Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
Utlönd
Hundruð láta
Irfið í flóðum
Þrjú hundruð og flmmtíu manns
er saknað eftir mikil flóð í suðaustur-
hluta Kína. Aö minnsta kosti 256
hafa látið lífiö í mestu flóðum sem
komið hafa í Kína í aldaraðir. Vatns-
borð hafði lækRað nokkuð í morgun
en björgunarmenn óttast að tala lát-
inna eigi eftir að hækka.
Fjöldi þorpa eyðilögðust í flóðun-
um sem hófust á fóstudag og hafa
rúmlega sautján þúsund hús horfið
í vatnsflauminn. Eitt hundrað vatns-
þrær hafa sprungið og rúmlega þrjú
hundruð brýr hafa brotnað sam-
kvæmt fréttum opinberu fréttastof-
unnar í Kína.
Flóðin komu í kjölfar mikilla rign-
inga í Zhejiang-héraðinu í austur-
hluta Kína en í nærliggjandi héruð-
um hafa miklir hitar og þurrkar
plagað íbúana. Hundruð eldri borg-
ara hafa látið lífið af völdum þurrk-
anna sem eru þeir verstu í Kína í
áraraðir. Reuter
ERIIM
FLUTTIR
frá Nóatúni að
HÁTÚN112 í
Siálfsbiargarhúi
HláLMRTÆKIdBdllKinn
Hátunl2 s.2-1333 / /7
Víetnam
tekur
við
flótta-
fólki
Að sögn háttsetts embættis-
manns hjá Sameinuðu þjóðunum
hafa stjórnvöld í Víetnam sagst
reiðubúin til aö taka við stórum
hópi víetnamskra flóttamanna
sem æskja þess að snúa heim á
nýjan leik. A.m.k. ein milljón
manna flýði Víetnam þegar
kommúnistar komust til valda
áriö 1975. Rúmlega fimmtíu þús-
und þeirra búa í flóttamannabúð-
um í Indónesíu, Malasíu, Filipps-
eyjum og nærliggjandi löndum.
Embættismaður SÞ sagði að
fulltrúar Hanoi-stjórnarinnar
heföu fullvissað sig um aö liðkað
yrði til fyrir þeim sem vildu yfir-
gefa Víetnam á löglegan hátt.
Fjöldi löglegra flóttamanna frá
Víetnam hefur minnkað nokkuð
á síðustu árum vegna þess að æ
færri lönd vilja nú taka við þeim.
Búist er við að um tuttugu þús-
und manns fái að yfirgefa landið
á löglegan hátt í ár.
Reuter
Shultz
mistekst
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, virðist
hafa mistekist með öllu í tilraun-
um sínum til þess að fá fjögur af
ríkjum Mið-Ameríku til að for-
dæma stjórnvöld í Nicaragua,
fyrir að hafa ekki framfylgt frið-
aráætlunum sem gerðar voru
fyrir ári.
Shultz ræddi í gær í fjórar
klukkustundir við utanríkisráð-
herra Guatemala, Costa Rica, E1
Salvador og Honduras, í þeirrri
von að fá ríkisstjórnir þessara
landa til samstöðu gegn stjórn-
völdum í Nicaragua. Shultz varð
hins vegar í lokin að sætta sig við
mjög varlega orðaöa yfirlýsingu,
þar sem ekki er einu sinni minnst
á ríkisstjórn Nicaragua.
Eftir fundinn gáfu utanríkis-
ráðherrarnir út sameiginlega
yfirlýsingu þar sem þeir segja að
lýðræði sé nauðsynlegt friði í
þessum heimshluta, en þeir feng-
ust hins vegar ekki til þess að
nefna stjórn Nicaragua sem sér-
staka ógnun við stöðugleika þar.
Reuter
:r&o
SKYNDIHAPPDRÆTTI
Ef samafjárhæðin
birtist þrisvar, hafió
þér unnló þá fjárhæö.
Ef demanturkemur
MA EKKISKAFA
5»<nki
‘WNDS
=-
Það er engin tilviljun hvað Happaþrennan nýtur
mikilla vinsælda - ástæðan er einfaldlega sú að það
vinna svo margir! Á undanförnum 15 mánuðum hafa
samtals fimm hundruð milljónir verið greiddar út í
vinninga! Þar af hafa 150 þátttakendur hreppt stærsta
vinninginn, 500.000 kr., 750 manns hafa fengið 25.000 kr.
og svo hafa þúsundir hlotið lægri vinningana.
f00^16401
•<
(/)
Qt
<
HAPPAÞRENNAN HAPPAÞRENNA
HEFUR VINNINGINN! HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS