Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
31
|_______________________________________________________________________ Lífsstfll
Agnar Guðjónsson, byssusmiðin- og foimaður skotveiðifélagsins
Byssur eru ekkert feimnismál
Byssusmiðir eru afar fámenn
starfsstétt hér á landi og aðeins einn
hefur lagt á sig að fara til útlanda
að læra þessa iðngrein. Það er Agnar
Guðjónsson byssusmiður.
Agnar lagði leið sína til Denver í
Cólorado fyrir fimm árum með konu
og tvö börn til þess að læra að smíða
byssur. Áður hafði hann verið til sjós
í fjöldamörg ár og meðal annars siglt
mikið til Bandaríkjanna.
Áhuginn á skotíþróttinni eykst
Agnar seglr að áhugann á byssum
og skotíþróttinni hafi hann fengið í
Bandaríkjunum á þessum árum.
Hann hafi verið í sérstökum byssu-
kiúbbi þar ytra og keypt sér byssur
sem hann geymdi erlendis og stund-
aði jafnan skotæfingar með.
„Mér varð ljóst er ég hætti að sigla
að mikil þörf var á byssusmið hér á
landi. Einkanlega eftir að ég hóf störf
í Sportvali, meðal annars við að gera
við byssur, skíði og fleira. Ég ákvað
því nokkru síðar að taka þá áhættu
að fara til Bandaríkjanna og læra,“
sagði Agnar. „Síðan hefur komið í
ljós nauðsynin fyrir þessa atvinnu-
grein. Þau fjögur ár, sem ég hef verið
með mitt eigið verkstæöi, hef ég unn-
ið nánast dag og nótt og aldrei tekið
mér sumarfrí.“
Hversu langt nám er þyssusmíöi?
„Ég tók bæði kvöld- og dagskólann
og var því aðeins eitt ár úti en venju-
lega tekur námið 1 og 1/2 ár. Þessi
skóli er einna stysti skólinn því
venjulega eru skólarnir 3 ár í Banda-
ríkjunum. Það munar því að skólinn
sem ég fór í er aðeins verklegur en
hinir eru að stærstum hluta bóklegir
sem ég taldi mig enga þörf hafa fyrir.
Vandaverk að umgangast
mannskæð vopn
Ég veit um nokkra sem hafa lært
þessa iðn í bréfaskóla og get ekki
ímyndað mér að þeir læri eins mikið
á því. Þetta er mikið vandaverk enda
eru þetta mannskæð vopn sem þeir
hafa í höndunum. Ég er til dæmis
eini maðurinn hérlendis sem hef að-
stöðu til að prófa byssurnar almenni-
lega áður en ég sendi þær frá mér.“
Ertu mikið í því að smíða byssur?
„Starf mitt hér byggist helst á við-
gerðum og viöhaldi á byssum enda
eru handsmíðaðar byssur mjög dýr-
ar,“ sagði Agnar og benti okkur á
byssu sem hann hafði dundað við að
smíða í Bandaríkjunum. - Þetta er
stórt hreindýraverkfæri, eins og
hann orðaði þaö sjálfur. „Það 'tók
mig 180 klukkustundir að smíða
þessa byssu og svona byssur seljast
á 140 tii 200 þúsund krónur.
Heitblámar byssur '
Ég er einnig sá eini sem hef tæki
til þess að heitbláma byssur. Það
hggur mikil nákvæmnisvinna að
baki og skiptir það sekúndubrotum
hvort maður eyðileggur byssurnar
eða ekki.
Núna liggja fyrir hjá mér tvær
pantanir en ég get líklega ekki sinnt
þeim fyrr en eftir áramót. Það eru
hvort tveggja rifHar, annar er 243
kalíber en hinn er 22-250 kalíber."
Gerir þú eingöngu við byssur og
smíðar þær?
