Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Blaðsíða 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
íþróttir
„Náði að halda
embeitangunni
undir lokin"
- sagöi Steinurm Sæmundsdóttir meistari kvenna
„Þetta var mjðg ánægjulegur
sigur eftir harða og spennandi
keppni. Fyrirfram átti ég alveg
eins von á sigri en þetta gat auð-
vitað endaö á alia vegu,“ sagði
Steinunn Sæmundsdóttir, eftir að
hafa tryggt sér íslandsmeistara-
titilinn í meistaraflokki kvenna á
Meistaramótinu.
„Viö erum annars mjög jafnar
í meistaraflokknum og því kom
mér á óvart að ég skyldi hafa
heil 5 högg í forystu í lokin. Þetta
var mjög jafnt framan af og á 5
holu á síðasta deginum vorum við
hnííjafnar. Þetta var mjög spenn-
andi á síðustu holunum en ég
náði að halda einbeitingunni
undir lokin,“ sagði Steinunn í
samtali viö DV.
Anægð í heíldina
„Þrátt fyrir sigurinn þá tókst
mér ekki alveg nógu vel upp í
púttunum en þaö hefur sennilega
verið einhver taugaspenna. í
heildina er ég samt mjög ánsegð
með spilamennskuna og hun
tryggði mér alla vega sigurinn
sem er auðvitaö númer eitt. Það
þýðir ekkert aö slappa af á næst-
unni því framundan eru næg
verkefni. Ég vonast til að komast
í landshðið fyrir Norðurlanda-
mótið sem fram fer hér í þessum
mánuði og svo er heimsmeistara-
keppnin í Svíþjóð í september
nk.,“ sagði Steinunn, sem auk
þess að vera íslandsmeistari í
golfi hefur unnið til margra verð-
launa á skíðum.
-RR
Skrifstofutæknir
er lýtur að skrifstofustörfum. Sérstök öhersla
er lögð ó notkun PC-tölva. Nömið tekur
þrjá mánuði, Námskeið þessi hafa reynst
mjög gagnleg fyrir skrifstofufólk og þá er
hyggja á skrifstofuvinnu.
í náminu eru kenndar m.a, eftirfarandi greinar:
ti, ritvinnsla,
toll-
víxlar
og verðbréf,íslenska og viðskiptaenska.
nami
Innritun og nánari upplýsingar veittar í
símum 687590 og 686790
um námið.
Tölvufræðslan
Meistaramótið í
golfi:
Stórglæsileg
sigur hjá Sigi
- spilaði frábærlega og varð sex höggum á undan
Sigurður Sigurðsson og Steinunn
Sæmundsdóttir tryggðu sér íslands-
meistaratitlana í meistaraflokki í gohi
um helgina þegar Meistaramót íslands
fór fram í Grafarholti. Sigurður vann
glæsilegan sigur í karlaflokki þar sem
hann lék 72 holurnar á 296 höggum, eða
12 höggum undir pari. Sigurður varð 6
höggum á undan Sveini Sigurbergssyni
sem varð í öðru sæti en Úlfar Jónsson,
íslandsmeistari síðustu'tvö árin, varð
að láta sér lynda 3. sætið að þessu sinni.
Steinunn Sæmundsdóttir vann örugg-
ar. sigur í méistaraílokki kvenna en hún
lék holurnar 72 á 329 höggum. í ööru
sæti varð Ásgeröur Sverrisdóttir með
334 högg.
í 1. flokki karla sigraði Frans Páll Sig-
urðsson en hann lék á 313 höggum og
varð tveimur höggum á undan Herði
Arnarssyni, sem varð annar.
í 1. flokki kvenna varð Aðalheiður
Jörgensen íslandsmeistari með 370
högg og þremur höggum á undan stöllu
sinni Erlu Adólfsdóttur, sem hafnaði í
öðru sæti.
Meistaramótiö, sem hófst á fimmtudag,
er það stærsta sem haldið hefur verið
en keppendur voru hátt á fjórða hundr-
að.
Leiknar voru 72 holur á fjórum dög-
um og var keppni spennandi og
skemmtileg á öllum stöðum.
