Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Qupperneq 39
LAUGARDAGUH 16. JÚLÍ 1988.
51
Kvikmyndir
rammann út fyrir sviðið þannig að
leikstjóri myndarinnar birtist og
skammar Roger kanínu fyrir leik
hans í atriðinu. Lífið er erfitt þessa
dagana fyrir Roger. Haim virðist
hafa misst leikarahæfileikana eftir
að hann sleit samvistum við hina
kynþokkafullu konu sína, Jessicu.
Þetta er grunnminn sem handrita-
höfundarnir Jeffrey Price og Peter
S. Seaman byggja framhaldið á þeg-
ar Roger er sakaður um morð sem
hann framdi ekki. Framhaldið er
síðan sett fram í ekta Raymond
Chandler-stíl þegar Roger leitar
hjálpar hjá drykkfelldum einka-
spæjara sem léikinn er af Bob
Hoskins. Síðan bætist við hæfileg-
ur hópur illmenna og glæpamanna
sem þeir félagar verða að beijast
gegn til að sanna sakleysi Rogers.
Tæknilegt undur
Gífurleg vinna hggur að baki gerð
svona myndar. Teiknimyndafígúr-
umar voru allar teiknaðar inn eftir
að búið var að kvikmynda atriðin
Kvikmyndir
Baldur Hjaltason
með leikurunum. Reyndist mörg-
um erfitt að leika á móti persónu
sem hann sá ekki og einnig aö stilla
og samhæfa atriðin þannig áð leik-
arinn liti í augu teiknimyndafígú-
mnnar í réttri hæð. Þetta var mik-
ið þolinmæðisverk og sérstaklega
reyndi mikið á Hoskins. í sumum
tilvikum vom notaðir staðgenglar
í stað teiknimyndafígúranna til
þess að leikamir hefðu einhvem
til að horfast í augu við. Þetta varð
þó að gerast þannig að staðgengl-
arnir sæjust aldrei á hvíta tjaldinu.
Þetta gekk svo langt að Hoskins var
farinn að sjá teiknimyndafígururn-
ar heima hjá sér og raunar hvar
sem hann fór.
Framtíðin
Við stjórnvöhnn er leikstjórinn
Robert Zemeckis og er þetta fyrsta
myndin sem hann gerir eftir hina
geysilega vinsælu mynd sina, Back
to the Future, en sú mynd aflaði
mestra tekna árið 1985. Honum
ferst leiksfjórnin vel úr hendi og
sama má segja um hlut teiknar-
anna og þeirra sem stýrðu tækni-
lega hlutanum. Nú eru hafnar sýn-
ingar í Bandaríkjunum á Who
Framed Roger Rabbit, að því er
virðist við góða aðsókn. Það hefur
verið lagt gífurlega mikiö í að
kynna myndina enda mikhr fjár-
munir í húfi. Framleiðendur
myndarinnar eru búnir að tengja
Roger kanínu við Macy’s, Coca
Cola og MacDonalds, svo eitthvað
sé nefnt. Ef myndin slær í gegn
má búast við að leikfangaverslanir
verði yfirfullar af brúðum, leik-
fóngum og ýmsu öðru sem tengist
myndinni. Geta framleiðendur
fengið að nota nafn Rogers kanínu
á vörur sínar gegn ákveðnu gjaldi.
Gott dæmi um svona verslun er
Star Wars myndirnar og svo E.T.
Talið er að tekjur af þessari leigu
geti verið jafnmiklar og af sýningu
myndarinnar þegar upp er staðið.
Eru framleiðendur að gæla við þá
hugmynd aö Roger kanina muni
skjóta öhum öörum myndum ref
fyrir rass hvað þetta snertir. Hver
veit nema Roger kanína eigi eftir
að verða einn af styrkjendum
ólympíuleikanna?
B.H.
Heimildir: Variety/Starlog/Time
Upphafið
Rekja má upphafið að Who
Framed Roger Rabbit til ársins 1981
þegar Walt Disney fyrirtækið til-
kynnti aö það hefði ákveðið að gera
teiknimynd sem væri byggð á sögu
Garys Wolf, Who Censored Roger
Rabbit. Hins vegar lenti Disney fyr-
irtækið í margvíslegum fjárhags-
og stjómunarlegum erfiðleikum
næstu árin þannig að lítið fór fyrir
undirbúningnum þangað th 1986
þegar fyrirtækið Amblin Enterta-
inment, sem er í eigu Stevens Spiel-
Teiknimyndir hafa löngum verið
vinsælar meöal bama. Að vísu hafa
fullorönir lúmskt gaman af mörg-
um þessara mynda, eins og t.d.
