Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1988, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1988.
35
Afmæli
Bogi Þorsteinsson
Bogi Þorsteinsson, fv. yfirflugum-
ferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli,
Hjallavegi 7, Njarðvíkum, er sjötug-
urídag.
Bogi fæddist að Ljárskógaseli í
Laxárdal í Dalasýslu og ólst upp hjá
afa sínum, Boga Sigurðssyni, í Búð-
ardal og síðari konu hans, Ingi-
björgu Siguröardóttur.
Bogi lauk loftskeytaprófi 1941 og
starfaði á ýmsum skipum til stríös-
loka, þ.á.m. e.s. Dettifossi er því
skipi var sökkt í febrúar 1945. Bogi
réðst til Flugmálastjómar á Reykja-
víkurflugvelli 1.2.1946. Hann lauk
námi í flugumferðarstjórn á Reykja-
víkurflugvelli og framhaldsnámi
hjá flugmálastjórn Bandaríkjanna.
Bogi var settur yfirflugumferðar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli 1.6.1951
og starfaði sem slíkur óslitið til 1.8.
1985 er hann fór á eftirlaun.
Bogi hefur verið virkur í félags-
málum. Hann stofnaði m.a. íþrótta-
félag Keflavíkurflugvallar er sigraði
á fyrsta íslandsmóti í körfuknatt-
leik. Hann var fyrsti formaður
Körfuknattleikssambandsins og
gegndi fjölda annarra trúnaðar-
starfa á vegum íþróttahreyfingar-
mnar.
Systkini Boga: Ragnar kennari;
Ingveldur, húsfreyja á Vallá; Sig-
valdi Gísli lögfræðingur; Gunnar
Þorsteinn á Vallá; og Elís Gunnar á
Hrappsstöðum. Hálfsystir Boga:
Guðlaug er átti Gest Olafsson, kenn-
ara á Akureyri.
Foreldrar Boga: Hjónin Þorsteinn
Gíslason, b. í Ljárskógaseli, f. í
Stykkishólmi 25.11.1873, d. 9.11,
1940, og Alvilda María Friðrikka
Bogadóttir, f. 11.3.1887, d. 22.3.1955.
Fööurforeldrar Boga voru Gisli
Þorsteinsson í Stykkishólmi og
kona hans, Ingveldur Jónsdóttir.
Alvilda var dóttir Boga Sigurössop-
ar, kaupmanns í Búðardal, og Maríu
Guðmundsdóttur frá Kollugerði.
Bogi var bróðir Björns er rak versl-
un í Flatey og í Kaupmannahöfn og
var bankastjóri Landsbankans
1910-16 en sonur Björns var Sigurð-
ur, forstjóri og konsúll. Bogi var
sonur Sigurðar Finnbogasonar á
Sæunnarstöðum í Hallárdal og
konu hans, Elísabetar Bjömsdóttur
frá Þverá, Þorlákssonar. Foreldrar
Sigurðar vom Finnbogi Sigurðsson
á Kirkjubóli í Skagafirði og kona
Bogi Þorsteinsson.
hans, Guðrún Árnadóttir frá Reykj-
arhóh, Árnasonar.
Jón H. Þorvaldsson
Jón H. Þorvcildsson, umsjónarmað-
ur húseigna lögreglunnar í Reykja-
vík, til heimilis að Holtagerði 12 í
Kópavogi, veröur sjötugur í dag.
Jón fæddist að Ytri-Reistará í
Eyjafirði en foreldrar hans voru
Signý Friðriksdóttir og Þorvaldur
Jónsson.
Jón er lærður húsasmiöur, lauk
námi frá Iönskólanum á Akureyri
1940. Hann sat í bæjarstjórn Akur-
eyrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1953-65.
Jón er þríkvæntur. Fyrsta kona
hans var Hilma Vigfúsdóttir, en þau
eignuðust þrjú börn. Þau eru:
Sveinn húsasmíðameistari, búsett-
ur í Marieholm í Sviþjóð, kvæntur
Gunnlaugu Garibaldadóttur og eiga
þau fjögur böm og tvö barnabörn;
Friðrik, ókvæntur og búsettur í
Reykjavík; og Kolbrún, gift Thorleif
Jóhannssyni, en þau eru búsett á
Akureyri og eiga fjögur böm og eitt
barnabarn. Hilma lést 1971.
Önnur kona Jóns var Steinunn
Pálsdóttir, en hún lést af slysförum
1974. Þriðja kona Jóns er Guðrún
S. Guömundsdóttir. Þau hjónin taka
á móti gestum á afmælisdaginn, frá
klukkan 17-19 í Norðurljósasal í
Þórskaffiá4.hæð.
Jón H. Þorvaldsson.
Kolbeinn
Kolbeinn Helgason, Mávahrauni 14,
Hafnarfirði, varð sextugur í gær.
