Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988. 11 Utlönd HERA Eiðistorgi 15 Simi 61-10-16 Slyðja ekki kappræðumar Steinunn Böö varsdóttir, DV, Washington; Bandalag kosningabærra kvenna í Bandaríkjunum hefur dregið til baka - íjárhagsstuðning sinn til seinni kappræðna forsetaframbjóöend- anna, George Bush og Michael Duk- akis, sem haldnir verða í næstu viku. Framkvæmdastjóri bandalagsins, Nancy Neuman, sagði að kosninga- ráðgjafar beggja frambjóðenda hefðu þegar ákveðið skipulag kappræðn- anna út í ystu æsar og að bandalagið hefði ekki fallist á að kosta þær. Neuman sagði að bandalagið gæti ekki falhst á skilmála kosningaráð- gjafa frambjóðendanna og að eins og kappræðurnar væru nú skipulagðar myndu þær ekki gefa kjósendum rétta mynd af kosningabaráttunni. Hún sagði að kosningaráðgjafamir hefðu þegar ákveðið hverjir spyrj- endumir yrðu, í hvaða anda spurt yrði, hvar fréttamenn fengju sæti á áhorfendapöllunum sem og hver fengi aðgang að kappræðunum. Hún sagði einnig aö almenningur fengi ekki rétta innsýn í afstöðu frambjóðendanna til ýmissa mála fyrr en þeir losnuðu undan áhrifum íjölmiölaráðgjafa sinna. Kappræðurnar munu fara fram þrátt fyrir ákvörðun bandalagsins. Samtök um kappræður forsetafram- bjóðendanna, sem skipuð eru af báð- um flokkum, hafa samþykkt að kosta þær og hafa fallist á skilmála kosn- ingaráðgjafanna. Hvorugur sfguwegari Steimmn Böövaisdóttir, DV, Washington; Kappræðum varaforsetaefna demókrata og repúblikana í forseta- kosningunum í Bandaríkjunum, sem haldnar voru í gærkvöldi, virðist hafa lokið á sama hátt og kappræð- um forsetaframbjóðendanna fyrir hálfum mánuði, það er án þess að annar bæri merkjanlegan sigur úr býtum. Hvorugur gerði alvarleg mis- tök né kom andstæðingi sínum í klípu. Kappræðumar voru harðskeyttar og bæði Dan Quayle, varaforsetaefni repúblikana, og Lloyd Bentsen, vara- forsetaefni demókrata, hnýttu í and- stæðinga sína við hvert tækifæri. Bentsen notaði tækifærið þegar Qua- yle bar sig saman við John F. Kennedy, fyrrum forseta, og sagði grundvöll fyrir samanburði ekki íyr- ir hendi þegar hpnn sagði: „Öldunga- deildarþingmaður, þú ert enginn Jack Kennedy.“ Quayle réðst oftar að ferli Michaels Dukakis, forsetaframbjóðanda demókrata, en Bentsen í gærkvöldi. Hann lagði áherslu á feril Dukakis í embætti fylkisstjóra Massachusetts- fylkis og gagnrýndi margar ákvarð- anir hans. Quayle kallaði Dukakis einn frjálslyndasta fylkisstjóra Bandaríkjanna sem hefur meðal annars margoft hækkað skatta íbúa fylkisins. Möguleikarnir á að varaforseti Bandaríkjanna þurfi að taka við embætti forseta eru einn á móti þremur og því var mikiláhersla lögð á leiðtogahæfileika beggja varafor- setaefna í gær. Eins og búist var við var fortíð Quayles dregin fram í sviðsljósið oftar en einu sinni. Qua- yle var spurður um hæfni sína með tfiliti til gagnrýni fjölmiöla á meinta bresti í fortíð hans. Hann svaraði með því að segja að aldur vqgri ekki mælikvarði á hæfni heldur reynsla og fyrri störf. Hann lagöi áherslu á setu sína í vamarmála- og fjárlaga- nefnd öldungadefidarinnar og störf sín á þingi. Quayle var ekki einn um að snið- ganga spumingar fréttamanna. Þeg- ar Bentsen var spurður út í skoðana- mismun hans og Dukakis á mörgum málefnum, þar á meðal 1 vamarmál- um, svaraöi hann með því að nefna atriði sem báðir vom sammála um, til dæmis nauðsyn þess að lækka fjárlagahalla ríkissjóðs og auka markaðshlutfall Bandaríkjanna er- lendis. Bæði Bentsen og Quayle virtust vel undirbúnir. Ráðgjafar repúblikana höfðu fyrirfram áhyggjur af frammi- stöðu hins unga Quayel gegn hinum eldri og reyndari Bentsen. Quayle gerði engin stór mistök, telja frétta- skýrendur, og virtist yfirleitt hafa þrautæfð svör á takteinum. Hann lenti þó í vandræðum þegar hann var þrívegis spurður hvert hans fyrsta verk sem forseta yrði kæmi sú staða upp. „Biðja,“ svaraði Quayle, „og kalla saman ríkisstjómarfund." Þrátt fyrir ítrekaðar tfiraunir spyrj- enda virtist hann eiga erfitt með að koiria með fufinægjandi svar, að mati sumra fréttaskýrenda. Stjómmálaskýrendur telja aö í fljótu bragði sé ólíklegt að þessar kappræður muni hafa þau úrslita- áhrif sem vonást hafði verið tfi. Ge- orge Bush hafði 7 prósent forskot á andstæðing sinn, 51 