Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Heimsbikarmótid í skák
Jóhann saumaði að Portisch
- en lék vænlegri stöðu niður 1 tap
Lánið lék ekki við íslensku kepp-
endurna á heimsbikarmótinu í
gær. Jóhann Hjartarson átti hug
og hjarta áhorfenda er hann yfir-
spilaöi ungverska stórmeistarann
Lajos Portisch en undir lokin
missti Jóhann þráðinn og Ungveij-
inn vann óverðskuldaðan sigur.
Margeir getur einnig nagað sig í
handarbökin eftir tap gegn Tim-
man. í tímahrakinu missti Margeir
af óvæntum möguleika sem hefði
fært honum yfirburðastöðu. í stað-
inn féll hann í lævísa gildru Hol-
lendingsins.
Andersson og Tal urðu fyrstir til
að semja um jafntefli en á öðrum
borðum stefndi í æsispennandi
skákir. Nikolic og Nunn tefldu
flókna skák í kóngsindverskri
vörn; Sax og Beljavsky þræddu ref-
ilstigu spænska leiksins og heims-
meistarinn Kasparov beitti
Griinfeldtsvörninm heittelskuðu
gegn Speelman. Öllum þessum
skákum lauk þó með jafntefli eftir
tiltölulega skamma hríð.
Jusupov og Kortsnoj tefldu fjör-
uga skák. Kortsnoj seildist eftir
peði í byrjun og síðar fómaði hann
riddara til að koma samstæöum
frelsingjum af staö. Allt kom þó
fyrir ekki. Jusupov náði að bægja
hættunni frá og er sýnt var að hann
gæti fórnaö til baka á peðin fram-
sæknu voru friðarsamningamir
undirritaðir.
Ribli naut þess að tefla stöðu gegn
Sokolov þar sem hann var sjálfur
ekki í neinni hættu. Hann vann peð
og í hróksendatafli hafði hann flög-
ur peð gegn þremur, öll á sama
væng. Þeir eru enn að. Skákin fór
í bið og hefur Ribli nú tvö peð gegn
einu peði Sokolovs.
Spassky tapaði!
Eistlendingurinn Jaan Ehlvest
kom mjög á óvart á heimsbikar-
mótinu í Belfort fyrir góða frammi-
stööu og ekki síst fyrir fallegar og
heilsteyptar skákir. Engum þarf að
dyljast, sem skoðar skákir hans,
að fyrirmyndin er sótt frá Paul
Keres, snjallasta skákkappa Eist-
lands.
Ehlvest var í slíkum „Keres-
ham” í gær að sjálfur Boris Spas-
sky réð ekki við sókndirfsku hans.
Skákin var óljós framan af en er
Spassky fór á peðaveiðar á drottn-
ingarvæng notaði Ehlvest tækifær-
ið og beindi spjótum sínum aö
svarta kónginum. Spassky fann
enga vöm og gafst upp eftir hróks-
fóm Ehlvests.
Það er ekki víst að nokkur annar
á þessu móti nái að leika það eftir
Ehlvest að máta Spassky. Hann
þykir nú orðið með öruggari skák-
mönnum. Á heimsbikarmótinu í
Belfort tapaði Spassky aðeins einni
skák - gegn Anatoly Karpov í síö-
ustu umferð.
Frábær skák en sorgleg úr-
slit
Þá víkur sögu aö tafli Jóhanns
og Portisch. Óhætt er að segja að
skák þeirra sé sú innihaldsríkasta
og skemmtilegasta á heimsbikar-
mótinu til þessa. Allt frá byijun
iðaði taflið af möguleikum. Ekki
spillti fyrir ánægju áhorfenda að
Jóhann téfldi miðtaflið af stakri
snilld og um tíma var Portisch nán-
ast leiklaus.
Jóhann átti ýmsa möguleika til
að þróa stöðu sína. Erfitt er að full-
yrða hvort sú áætlun sem hann
valdi hafi verið best en vissulega
lofaði hún góöu. Hins vegar lék
Jóhann veikt rétt fyrir fyrri tíma-
mörkin og er 40 leikja markinu var
Skák
Jón L. Árnason
náð var tafliö óljóst. í framhaldi
skákarinnar valdi Jóhann beitt-
ustu leiðina en eftir mistök af hans
hálfu náði Portisch að treysta stöðu
sína og snúa taflinu sér í vil.
