Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
45
DV
íþróttapistill
Einari rétt
hjálparhönd
Líf landsliðsmanna okkar í
handknattleik er ekki dans á rós-
um þessa dagana. Sem kunnugt
er tekur liðið nú þátt í alþjóðlegu
móti í Austur-Þýskalandi en jafn-
framt mótinu eru stundaðar erf-
iðar æfingar. Þegar þetta er skrif-
að hafa Islendingar leikið einn
leik á mótinu. Tap gegn Austur-
Þjóðverjum með einu marki á
þeirra heimavelli eru í raun mjög
svo viðunandi úrsht fyrir okkar
menn þó auðvitað sé adltaf stefnt
að sigri.
Staðreyndin er hins vegar sú
að enn eiga landsliðsmenn okkar
langan veg fyrir höndum áður en
að ólympíuleikunum í Seoul
kemur í september. Úrslitin í
leikjunum í Austur-Þýskalandi
skipta í raun engu máli og því er
ekki ástæða til svartsýni þó sigr-
ar hafi látið á sér standa í yfir-
standandi keppnisferð landsliðs-
ins.
Viðtal í DV ýtti við forráða-
mönnum KRON
Fyrir um ári birtist á íþrótta-
síðu DV viðtal við spjótkastarann
Einar Vilhjálmsson. Eins og
gjarnan í viðtölum var rætt um
heima og geima: í viðtalinu í DV
á sínum tima kom fram aö Einar
starfaði í lögreglunni samfara því
að æfa íþrótt sína. Að sögn ísólfs
Gylfa Pálmasonar hjá KRON
(Kaupfélagi Reykjavíkur og ná-
grennis) vakti þetta viðtal DV við
Einar athygli manna þar á bæ og
skömmu síðar ákvað KRON að
styrkja Einar með Ijárframlög-
um.
Samningurinn endurnýjað-
ur
í vikunni var síðan gengið frá
endurnýjun á samkomulagi á
milli Einars og KRON sem felur
í sér áframhaldandi fjárstuðning
KRON viö spjótkastarann. Mikið
mega þetta vera gleðileg tíðindi
fyrir Einar og okkur öll sem fylgj-
umst með frammistöðu hans, full
af spennu, stolti og kröfum. Hing-
að til hefur Einar séð um að við-
halda þessum þremur þáttum í
hugum.allra landsmanna og víst
er að styrkurinn rausnarlegi frá
KRON mun ekki verða til annars
en að Einar leggi enn harðar að
sér og um fram allt: að hann eigi
auöveldara með að stunda íþrótt
sína. Risavaxiö framtak KRON
er glæsilegt og vonandi verður
það til þess að aðrir aflögufærir
aðilar beini buddum sínum að
íslenskum íþróttamönnum í
fremstu röð á næstunni.
Lofsvert framtak í
Hvammsvík
Eins og fram hefur komið á
íþróttasíðu DV er hafið lengsta
golfmót íslandssögunnar í
Hvammsvík í Kjós. Þar munu all-
ir bestu kylfmgar landsins reyna
með sér í sérkennilegu móti.
Móti sem er sérkennilegt fyrir
þær sakir annars vegar að standa
yfir frá 12. júlí til 18. september
og hins vegar fyrir afar glæsileg
verðlaun og reyndar glæsilegri
en áður hefur verið hér á landi.
Keppt er í þriggja manna riðlum
og þrír efstu riðlarnir leika síðan
til úrslita á stórfenglegum golf-
velh í Skotlandi í haust. Þá gefst
kylfingum kostur á að vinna sér
inn glæsivagna frá Sveini Egils-
syni, Ford Bronco eða Mercury
Topaz og hnattreisu með Flug-
leiðum með því að fara holu í
höggi á tveimur brautum vallar-
ins í Hvammsvík í Kjós. Og það
sem er kannski merkilegast við
þetta merkilega mót er að þátt-
takendum gefst kostur á að keppa
aftur og aftur til 18. september.
Skemmtileg nýbreytni hjá Óla
Skúla í Laxalóni.
Fá mörk skoruð á rás 2
Ekki er það í frásögur færandi
að ég var á dögunum að horfa á
Sjónvarpið. Birtist þá allt í einu
auglýsing frá rás 2 og var þar
sérstaklega veriö að auglýsa
íþróttarásina sem er sérstakur
þáttur á rás 2 þar sem fjallað er
um íþróttir og íþróttaviðburði.
