Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
9
Utlönd
Hussein fellur frá kröfii um
yfirráð á Vesturbakkanum
ísraelskir hermenn fylgja brottviknum Palestínumönnum að landamærum Líbanons og ísraels en í gær viku
ísraels yfirvöld átta Palestinumönnum af landi brott. Símamynd Reuter
Hussein Jórdaníukonungur hef-
ur ákveðið að slíta nær öll efna-
hagsleg tengsl við Vesturbakkann
og falla frá kröfum um yfirráð á
herteknu svæðunum. Hussein
sagði að hann hefði tekið þessa
ákvörðun í samræmi við óskir
Frelsissamtaka Palestínu, PLO, um
stofnun sjáifstæðs ríkis Palestínu-
nianna.
Ákvöröun Husseins kemur í kjöl-
far sjö mánaða rósta á herteknu
svæðunum sem hafa grafið mjög
undan stuðningi við Jórdani á
Vesturbakkanum og Gaza-svæö-
inu. Talið er að afit að 246 Palest-
ínumenn ogfjórir ísraelar hafi látið
lífið í róstunum sem hófust í des-
ember sl.
ísraelar hemámu Vesturbakk-
ann í sex daga stríðinu árið 1967
en báðir bakkar Jórdanár höfðu
áður tiiheyrt Jórdaníu. En þrátt
fyrir yfirráð ísraela hafa Jórdanar
séð um framkvæmd heilsugæslu,
kennslu, dómsvald og trúariðkana
á bakkanum.
Fréttaskýrendur telja að ákvörð-
un þessi styrki stöðu PLO en í kjöl-
far hennar var boðað til skyndi-
fundar æðstu manna samtakanna.
Bassam Abu Sharif, ráðgjafi Yass-
ers Arafat, leiðtoga PLO, fagnaði
ákvörðuninni í gær og sagði að hún
myndi myndi ekki skaöa tengsl
PLO og Jórdana.
Bassam sagði að ljóst væri að við-
ræður um frið í þessum heimshluta
væru ekki mögulegar án þátttöku
PLO og að stórveldin yrðu nú að
ræða við PLO og ísraela sem full-
trúa deiluaðila. Yasser Arafat mun
halda til Jórdaníu í þessari viku til
viðræðna við Hussein konung.
Forsætiráðherra ísraels, Yitzhak
Shamir, fagnaði einnig ákvörðun
Husseins og sagði að hún þýddi aö
Hussein hefði gefið upp á bátinn
þá Von að ísraelar myndu draga sig
í hlé á svæðinu.
Fréttaskýrendur telja að ákvörð-
un Husseins geti kippt grunninum
undan friðarumleitunum Banda-
ríkjamanna í Mið-Austurlöndum.
Tillögur George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, um frið í
þessum heimshluta hafa byggst á
því að Hussein sé fulltrúi Palest-
ínumanna á Vesturbakkanum en
bæði Bandaríkin og ísrael hafa
neitað að viðurkenna PLO sem full-
trúa þeirra.
Bandaríkjamenn höfðu vonast til
að sameiginleg nefnd Jórdana og
Palestínumanna myndi taka þátt í
alþjóðlegri friðarráðstefnu sem
ætlað væri að koma á viðræðum
ísraela og nágrannaríkjanna.
Ekki fagna allir ákvörðun Hus-
seins. Palestínumenn á Vestur-
bakkanum, en um 850 þúsund
þeirra eru með jórdanskt vegabréf,
velta nú fyrir sér hver muni taka
við rekstri hins daglega lífs þegar
Jórdanar hafa gefiö slíkt frá sér.
Margir efast um að PLO geti fyllt
í skarðiö fyrir Jórdaníu á Vestur-
bakkanum og sumir halda að róst-
ur muni aukast.
Á Vesturbakkanum var Faisal
Husseini, einn helsti leiðtogi upp-
reisnarmanna, handttkinn á
sunnudag og sakaður am að hafa
espað til uppþota. Husseini hlaut
sex mánaða fangelsisdóm en engin
réttarhöld voru haldin. Yfirvöld í
ísrael segjast hafa handtekið fimm-
tíu Palestínumenn grunaða um
mótmæli gegn yfirráðum ísraela.
