Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Síða 8
8 mil S H'KlAOHA.aiU í LAUGARDAGÚR 3. SEPTEMBER 1988. Steinarr Ólafsson, leikari, námsmaður og flugþjónn: Foxtrot setti allt úr skorðum „Heppni,“ svarar Steinarr Ólafs- son aö bragði þegar hann á aö skýra hvers vegna hann er orðinn ein af stjömum hvíta tjaldsins á íslandi. Steinarr leikur „alveg voðalegan bjána“ í kvikmyndinni Foxtrot eins og hann segir sjálfur. Hann hefur fengið lof fyrir frammistöðu sína þótt hann sé ólærður. í sumar hefur hann endasenst milli landa með Flugleiðum þar sem hann er flug- þjónn. Hann hefur nú farið síðustu ferðina á þessu ári og eftir viku sest hann á skólabekk í tannlæknadeild Háskólans. Heppnin, sem Steinarr talar um, var fólgin í því að á menntaskóla- árum sínum sótti hann tíma í leik- Ust. „Það var engin alvara í þessu námi enda var þaö ekki komið til af sérstökum leikhstaráhuga,-1 segir Steinarr og brosir. „Tilgangurinn var aö ná sér í ódýrar einingar." En einn daginn birtist í leikUstartíman- um Jón nokkur Tryggvason Ujá Frostfilm. Hann var að leita að and- Utum til að hafa í sjónvarpsauglýs- ingum. Andlit í bókaauglýsingu „Jón haföi samband við mig ári síðar og þá kom ég fram í einni bóka- auglýsingu," segir Steinarr. „Ég reiknaði ekki með aö meira yrði úr þessu. Ég fór á námskeið fyrir flug- þjóna hjá Flugleiðum og ætlaði að vinna við það sumarið eftir að ég lauk menntaskólanum. Þá hafði Jón aftur samband við mig og vildi fá mig í prufutökur vegna kvikmyndar. Það gekk vel og ég fékk texta til að æfa með Valdimar Erni Fygenring. Niðurstaðan varð sú aö ég var ráðinn til að leika á móti honum í Foxtrot. Ég hafði sannast sagna engan sér- stakan áhuga á leiklist þegar þetta var en það hefur breyst síðan. Ég geri þó ekki ráð fyrir að leggja leik- list fyrir mig en ég sé kvikmyndir nú frá allt öðru sjónarhorni en áður og nýt þeirra betur. Vantaði leiklistarnámið Ég komst að því að leiklist er erfitt fag og ég fann að það háði mér greini- lega að hafa ekkert lært. Ég fann þetta sérstaklega í framsögninni og sjálfsagt er margt fleira sem er ábóta- vant þótt ég geri mér ekki grein fyrir því. Valdimar ráðlagði mér mikið og við náðum mjög vel saman í vinn- unni. Ég var með mjög mikinn skrekk þegar ég sá myndina fyrst og gerði ráð fyrir að koma hörmulega út. Þeir voru þó áður búnir að segja mér aö ég væri ekki alveg glataður en þetta var mjög sérkennileg tilfinning. Ég held að ég þurfi ekkert að skammast mín fyrir minn hlut þótt þetta sé enginn leiksigur." Þegar Steinarr tók að sér hlutverk- ið í Foxtrot var hann búinn að ákveða að gerast flugþjónn og hefja Steinarr Ólafsson - Ég leik alveg voðalegan bjána í myndinni. DV-mynd GVA. JH JB JH Jli JIS Jli JI5 Jl! JIB Jli Jl! Jli Jl! Jl! JIS JU Jl! JBC 9 2 JIB HÚSIÐkIÍ Hringbraut 121 - Sími 10600 f_ 9 n 9 “> 9 gi jji 9 -> 9 "> 9 ■í 9 “> 9 “> ■1 ■) ■ ■) a - “) Við ætlum að halda \ vöruverði í lágmarki \ Og til að svo sé hægt, þá verðum í við að ioka framvegis ki. 18.30 át j{ föstudögum eins og aðra virka j k daga, vegna opnunar á laugar-! 3 “TuS' •*- : JÓN JÓNSSON " " " JÓN JÓNSSON GikJir tu 9 7 1989 GikJirtii 9 ,’ 1989 ATHUGIÐ!!! MlllllO 5% StSÖ" KYNNIÐ YKKUR B ENGIN . KOSTIVIÐSKIPTA- C kortagjöld greiðsluafslattmii! kortanna b VELDU OKKAR KOST, HANN KOSTAR ÞIG MINNA!!! B BJ H JU JU JU JU JU JU JU JU JU JU JU JU JU JH JU JU JU síðan nám í tannlækningum. Þessar áætlanir röskuðust allar. Hann vann í sex mánuði við Foxtrot og varð að fresta öðrum áformum um eitt ár. „Það var í góðu lagi,“ segir Steinarr. „Ég hefði ekki viljað missa af þessu ævintýri." Arfgeng viðfangsefni Steinarr líkir starfi flugþjónsins einnig við annað ævintýri. „Þetta er þrælskemmtilegt starf,“ segir hann. „Ég kann vel við öll ferðalögin og vinnutímann þótt hann sé síbreyti- legur. Það er alltaf nýtt og nýtt fólk og nýir staðir. Þetta er að vísu nokk- uð erfitt en tekjurnar ágætar.“ Steinarr kom úr síðustu ferð sinni á þessu sumri í gærmorgun. Hann gerir ráð fyrir að taka upp þráðinn aftur næsta vor þegar skólanum lýk- ur. Fleiri kvikmyndir eru hins vegar ekki á döfinni. Hann er nú 22 ára gamail og býr í föðurhúsum ókvænt- ur. Hann er næstelstur fjögurra bræðra. Faðir hans er Ólafur Höskuldsson, lektor við tannlæknadeildina, og móðir hans er Bylgja Tryggvadóttir, fyrrum flugfreyja, sem hefur fullt starf af því að „halda aftur af stráka- hópnum“, eins og Steinarr orðar það. „Fjölskyldan hafði miklar áhyggj- ur af myndinni," segir Steinarr bros- andi. „Þau gerðu ráð fyrir að ég yrði ærulaus maður á eftir en árangurinn var þó framar vonum. Það stefnir í það minnsta ekki í að ég missi æruna. Ég held þó að þeim lítist ekkert á aö ég geri þetta að ævistarfi og eru himinlifandi yfir að ég skuh ætla í tannlæknanámið. Ef leikurinn er frátalinn þá virðist það reyndar vera háð erfðum hvað ég tek mér fyrir hendur," sagði Steinarr Ólafsson. -GK önu mali skiptir að vera vakandi ||UMFERÐAR VÍð StyTlð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.