Einn íþróttafréttamanna ríkis-
sjónvarpsins kom fram í auglýs-
ingunni og lofaði hann „íþrótta-
rásina“ mjög.
5. júli fóru fram sjö_ leikir í
Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Athug-
ið sjö leikir. Ég .var á vakt þetta
kvöld og þegar líða tók á kvöldiö
fór ég fljótlega aö taka eftir því
að símhringingar ágerðust, þar
sem fólk úti í bæ lýsti yfir megnri
óánægju með þaö að ekki heyrð-
ist hósti né stuna frá íþrótta-
fréttamönnum ríkissjónvarpsins.
Mjólkurbikarinn - Rás 2
29:0
í auglýsingunni, sem áður er
vitnað í, var því beint til almenn-
ings að réttast væri að hlusta á
íþróttarásina á rás 2. Og sagt var:
„Hlustið á íþróttarásina á rás 2
þar sem mörkin eru skoruð.“
Nú vildi svo til að kvöldi 5. júlí
að hvorki fleiri né færri en 29
mörk voru skoruð í bikarleikjun-
um sjö. Ekkert þeirra var skorað
á rás 2.
Stjörnur mæta í Laugardal-
inn
Það hefur víst ekki farið fram-
hjá neinum að búið er að draga í
Evrópukeppnunum í knatt-
spyrnu.' Valur og Fram duttu í
lukkupottinn að þessu sinni en
Skagamenn voru óheppnir og
eiga alla mína samúð.
Reyndar var kominn tími til að
flestra mati að Fram fengi þekkta
og snjalla mótherja. Koma
spánska liðsins Barcelona er
hvalreki á fjörur knattspyrnu-
unnenda og sömuleiðis koma
franska liðsins Mónakó sem
mætir Val. Skagamenn eiga
eflaust mesta möguleika á að
komast áfram í Evrópukeppninni
en þeir leika nú í UEFA-keppn-
inni. Þeir drógust gegn ung-
verska liðinu Ujpest Doza.
Stefán Kristjánsson
• Einar Vilhjálmsson spjótkastari og isólfur Gylfi Pálmason, fulltrúi KRON, innsigla stórglæsilegan stuöning
KRON við Einar Vilhjálmsson.
DV-mynd GVA
LAUSAR KENNARASTÖÐUR
Tvo kennara vantar aö Reykholtsskóla í Biskups-
tungum. Meðal kennslugreina íþróttir.
Upplýsingar veita Unnar Þór í síma 98-68831 og Þor-
finnur í síma 98-68863.
ÞROSKAÞJÁLFAR
Svæðisstjórn málefna fatlaðra, Austurlandi, auglýsir
eftirtaldar stöður lausar til umsóknar, frá hausti eða
eftir nánara samkomulagi.
2 stöður deildarþroskaþjálfa í þjónustumiðstöðinni
Vonarlandi, Egilsstöðum, 1 staða deildarþroskaþjálfa
á sambýlinu Stekkjartröð 1, Egilsstöðum. Aðstoð við
útvegun húsnæðis. Nánari upplýsingar um starfsvið
og starfstíma gefa forstöðumaður Vonarlands í síma
97-11577 á skrifstofutíma og forstöðumaður sam-
býlis í síma 9711877 frá kl. 8 til 13. Umsóknir ósk-
ast sendar á sömu staði.
JEPPAEIGENDUR-
ATHUGIÐ
Nýkomnar svart-
ar brettaútvíkk-
anir á Pajero og
Trooper, útveg-
um einnig á aðrar
jeppategundir.
/4©,
Bifreióaverkstæói Tcmgaihðföa 8-12
'Arna Gislasonar hf
HEILOÆRSLUN VIDGERDIR BIMBGA Og (91) 685504
OPNUNARTÍMI
SMÁAUGLÝSINGA:
Virka daga kl. 9-22,
laugardaga kl. 9-14.
sunnudaga kl. 18-22
★ Afsöl og sölutilkynningar bifreiða.
★ Húsaleigusamningar (löggiltir).
★ Tekið á móti skriflegum tilboðum.
SÍMINN ER 27022. UV
^ ,5
KVARTMILUKEPPNI
VERÐUR HALDIN
sunnudaginn 1 7. júlí kl. 14.00 á
kvartmílubrautinni við Straumsvík.
Keppt verður í öllum flokkum.
Keppendur mæti fyrir kl. 12.00.