Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Page 36
52 Knattspyma unglinga Breiðablik sigraði Fram, 2-1, á dögunum í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ í 3. flokki. Myndin er af fyrirliða Blikanna, Ásgeiri Baldurssyni, hampa bikarnum eftir þann sigur. Þessi sömu lið léku til úrslita í íslandsmótinu um síðustu ' helgi í Kópavogi og endaði leikurinn með jafntefli, 1-1, eftir framlengdan leik. Þau þurfa því að leika annan leik um íslandsmeistaratitilinn og verður hann á morgun kl. 14.00 á Aðalleikvanginum í Kópavogi. Eitt er víst að búast má við skemmtilegum og spennandi leik þessara tveggja góðu liða. DV-mynd HH Haustmót KR hefst í dag Þá byrjar boltinn að rulla í haust- mótinu. Óllum flokkum er skipt í riðla, nema 2. og 3. flokki, þar spila allir við alla. Kl. 11.00 í dag eru leikir í 4. fl. (A) í riðli 1 og eigast við KR - leiknir og Víkingur - Fram. i riðli 2 leika ÍR-Þróttur og Fylkir - Valur. Á morgun spila í 4. fl. (B) Fram- Valur og Víkingur - Fylkir. Báðir ) leikirnir hefjast kl. 11.00. í 2. fl. leika á morgun kl. 19.00 Leiknir - Fram og kl. 21.00 Fylkir - Valur. 6. fl. á gervigrasinu í dag og á morgun Haustmót 6. fl. hefst kl. 11.00 f dag og lýkur á morgun. Leikir um sæti hefjast kl. 13.30 á morgun. Úrslita- leikurinn um titilinn hefst kl. 16.10. Haustmót í 5. flokki verður um næstu helgi og er með sama sniöi og hjá 6. flokki og verður einnig á gervi- grasvellinum. Sömu reglur gilda um báða þessa flokka og tíðkaðist 1 ís- landsmótinu með 5. fl. -HH Umsjón: Halldór Halldórsson LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988. DV íslandsmótið - 3. flokkur: Jafnt hjá Breiðabliki og Fram - nýr úrslitaleikur á morgun kl. 14.00 á Kópavogsvelli 1 úrslitakeppni íslandsmótsins í 3. flokki voru sum úrslit leikja nokkuð óvænt. Stjarnan olli t.d. miklum von- brigðum eftir mjög góða frammi- stöðu í A-riðli. Sömuleiðis var óvænt- ur sigur KA á Fylki en Fylkir sigraði Fram í fyrsta leik sínum. Breiöablik sigraði Þór, Ak., 11-1, en ÍA átti í miklu basli með iiðið en vann þó, 2-0. í báðum riðlum komast lið áfram á markatölu eins og lög gera ráða fyrir. Athyglisverður er einnig sigur Þórs, Ak., yfir KA og er þetta fyrsta tap KA á leikárinu gegn Þór. Þess má geta aö KA sigraði í bikarkeppni Norðurlands. Ljóst er að dagsformið ræður miklu í úrslitakeppni íslandsmóta yngri flokka. ÍA tapar til að mynda ekki leik á keppnistímabilinu en kemst samt -sem áður ekki í keppni um fyrsta sætið. Liðið vann alla sína leiki í úrslitariðlinum nema leikinn gegn Breiöabliki sem lyktaði 1-1. Bæði þessi lið hlutu 5 stig en Blikarnir komust áfram á stórum sigri yfir Þór. Bæði Fylkismenn og Akurnes- ingar kvörtuðu sáran yfir að þurfa að leika á Smárahvammsvelli þar sem hann væri bæði of stúttur og minnst 10 metrum of mjór. Því ekki undanúrslit? Réttlátast væri, ef unnt er, að tvö efstu lið úr hvorum úrslitariðlanna héldu áfram í undanúrslit. Þar gæti keppnin verið með ýmsu sniði. Til að mynda gætu lið tekið með sér inn- byrðisúrslit og leikið einn aukaleik um rétt á úrslitaleik. Annar mögu- leiki er að láta efstu lið úr A-riðli keppa við lið í öðru sæti í B-riðli og öfugt og sigurvegarar mæti síðan í úrslitaleik. Þetta þýðir fjölgun leikja um tvo. Þaö eru nú öll ósköpin. Áð öllum líkindúm