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Jóhann Hjartarson
Bogoindversk vörn
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4.
Bd2 c5 5. Bxb4 cxb4 6. g3 0-0 7. Bg2
d6 8. Rbd2!? Dc7
Eftir 8. - Rc6 er 9. Rfl!? athyglis-
verður möguleiki því að riddarinn
er á leið á góðan reit á e3. Tilraun-
in 9. - Da5?! 10. Re3 b3+ 11. Dd2
Dxd2 12. Rxd2 bxa2 13. Bxc6! bxc6
14. Hxa2 gefur hvítum betra enda-
tafl en þannig tefldist skákin Do-
hojan - Jón L. Árnason í Sotsí á
dögunum.
9. 0-0 b6?! 10. d5! Bb7
Svartur hefði gjarnan viljað leika
10. - e5 en það strandar á 11. Rxe5!
dxe512. d6 og Ha8 er í skotlínu bisk-
upsins. Níundi leikur svarts er
hugsanlega ónákvæmur.
11. dxe6 fxe6 12. Rd4 Bxg2 13. Kxg2
e5 14. Rf5 Rc6 15. Rf3 Had8 16. Re3
Kh8 17. Hcl
Riddarinn er á leið til d5 og hvítur
virðist eiga betra tafl. Frá og með
næsta leik nær Jóhann hins vegar
smám saman aö bæta stöðu sína
og yfirspila Ungverjann.
17. - Db7! 18. Rd5 Re4 19. Dc2 Rc5
20. Rg5 g6 21. Dd2
Einkennilegur leikur, því að
Portisch hættir við þá áætlun að
koma riddara til e4 í drottningar-
valdi. Ekki gekk 21. Re4 strax vegna
21. - Rd4 og sennilega hefur Port-
isch ekki heldur litist á 21. e3 vegna
21. - b5! og nú hriktir í stoðum ridd-
arans á d5.
21. - b5! 22. f3 b3 23. a3 Rd4 24. e4
Þaö er slæmt að þurfa aö gefa
svörtum riddara bækistöð á d4 en
um annað var ekki aö velja.
24. - bxc4 25. Hxc4 h6 26. Rh3 g5! 27.
Hc3!
X X é
if
A 1
A
ÍIA
A A fl í» A
& * ^ A
A B C D E 2 F G H
Portisch er lentur í erfiöri stöðu
en það sem eftir er skákarinnar
hittir hann ávallt á besta varnar-
leikinn. Nú reynir hann að koma
drottningarriddaranum í leikinn
með 28. Rf2.
27. - Df7! 28. De3
Aðalhótunin var 28. - Rxe4!
o.s.frv.
28. - Dg6 29. Re7 Dh7 30. Rd5
Þessir leikir sýna vel úrræðaleysi
hvíts. Nú kemur 30. - g4 vel til
greina en Jóhann treystir stöðu
sína réttilega enn frekar.
30. -Hf7 31. Rgl Hdf8 32. Hccl! Dg6
í þessari stöðu var 32. - g4!? mjög
freistandi. Portisch setur fyrir lek-
ann.
33. Rc3! h5 34. Hf2 Rce6 35. Hcfl h4
36. g4 Rf4+ 37. Khl Hc8 38. Hdl De6
39. Hfd2 Hc6?
Eftir 39. - Hfc7! væri hvítur ekki
öfundsverður af stöðunni. Nú nær
Portisch að rétta úr kútnum.
40. Rd5! Hc2 41. Rxf4! gxf4
í ljós kemur að 41. - Hxf4 strand-
ar á 42. Re2 Hxf3? 43. Rxd4 og vinn-
ur.
42. Df2 Hh7 43. Re2 Hxd2 44. Hxd2
Dc4!?
Hugmyndin er að svara 45. Rxd4
með 45. - Dcl+ 46. Kg2 h3 mát!
Eftir á að hyggja var 44. - Rxe2 lík-
lega betra.
