Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Síða 19
ísland - Búlgaría:
Friðrik og
Sigurður
leika með
Ljóst er að tveir leikmenn koma
örugglega erlendis frá í landsleik
íslands og Búlgaríu í knattspymu
sem fram fer á Laugardalsvellin-
um næsta sunnudagskvöld. Það
eru Sigurður Grétarsson frá Luz-
em í Sviss, en lið hans á frí um
næstu helgi, og Friðrik Friðriks-
son, markvörður B 1909 í Dan-
mörku, en hann á leik með liði
sínu kvöldið eftir og mætir beint
í hann.
Enn er möguleiki á að Sigurður
Jónsson geti einriig leikið með en
aðrir atvinnumenn komast ekki
að þessu sinni. Samt sem áður
getur ísland teflt fram mjög
öflugu liði gegn Búlgömm, ekki
síst þar sem ekki þarf lengur að
sækja menn á borð við Atla Eð-
valdsson, Sævar Jónsson og Óm-
ar Torfason til annarra landa.
Þeir Bjami Sigurðsson og
Gunnar Gíslason, sem ekki eiga
heimangengt um næstu helgi,
verða báðir með gegn Svíum hér
heima þann 18. ágúst og allt bend-
ir til þess að Ásgeir Sigurvinsson
verði með í fyrsta leik heims-
meistarakeppninnar, gegn Sovét-
mönnurn á Laugardalsvellinum
þann 31. ágúst.
-VS
Botnliðið
vann Moss
íslendingaliðin í norsku 1.
deildinni í knattspyrnu töpuðu
bæði um helgina. Moss beið
óvænt lægri hlut fyrir botnliðinu
Djerv, sem Tony Knapp stýrir nú,
öðru sinni í sumar, 1-0 á útivelli,
og Brann lá heima fyrir Kongs-
vinger, 0-2.
„Þetta var lélegt hjá okkur, þeir
skomðu á fyrstu mínútu og héldu
sínum hlut eftir það með gífur-
legri baráttu," sagði Gunnar
Gíslason hjá Moss í spjalli við DV
í gær.
Moss datt niöur í 4. sæti, er með
22 stig eftir 13 umferðir. Rosen-
borg komst á toppinn, er með 26
stig, Lilleström hefur 25 og Váler-
engen 23. Brann er þriðja neðst
með 10 stig, Djerv er með 9 og
Strömmen 8.
-VS
Sigur í
Danmörku
Stúlknalandslið íslands í knatt-
spymu vann lið frá Taiwan, 2-0,
í úrslitaleik í sínum aldursflokki
á Dana Cup, unglingamótinu,
sem haldið er árlega í Danmörku,
um helgina. Kristrún Heimis-
dóttir og Guðrún Jóna Kristjáns-
dóttir skomðu mörkin.
-VS
Júlíus hafnaði boðum
frá þremur félögum
Jón öm Gu£tojart38on, DV,' Irun:
.JForráöamenn v-þýska félagsins
Duisburg ræddu við mig í Þýska-
landi fyrir nokkm og áður hafði
einn ráðamanna spánska liðsins
Tres de Mayo haft samband við
mig. Ég neitaöi hins vegar báðum
þessum aöilum. Þá fékk ég hreint
tilboð frá spánska liðinu Granolies
en neitaði því einnig en eftir mikla
umhugsun," sagði Júlíus Jónas-
son, landsliösmaöur úr Val, í sara-
tali viö DV í gær. Hann er staddur
i Irun á Spáni ásamt félögum sínum
i íslenska landsliöinu í handknatt-
leik, en það tekur þátt í geysisterku
móti sem hefst þar á morgun,
„Sjálfur hef ég lítið vit á mörgum
þeim þáttum er varða handknatt-
leikinn erlendis en mér var tjáð af
þeim mönnum er reynslu hafa á
þeim vettvangi að tilboð Granolies
væri mjög gott.“
Júlíus var ekki orðmargur um
eðli eðainmhald tilboðsins en hann
kvaö þaö þó hafa falist i beinura
peningagreiöslum og félagslegri
aöstoð.
Skynsamlegra aö öðlast
meiri reynslu
Július kveður áform sín um að
leika með landsliöinu á ólympíu-
leikunum ráða raiklu um þá
ákvörðun sína um að leika áfram
með Val næsta vetur.
„Ég tel skynsamlegra að vera eitt
ár til viöþótar heiraa og beina jafii-
framt óskiptri athygli að því að
komast til Seoul. Ég vil frekar spila
með landsliðinu á næsta ári og öðl-
ast þannig reynslu, bæöi á þeira
vettvangi og einnig í Evrópuleikj-
um með Valsliðinu, en aö ana út í
einhverja óvissu. Ég tel of erfltt
fyrir mig að takast á við nýja hluti
í beinu framhaldi af ólympíuleik-
um, ef svo fer vitanlega aö ég fari
til Seoul. Ef ég kæmist þangað með
íslenska liöinu og tæki jafnhliöa
því þá ákvöröun að leika erlendis
þá kærai ég beint inn í framandi
heira án alls aðlögunartíma. Þaö tel
ég vera mjög óráðlegt,“ segir Júl-
íus.