yrði þó úrslitaleikur- inn að fara fram helgina eftir riðla- keppnina og ætti það að vera til bóta hvað varðar allan undirbúning fyrir hinn mikilvæga leik. Þetta eru kannski atriði sem vert er að menn velti betur fyrir sér. Úrslitakeppnin tókst annars í alla staði vel og voru flestir leikjanna mjög spennandi og skemmtilegir. Úrslit leikia í riðlum í 3. flokki: A-riðill: Fram - ÍBK Fram - Fylkir KA - Fram Fylkir-KA ÍBK - KA Fylkir - ÍBK Fram Fylkir ÍBK KA 4-1 1-2 0-4 2- 3 2-1 3- 1 3 2 0 1 9-3 4 3 2 0 1 7-5 4 3 1 0 2 4-8 2 3 1 0 2 4-8 2 Innbyrðisúrslit ÍBK og KA ráða hér úrslitum um sæti. B-riðill: Stjarnan - LA 1-4 Stjarnan - Þór, Ak. 4-1 Breiðablik - Þór, Ak. 11-1 Stjaman - Breiöablik 1-6 IA - Breiðablik 1-1 Þór Ak. - ÍA 0-2 Breiðablik 3 2 10 18-3 5 ÍA 3 2 10 7-2 5 Stjarnan 3 10 2 6-11 2 Þór, Ak. 3 0 0 3 2-17 0 Keppni um sæti í keppni um íslandsmeistaratitil- ’ inn léku Fram og Breiðablik. Leikn- um lauk 1-1 eftir framlengdan leik. Mörkin gerðu þeir Ríkarður Daðason fyrir Fram og Árnar Grétarsson fyrir Breiðablik. Aukaleik þarf því um tit- ilinn og verður hann á Kópavogs- velli kl. 14 á morgun. 3.-4. sæti: ÍA-Fylkir, 3-1. Mörk ÍA: Hafsteinn Gunnarsson 2, Arnar Gunnlaugsson 1. Mark Fylkis: Finn- ur Kolbeinsson. 5.-6. sæti: ÍBK-Stjarnan 1-0. Mark ÍBK gerði Margeir Vilhjálmsson. 7.-8. sæti: KA-Þór, Ak., 2-3. Mörk Þórs: Aðalsteinn Pálsson 2, Rúnar Sigtryggsson 1. Mörk KA: Karl Karls- son og Sigurður Ólason. Sigurgleði Þórsara var mikil eftir leikinn. Þetta er fyrsta tap KA á „erkifjendunum" í sumar. -HH 2. flokkur - íslandsmót: ÍA létt bráð fyrir í slandsmeistarana íslandsmeistarar KR-inga í 2. flokki enduðu glæsilegan feril sinn í ís- landsmótinu á viðeigandi hátt meö 3-0 sigri yfir Akurnesingum. ÍA- strákarnir böröust hetjulega því til- veruréttur þeirra í A-riðli hékk á markatölu. Fyrir þennan leik voru þeir í 3. neðsta sætinu með sama stigafjölda og Fram en eitt mark í plús. Þetta lukkaðist hjá strákunum því Framarar töpuðu mjög stórt gegn Val. Mörk KR gerðu þeir Rúnar Krist- insson, 2, og Þormóður Egilsson, 1, úr vítaspyrnu. Mynd af íslands- meisturum KR-inga verður því miö- ur að bíða betri tíma. Framarar fallnir í B-riðil í 2. flokki Valsmenn byrjuöu leikinn af miklum krafti og skoruðu hvert markið á fætur öðru. Staðan í hálfleik var 6-0 Val í hag og hefði forysta Vals getaö verið enn meiri þvi tækifærin komu á færibandi. Vörn Framara var mjög opin og er það undarlegt þar sem þeir voru að berjast við Skagamenn um fallsætið. Mörk Vals gerðu þessir: Þórðúr Bogason 3, Gunnar Már Másson og Steinar Adolfsson 2 mörk hvor og Engilbert Friðfinnsson 1. Mark Fram: Haukur Pálmason. Stjarnan sigrarenn -nú Víkinga, 2-0 2. fl. Stjörnunnar hefur gert það mjög gott eftir að Siguröur Þorsteins- son tók við stjórn liðsins. Undir hans stjórn hafa strákarnir halað inn 11 stig. Sl. þriöjudag léku þeir gegn Vík- ingi og fór leikurinn fram í Garðabæ. Víkingar voru betri aðilinn framan af en gátu ekki skapað sér nein afger- andi færi. Staðan í hálfleik var 0-0. í síðari hálfleik tóku Stjörnustrák- arnir af skarið og skoruðu 2 mörk án þess að Víkingar næðu að svara fyrip sig. Mörk Stjörnunnar gerðu þeir Valdimar Kristófersson (víti) og Ingólfur Ingólfsson. Með þessum sigri sínum náöi Stjarnan 5. sæti í riðlinum