Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Side 11
LAUGARDAG.UJR ,3. SEPXEMBER 1988,
11
Breiðsíðan
DV-Myndbrot
vikunnar
i
Þeir eru fallegir litlu kettling-
arnir og nutu sín vel í sveit-
inni. Brugðið var á leik fyrir
Ijósmyndara DV, Kristján
Ara Einarsson, svo hann gat
ekki stillt sig um að smella
af. Kisumamma varfjarri
góðu gamni meðan á leikn-
um stóð en kom síðan aftur
til að gæta að börnum sín-
um. Það er eins og miðkettl-
ingurinn se að velta því fyrir
sér að bjóða upp í dans.
Kannski var sú raunin ...
-ELA
FKwiwwwwmwwixwmmwwmw
■
: s
Það er ekki nema von að Hófi stilli sér upp þegar tekin er mynd af henni
með öllum verðlaunapeningunum. Hún hefur líka skreytt sjálfa sig með
rauðum slaufum og virðist bara nokkuð ánægð með lífið. Er ástæða til
annars? DV-mynd Hanna
Fegurðardrottningin Hófí:
Bætti enn á sig yerðlauniim
Hún heitir Hófi og vann sitt þriöja
meistarastig á hundasýningunni sem
fram fór um síðustu helgi. Hófí er
af Maltise kyni og afbragösfalleg eins
og sjá má á myndinni. Eigandi henn-
ar er Erna Fr’íða Berg. Hófi er aðeins
3ja ára. Hún var svo ung þegar hún
fékk fyrstu tvö meistarastigin að
vegnaaldurssínsþurftihúnþriðja '
stig. Aðeins einn annar hundur er
meðþrjúmeistarastighérálandi. .
Hófí er því orðinn alþjóðameistari,
geriaðrirbetur.
Hófí er fædd í Mosfellsbæ og er að
sjálfsögöu af hreinræktuðu kyni.
Innan við tuttugu Maltise hundar
eru til hér á landi. Nú á Hófí kost á
að taka þátt í hundasýningum er-
lendis ef slíkt væri leyfilegt. Heimil-
isfólk Hófíar er að vonum stolt af
velgengni hennar og ekki var úr vegi
að stilla dömunni upp fyrir mynda-
töku. Verðlaunapeningarnirfengu
aðverameð.
Tíkip Hófí fæddist um svipað leyti
og Hólmfríður Karlsdóttir var kjörin
ungfrú heimur og er ekki nokkrum
blöðum um það að fletta að nafnið
má rekja til fegurðardrottningarinn-
ar. Ætli fegurðin fylgi nafninu?
-ELA
„íslenskar konur hafa
lagtniðurheimilisstörf- .
in og hafa varpað sér út
í hringiðu stjórnmál-
anna.“ Svo segir í einu
útbreiddasta dagblaði í
Noregi, Verdens Gang.
Þarbirtistþessi
skemmtilega mynd af
Þórhildi Þorleifsdóttur
þarsemhún siturá
grasflötinni með kven-
fatnað á snúru í baksýn.
Blaðið gerir því góö
skil aö ísland sé eina
landið í heiminum sem
hafi kvennalista - og sé
með sex þingmenri á Al-
þingi. „Þriðja hver ís-
lensk kona styður flokk-
inn,“ segir blaðið. „Eftir
að flokkurinn var stofn-
aður árið 1982 hefur
hann sífellt verið að
bæta við sigfylgi.
Ein af fremstu konum
á Kvennahstanum er
Þórhildur Þorleifsdóttir,
43ja ára, fimm barna
móðir og fyrrum leik-
stjóri. Nú situr hún á
Alþingi íslendinga."
„Það er nauðsynlegt að
hafa Kvennalista," segir
Þórhildur í viðtali við
blaðið. „Konur hafa allt-
af starfað í karlaflokk-
um þar sem þær hafa
ekki mætt skilningi."
Þórhildur segir að það
sé hvorki hægt að tala
um Kvennalistann sem
hægri né vinstri flokk,
„heldur erum við þriðja
víddin í stjórnmálum."
„Öll mál eru kvenna-
mál,“ segir Þórhildur
ehn fremur. „Viö höfum
þó se’tt okkur oddamál.
Fyrir síðustu kosningar
voru það lágmarkslaun,
við höfnuðum stóriðju á
íslandi og höfnum upp-
byggingu NATO í
landinu." Þórhildur
upplýsir að Kvennalist-
inn sé sífellt að bæta við
sig fylgi og að flokkurinn
hafi vakiö heimsathygli,
ekki síður en forsetinn,
Vigdís Finnbogadóttir.
-ELA
Þessi mynd birtist af Þórhildi Þorleifsdóttur i norska blaðinu VG. Þingmaðurinn með
kvenmannsfatnað á snúru á bak við sig.