Bleika pardusnum, án þess að hafa
hátt um það. í teiknimyndum má
fara frjálslega með efnisþráðinn og
gefa ímyndunaraflinu lausan
tauminn enda byggjast margar
teiknimyndir á ævintýrum. Það er
einnig auðvelt að teikna ýmsa at-
burði og thvik sem ekki væri
tæknhega hægt að útfæra ef um
hefðbundna kvikmynd væri aö
ræða. Þannig hefur teiknimyndin
ákveðna sérstöðu gagnvart leikn-
um myndum. Frumkvöðuhinn í að
gera teiknimyndir vinsælar á
heimsmæhkvarða var Walt Di-
sney. Hann var bandarískur teikn-
ari sem fann að þörf var fyrir
teiknimyndir og skapaði margar
ógleymanlegar teiknimyndaper-
sónur, svo sem Mikka mús og
Andrés önd. Hann sendi frá sér
fyrstu teiknimynd sína árið 1928
og síðan fylgdi í kjölfariö fjöldinn
ahur af síghdum myndum eins og
Fantasia, Lady and the Tramp og
The Jungle Book. Þótt Disney hafi
látist um aldur fram var hann, þeg-
ar hann féh frá, búinn að koma upp
miklu fyrirtæki sem hélt áfram
nafni hans á lofti.
Blanda
En þaö var gefið mál að einhveij-
ir vhdu reyna að tengja saman
leiknar myndir og teiknimyndir.
Auðveldasta leiðin væri hklega sú
að gera mynd þar sem leikarar
kæmu fram auk teiknimyndaper-
sónanna. Þar var Walt Disney lika
í fararbroddi með myndina Mary
Poppins en einnig má nefna mynd-
ir eins og Song of the South og
Bedknobs and Broomsticks. Und-
anfarin 10 ár hafa ævintýramyndir
verið geysivinsælar um allan heim.
Má þar nefna Star Wars myndimar
og síðast en ekki síst myndir leik-
stjórans Stevens Spielberg eins og
E.T. og svo allar Indiana Jones
myndimar. Því kom það ekki svo
mikið á óvart að Walt Disney fyrir-
tækið og Steven Spielberg skyldu
ákveða aö hafa samvinnu um að
gera mynd þar sem leikarar leika
á móti teiknuðum fígúrum. Tíminn
virðist hafa verið réttur því enn eru
ævintýramyndir vinsælar og svo
hefur allri tækni fleygt fram á und-
anfórnum árum svo auðveldara er
að láta þessi tvö form kvikmynd-
anna renna saman án þess að það
virðist of óraunverulegt fyrir
áhorfendur.
- Walt Disney fyrirtækið og Steven Spielberg
leiða saman hesta sína í nýrri kvikmynd þar sem leikarar og
teiknimyndafígúrur fara með aðalhlutverkin
berg, ákvað að taka þátt í fram-
leiðslu myndarinnar. Myndin var
að mestu unnin í London og verður
að teljast tæknhegt undur. Sem
dæmi um þann fjölda sem kom viö
sögu við gerð myndarinnar þá tek-
ur það 7 mínútur í lok myndarinn-
ar að birta á hvíta tjaldinu nöfn
yfir 300 manns sem unnu aö gerö
Who Framed Roger Rabbit. Einnig
tók handritið dálitlum breytingum
og útkoman varð sú að dótturfyrir-
tæki Disneys ákvað að dreifa
myndinni undir sínu nafni því sum
atriði myndarinnar eru ekki tahn
við hæfi bama. Er þetta ein af fáum
teiknimyndum (eða tefknuðum
a.m.k. að hluta) þar sem krafist er
af kvikmyndaeftirhtinu að böm
verði að vera i fylgd með fullorðn-
um til að mega sjá myndina.
Söguþráður
En hver er þessi Roger kanína?
Myndin hefst á hreinræktaðri
teiknimynd þar sem Roger kanína
er aö beijast við að hindra „Baby“
Hermann í að komast í krukku
fulla af smákökum. Mikið gengur
á og m.a. fær Roger raflost, dettur
um sápustykki á gólfinu og fær
kæhskáp ofan á sig. Sem sagt, ekta
teiknimynd. Síðan sést hvernig
kvikmyndatökuvélin færir mynd-
Hér hittast þeir Roger og einkaspæjarinn.
Hér sést einkaspæjarinn heillast af eiginkonu Rogers.
Hér verður einkaspæjarinn að grípa til byssunnar.
Hver skellti skuld-
inni á kanínuna?