45. Rxf4! Dcl+ 46. Kg2 Kg8?
Hér hefði 46. - h3 + 47. Rxh3 Rxf3!
48. Hxd6 Hf7 leitt til skemmtilegra
sviptinga.
47. Rd5! Hf7 48. f4! Re6 49. f5 Rg5 50.
He2
Ekki 50. Rc3? h3+ 51. Kg3 Dxc3!
52. bxc3 Rxe4+ og hróksendatafliö
er óljóst. Nú hefur Portisch náð að
bægja hættunni frá.
50. - Dc4 51. De3 Kf8 52. h3 Hg7 53.
Rc3 a5 54. Hd2 Dc6 55. Dd3 Hd7 56.
De3 Hg7 57. Hf2 Dc4 58. f6 Hg6 59.
Db6
Og Jóhann gafst upp.
Svartur dagur hjá
íslendingunum
- gleymdi Kasparov vopnunum í farangurstöskunni?
Enski stæröfræöingurinn Jonathan Speelman vekur hvarvetna athygli þó
hann sé hættur að ganga á pálmatré á skákmótum. Hann segist ekki hafa
mikinn metnaö sem skákmaöur en hefur nú þegar náö glæstum árangri.
DV-mynd Brynjar Gauti
Það var svartur dagur hjá íslending-
unum tveim á heimsbikarmótinu í
skák í gær. Þrátt fyrir vænlegar horf-
ur um tíma var uppskeran rýr. Mar-
geir Pétursson virtist hafa í fullu tré
við Jan Timman frá Hollandi þar til
allt í einu að óvæntur hróksleikur
breytti stöðunni í rjúkandi rúst.
Margeir virtist ekki sjá leikinn og tók
kipp í sæti sínu þegar Hollendingur-
inn hárprúði svipti honum fram úr
erminni sem er reyndar í víðara lagi.
Þá var skák Jóhanns við Portisch
hreinasta píslarganga fyrir speking-
ana í skýringarherberginu. Eftir
tæpa byijun bætti Jóhann stöðu sína
með hverjum leik. í fréttamannaher-
berginu sögðu ensku stærðfræðing-
amir Speelman og Nunn að um þessa
skák þyrfti ekki að ræða frekar, sigur
Jóhanns væri vís. En það var sama
hvemig Jóhann barðist, honum tókst
ekki að bijóta niður vamir Ungveij-
ans sem greinilega ætlaði ekki að
tapa annarri skák sinni í röð fyrir
Frónbúa. Sókn Jóhanns kostaði of
mikið og um kl. 23 í gærkvöldi mátti
hann játa sig sigraðan.
Kasparov á friðarstóli
Þaö er ekki oft sem heimsmeistar-
inn, Garrí Kasparov, byijar skákmót
jafnrólega og nú. Hefur sú hugmynd
vaknað að hann hafi kannski veriö
með öll vopnin í ferðatöskunni sem
tíndist. Hann treysti sér ekki út í
flækjur á móti enska stærðfræðingn-
um Speelman og sættust þeir furðu
fljótt á jafntefli. Má segja að þeir
hafi eytt álíka löngum tíma í að skoöa
stöðuna eftir á og vakti það mikla
athygli því þær rannsóknir fóm fram
fyrir fullum skáksal. Annar friðar-
höfðingi, Mikhail Tal, kom einnig
fljótlega til skjalanna og veltu þeir
vöngum yfir skákinni. Athyglisvert
var aö enska var notuð enda mun
Speelman ekki vera sleipur í rúss-
neskunni.
Annar kappi hefur tínt ferðatösk-
unni og er það Viktor Kortsnoj og
hefur honum heldur ekki gengiö sem
skyldi. Hann var þó ekki svo óhress
í gærkvöldi og gaf ungum aðdáend-
um eiginhandaráritanir.
Eftir þijár umferðir er staöan
þannig að Kasparov, Nikohc, Beljav-
sky, Timman og Ehlvest em efstir
með 2 vinninga. Jóhann og Margeir
hafa 1 vinning.