Átta Palestínumönnum var vikið
úr landi í gær. Alls hefur um þrjá-
tíu Palestínumönnum verið vikið
úr landi. í gær hófst tveggja daga
verkfall Palestínumanna á her-
teknu svæðunum og í austurhluta
Jerúsalem til að mótmæla brott-
vikningu mannanna.
Reuter
Ottast hiyðju-
verkaöldu
Bresk yfirvöld óttast nú að á næstu
dögum muni ganga yfir ný hryðju-
verkaalda af völdum írska lýðveldis-
hersins, IRA, í kjölfar sprengjutil-
ræðis þess sem framið var í herbúð-
um 1 London í gær, mánudag. Einn
hermaöur fórst í sprengingunni og
nokkrir særðust, 'þar af tveir alvar-
lega. írski lýðveldisherinn hefur lýst
ábyrgð á sprengingunni á hendur
sér.
Talsmenn bresku lögreglunnar
sögðu í gær að þeir teldu þörf á sér-
stakri árvekni á komandi dögum því
töluverðar hkur þættu til þess að
fleiri tilræði fylgdu í kjölfarið.
Sprengingin á mánudag varð í
íbúðarbyggingu ókvæntra her-
manna í Inglis herbúðunum í norð-
urhluta London. Fjórtán hermenn
-voru sofandi í rúmum sínum þegar
sprengingin varð en hún var nægi-
lega öflug til þess að leggja megin-
hluta byggingarinnar í rúst.
Sprengingin hefur vakiö ótta um
öryggi manna í og við fjölda slíkra
herbúða sem eru víða um Bretland.
Herbúðir þessar eru inni í íbúðar-
hverfum og er fremur litil öryggis-
gæsla við þær enda þeim ætlað að
vekja eins litla athygh og kostur er.
íbúar hverfisins, sem Inghs her-
búðimar eru í, hafa sakað yfirvöld
hersins um að hafa ekki gætt öryggis
við búöirnar nægilega vel.
Lögreglan segir að rannsókn máls-
ins beinist nú einkum að þeim mögu-
leika að kona úr írska lýðveldis-
hemum hafi náð að komast inn í
herskálann og koma sprengjunni
fyrir meðan á dansleik stóð þar um
helgina. Reuter
Rústir herbúðanna sem sprengdar voru i gær.
Simamynd Reuter
Omeqa símkerfin - l\lý sending á leiðinni
Frá fyrirtækinu Iwatzu
Án aukabúnaðar hafa símkerfin eftirfarandi möguleika
1. Innbyggð klukka, dagatal, reiknivél og tímamæling simtals.
2. Kallkerfi.
3. Hópkall í kallkerfi.
4. Fundarsími. (Fleiri en tveir geta talað i einu).
5. Flutningar simtala á milli sima.
6. Númeraminni bæði i simstöð og einstökum sima.
7. Rafhlöður sem halda straumi á kerfinu þótt rafmagn fari af.
8. Nætursti11ing á bæjarlinum.
9. Tónlist á meðan beðið er.
10. Hringir i öðru (völdu) númeri ef ekki er svarað.
11. Hægt er að kalla í hátalara sima þótt hann sé á tali.
12. Endurval á síðasta númeri.
13. Gaumhringing til að minna á t.d. fund.
14. Einkalinur.
15. Ýmsar lokanir fyrir t.d. langlinu og útlöndum.
16. Stillingar á innkomandi hringingum i valda sima.
17. Hægt er að skilja eftir ýms skilaboð I simum.
Þetta eru einungis
fáar aðgerðir sem
kerfið býður upp á
og það án nokkurs
aukabúnaðar og á
iægra verði en önnur
ófullkomnari kerfi á
markaðnum.
Georg Ámundason & Co.
Suðurlandsbraut 6, sími 681180 og 687820.