Kolbeinn er fæddur á Hrappsstöð-
um í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði
og vann við verslunar- og skrifstofu-
störf á Akureyri 1949-1956 og 1962-
1977. Hann vann viö fiskvinnslu í
Vestmannaeyjum, á Raufarhöfn og
á Akureyri 1957-1961 og hefur verið
skrifstofustjóri á Hrafnistu DAS í
Hafnarfirði frá 1977. Kolbeinn var í
stjórn Félags verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri 1953-1977,
gjaldkeri 1953-1956, varaformaður
1967-1975, formaður 1976-1977 og sat
flest Alþýðusambandsþing 1956-
1976 sem fullrúi félagsins. Hann var
í stjórn Alþýðuflokksfélags Akur-
eyrar í nokkur ár, þar af formaður
1966-1969 og í flokksstjórn Alþýðu-
flokksins 1966-1970. Kolbeinn var í
stjórn Krossanesverksmiðjunnar
1966-1970 og í framtalsnefnd Akur-
eyrarkaupstaðar 1968-1977.
Kolbeinn kvæntist 8. ágúst 1964
Sigríði Aðalbjörgu Jónsdóttur, f. 13.
nóvember 1928, forstööukonu á
Hrafnistu DAS í Hafnarfirði. For-
eldrar hennar eru Jón Jónsson,
fyrrv. skipstjóri, frá Tjörnum í Eyja-
firði og kona hans, Guðbjörg Bene-
diktsdóttir. Dætur Kolbeins og Sig-
ríðar eru Guðrún Emilía, f. 24. des-
Helgason
ember 1970, og Kristín, f. 24. janúar
1974. Bræður Kolbeins, samfeðra,
eru Haukur, húsvörður Digranes-
skóla í Kópavogi, kvæntur Halldóru
Guðmundsdóttur; Njáll, iðnverka-
maður á Akureyri, kvæntur Öldu
Einarsdóttur, en þeir eru báðir látn-
ir, og Haraldur, fyrrv. kaupfélags-
stjóri Kaupfélags verkamanna á
Akureyri, kvæntur Áslaugu Einars-
dóttur, bæjarfulltrúa á Akureyri.
Foreldrar Kolbeins voru Helgi Kol-
beinsson, b. á Hrappsstöðum, síðar
verkamaður á Akureyri, og kona
hans, Guðrún Jónsdóttir. Helgi var
sonur Kolbeins, b. á Svertingsstöð-
um í Öngulsstaðahreppi, Jónssonar
og konu hans, Ingibjargar, systur
Sigurlaugar, ömmu Indriða Indriða-
sonar rithöfundar. Ingibjörg var
dóttir Jósefs, b. á Kálíborgará í
Bárðardal, Þórarinssonar, b. á ís-
hóli í Bárðardal, Jónssonar. Móðir
Ingibjargar var Helga, systir Ás-
mundar á Hvarfi í Báröardal, föður
Valdimars ritstjóra, fóður Héöins
alþingismanns. Helga var dóttir
Sæmundar, b. á Amdísarstöðum,
bróður Jóns, langafa Barða, skrif-
stofustjóra Vinnuveitendasam-
bandsins, og Kristjáns forstjóra
Friðrikssona. Jón vár einnig langafi
Þóris, afa Höskuldar Þráinssonar
Kolbeinn Helgason.
prófessors. Sæmundur var sonur
Torfa, b. í Holtakoti, Jónssonar, b.
á Kálfárborg, Álfa-Þorsteinssonar,
b. á Ytrileikskálaá, Gunnarssonar.
Guðrún var dóttir Jóns, b. í Sól-
heimatungukoti, Bjarnasonar og
konu hans, Halldóru Jónsdóttur, b.
í Hrísnesi í Þverárhlíð, Sigurðsson-
ar, b. í Sanddalstungu, Jónssonar,
b. og dbrm. í Deildartungu, Þor-
valdssonar, ættfóöur Deildartungu-
ættarinnar.
Óli Bjarni Jósefsson, Ásgarði 25,
Reykjavík, varð fimmtugur í gær.
Hann fæddist í Reykjavík, sonur
hjónanna Jósefs Einarssonar verk-
stjóra og Katrínar Kristjánsdóttur
hjúkrunarkonu sem bæði eru látin.
Óli hefur unniö ýmis störf hjá
Reykjavíkurborg síðan 1954 en hann
hefur verið bifreiðastjóri hjá Véla-
miðstöð Reykjavíkurborgar frá
stofnun hennar 1964.
Óli kvæntist 29.5.1960 Sesselju
Eiríksdóttur ræstingarstjóra, f. 22.8.
1941. Sesselja er dóttir Eiríks Helga-
sonar, rafvirkjameistara í Stykkis-
hólmi, og konu hans, Unnar Jóns-
dóttur, en þau eru bæði látin.
