Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Side 38
áO LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988. Dræm aðsókn ferðamanna á Suðurlandi: Gisting hækkað um 40% á einu ári Sumarhúsin á Hellu eru vistlegur kostur fyrir ferðamenn á Suðurlandi. DV-mynd Brynjar Gauti „Þetta hefur farið hægt af stað og lítið hefur verið um lausarennirí enn sem komið er. En við eigum enn eftir að fá skipulagðar hóp- ferðir,“ sagði Einar Kristinsson, eigandi Gistihússins Mosfells á Hellu. Ferðamennskan á Suðurlandi 'hefur byrjað heldur dræmt að sögn hótel- og gististjóra sem DV hafði samhand við. Þeir töldu að bæði hefði veðrið spilað hér inn í og einnig aö gisting og veitingar á íslandi væru í dýrari kantin- um. „Síðastliðin 2-3 ár hafa verið mjög góð hvaða varðar fjölda ferða- manna en hækkun á innlendum kostnaðarliðum hefur haft það í íor með sér að allt hefur hækkað mik- ið,“ sagði Einar. Hann tók sem dæmi að á einu ári hefði gisting hækkað um 40%. „Þetta er einfald- lega of dýrt. Ferðamenn voru um 20% færri í maí en á sama tíma í fyrra en voru þó færri þá en árið þar á undan,“ sagði Einar. „ís- lenska krónan er verðmæt að okk- ar mati en ekki annarra og fólk vill ekki kaupa svo dýra gistingu sem við bjóðum upp á.“ Bjóða hótelherbergi og sumarhús Gistihúsið Mosfell býður ferða- mönnum upp á hótelherbergi eða lítil sumarhús. Sumarhúsin, sem eru alls 13 talsins, eru misstór. Minnsta húsið hefur svefnpláss fyrir 4 og kostar 1.950 krónur á dag. í húsinu er eldunarhella en snyrtiaðstaða og böð eru í sérhúsi. Næsta stærð af sumarhúsum hýsir einnig fjóra og býður upp á bæði snyrtiaöstöðu og eldunaraöstöðú í húsinu. Daggjald er 3,100 krónur. Stærstu húsin hafa gistiaðstöðu fyrir 6 í tveimur herbergjum. í húsunum er sturta og eldunarað- staða og kostar dagurinn 4.600 krónur. Minnstu húsin hafa raf- magnshita og ljós en þau stærri rafmagn og hitaveitu. Tjaldstæði er rétt hjá húsunum og er bæði eldunaraðstaða og snyrtiaðstaða fyrir tjaldgesti í stóru og rúmgóðu húsi á svæðinu. -StB ÍS SUMARHUS LEIÐ TIL AÐ LÁTA SUMARFRÍIÐ ENDAST ALLT ÁRIÐ! Kostir þess að eiga sumarhús eru fjölmargir. Þú getur hvílt þig og notið lífsins fjarri látum þéttbýlisins. Þú getur farið út úr bærrum fyrirvaralaust, þegar þér hentar og að auki ertu laus við allan farangurinn sem útilegum fylgir. Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar * hefur unt árabil framleitt glæsileg sumarhús, sett saman úr einingum. Húsin eru heilsárshús sem þýðir að mjög er vandað til einangrunar, samsetningar og alls frágangs. Sumarhúsin frá Trésmiðju Guðmundar Friðrikssonar eru á hagstæðara verði en þig grunar. Hafðu samband við okkur hjá TGF og við sendum þér bæklinga með nánari upplýsingum um verð og kjör. Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar, Sólvöllum 8,-350 Grundarfjörður. Sími: 93-86995. - segja andfætlingar í fískvinnu Hvað rekur ungar stúlkur yfir hálfan hnöttinn í fiskvinnu vestur á fjörðum? Peningar og ævintýraþrá er svarið, ef marka má orð Kim Pik- SMÁAUGLÝSINGAR Mánudaga — föstudaga, 9.00 - 22.00 Laugardaga, 9.00 - 14.00 Sunnudaga, 18.00 - 22.00 Þverholti 11 s: 27022 her frá Nýja-Sjálandi og Yvett Hug- hes frá Ástrahu. Þær réðu sig í fisk- vinnu á Bíldudal í vor og hyggjast vinna í fiski fram að áramótum. „Við vorum á ferðalagi og komnar til Bretlands þegar við ákváðum að taka tilboði um vinnu á íslandi. Hér fáum við betri laun en í Bretlandi og meiningin er að safna peningum fyrir áframhaldandi ferðalagi. Ætl- unin er að fara til Rússlands, suður Asíu og svo heim. Það stendur reynd- ar til að koma hingað aftur að loknu ferðalagi, líklega komum við aftur um áramótin 1990-1991,“ sögðu Yvett og Kim. - Og hvernig líkar á Bíldudal? „Það er alveg frábært að vera hérna. Fólkið er mjög vinsamlegt og hefur afslappaö viðhorf til lífsins. Og ég hef hvergi komist í betri mjólkur- vörur,“ segir Yvett, „osturinn hrein- iega bráðnar uppi í manni.“ Stöllumar kvörtuðu þó undan einu, húsnæðinu, sem hýsir farand- verkafólkið, það væri ómögulegt vegna þrengsla og aðstöðuleysis. Þær _ hafa borið upp vandkvæði sín viö Fiskvinnsluna og vonast til að að- búnaðurinn verði bættur. Kim og Yvett eru ánægðar með allt nema húsnæðið sem sést i baksýn. DV-mynd PV Gottfólkoggóður ostur á Bíldudal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.