Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 46
62
SNARFARI
félag sportbátaeigenda
Fundur til kynningar á tillögu aö skipulagi á
athafna - svæði félagsins verður haldinn í fél-
agsheimilinu Elliðanaustum, fimmtudaginn
8. sept. kl. 2030.
Stjórn Snarfara
TARY j
í DAG OPNAR
TARÝ
nýja verslun að Reykjavíkurvegi
60, Hafnarfirði.
Við bjóðum m.a.
Dallas-undirfatnað
Bómuilarnærfatnað
Snyrtivörur fyrir dömur og herra,
ýmis þekkt merki,
og margt fleira.
Opið mánud.-fimmtudaga kl. 9-18,
föstudaga kl. 9-19,
laugardaga kl. 10-16.
Sími 652085
ATH. Einnig opið
í snyrtivöruversluninni Rofabæ 39.
HAUSTÖNN 1988
INNRITUN í PRÓFADEILDIR
AÐFARANÁM: Jafngilt námi í 7. og 8. bekk grunn-
skóla (1 og 2. bekk gagnfræða-
skóla). Ætlað þeim sem ekki hafa
lokið fyrrgreindu námi eða vilja rifja
upp og hafa fengið E (1-3) á grunn-
skólaprófi.
FORNÁM: Jafngilt grunnskólaprófi og forá-
fanga á framhaldsskólastigi ætlað
fullorðnum, sem ekki hafa lokið
gagnfræðaprófi, og unglingum sem
ekki hafa náð tilskildum árangri á
grunnskólaprófi (fengiðeink. D).
FORSKÓLI SJÚKRALIÐA EÐA HEILSUGÆSLUBRAUT,
undirbúningur fyrir Sjúkraliðaskóla Islands
VIÐSKIPTABRAUT/HAGNÝT VERSLUNAR-
OG SKRIFSTOFUSTÖRF,
framhaldsskólastig.
Nám í prófadeild er allt frá 1 önn í 4 annir, hver önn
er 13 vikur og er kennt 4 kvöld í viku.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Laugalækjar-
skóla.
Kennslugjald fer eftir fjölda námsgreina sem nem-
andi stundar. Hver mánuður greiðist fyrirfram.
Kennsla hefst 12. september.
INNRITUN FER FRAM í MIÐBÆJARSKÓLANUM,
Fríkirkjuvegi 1, föstudaginn 2. sept. og mánudag 5.
sept. kl. 16-20.
Nemendur greiði kennslugjald við innritun.
Nánari fyrirspurnum svarað í símum 12992 og
14106 Námsflokkar Reykjavíkur.
LífsstOI
í ágúst fara ítalar í frí
Draugaborgin Róm
í ágústmánuði fara flestir ítalar í
sumarfrí. Aigengast er að stofnunum
og fyrirtækjum sé lokað í þessum
mánuði. Sé þeim ekki lokað er aðeins
fámennur hópur starfsmanna sem
heldur apparatinu gangandi. Borgir
eins og Mílanó, Genúa og Róm taem-
ast af ítölum.
Um milljón Rómverjar yfirgefa
borgina í ágúst. Þeir ferðamenn, sem
koma til borgarinnar á þessum tíma,
verða varir við þetta fljótt. Ætli mað-
ur til dæmis að bregða þér í kvik-
myndahús eða leikhús er ekki um
margt að velja. Þorri þeirra er nefni-
lega lokaður vegna sumarleyfa.
Smátorg koma í ljós
Þó er ekki hægt að segja að borg-
in verði mannlaus því hundruð þús-
unda ferðamanna koma til Rómar í
hverjum mánuði. Þeir sem dveljast í
borginni í þessum mánuði hafa skipt-
ar skoðanir á íjarveru ítalanna. Þeir
eru til sem amast við þjónustuleys-
inu og eru svekktir að komast ekki
í öll söfnin. Hinir eru þó fleiri sem
kunna að meta að umferðin og
mannhafiö er minna og smærra í
sniðum.
Alvanir ferðamenn hafa sagt að
þeir hafi uppgvötvað nýja borg þegar
þeir hafl komið til Rómar í ágúst. Á
öðrum tíma ársins eru mörg smátorg
hlaðin bílum þannig að ógerlegt er
að sjá eða njóta þeirra. í sumarleyfis-
mánuðinum koma þessi torg í ljós,
áhugasömum ferðamönnum tii
ánægju. „Hér er allt miklu rólegra
og þægilegra," segir bresk ferðakona
sem er ánægð yfir því að óreiða og
hraði stórborgarinnar skuli vera
minni. „Fáar eða engar búðir voru
opnar og þaö var varla hægt að
kaupa ís,“ sagði annar ferðamaður
sem var pirraður á fríforum ítala.
-EG
Mörg smátorg koma í Ijós þegar bílar hverfa af götunum í ágúst.
íslendingar í næstneðsta sæti
Fjöldi frídaga í Evrópu
íslendingar eru meðal þeirra þjóða
sem hafa fæsta frídaga í Evrópu.
Þetta kemur fram í rannsókn sem
Starfsgreinasamband Evrópu lét
gera nýverið.
Þar kemur fram að íslendingar eru
næstneðst af Norðurlöndum á listan-
um yfir fjölda frídaga, með fjórar
vikur og íjórir dagar. Norðmenn eru
neðstir með fjórar vikur og einn dag.
Hinar Norðurlandaþjóðimar eru
með frí sem hér segir: Svíar em með
fimm vikur og Danir og Finnar einn-
ig fimm vikur. Þessu til viöbótar em
síðan almennir helgi- og frídagar á
launum. Myndin breytist dálítiö þá.
íslendingar fá 13 aukafrídaga á ári.
Norðmenn fá tíu, Sviar og Danir níu
og hálfan og Finnar eru aðeins með
fimm.
Af öömm löndum mætti nefna
Frakka með fimm vikna frí og sex
til níu helgi- og frídaga. Bretar eru
með fjórar vikur og átta til tíu helgi-
og frídaga. Vestur-Þjóðverjar em
með þriggja til fimm vikna frí og níu
til þrettán helgi- og frídaga. í Vestur-
Þýskalandi er lögbundið sumarfrí
ekki nema þrjár vikur en flest stór-
fyrirtæki gefa fimm vikna leyfi á
launum.
Svo virðist sem íslendingar séu
fremur aftarlega á merinni hvaö
varðar lögbundiö sumarleyfi í sam-
anburöi við hin Norðurlöndin. Viö
bætum okkur þaö þó upp með auka-
frídögunum.
-EG