Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
Fréttir ________________________________________________ dv
Tíu þúsund konur á kvennaráðstefhunni í Osló:
Stærsta norræna ráðstefnan
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Um 10.000 konur eru skráðar á
norrænu kvennaráðstefnuna í Osló
og fjöldi þeirra var saman kominn
við opnunarhátíðina á laugaviaginn.
Þetta er stærsta norræna raðstefnan
sem nokkum tímann hefur verið
haldin.
Konur frá hverju einasta horni á
Norðurlöndum, konur úr öilum at-
vinnugreinum og þjóðfélagshópum,
og konur á öllum aldri byrjuðu vik-
una glæsilega með útihátíðinni við
Akershus-kastala. Sjaldan hefur
sundurleitari en um leið sameinaðri
hópur verið saman kominn á einn
stað. Friðarhreyfingin og herinn,
lesbíur og rokkarar og rosknar kon-
ur á þjóðbúningum. Það var pláss
fyrir alla á opnunarhátíðinni, þó svo
að einhver úlfaþytur hafi orðið í
norska kvennaherhðinu því nær-
veru þeirra var ekki óskað í friðar-
göngunni.
Fjölbreytt menningardagskrá, létt-
leikinn og ánægjan yfir því að vera
komnar saman einkenndu opnunina.
Dagskráin stóð yfir í fleiri tíma en
þrátt fyrir það sáust engin þreytu-
merki, ekki einu sinni á gömlum
konum sem þurftu að standa allan
tímann. Listakonumar komu fram á
fjórum mismunandi sviðum sem áttu
að tákna jörð, loft, eld og haf.
Dagskránni var sljómað af miklum
dugnaði. Leikhópur á stultum vísaði
á rétt svið milli atriða og ekki þurfti
að fella niður neitt atriði þó svo að
sólin þurfti oft að víkja fyrir kröftug-
um rigningarskúmm og tilheyrandi
vindhviðum.
Norsku ráðherramir mættu hð-
sterkar, umhverfismálaráðherrann
dehdi út sætindum við innganginn
og Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðherra las úr verkum norsks kven-
frelsisrithöfundar.
Hér mátti einnig hlýða á fyrstu og
einu kvennasinfóníuhljómsveit
heimsins sem skipuö er konum frá
öllum Norðurlöndunum. Þeirra á
meðal fiögurra íslenskra. Stjómandi
hljómsveitarinnar er Camilla Kolc-
hinsky.
Framsóknarkonur
Björg Eva Erlendsdótdr, DV, Osló:
Konur á margvislegum þjóð-
búningum settu fiölbreyttan og
htskrúöugan blæ á hátíðina.
Meðal þeirra vom um 30 konur
á íslenskmn búningi, ahar frá
Landssambandi framsóknar-
kvenna. Alls emfiramsóknarkon-
umar 70 talsins og höfðu þær tek-
ið sér frí, sumar frá heyskap og
aörar frá fiskvinnu.
En ekki höföu þær þar með tek-
iö sér frí frá hefðbundnum ís-
lenskum kvennastörfum. „Við
emm með mat meö okkur, bæði
hangikjöt, söl og fisk sem við
ætlum aö leyfa fólki að smakka
á,“ sagði Ólafía Ingólfsdótt-
ir.
Og það síðasta sem fréttist til
framsóknarkvennanna i gær var
aö þær vom aö fara að baka flat-
kökur á aösetri sínu, landbúnað-
arháskóla fyrir utan Osló.
Grænlendingar
Björg Eva Erlendsdóoir, DV, Osló:
Nágrannar okkar frá Grænl-
andi, á sínum skrautlegu þjóö-
búningum í selskinnsbuxum,
vom vinsælt efni fyrir Ijósmynd-
ara. En þótt þær væm áberandi
í hópnum úthtsins vegna ero þær
ekki vanar að láta mikiö til sín
taka.
Grænlenskar konur vantar alla
samstöðu og hefur ekki orðið sér-
lega ágengt í kvennabaráttunni
hingað til. , J'yrsta kynslóöin af
menntuðum konum á Grænlandi
er nú loksins að komast í gagnið.
En hörð Hfskjör og erfiöar fiöl-
skylduaöstæður gera okkur enn-
þá mjög erfitt fyrir. Viö erum
mjög ánægðar yfir þvl að hafa
getað koraið og vitum aö við get-
um margt lært af ráðstefnunni,"
segja grænlensku konumar.