„Nei, ég geri einnig viö skíöi.og
veiðistangir og hjól. Eftir jól ætla ég
svo að fara á námskeið í nokkrar
vikur til að læra að gera við golfkylf-
ur. Auk þess er ég formaður Skot-
veiðifélags Reykjavíkur og nágrenn-
is og það verður í nógu að snúast í
vetur. Starfsemi félagsins hefst um
miðjan ágúst þegar gæsatíminn hefst
og næst á eftir er þaö ijúpan og stend-
ur rjúpnatíminn til áramóta. Eftir
áramót er svo andaveiðitíminn. En
það er langminnst stundaða fugla-
veiðiíþróttin. Mér finnst það mjög
furðulegt því það er einna skemmti-
legast að fara á andaskyttirí.
Skeetvöllur opnaður
Næsta verkefni okkar innan skot-
veiðifélagsins er aö opna svokahaðan
skeetvöll, sem er alþjóðlegt orð, rétt
fyrir ofan Hafnarfjöröinn. Hann
verður formlega opnaður helgina eft-
ir verslunarmannahelgina með móti
sem líklega verður haldið þá. Svo og
á félagið 10 ára afmæh um miðjan
september. Þá ætlum við að halda
veglega hátíð og ráðstefnu á Hótel
Sögu þar sem meðal annars verður
sýning á veiðiútbúnaði og byssum
og kynning á okkar starfsemi. Æth
við veröum ekki með byssudag fjöl-
skyldunnar," sagði Agnar kíminn.
„Þaö er alveg ótrúlegt hvað byssur
eru mikiö feimnismál ahs staðar.
Mönnurri er gjamt að vera aö pukr-
ast meö þetta áhugamál úti í horni.
Hérna í þessu félagi eru'-um 340
manns en það eru margir fleiri sem
stunda þessa veiðuþrótt."
íþrótt og veiði
Eiga Skotsamband íslands og skot-
veiðifélagið eitthvað sameiginlegt?
„Við í skotveiðifélaginu stundum
veiði og erum félag sem þyggur ekki
styrki sem íþróttafélag en félagar í
skotsambandinu stunda þetta sem
„Hreindýraverkfærið" sem Agnar smiðaði þegar hann var í skóla í Banda-
ríkjunum. „Það tók mig 180 klukkustundir að smíða þessa," sagði Agnar.
Veiðiútbúnaður
Á skittiríum borgar sig að hafa
ahan útbúnað góðan, góöar byssur,
hlý og vatnsheld hhföarfót, sjón-
auka og góðan skófatnað, svo eitt-
hvað sé nefnt. Ekki má heldur
gleyma því aö bráönauðsynlegt er
að hafa meðferðis, hvert sem veiði-
maðurinn fer, allan viðleguút-
búnað, þar á meðal sjúkrakassa,
neyðarblys, varmapoka, áttavita og
síðast en ekki síst mat og drykk.
Við könnuöum lauslega verðiö á
útbúnaði í veiöiverslunum. Þar
kom í ljós að haglabyssur eru á
mjög mismunandi verði, til dæmis
kosta einhleypur fyrir byrjendur
frá um 9.000 krónum en það eru
svokallaðar CBC byssur af einföld-
ustu gerð og tilvaldar fyrir skittirí,
en tvíhleypur með undir- og yfir-
hólki kosta frá 24.000 krónum og
geta veriö allt upp í 200.000 krónur.
Þá eru þaö orönar byssur sem eru
mjög vandaöar og jafnvel meö ein-
hverju útflúri.
Á Islandi eru leyfðar byssur fýrir
mest 3 skot.
Skotbelti, töskur o.tl.
Margs konar skot eru til og tjáði
Paul D.A. O'Keefe, verslunarstjóri
í Veiðimanninum, okkur að 36 til
46 gr skot væru algengust á gæs
og kosta 10 skot í pakka um 300
krónur. Þá er nauðsynlegt að hafa
meðferðis skotbelti og tösku undir
byssuna. Skotbeltin, sem taka yfir-
leitt 25 til 30 skot, kosta frá rumlega
900 krónum upp i 3000 krónur, allt
frá plastbeltum upp i leðurbelti, en
töskumar kosta frá 1000 krónum
upp í 6000 krónur. Sjónauki er
eirrnig talinn nauösynlegur út-
búnaður á skittirí og kosta þeir í
Veiðimanninum frá 5000 upp í 8000
krónur.