Lokatölur efstu manna urðu annars
sem hér segir:
Meistaraflokkur karla
1. Sigurður Sigurösson, GS.....296
2. Sveinn Sigurbergsson, GK....302
3. Úlfar Jónsson, GK...........304
4-5. Hannes Eyvindsson, GR.......309
4-5. Tryggvi Traustason, GK......309
6. Ingi Jóhannesson, GR........310
7. Ragnar Ólafsson, GR.........214
8-9. Óskar Sæmundsson, GR........315
8-9. Eiríkur Guðmundsson, GR.....315
10. Ómar Örn Ragnarsson, GL....319 '
Meistaraflokkur kvenna
1. Steinunn Sæmundsdóttir, GK.... 329
2. Ásgerður Sverrisdóttir, GR.....334
3. Karen Sævarsdóttir, GS.........335
4. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR.. 336
5. Kristín Pálsdóttir, GK.........347
6-7. Alda Sigurðardóttir, GK........355
6-7. Jóhanna Ingólfsdóttir, GR......355
8-9. Þórdís Geirsdóttir, GK.........364
8-9. ÁrnýÁrnadóttir, GA.............364
10. Jónína Pálsdóttir, NK..........371
1. flokkur Karla
1. Frans Páll Sigurðsson, GR......313
2. Hörður Arnarsson, GK...........315
3-5. Viðar Þorsteinsson, GA.........317
3-5. Magnús Karlsson, GA............317
3-5. Arnar Baldursson, GÍ...........317
1. flokkur kvenna
1. Aðalheiður Jörgensen, GR.......370
2. Erla Adólfsdóttir, GG..........373
3. Ágústa Guömundsdóttir, GR......377
4. Björk Ingvarsdóttir, GK........379
5. Guðrún Eiríksdóttir, GR........382
Sigurður Sigurðsson, nýkrýndur Islandsmeistari í golfi, sést hér taka upphafshögg af einum teignum. DV-mynd KAE
„Ég er að sjálfsögðu í
skýjunum eftir sigurinn“
- sagði Islandsmeistari karla, Sigurður Sigurðsson
„Ég er að sjálfsögðu í skýjunum eftir
þennan sigur. Þetta hefur verið mjög
erfið vika og mér finnst það hreint stór-
kostlegt að ná að sigra í svona sterku
móti,“ sagði nýkrýndur íslandsmeistar-
inn í golfi, Sigurður Sigurðsson, í sam-
tali við DV eftir verðlaunaafhending-
una á laugardagskvöld.
„Fyrirfram átti ég eiginlega ekki von
á að sigra en gerði mér þó að sjálfsögðu
vonir. Það var mikil pressa á Úlfari því
allir töluðu um að hann myndi sigra
svo ég hafði eiginlega allt að vinna en
engu að tapa og var því ekki undir mik-
illi pressu. Þegar ég var kominn með
forystuna, eftir að mótiö var hálfnað,
áttaði ég mig fyrst almennilega á því
aö ég gæti vel unnið og mér tókst að
halda einbeitingunni á lokakaflanum,"
sagði Sigurður.
„Ég var búinn að búa mig ágætlega
undir mótið og hef reyndar æft nokkuð
stíft síðustu vikurnar enda þýðir ekkert
annað. Ég hef fengið góðan tíma frá
vinnu og svo er auövitað öll fjölskyldan
í golfmu þannig að það er lítið mál að
eyða nokkrum tímum á dag úti á golf-
velli. Ég mun leggja enn harðar að mér
á næ'stunni og stefni að því að komast
í enn betra form og bæta mig enn frek-
ar,“ sagði Sigurður, sem mun að öllum
líkindum leika með landsliðinu á Norð-
urlandamótinu í þessum mánuði.
„Keppendumir á mótinu voru annars
frábærir og andinn á milli okkar var
engu hkur. Þá vil ég einnig þakka öllum
þeim Suðurnesjamönnum og öðrum
sem mættu á mótið og studdu mig gífur-
lega í keppninni," sagði Sigurður að
lokum.
Sigurður lék frábærlega
,, Sigurður átti sigurinn skilinn í þessu .
móti, hann lék frábærlega vel allan tím-
ann og sýndi mikla baráttu," sagði fyrr-
verandi íslandsmeistari, Úlfar Jónsson,
sem hafnaði í 3. sæti að þessu sinni.
Mér gekk ekki nógu vel með sveifluna
og átti í dálitlum vandræðum með upp-
hafshöggin. Ég mun reyna að bæta mig
á næstunni og stefni svo bara á að end-
urheimta titilinn á næsta ári en ég óska
Sigurði innilega til hamingju með sig-
urinn, ‘ ‘ sagði Ulfar. -RR