Kvennalistinn nýtur athygli
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Á sunnudag tók alvara lífsins við
þegar konurnar mættu til fyrirlestra,
fundahalds og sýningahalds á sýn-
ingarsvæðinu á háskólasvæðinu,
Blindern, í Osló.
í sýningarbás Kvennahstans var
nóg að gera. Konur frá hinum Norð-
urlöndunum þreyttust ekki á að
Um 70 konur frá Landssambandi framsóknarkvenna sækja ráðstefnuna.
Hér má sjá nokkrar þeirra uppábúnar.
spyrja út 1 þetta einstaka fyrirbæri í
stjómmálum.
„Við höfum setið stanslaust fyrir
svömm síðan viö komum,“ segja
kvennahstakonumar Brynja Guð-
mundsdóttir og Bryndís Guðmunds-
dóttir, sem höfðu vaktina í sýningar-
básnum þegar ég kom þar að.
Ekki skorti heldur áhugann á sögu
flokksins sem var rakin fyrir þétt-
skipuðum sal, einum þeirra stærstu.
Þórhildur Þorleifsdóttir útskýrði fyr-
ir áheyrendum tilgang og vinnuað-
ferðir Kvennahstans, hvemig lögð
væri áhersla á að skipta ábyrgð og
vinnuálagi mihi sem flestra, hvernig
konurnar ynnu sem grasrótarhreyf-
ing og kæmust að samkomulagi um
hlutina án þess að greiða atkvæði.
„Stjómmálaflokkur án formanns,
karlmanns eða stjómar og sem ekki
er hægri flokkur og ekki vinstri
flokkur. Hvemig er þetta hægt?
Kannski er þetta svona flokkur sem
okkur vantar hér í Noregi?" segir
norskur blaðamaður.
Alþjóðlegt ívaf
Björg Eva Erlendadóttir, DV, Osló:
í lok opnunarhátíðarinnar dansaði
tólf ára indversk stúlka hefðbundinn
indverskan dans ásamt konum frá
mörgum löndum. Þetta lokaatriði
var táknrænt fyrir samstöðu kvenna
allra landa.
Konur frá framandi löndum, bæði
flóttamenn frá þriöja heiminum og
alþjóðlegir gestir, eiga sinn þátt í að
gera norrænu ráðstefnuna ennþá
lærdómsríkari fyrir konumar af
Noröurlöndunum.
Hin þekkta finnska söngkona Aija
Saijonmaa lagði sérstaka áherslu á
baráttuna gegn kynþáttahatri í sínu
atriöi. „Norrænar konur eru víðsýn-
ustu og best menntuðu konur í heimi
og hafa einnig áunnið sér mest rétt-
indi í samanburði við karlmenn.
Þetta ætti að gera okkur kleift að
hjálpa kynsystrum okkar ahs staðar
í heiminrnn," sagði hin finnska Arja
Saijonmaa sem var útnefnd flótta-
mannafuhtrúi Sameinuðu þjóðanna
vih tacka hvet“, lagið eftir Mikis
Theodorakis, á fimm tungumálum.
Aria Saijonmaa hefur áhuga á að
koma til íslands og halda tónleika
í fyrra. hér bráðlega.
Hún söng þekktasta lag sitt „Jag
Sett voru upp fjögur svið og táknuðu þau jörð, loft, eld og haf.
Þrjár stúlkur fluttu islenskan ballett
eftir Auði Bjarnadóttur. Túlkuðu þær
örlaganornirnar þrjár, Urði, Verð-
andi og Skuld.
DV-myndir Kerbert Czoschke
Islenski
ballettinn
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Eitt þeirra atriöa, sem hvað mest
var háð veðrinu, var íslenski bahett-
inn. Höfundur og stjómandi dansins,
Auður Bjamadóttir, gat aðeins von-
að það besta en til ahrar hamingju
stytti upp rétt áður en skapanomim-
ar Urður, Verðandi og Skuld stigu á
sviðið og ófu örlög við tónverk eftir
Mist Þorkelsdóttur.