Sjálfsagt nota margir veiðimenn
hlíföarfatnað sem þeir eiga sjálfir
fyrir en þeir sem ætla aö kaupa
sérstakan hlifðarfatnað geta fengið
hann í hvaða sportvöruverslun
sem er.
Fyrst og fremst ber að nefna und-
irfatnaö, til dæmis eru seld sænsk
nærfót sem notuö eru í sænska
hernum. Þessi fatnaöur, sem er
uhar- og polyester blandaður, þyk-
ir halda góðum hita. Þetta eru bæöi
síöbuxur og bolur sem kosta tæpar
4000 þúsund krónur samanlagt.
Svo og eru th sérstakar bómullar
veiðibuxur og ekki má gleyma
verð
veiðipeysunum sem eru að sögn
afar vinsælar. Þetta eru ýmist bóm-
uhar- eða ullarpeysur sem eru með
bótum á öxlunum til þess að verj-
ast því aö að þær trosni þar undan
þungri byrði. Þessar peysur kosta
3000 tíl 4000 krónur.
Tíu skotfæraverslanir
á höfuöborgarsvæöinu
Skófatnaður fer eftir því hvernig
veiðhendi veiðimaðurinn er á. Paul
sagði að vaðstígvél hentuöu ís-
lenskum aðstæöiun vel, en einnig
væri mikiö keypt af fjallgcnugs-
kóm sem hægt er að fá á mismun-
andi veröi.
Og síðast en ekki síst eru hlifðar-
gahar sem einnig er hægt aö fá á
mismunandi veröi. Þykkir, fóðrað-
ir og vatnsþéttir gallar kosta frá
10.000 og allt upp í 50.000 krónur,
og oft eru veiðihattarnir látnir
fljóta með.
Þaö má geta þess aö veiðiút-
búnaöur af þessu tagi er seldur í
verslunum víða um land og í um
10 verslunum á höfuöborgarsvæð-
inu.
-GKr
íþrótt og halda keppni og annað inn-
an félaga í skotsambandinu. Þannig
eru þetta tvö sjálfstæð félög. En því
er ekki að neita að þeir sem stunda
skotíþróttina eru margir hveijir
einnig veiðimenn.“
Eru einhveijir kvenmenn sem
stunda skotveiðar?
„Já, þaö eru mjög margar konur
sem stunda skotveiðar meö mönnun-
um sínum þótt þær séu ekki í skot-
félagi. En þær hafa sýnt okkar starf-
semi mikinn áhuga og ég á von á að
þær stofni fljótlega einhvem kvenna-
félagsskap innan hreyfingarinnar.
Þá bæði í því skyni að æfa skotfimi
og einnig að halda hópinn þegar við
karlmennimir emm mikið að heim-
an í. veiði. Konan mín á til dæmis
sína eigin byssu og hefur stundum
farið með mér á veiðar.
Það verður líklega efnt til nám-
skeiða fyrir þær á skotvellinum í
Hafnarfirði í vetur.“ GK
bioquick
LOKSINS
Á ÍSLANDI
FÓTA- 0G NAGLASNYRTILÍNAN
VEL HIRTIR FÆTUR ERU
UNDIRSTAÐA VELLÍÐUNAR
FÓTA - OLÍUBAÐ (Foot oil bath) Bioquick fótaolía er styrkjandi og örvandi
fótameðferð. Olían inniheldur náttúrleg jurtaefni, svo sem piparmyntu, sædögg
(rósmarin), ástralskt myntutré (Eukalyptus) og furunálasafa I soyjaoliuþykkni.
Leiðbeiningar: Notið þrjá tappa I fótabaðvatnið, hrærið vel í og látið fæturna
vera I vatninu í 10 til 15 mín. Jurtirnar fara að starfa sérstaklega og þið finnið
aukna vellíðan. Fótabaðolían er sérstaklega góð fyrir þurra og sprungna 'húð.