og 13 stigum. Þór - Þróttur, 1-3 (1-1) Þórsarar náðu 4. sæti í A-riðli í 2. flokki þegar þeir sigruðu Þróttara á útivelli, 1-3. Þór var sterkari aðilinn og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Mörk Þórs: Birgir Jón Karlsson 1 og Sævar Árnason 2 mörk. Þess má geta að Þróttarar brenndu af vítaspyrnu undir lokin. -HH Skot Drengimir skipta mestu máli Mjög sjaldséða sjón bar fyrir augu á KR-völlum um miðjan júlimánuð. Það er nefnilega ekki á hverjum degi sem ígeirfugl blandar geði við ísfugla undir kringumstæðum sem þessum. Segja má þó með sanni að það sé besti kosturinn í þessu tilviki því ísfuglum hefur fjölgað gifurlega á svæðinu og því mikilvægt að allt samstarf sé með besta móti. Að þessu sinni tókst allt slíkt með miklum ágætum þegar tríóið sá um dómgæslu í leik KR og Stjörnunnar i 2. fl. kvenna sem KR-stelpurnar unnu. Línuverðir í hinu röggsama tríói voru leikmenn 5. fl. KR, þeir Ágúst Jó- hannsson markvörður, t.v., og Haraldur Þorvarðarson varnarmaður. Dómarinn er enginn annar en Geir Þorsteins- son, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KR. Eftir á sögðu hinir ungur línuverðir álit sitt á dómgæslunni. Ágúst taldi að Geir hefði mátt sýna meiri ákveðni og Haraldur sagði að dómarinn hefði sleppt allt of mörgum brotum. Unglingasiðan getur aftur á móti engan veginn tekið undir þessa hörðu gagnrýni fuglanna - að hennar mati sýndi Geir góða hæfni. DV-mynd HH Öllum þjálfurum er ljóst mikil- vægi þess aö koma saman og ræða málin. Á slíkum stundum láta menn skoðanir sínar í ljós og hlusta af áhuga á það sem aðrir hafa til málanna að leggja. Hugur manna opnast fyrir nýjum leiðum til bættrar þjálfunaraðferða. Það eru, sem betur fer, margar leiöir sem hægt er aö fara til þess aö ná settu marki. Því mikilvægara er að menn hittist við gott tækifæri og beri saman bækur sínar. Mistök hjá unglinganefnd KSÍ Drengjalandsliðsþjálfarinn Lárus Loftsson deildi á dögunum hart á þjálfara félagsliða vegna slæmrar frammistöðu drengja- landshðsins á Norðurlandamótinu um síðustu mánaðamót og kenndi m.a. slælegri markmannskennslu um, auk úthaldsleysis annarra leikmanna. Einnig sagði hann skort á hæfum varnarmönnum. Þetta og fleira sagði Lárus í viðtali. við Morgunblaðið við heimkom- una. Þessu vildu þrír þekktir ungl- ingaþjálfarar ekki una og birtust mótmæli frá þeim á unglingasíðu DV 20. ágúst sl. 28. ágúst birtist síð- an svar frá Lárusi á unglingasíð- unni um að blm. Mbl. hefði mi- stúlkað orð sín við heimkomuna. í úrslitakeppni 3. flokks voru margir af helstu ungingaþjálfurum landsins komnir saman á einn stað og var því kjörið tækifæri fyrir unglinganefnd aö boða til fundar með þjálfurum og ræða málin. Sá fundur heföi reyndar átt að vera. opinn öllum þjálfurum. En ungl- inganefndin brást þarna hrapal- lega því enginn varð fundurinn sem stóð þó til að yrði haldinn laug- ardaginn 27. ágúst sl. Hvers vegna guggnaði unglinganefndin á þessu? Hér var þó kjörið tækifæri til að koma hlutunum á hreint. Svona í lokin vil ég minna menn á að það eru hinir ungu leikmenn sem skipta öllu máli í þessu sam- bandi og þess vegna hlýtur það að vera blátt áfram skylda þjálfara að geta starfað saman og sinnt málefn- um þeirra eins og best verður á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.