Dansaramir, Helena Jóhannsdótt-
ir, Arta Henriksdóttir og Lára Stef-
ánsdóttir, túlkuðu verkið við undir-
leik Guðríðar Sigurðardóttur á
píanó, Lovísu Fjeldsted á sehó og
eina karlmannsins í hópnum, Jóns
Aðalsteins Þorgeirssonar, á klari-
nett.
Miðað við aöstæður, ótrúlega vel
heppnað. Nótnablöðin fuku upp í
hátalarana og skapanornirnar
þurftu að fóta sig á blautu og hálu
sviði en stemmningin skhaði sér th
þúsunda áhorfenda.
Jón Aðalsteinn gat huggað sig við
að á meðal kvennaskarans vom
einnig nokkrir karlmenn sem virtust
una hag sínum hið besta.
Vík ’88
Friðsöm hátíðartiöld
„Hér vom á milh 1400 og 1500
manns bæði laugardag og sunnudag,
flestaht fiölskyldufólk. Hátíðin tókst
i aha staði mjög vel, þaö urðu engin
teljandi óhöpp nema hvað einn og
einn datt af hestbaki,“ sagöi Grétar
Einarsson hjá Björgunarsyeitnni
Víkveria, en hún, ásamt Ungmenna-
félaginu Drangi, stóð fyrir fiöl-
skylduhátíð í Vík í Mýrdal.
Hátíðarhöldin í Vík vora frábmgð-
in útihátíöum helgarinnar að því
leyti að ekki var um skipulagða dag-
skrá að ræða. Gestir þurftu ekki að
greiða aðgangseyri, einungis gjald
fyrir að tjalda. Á staönum var fólki
svo meðal annars boðiö upp á hesta-
leigu, útsýnisflug og bátsferðir auk
þess sem dansleikir vom haldnir.
Þetta er í þriðja skiptiö sem fiöl-
skylduhátíð er haldin í Vík og er
þessi sú fiölmennasta th þessa.
-J.Mar
vinsæiast a viKurnatioinm var ao SKreppa i signngu meo pessum njoiaDati.
DV-myndir J. M
Færra í Atlavík en búist var við
Ægir Kxistiieson, DV, Fáakxúöefijöú
Á samkomu í Atlavík voru um
2000 manns um verslunarmanna-
helgina en mótshaldarar höfðu
vonast th aö fó 3000 tíl 5000. Nokkur
ölvun var á svæðihu þrátt fyrir
áfengisbann. Þá var einnig töluvert
um að munum væri stolið úr tjöld-
um, svo sem útvörpum og mynda-
vélum.
Að sögn lögreglumanns var helg-
in annars róleg hjá þeim f Atlavík,
en ráöist var á unga stúlku og hún
slegin með flösku í andlitiö þannig
aö hún nefbrotnaði og sauma þurftí.
níu spor í andlitið á henni. Fékk
hún glóðaraugu á bæði augun. Ár-
ásarmaöurtnn náöist en gaf ekki
upp nokkra ástæðu fyrir fólsku-
verki sínu. Nokkuð var um smáp-
ústra en engin alvarleg slagsmál.
Mótsgestir fóm aö týnast heim
seinnipart sunnudags en þá fór aö
rigna nokkuð, en veður haföi verið
ágætt fram aö þvi. Um klukkan
þrjú á mánudag hafði lögreglan
tekiö þtjá ökumenn grunaöa um
ölvun viö akstur.
í Atlavík vom hljómsveitimar Sú
EUen, Strax, Stuðmenn, Bjami Ara
og Búningarnir, Stuðkompanhð og
Megas og Bjartmar skemmtu
þama. Látúnsbarkar reyndu íyrir
sér en sjálf úrslitakeppnin fer fram
í sjónvarpinu í beinni útsendingu
í haust.
Verðið í Atlavík var 5000 krónur
alla dagana. Félög innan ÚÍA sáu
um gæslu, veittngasölu og sölu
miöa. Að sögn Magnúsar Stefáns-
sonar hjá ÚÍA var ekki búið aö
gera upp kostnaðinn, en hljóm-
sveitir og skemmtíkraftar vom á
prósentum, svo hann vissi ekki
hvert tapið yrði á samkomunni en
það yröi talsvert. Vom menn
óánægðir með hvaö þurfti að borga
mörgum lögreglumönnum. í Atla-
vik vom um 30 lögreglumenn sam-
anboriö við fimm í Vestmannaeyj-
um.