-SMJ
Mikið flölmenni mætti á 3. ura- starfsmaður, Elfa Gísladóttir leik-
ferð mótsins og hafa ekki verið kona, Hallmar Sigurðsson leikari,
fleiri. Vom tneöal annarra mættin Ólafur H. Ólafsson viðskiptafræð-
Halldór Blöndal alþingismaður, ingur, Haraldur Blöndal lögmaður,
Daði Guðmundsson skákmaður, Guömundur Arason, fyrverandi
Páll Valsson bókmenntafræðingur, forseti SÍ, Guðjón Magnússon lög-
Þórarinn Sigþórsson tannlæknir, fræðingur, Friðjón Friöjónsson
Eggert Þorleifsson leikari, Lárus lögfræðingur, Bjöm Jónsson nemi,
Ymir Oskarsson kvikmyndagerð- Magnús Sigurjónsson heildsali,
armaður, Ámi Njálsson íþrótta- Þóroddur E. Jónsson nemi, Eyjólf-
kennari, Gunnar Salvarsson kenn- ur Ármannsson skákmaður, Anton
ari, Róbert Harðarson skákmaður, Sigurðson bílsflóri, Gísh Sigur-
Jónína Yngvadóttir húsmóöir, karlsson kennari, Bragi Hahdórs-
Ornólfur Thorsson bókmennta- son kennari, Reynir Jónasson org-
fræðingur, Amar Páll Hauksson anisti, Bergsteinn Jónsson lög-
fréttamaður, Elín Hirst fréttamað- fræðingur, Krisflán Silveríusson
ur, Halldór Karlsson smiður, Bjöm verkamaöur, Ingvi Guðmundsson
Theódórsson flármálasflóri, Jón líffræöingur, Sveinn Hauksson
Þorvaldsson lögfræðingur, Asgeir læknir, Ingvi Ilrafn Jónsson rithöf-
Þór Amasson lögfræðingur, Sig- undur, Eiríkur Björasson sagn-
urður Sigurðsson, fyrverandi fræðingur, Gunnar Helgi Hálf-
fréttamaður, Páh Þórhallsson dánarson framkvæmdasflóri, Ólaf-
blaðamaður, Ólafur Eyjólfsson ur H. Jónsson, flármálastjóri
skrifstofusflóri, Helgi Beraódusson Stöðvar 2, Viöar Þorsteinsson bók-
skrifstofusflóri, Ehas Guðmunds- bindari, Hákon Óskarsson fram-
son knattspymumaður, Ólafur Ól- kvæmdasflóri, Ámi Emilsson
afsson nemi, Sverrir Noröflörö bankasflóri, Hjörtur Magnússon
arkitekt, Guðbjartur Guðmunds- lögskráningarritari, Birgir Sig-
son leigubíistjóri, Jón Briem, for- urðsson prentari. Ólafur Hauksson
maöur TR, Jón Friöjónsson mál- útvarpssflóri, Ólafur Helgason,
fræðingur, Friöjón Sigurðsson, fyr- fyrrverandi bankasflóri, Árai Ár-
verandi skrifstoftistjóri, Gunnar mann Árnason lögfræðingur, Tóm-
Ragnars forsflóri, Jóhann Þórir as Bjömsson skákmaöur, Rúnar
Jónsson útgefandi, Friðrik Frið- Júhusson tónhstarmaöur og Jón
riksson flármálasflóri, Hilmar Sigurbjömsson leikari.
Thors nemi, Stefán Þormar banka- .gjj j
4. umferð á fostudag
Næsta umferð heimsbikarmótsins
í skák verður ekki fyrr en á morgun,
fóstudag, og hefst kl. 17. í dag er bið-
skákardagur en aðeins ein skák hef-
ur farið í biö. Þaö er skák Ribhs og
Sokolovs sem flestir segja að sé bara
jafntefli. Ribh, sem þykir heldur
varkár skákmaður, hefur peði meira
í hróksendatafli og var haft á orði
að hann vildi ujóta þeirra stööuyfir-
burða sem lengst. Á morgun tefla
eftirtaldir - sá er hefur hvítt talinn
á undan:
Margeir - Jóhann
Sokolov - Portisch
Kasparov - Ribli
Tal - Speelman
Kortsnoj - Andersson
Nunn - Jusupov
Spassky - Nikolic
Beljavsky - Ehlvest
Timman - Sax -SMJ