum en hann haföi fjar-
vistarsannanir þau kvöld sem morð-
in höfðu verið framin. Hinn maður-
inn var Colin Pitchfork, tuttugu og
sjö ára bakari sem vann í smábænum
Littlethorpe skammt frá Narborough
og Enderby. Hann var kvæntur og
átti tvo drengi en sá yngri þeirra
hafði fæðst aðeins tveimur mánuð-
um áður en Lynda Mann var myrt
árið 1983. Lögreglan haföi reyndar
látið sér til hugar koma að hann
kynni að vera sá seki þvi að hann
hafði tvívegis verið handtekinn fyrir
annarlegt framferöi við stúlkur sem
hann mætti á fáförnum stöðum.
Pitchfork margneitaði að láta taka
úr sér blóðsýni. Dag einn kom hann
hins vegar til vinnufélaga sinna og
konu, Carol, og sagði aö hann hefði
farið til læknis til þess að láta taka
úr sér blóðsýni. Var hann með htinn
plástur á handleggnum og undir hon-
um var nálarstunga.
Dr. Jeffreys rannsakaði sýnið en
komst að þeirri niðurstöðu að Pitch-
fork væri ekki sá sem lögreglan væri
að leita að. Vakti það mikla undrun
rannsóknarlögreglumannanna sem
vom er hér var komið famir að
gruna Pitchfork sterklega um að
vera sá seki.
Blóðsýnið haföi hins vegar hreins-
að Pitchfork gersamlega af öllum
grun. *
Vinargreiði
Einn af starfsfélögum Colins Pitch-
forks í bakaríinu var Ian Kelly, tutt-
ugu og þriggja ára. Voru þeir góðir
vinir. Eitt kvöld í september í fyrra,
er Pitchfork var einn við eftirvinnu,
fór Kelly með nokkrum vinum sínum
á krá. Þegar hann hafði fengið sér
dálítið neðan í því losnaði um mál-
beinið á honum og hann fór að tala
um hve góð vinátta hans og Pitch-
forks væri.
Kelly sagði nú svo frá að Pitchfork
heföi veriö hræddur við að láta taka
úr sér blóðsýni af því að hann heföi
tvívegis komist í kast við lögregluna
og því óttast að hann yrði sakaður
um moröin á stúlkunum tveimur.
Þess vegna heföi hann beðið sig um
að fara fyrir sig til læknis til þess að
láta taka úr sér blóðsýni í hans stað.
Kvaðst Kelly hafa gert það.
IanKelly var ekki einn af þeim sem
áður höfðu látið taka úr sér blóð í
sambandi við rannsókn málsins því
að hann bjó utan þess svæöis sem
lögreglan hafói afmarkað. Áöur en
hann fór til læknisins haföi Pitchfork
sagt honum eitt og annað um íjöl-
skyldu sína og loks sett mynd af sér
í persónuskilríki hans. Með þau hélt
Kelly svo til læknisins og blóðsýnis-
tökunnar.
Félögum Kellys fannst mikið til um
söguna og hún greinilegt merki um
sterka vináttu. En rétt hjá ungu
mönnunum sat stúlka sem heyrði á
tal þeirra og hún hélt beint til lög-
reglunnar.
Síðasta kakan
Kelly var nú handtekinn og stað-
festi hann þá fyrri frásögn sína. Þá
kom röðin að Pitchfork. Er komið
var heim til hans sagði kona hans
að hann væri við vinnu í bakaríinu.
Þar reyndist hann vera að leggja síð-
ustu hönd á afmælistertu sonar lög-
regluþjóns en hún var skreytt með
handjámum og lögregluhjálmi úr
sykri.
Það voru aftur á móti önnur og
sterkari handjám sem lögð voru á
Colin Pitchfork. Og þegar honum var
sagt frá hverju Kelly heföi skýrt varð
honum ljóst aö honum væri ekki
lengur stætt á því að segja ósatt og
játaði hann á sig bæði morðin. Er
kona hans kom svo á fund hans varð
lögreglan að veija hann fyrir henni
því reiði hennar var svo mikil.
Með barn í aftursætinu
Kvöldið sem Cohn Pitchfork myrti
Lyndu Mann haföi hann verið nýbú-
inn að aka konu sinni í kvöldskóla
og var hann með tveggja mánaða son
þeirra í aftursggtinu er hann lokkaði
Lyndu inn í bílinn, réðst á hana,
nauðgaði og kyrkti síðan rétt hjá
bílnum. Einn hafði hann þó verið er
hann myrti Dawn Ashworth.
Við yfirheyrslur kom fram að Colin
Pitchfork var eitt sinn búinn að
lokka þriðju stúlkuna, átján ára
gamla, inn í bíl sinn og ætlaði að fara
eins með hana og hinar tvær er hon-
um varð litið á úrið og sá að hann
yrði of seinn í kvöldmat en kona
hans var mjög ströng við hann ef
hann kom of seint heim í kvöldmat.
Varð það til þess að þessi unga stúlka
slapp lifandi frá honum því að hann
lét hana fara frá sér til þess að geta
haldið beint heim.
Ævilangt fangelsi var dómurinn
sem Cohn Pitchfork fékk. Otton dóm-
ari sagði er hann kvað upp dóminn:
„Hefði dr. Jeffreys ekki gert þessa
dásamlegu uppgötvun sína gengir þú
laus.“
Mál þetta hefur fengið mikla um-
fjöllun í fjölmiðlum. Þessari nýju
tækni er nú beitt í Bretlandi til þess
að reyna að upplýsa um fimmtíu mál
sem ekki hafði tekist að leysa og á
næstunni verður hún tekin í þjón-
ustu rannsóknarlögreglunnar í
mörgum öðmm löndum.