Börn Óla og Sesselju eru: Unnur,
hárgreiðslumeistari, f. 26.3.1961, gift
Jóni A. Kratch sjómanni, en þau eru
búsett í Ólafsvík og eiga eitt barn;
Katrín kennari, f. 2.10.1962, gift
Hafliða Sívertsen, húsasmið og
tæknimanni, en þau eru búsett í
Reykjavík og eiga tvö börn; Kristján
húsasmiður, f. 14.3.1964, en unnusta
hans er Kristín Halla Þórisdóttir
stúdent og eru þau búsett í Reykja-
vík.
Óli Bjarni Jósefsson.
Óli Bjami Jósefsson
Magnea Bjarnadóttir
Magnea Bjarnadóttir, Borgar-
heiði 31, Hveragerði, varð sjötíu og
fimm ára síðastliðinn sunnudag.
Magnea er fædd í Rvík, lauk prófi
frá Héraðsskólanum aö Laugar-
vatni 1933 og var síðar á Húsmæðra-
skóla ísafjarðar. Hún giftist 1934
GuömundiMagnússyni, d. 1969.
Böm Magneu og Guðmundar voru
átta en þau misstu eitt í æsku. Á
lífi eru Magnús, fyrrv. lögreglu-
þjónn, nú b. og oddviti á Gríshóli í
Helgafellssveit, kvæntur Guðrúnu
Reynisdóttur; Gyða, fyrrv. banka-
starfsmaður, gift Kolbeini Kristins-
syni, b. á Haukabrekku á Skógar-
strönd; Hjördis, fyrrv. póstmaður,
húsfreyja í Mosfellsbæ, var gift
Hauki Kjartanssyni, d. 1976; Bjarni,
búfræðingur og b. á Svelgsá í Helga-
fellssveit, kvæntur Brynju Sveins-
dóttur; Ragnheiður, garðyrkjufræö-
ingur, rekur plöntusöluna Borg í
Hveragerði, gift Lars Nielson;
Sveinn bifvélavirkjameistari, rekur
Byggðasel hf. í Hveragerði; kvæntur
Gerði Tómasdóttur, og Hildur, rek-
ur Ásplast í Hverageröi, gift Þráni
Svanssyni.
Systkini Magneu eru Jón B. Long,
rafvirki á Akranesi; Sveinn H. Long,
Magnea Bjarnadóttir.
bifvélavirki í Hafnarfirði; Þórlaug,
húsmóðir í Rvík; Antonía, húsmóöir
í Hveragerði; Bergþóra, húsmóðir á
Akureyri; Gunnar, lagermaður á
Akranesi, og Rebekka, húsmóðir á
Norðfiröi, en hún er látin.
Foreldrar Magneu voru Bjarni
Jónsson, skipstjóri og skipaskoðun-
armaður á Búðum i Fáskrúðsflrði,
af Longættinni, og kona hans, Ragn-
heiður Magnúsdóttir.
Blaðið hveturafmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsingar
umfrændgarðog starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi
tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Til hamingju með daginn
85 ára
Bengta K. Grímsdóttir, Hringbraut
77, Reykjavík.
Tryggvi Sigurðsson, Útnyrðings-
stöðum, Vallahreppi.
Einar Ágúst Einarsson, Fjarðar-
stræti 18, ísafirði.
80 ára
Karvel Sigurgeirsson, Bárugötu 37,
Reykjavik.
75 ára
Þorgerður Pétursdóttir, Miðhús-
um, Búlandshreppi.
Sigrún Sigtryggsdóttir, Aðalstræti
20A, Akureyri.
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Reykjabraut 5, Þorlákshöfn.
Marteinn Steingrímsson, Ásgarðs-
vegi 25, Húsavík.
70 ára
Sæmundur Valdimarsson, Tungu-
vegi 22, Reykjavík.
Ingunn Annasdóttir, Asparfelli 8,
Reykjavík.
Pétur Benediktsson, Hringbraut 89,
Keflavík.
Elínborg Bjarnadóttir, Fellsmúla
9, Reykjavík.
60 ára
Jóhanna Ólafsdóttir, Völlum,
Innri-Arkaneshreppi.
Einar Þórarinsson, Eyrargötu 4,
Eyrarbakka.
Sólrún Sigurðardóttir, Grænuvöll-
um 6, Selfossi.
40 ára
Mattea Katrín Pétursdóttir, Kam-
baseli 7, Reykjavík.
Jóhanna Björg Ström, Brekkugötu
31, Þingeyri.
Árni Halldórsson, Borgarhlíð 2E,
Akureyri.
Kristrún Sigurðardóttir, Litlageröi
11, Reykjavík.
Guðmundur Siguijónsson, Orra-
hólum 3, Reykjavík.