Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Page 5
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
5
Fréttir
Göng 1 Olafsfj aröarmúla:
Sjáum ekki hvort mann-
skapurinn þorir þama inn
- segir Bjöm Jónasson, staðarstjóri hjá Krafttaki
Gylfi Kristjánsson, DV, Akmeyri:
Björn Jónasson, staöarstjóri Krafttaks. Á bak við hann má sjá 52 tonna
gröfuna þar sem hún er nær öll á kafi í druliu. DV-mynd gk
„Þaö er gífurlegt magn af aur og
drullu sem hefur komið hér niður
úr fjallinu á stæðið fyrir framan
þann stað þar sem göngin eiga að
fara inh í fjallið í Kúhagagili, ég
reikna með að 20-30 þúsund rúm-
metrar hafi komið hérna niður í
skriðunum," sagði Björn Jónasson,
staðarstjóri hjá Krafttaki, er DV hitti
hann að máh við Kúhagagil í Ólafs-
firði í gær.
Krafttak hafði unnið þar aö gerð
plans, fyrir framan þann stað þar
sem göngin eiga að koma út úr fjall-
inu, Ólafsfjarðarmegin. „Við vorum
búnir að sprengja rás sem á að liggja
að gangaopinu og höfðum skilið þar
eftir stóra gröfu sem nú er svo gott
sem á kafi í aur og drullu,“ sagði
Björn.
Grafan, sem er af Liebherr-gerö,
hvorki meira né minna en 52 tonn
að þyngd og um 5 metra há, var nán-
ast á kafi í drullunni þar sem hún
haföi verið skilin eftir áður en ósköp-
in dundu yfir. „Hún er ekki ónýt en
sennilega illa farin þar sem aurinn
og drullan smýgur alls staðar inn,“
sagði Bjöm.
- Nú hafa þær raddir heyrst að skyn-
samlegast væri að flytja gangaopið
Ólafsfjarðarmegin nær bænum svo
að atvik eins og þetta geti ekki
komið upp aftur, hvað segir þú um
það?
„Það vekur auðvitað upp þá spurn-
ingu hvort Kúhagagil sé rétti staður-
inn fyrir gangaopið þegar svona lag-
að gerist. Hins vegar eiga að koma
um 160 metra löng göng fyrir utan
sjálf jarðgöngin, með steyptu þaki,
og þá veröur þetta svæði á þurru.“
En telur þú að uggur sé í þeim
mönnum sem eiga að vinna við
gangagerðina vegna þessara at-
burða?
„Ég er mjög hræddur um aö menn
séu uggandi út af þessu og ég sé ekki
Ferskfiskútflutningur:
Biðskák í
baráttunni
í gær féllst Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna, á fundi með
sjávarútvegsráðherra, á að halda
áfram þátttöku í útflutningstak-
mörkunum á ferskfiski. í síðustu
viku neitaði fulltrúi LÍÚ að taka þátt
í vikulegri úthlutun á íeyfum til út-
flutnings á ferskum þorski og ýsu á
Bretlandsmarkaö.
Þessi niðurstaða er málamiðlun í
deilum útgerðarmanna og fiskverk-
enda um það hverjir eigi ráðstöfun-
arréttinn á þeim fiski sem dreginn
er út sjó. Fiskvinnslan berst með
kjafti og klóm fyrir því að fiskurinn
verði ekki fluttur ferskur úr landi.
Útgerðarmenn yilja ákveða sjálfir
hvert þeir selja fiskinn, á innlendan
markað eöa erlendan.
LÍÚ féllst á að taka þátt í útflutings-
takmörkunum gegn því að núver-
andi reglur yrðu rýmkaðar og að 600
tonna sölukvóti á þorsk og ýsu yröi
afnuminn. Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, vildi ekki segja til um
hvprt gengið hefði verið að kröfum
LÍÚ um að vikulegur útflutningur
næmi 1100-1200 tonnum af þorski og
ýsu. „Það kemur í ljós hvað nefndin
gerir sem úthlutar leyfunum,“ segir
Kristján.
Kristján sagöi að engar ákvarðanir
hefðu verið teknar um framtíðar-
skipulag á útflutningi ferskfisks.
Núverandi reglur gilda til loka
september og ósennilegt er aö nokkr-
ar takmarkanir muni gilda um fersk-
fisksölu til Bretlands í vetur.
á þessari stundu hvort mannskapur-
inn er tilbúinn að fara þarna inn í
fjallið. En við höfum ekki haft tök á
því að funda með mannskapnum
ennþá þannig að það er best að segja
ekki meira um það að svo komnu
máli.“
Björn sagði að áætlaö hefði veriö
að hefja sjálfa borunina í fjallið í
annarri viku september. „Það tefst
þó örugglega talsvert og við erum
þegar búnir að missa eina viku úr,'
sagöi Björn Jónasson.
LATTU FJARMUNI ÞINA VAXA
í VERZIUNARBANKANUM!
Verzlunarbankinn hefur bryddað upp á mörgum vinsælum
nýjungum í þjónustu við spariijáreigendur, enda mikil gróska í
starfsemi bankans.
Þess vegna kemur til okkar fólk sem vill hleypa nýju lífi í sparnað
sinn og sjá hann daíha hratt og örugglega.
MARGIR KOSTIR - AIIIR GÓÐIR.
Við höfum margar uppástungur um það hvernig best verður
staðið að ávöxtuninni:
1. KASKÓREIKNINGURINN er löngu orðinn klassískur hjá
sparifjáreigendum sem þurfa að hafa ffjálsan aðgang að
sparnaði sínum. Sterkur og sveigjanlegur.
2. RENTUBÓK, nýr 18 mánaða spennandi sparnaðarkostur.
Bók sem rentar sig eins og góð fjárfesting, en er þó
óbundin ef þörf krefur.
3. SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS, öruggt sparnaðarform til
þriggja, fimm eða átta ára. Nú til sölu í bankanum.
Við veitum allar nánari upplýsingar og hjálpum þér að vega og
meta kosti allra ávöxtunarleiða með hliðsjón af aðstæðum þínum
og markmiðum.
Alltaf velkomin (n).
VERZLUNARBANKINN
-vúuuvi vtteð pé% !
BANKASTRÆTI 5
LAUGAVEGI 172
grensAsvegi 13
ÞARABAKKA 3
UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI
VATNSMÝRARVEGI 10
HÚSI VERSLUNARINNAR
KRINGLUNNI 7
ÞVERHOLTI 6, MOSFELLSBÆ
VATNSNESVEGI 14, KEFLAVlK
pv