Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Qupperneq 10
10
LAUGARD'AGt'K 3. 'SÉP'TÍÍtóDDli'l9'88.
Breiðsíðan
HráiGunnlaiponí
sanmoiiaenverkáii
Nú er ljóst að Hrafn Gunnlaugsson hættir sem
yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar hjá Sjón-
varpinu í bili að minnsta kosti. Hann hefur feng-
ið fjögurra ára leyfi frá störfum til að vinna að
„samnorrænum verkefnum". Leyfið hefst nú
um áramótin. Fyrsta kastið vinnur hann að
upptökum á sjónvarpsóperunni Vikivaka eftir
Atla Heimi Sveinsson fyrir sjónvarpsstöðvarnar
á Norðurlönduin eins og staðið hefur til undan-
farið.
„Hrafn hefur undanfarið unnið ötullega að
framgangi þessa verkefnis og þegar því er lokið
geri ég ráð fyrir að hann taki að sér fleiri verk
fyrir norrænu sjónvarpsstöðvarnar," sagði
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri. „Það má
því segja að hann verði með annan fótinn hérna
þótt starfsvettvangur hans verði einnig annars
staðar á Norðurlöndum.“.
Hrafn eru um þessar mundir í Svíþjóð. Hann
er að leggja lokahönd á frágang myndarinnar í
skugga hrafnsins sem verður frumsýnd um ára-
mótin hérálandi.
Ýmsar getgátur eru uppi um hver verður arf-
taki Hrafns í starfi hjá Sjónvarpinu. Hrafn fer
aðeins í leyfi þannig að ekki verður nema um
tímabundna ráðningu að ræða og staðan því
ekki fýsilegur kostur þess vegna.
Nú er helst talað um að Björn Emilsson taki
við af Hrafni. í samtali við Breiðsíðuna vildi
Björn hvorki játa þessu né neita. „Ég vil helst
fá að svara þessu eins og stjórnmálamennirnir:
Nó komment," sagði Björn. „Það hefur ekkert
verið ákveðið og ég vil á þessari stundu ekkert
ummáliðsegja."
Sagt er að Egill Eðvarðsson, sem áður hefur
hlaupið í skarðið fyrir Hrafn, hafi ekki áhuga á
að gera það oftar. Þá hefur verið rætt um að
Baldur Hermannsson, hinn fjölfróði dómari úr
spurningaleik síðasta vetrar, hafi hug á stöð-
unni en þyki of uppátektarsamur til að fá hana.
Markús Örn Antonsson segir að staðan verði
auglýst fljótlega og síðan valið úr umsóknum
eftir hefðbundunm leiðum. „Ég kannast ekki
við að einn sé orðaður við stöðuna öðrum frem-
ur,“ sagði Markús. „Það kemur í ljós þegar
umsóknir fara að berast hver kemur til greina.“
-GK
Þú ert 2000 krónum ríkari
Hún ntur meö aðdáun á forseta sinn sem er kominn í heimsókn á heimaslóðir hennar. Kannski langar hana að verða forseti þegar hún
verður stór. Litla stúlkan á myndinni var svo þæg og góð þegar forseti íslands ræddi við börnin að hún á verðlaun skilið. Hún er því tvö
þúsund krónum ríkari og má vitja þeirra peninga á helgarblað DV, Þverholti 11, Reykjavík. -ELA/DV-mynd Brynjar Gauti
SAGT ER að söngkonan
Dolly Parton loki sig inni
sökum þess hve vinsæld-
irhennar fara dvínandi.
Svo virðist sem einhverj-
ar breytingar eigi sér stað
hjá leikkonunni. Eftir að
hún losaði sig við kílóin
er eins og allt hafi gengið
á afturfótunum. Nú segja
menn að hún sé að gera
upp við sig hvort hún eigi
að halda sig við leiklist-
ina og kvikmyndagerð
eða snúa sér aftur af full-
um krafti að söngnum.
Kánnski það væri rétt-
ast...
MICK JAGGER hefur
ekki haft trú á hjóna-
böndum og staðið í þeirri
meiningu að gifting sé
óþörf. Nú nagar hann sig
í handarbökin fyrir að
hafa ekki kvænst fyrir-
sætunni Jerry Hall því
hún er stungin af með
ungum og glæsilegum
milljónamæringi sem býr
í London. Kannski hjóna-
bandið heföi breytt ein-
hverjuþar urn, að
minnsta kosti vildi Jerry
Iiall ganga til altaris en
HER ER gamli kappinn
Frank Sinatra, sem er 72
ára, ásamt eiginkonunni
Barböru sem er 57 ára.
Þau héldu það hátíðlegt á
dögunum að hafa verið
gift í tólf ár. Þykir nokkr-
um það mikið þótt haldið
sé upp á tólf ár í Holly- '
wood með pompi og
prakt? Líklegast eru þeir
ekki margir leikararnir
sem ná þvi að eiga sama
makann í svo mörg ár.
DYNASTY LEIKKONAN
Linda Evins er líklega
fremur íhaldssöm ef
marka má þá sögu að hún
hafi ætlað sér að versla
16 varaliti með uppáhald-
slitnum. Þegar sölukon-
an sagði henni að fram-
leiðandinn væri að hætta
framleiðslunni á þessum
tiltekna lit gerði Linda
Evans sér lítið fyrir og
keypti 72 stykki af uppá-
haldsvaralitnum. Fyrir
það greiddi hún um
fimmtíu þúsund íslen-
skar krónur. Það er gott
að eigapeninga...