IVIagn I flösku: 200 ml.
FÓTA - BAÐSALT (Foot bath salt) Bioquick fótasalt er til að auka vellíðan.
Það þrvar blóðstreymið, er mjög róandi eftir erfiðan starfsdag og viðheldur
eðlilegri starfsemi húðarinnat. Einnig kemur það I veg fyrir fótraka og sveppa-
myndun. Fótsaltið inniheldur sjávarsalt, ástralskt myntutré (Eukalyptus), sem
vinnur mjög vel gegn gigt, furunálasafa og blóðberg (Tymian) sem er mjög
róandi.
Leiðbeiningar: Látið einn tappa af fótasalti út í fótabaðvatnið, hrærið vel I og
látið fæturna vera I vatninu I 15 til 20 min. Við mælum með 2 til 3 skiptum á
viku. Ef um mikinn raka eða sveppasýkingu er að ræða ber að nota fótabaðvat-
nið daglega. Magn I flösku: 250 ml.
FÓTA - HREINSIVATN (Foot lotion) Bioquick fótahreinsivatn er mjög gott fyr-
ir fætur og leggi. Hreinsivatnið dregur úr þreytu og óþægindum i fótum. Fóta-
hreinsivatnið inniheldur jurtaolíur, kamfóru, (Comfrey) sem er bólgueyðandi
og róandi fyrir fæturna, Filípendúla, sem er náttúrulækningajurt, furunálasafa,
einiberjakraft (juniper) og blóðberg (Tymian) semer sótthreinsandi og róandi.
Leiðbeiningar: Bleytið bómullarhnoðra eða hreinan linklút með fótahreinsivatn-
inu og berið það á fætur og leggi á hverjum morgni og/eða á kvöldin. Magn
I flösku: 100 ml.
FÓTA - KREM (Foot creme) Bioquick fótakrem er fyrir langþreytta og sára
fætur. Fótakremið inniheldur hrein náttúruefni og jurtaolíur. Ástralska myntu-
tréð (Eucalyptus), furunálasafinn og blóðbergið (Tymian) vinna mjög vel'sam-
an. Þessar jurtir draga úr þreytu og gigt, einnig auka þær blóðstreymið. Við
ráðleggjum að fótakremið sé borið á fæturna á kvöldin fyrir svefn.
NAGLA - KREM (Nail care creme) Bioquick naglakremið bætir sveigjanleika
naglanna, vöxtur eykst, neglurnar verða harðari og klofna ekki. Naglakremið
inniheldur virk efni svo sem mjólkurprótein og sérstakar aminosýrur. Sam-
verkun þessara efna gerir frumunum kleift að starfa hraðar og betur.
Leiðbeiningar: Berið naglakremið á neglur og naglabönd einu sinni á dag. Á
meðhöndlunartimanum ber ekki að nota naglalakk, jjaglalakkseyði eða önnur
efni á neglurnar. Ef það er ekki mögulegt berið þá ekki naglalakk nálægt nagla-
böndunum. Eftir tíu daga kúr mælum við með að nota naglakremið einu sinni
til tvisvar I viku. Magn I túpu 30 g.
SVISSNESK GÆÐAVARA
OFNÆMÍSPRÓFUÐ NÁTTÚRUVARA I VIRTUSTU
RANNSÓKNARSTOFUM: AÐEINS VÖNDUÐUSTU HRÁEFNI SEM
VERNDA FÆTUR ÞlNA OG TRYGGJA FÓTAHEILBRIGÐI
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Apótek, heilsubúðir, snyrtivöruverslanir og fót- og snyrtistofur.
PÓSTKRÖFUR
68-16-80
Símsvari tekur pantanir allan sólarhringinn.
bioquick®
umboðið
SAF HF.
Dugguvogi 2 - Pósthólf 4331
124 Reykjavík - Sími 68 16 80.
E
[ EURQCARD
I