Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
5
Fréttir
Geysir:
segir Þórir Sigurðsson „sápustjóri“
„Þaö hafa veriö svona um þaö bil
3-4000 manns sem fylgdust með
Geysisgbsinu klukkan 15 á laugar-
daginn, ef áætla má þá tölu út frá
þeim mikla flölda bifreiöa sem komu
á staöinn, en þeir hafa verið um 1000
talsins. Gosiö var mjög gott, stóð
lengi og hefur verið svona um það
bil 30-40 metrar á hæö,“ sagöi Þórir
Sigurðsson, sem hefur séö um að
setja sápu í Geysi. „Það er ekki hægt
að líkja þessu gosi saman við gosiö
sem framkallað var í síðustu viku,
en það var mjög lélegt,“ sagði Þórir
að lokum.
Greinilegt var að stór hluti áhorf-
enda var erlendir ferðamenn sem
áttu ekki orð yfir þetta náttúruund-
ur. Nokkuð skyggði á gosið að úr-
helhsrigningu gerði á Geysissvæð-
inu á meðan glampandi sólskin var
allt um kring í næsta nágrenni. Mik-
il örtröð bifreiöa geröi mönnum
nokkuð erfitt fyrir, og rétt fyrir
klukkan 15 var komin nokkur
hundruð metra biðröð að hvemum.
Eftir að gosinu lauk gekk erfiðlega
að greiða úr flækjunni og þurftu
menn að bíða rúman klukkutíma eft-
ir að komast frá staðnum á ný.
Greinilegt var að margir af nærhggj-
andi útivistarsvæðum notuðu tæki-
færið til að hta á gosið, til dæmis var
straumur' fólks frá Laugarvatni á
svæðið.
ÍS
Mikla úrhellisrigningu gerði á meöan gosið stóð yfir. DV-myndir KAE