prósent fylgi gegn 44 prósentum, samkvæmt nið- urstöðum skoðanakönnunar ABC sjónvarpsstöðvarinnar og Washing- ton Post dagblaðsins sem birtar vom í gær áður en kappræðurnar hófust. Quayle hefur reynst kosta Bush mfih 3 og 4 prósent fylgi í tveimur skoð- anakönnunum en hvort kappræð- umar í gærkvöldi hafa breytt því kgmur í ljós á næstu dögum. £> Samþykkja ekki launastöðvun Guivnar Guðmundsson, DV, Kaupmhö&u Ríkisstjórn Danmerkur reynir nú að semja við stjómarandstöðuna um fjárlögin til að forðast fjárhagslegt hrun. Ástandið fer hríðversnandi, viðskiptahallinn er átján mfiljónir danskra króna og 300 þúsund manns eru atvinnulausir. Talsmenn beggja aðila búast þó ekki við að árangur náist og segja aö bilið sem brúa þurfi sé of stórt. Stjórnin telur að bestur árangur náist meö launastöðvun í minnst fjögur ár, lækkun opinberra út- gjalda, minni einkageira og auknum spamaði almennings. Stjórnarandstaðan vill hins vegar ekki samþykkja stöðvun launa og niöurskurð á ellilífeyri, atvinmfieys- isbótum, öryrkjabótum og í heil- brigðis- og menntakerfinu en það er einmitt þar sem stjórnin vfil beita niðurskurðarhnífnum. © Jeep Cherokee LAREDO Lloyd pentsen, varaforsetaefni demókrata, og Dan Quayle, varaforsetaefni repúblikana, í kappræöunum i gærkvöldi. Símamynd Reuter Eigum örfáa bíla af 1988 arg. a verði frá því fyrir gengisfellingu til afgreiðslu STRAX! EGILL VILHJÁLMSSON HF Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202 Einar B. Staönsson. DV, Hekingboig; Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð hafa gagnrýnt mjög stefnuskrárræðu Ingvars Carlsson forsætisráðherra sem hann flutti við setningu þingsins á þriðjudag- inn. Hann boðaöi meðal annars aukið átak í umhverfismálum og lækkun stighækkandi tekjuskatts um 3 prósent. Carl Bildt, leiðtogi Hægri flokks- ins, sagði stjómina vera veika og öll fyrirheit mjög óijóst orðuð. For- sætisráðherrann hefði tfi dæmis ekki tiltekið á hvem hátt Svfar myndu laga sig að sameiginlegum markaði Evrópubandalagsríkj- anna efUr 1992. Ennfremur væri fyrirhuguö tekjuskattslækkun allt oflítil. Bengt Westerberg, formaður Þjóðarflokksins, gagnrýndi Ingvar Carlsson meðal annars fyrir að taka ekki fastar á fíkniefnavanda- málum í landinu og að framlög til vamarmála væm ónóg. Olof Johansson, leiðtogi Miö- flokksins, tók í sama streng og hin- ir tveir fyrmefiidu en bætti viö að stefnuskrárræða forsætisráðherr- ans hefði ekki að geyma tillögur til að auka virkni í hefibrigðiskerfinu sem gætu dregið úr hinum löngu biðröðum tfi sjúkrahúsanna. Loks gagnrýndu græningjar ræðu Ingvars Carlsson og sögðu alla heildaryfirsýn yfir umhverfis- máhn vanta og margar tillögur þar að lútandi mótsagnakenndar. Gengju þær þar aö auki ekki nógu langi SAS í samvinnu við Texas Air Gizur Helgason, DV, Reeisnæs: SAS hefur nú undirritað samninga um nána samvinnu við bandaríska flugfélagið Texas Air en það félag stjórnar meðal annars flugfélaginu Continental Airways og Eastern Airhnes. Samningurinn, sem mun kosta SAS um þrjá mifijarða ís- lenskra króna, inniheldur meðal annars nána samvinnu um af- greiöslu og móttöku í New York og samræmingu í markaössljórnun og tímasetningu. Hér er um að ræða „skynsemis- hjónaband“ því að umferðaráætlanir félaganna beggja passa ágætlega saman en aftur á móti er stjómun félaganna gjörólík. Hjá SAS er tekið mikið tillit til starfsfólksins en Texas Air stendur í sífelldu stríöi við verkalýðsfélögin þar vestra. Texas Air ræður yfir 630 flugvélum og hjá þeim vinna 50 þús- und manns. SAS á 120 flugvélar og þar vinna 34 þúsund manns: Um 9 þúsund Danir vinna hjá SAS og þeir eru mjög óhressir með samn- inginn. Svíar eru aftur á móti ánægð- ir en Norömenn hlutlausir. Jan Carlzon, forstjóri SAS, sagði á blaðamannafundi í New York eftir undirskrift samningsins að engin breyting yrði á þjónustu SAS né heldur samvinnu S AS við verkalýðs- félögin. „Við eigum í prýðissam- vinnu við 38 verkalýðsfélög," sagði hann, bandarískum bíaðamönnum til mikfilar undrunar. Þetta er í fyrsta sinn sem evrópskt flugfélag tekur upp svo nána sam- vinnu við bandarískt flugfélag. SAS- menn hafa haldið því fram aö á níunda áratugnum verði aðeins tfi fimm stór flugfélög í Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.