Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
Fréttir
í dag mælir Dagfari
Galtalækj arskógur:
Flestir koma ár eftir ár
Ríkisstjórnin á viö margvíslegan
vanda aö stríða. Aðalvandi hennar
aö undanfórnu hefur veriö fólginn
í ráöherrunum sjálfum sem hafa
verið aö munnhöggvast hver við
annan af miklum móö. Nú munu
þeir hins vegar hafa ákveöiö aö
þagga niður í sjálfum sér næstu
vikumar enda margt annað að
kljást við, svo sem frystihúsavandi,
refabúavandi, fjárlagavandi og
vaxtavandi. Þetta er einn allsheij-
arvandamálavandi og sér ekki út
úr. Alls kyns menn og konur ganga
laus í þjóðfélaginu, rífa kjaft og
heimta aðgeröir og telja ríkis-
stjómina bijóta á hagsmunum sín-
um og rétti. Að vísu má undan-
skilja konurnar þessa vikuna, en
þær hafa safnast saman í Osló og
við höfum friö fyrir þeim á meðan.
En loksins þegar ráðherramir
voru búnir að ákveða að þagga nið-
ur í sjálfum sér og konumar vom
famar utan skýst upp á yfirborðið
nýr vandi, sem era í engu minni
en allir hinir vandamir. Landa-
kotsspítali hefur farið langt um-
fram fjárlagaheimildir í rekstri sín-
um og fjárfestingum og fjármála-
ráöherra hefur lýst yfir því að spít-
alinn sé síbrotastofnun'sem þurfi
að setja undir sérstakt eftirlit. Sam-
að loka spítalann af, setja hann í
nokkurs konar hegningarsóttkví til
að þessi síbrotafaraldur á spítalan-
um breiðist ekki út.
Það sjá auðvitað allir að læknarn-
ir á Landakoti geta ekki gengið
lausir eftir að síbrot hafa sannast
á þá og þeir vita ekki lengur hvort
þeir hafa haft þrettán hundruð
þúsund eða átján milljónir í laun.
Best væri sennilega að leggja lækn-
ana inn í staðinn fyrir sjúklingana
og setja þá í meðferð hjá gæslu-
sveitum ráðherranna til að uppr-
æta þessa afbrotahneigð, sem hrjáð
hefur lækn aliðið og starfsliöið eftir
því sem ríkisendurskoðandi og ráð-
herra segja. Afbrotahneigð er al-
varlegur sjúkdómur og spítalavist
hefur læknaö margan glæpamann-
inn.
Það var gott aö ráöherrarnir
skyldu uppgötva síbrotin áður en
spítalinn sökk lengra ofan í sukkið
og svínaríið. Dagfari leggur til að
spítalinn verði einfaldlega tæmdur
af öllum sjúklingum og læknamir
verði hafðir þar í sóttkví þangað til
gæslusveitirnar hafa rétt rekstur-
inn við. Það verður að lækna lækn-
ana á Landakoti.
Dagfari
- um 5000 manns á svæðinu
Síbrotastofnun
eiginlega komust fjármálaráðherra
og heilbrigðisráðherra að þeirri
niðurstöðu að senda þyrfti gæslu-
sveit inn á spítalann til að halda
aftur af sibrotamönnunum sem þar
fara sínu fram án þess að nokkur
fái rönd við reist.
Síbrotamennirnir á spítalanum
em ekki sjúklingarnir eins og
margur gæti haldið því það er mis-
jafn sauður og misjafnt fé sem safn-
ast fyrir á spítölum. Nei, síbrota-
mennirnir eru læknamir sjálfir og
stjórnendur spítalans. Þeir kaupa
fasteignir í næsta nágrenni við spít-
alann án þess að spyija kóng eða
prest. Þeir bmðla með lyfin, selja
þvottaaðstööu undir rekstrar-
kostnaði, reka rannsóknarstofu
með aökeyptri sérfræðiaöstoð og
borga sjálfum sér laun af slíkri
rausn að þeir hafa sjálfir enga tölu
á launaupphæðunum. Ríkisendur-
skoðandi segir að yfirlæknir spítal-
ans hafi haft átján milljónir í árs-
laun en læknirinn sjálfur segist
hafa þrettán hundmð þúsund
krónur. Mismuninn hefur hann
sennilega fengiö óvart og læknir-
inn kannski tekið við restinni með-
vitundarlaus og er hvorugt nógu
gott. Ef yfirlæknar fá borgaðar
rúmar sextán milljónir án þess að
vita af því, eða þeir eru meövitund-
arlausir í vinnunni, hvað mega
sjúklingarnir halda um lækning-
amar?
