Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Page 33
Í’RIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
33
LífsstHI
sem dvalið hefur langtímum erlend-
is, kom í ljós að margir urðu hvumsa
yfir því hve íslendingar sletta mikiö.
Þetta fólk segir sjálft að það hafi vilj-
að vanda sig við íslenskuna þegar
heim var komiö enda vill.oft brenna
við að það sé gert grín að því ef það
talar ekki hreina íslensku. Oft með
þessum orðum: Vóðalega ert þú orð-
inn amerísk(ur).
Svavar Sigmundsson dósent, sem
hefur meðal annars skrifað Slangur-
orðabókina ásamt fleirum, sagði að
slettur væru ekki æskilegar í sjálfu
sér - þær væru heldur hvimleiðar í
tíma og ótíma. Hins vegar væru slett-
ur og slangur óhjákvæmilega þróun
í opnu samfélagi sem hvert þjóðfélag
ætti við að glíma. Hann kvað einkum
tónlistarmálið mikla hylgju sem væri
ekki útséð aö lyki í framtíðinni.
Munur á talmáli og bókmáli
„Slettur hafa þó þann kost fram
yfir slangur að þær deyja frekar út
þótt alltaf verði einhver orð eftir.
Slangur hefur mun lengri hftíma og
getur jafnvel fest í máhnu. Þaö fer
einnig eftír því hvort þetta mál kemst
inn í bókmenntimar.
Það má geta þess aö hér áður fyrr
héldu menn að íslenskan gæti ekki
breyst því að hún hefur haldist alveg
skiljanleg frá örófi alda. Menn gerðu
ekki greinarmun á tal- og bók-
menntamáli," sagði Svavar. GKr
Þessi mynd er dregin upp úr myndasafni DV og sýnir hvernig tíðarandinn var fyrir nokkrum árum.
Matur
er mannsms megin
— ekki síst þegar hans er neytt á
SPRENGISANDI