Júlíus berst fyrir sætinu
„í dag er það númer eitt hjá mér
aö vinna sæö í íslenska liðinu og
leika fyrir íslands hönd í Seoul.
Bogdan notar fáa menn í liöinu
hveiju sinni og það verður að segj-
ast eins og er að ég er aö beijast
um stöður við gífurlega sterka
handknattleiksmenn. En ég held
þeirri baráttu ótrauður áfram,“
segir Júlíus.
Erlendis þarnæsta vetur
í spjallinu-viö DV kvaðst Júlíus
jafnframt stefna að þvi að leika
erlendis þarnæsta vetur eir hann
kvað þó margt kunna að breytast
í millitiöinni.
„Það er margir snjallir hand-'
knattleiksmenn í veröldinni og eft-
ir ólymíuleikana verður járntjaldiö
sjálfsagt dregið upp. Leikmenn frá
Austur-Evrópu fá þannig ef aö lík-
ura lætur að spila í Vestur-Evrópu.
Það er því í raun ómöguiegt að
segja hvert framhaldið hjá mér
verður. Ég stefni þó að því að spila
erlendis á þamæsta leiktímabili,“
sagði Júlíus.
Steinunn Sæmundsdóttir varð um helgina íslandsmeistari í meistaraflokki
kvenna. Steinunn spilaði mjög vel á mótinu og varð 5 höggum á undan
næsta keppanda. DV-mynd KAE
Skagatvíburamir
sáu um Svíana
- skoruöu öll mörkin í 4-3 sigri íslands
íslenska drengjalandsliöið í knatt-
spymu vann sætan sigur'á Norður-
landameistumm "Svía, 4-3, á þeirra
heimavelh í Vásterás í gær. Þetta var
annar leikur íslands á Norðurlanda-
mótinu en fyrsti leikurinn, gegn
Norðmönnum á sunnudag, tapaðist,
1-2.
Tvíburamir efnilegu frá Akranesi,
Bjarki og Arnar Gunnlaugssynir,
voru svo sannarlega í sviðsljósinu í
gær þvi þeir skomðu öll íjögur mörk-
in. Sviar komust yfir á 2. mínútu en
ísland átti sláarskot og markvörður
Svía varði vítaspymu Gunnars Pét-
urssonar áður en Amar jafnaði.
Mark var dæmt af íslandi skömmu
síðar en Bjarki bætti úr því með
tveimur mörkum fyrir hlé, 3-1.
Svíar löguöu stöðuna í 3-2 fljótlega
en strax á eftir svaraði Amar eftir
sendingu Bjarka, 4-2. Heimamenn
áttu síðan lokaoröið rétt fyrir leiks-
lok. „Eftir mark Svía í byrjun var
aðeins eitt lið á velhnum, strákamir
léku ipjög vel og höföu yfirburði,"
sagði Helgi Þorvaldsson fararstjóri í
spjalli viö DV í gærkvöldi.
Gegn Norðmönnum skoraði Bjarki
eftir aðeins sex mínútur, en tvö ódýr
mörk sitt hvomm megin við hálfleik
færðu Norðmönnum sigurinn.
Eftir tvær umferðir eru Danir efst-
ir með 4 stig. Englendingar og Norð-
menn em meö 3, íslendingar 2, Svíar
og Finnar ekkert. íslenska liðið mæt-
ir því fmnska annaö kvöld.
-VS
Sigurður skoraði
og Luzem er efst
- enn eitt markiö gegn Grasshoppers
Sigurður Grétarsson skoraði síð-
ara mark Luzem í 2-0 sigri á Grass-
hoppers í svissnesku i. deildinni í
knattspymu um helgina. Luzern er
þar með í efsta sæti deildarinnar með
5 stig eftir 3 umferðir. Sigurður fékk
boltann rétt innan vítateigs eftir fyr-
irgjöf, einn gegn markverði, og sendi
hann í netið af öryggi.
„Þetta var mjög sætur sigur þar
sem Grasshoppers keypti mikinn
íjölda leikmanna í sumar og er af
flestum spáð meistaratitlinum. Við
höfum hins vegar verið meö nánast
sama liðið í tvö ár og ég held aö það
sé lykillinn að þessari góðu byijun
hjá okkur, liðið nær mjög vel sam-
an,“ sagöi Sigurður í samtali við DV
í gær.
Hann skoraði þama mark í þriöja
deildarleiknum í röð gegn Grass-
hoppers, en Luzem vann þetta kunn-
asta liö Sviss tvívegis í úrslitakeppni
deildarinnar í fyrravor og þá skoraði
hann í báðum leikjunum.
-VS