Síbrot þýðir væntanlega að lækn-
amir eru að bijóta stööugt af sér
frá morgni til kvölds. Afbrot þeirra
em orðin svo yfirþyrmandi að sér-
stakar gæslusveitir verða sendar
þeim til höfuðs. Þaö þarf sem sagt
að vakta spítalann og stjómendur
5 úr 250 manna starfsliði bindindismótsins í Galtalæk. Frá vinstri: Torfi
Ágústsson, Ragnar Austmar, Jón Kr. Jóhannsson, Gunnar Þorláksson
mótsstjóri og séra Björn Jónsson.
Börnin undu sér vel í Leiktækjalandi í Galtalækjarskógi, Andrea Olga Færseth (t.v.), dundaði sér klukkutímum
saman við að „berjast um plankann", og hafði betur i flestum viðureignum, jafnt við stráka sem stelpur.
DV-myndir KAE
hans og læknalið til að koma í veg
fyrir frekari afbrot. Þetta hefði ein-
hvern tíma þótt saga til næsta bæj-
ar og má Landakot muna sinn fífil
fegri þegar nunnurnar sáu um
reksturinn og enginn nema guð
heilagur vaktaði göfugt líknarstarf
spítalans. Nú eru komnar eftirlits-
sveitir frá ríkisendurskoðanda í
staðinn fyrir guð almáttugan og
spurningin er sú hvort ekki þurfi
„Það er ívið fleira fólk hér nú held-
ur en í fyrra, fjöldinn hérna er um
5000 manns, mest fjölskyldufólk.
Mikið af þessu fólki kemur hingað
ár eftir ár og sumir hafa jafnvel ver-
ið hér frá árinu 1967 þegar við byij-
uðum hér í Galtalækjarskógi," sagði
Gunnar Þórðarson mótsstjóri í sam-
tali við blaðamann DV.
„Einstaka mótsgestur hefur mis-
skilið tilgang bindindismótsins en
allt hefur farið vel fram eigi að síð-
ur. Engin slys hafa orðið hér á fólki,
en við erum viðbúnir ef eitthvað slíkt
kemur upp á. Pálmi Frímannsson
læknir er hér á svæðinu, við erum í
beinu sambandi við heilsugæslu-
lækni og auk þess eru menn frá
hjálparsveit skáta í Hveragerði hér
með sjúkratjald sem stöðugt er opið.
Við höfum það að aðalmarkmiði
mótsins að aÚir finni eitthvað við
sitt hæfi og hefur hið 250 manna
starfslið lagt mikið á sig til að það
takist. Fyrir bömin er hér leiktækja-
land, tívolí og tölvuland, og una
Pálmi Gunnarsson og félagar voru meðal þeirra sem tróðu upp á hljómleik-
unum í Galtalækjarskógi á laugardaginn og þeir gátu ekki kvartað undan
aðsókninni.
krakkarnir sér allan daginn við leiki.
Við brydduðum upp á nýmæli í dag-
skrá þetta ár og vorum með svæðis-
útvarp á staðnum allan sólarhring-
inn, á FM 105,2. Sennilega höfum við
ekki kynnt það nógu vel því við höf-
um orðið varir við að frekar fáir
hafa hlustað á það eða ekki verið
með ferðaútvarp með sér. Fjölmennt
starfslið sér um að hreinsa svæðið á
hverri nóttu svo þegar mótsgestir
vakna í morgunsárið er alls ekki
hægt að sjá neitt bréfarusl frá því
daginn áður,“ sagði Gunnar móts-
stjóri að lokum, og það voru orð að
sönnu hjá honum því hvar sem litið
var var snyrtimennskan allsráöandi
á svæðinu.
Bindindismót um verslunar-
mannahelgina hafa verið haldin frá
árinu 1960, fyrstu sjö árin í Húsafelli
(1960—66), en frá árinu 1967 hefur það
verið haldið í Galtalækjarskógi.
-ÍS
Hjónin Hallgrimur Færseth og Kolbrún Eggertsdóttir voru í sinni 18. heim-
sókn í röð á bindindismótið í Galtalækjarskógi.