Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988. 21 LífsstQI „Einnig er töluvert af fólki sem margra hluta vegna verður að forð- ast ákveðin efni í matvælum. Það getur verið fólk með ofnæmi fyrir ákveðnum efnum og verður þar af leiðandi að forðast þau. Á einfaldan hátt getur viðkomandi flett fæðuteg- undinni upp og séð hvort viðkom- andi fæðutegund inniheldur tiltekið efni. Aðrir vilja komast að raun um hita- einingainnihald matvæla til að draga úr hitaeininganeyslunni og geta þeir nýtt töflumar á sama hátt. Heilsu- ræktarstöðvar geta nýtt sér töflumar til að útbúa matseðil fyrir fólk í þjálf- un og veitingahús geta sett saman matseðil sem höíðar til ákveðinna hópa. Svona mætti lengi telja.“ Matur Með aðaltöflunum fylgja viðbótar- töflur um kolvetni og fitusýmr. Kol- vetnatöflur eru nauðsynlegar fyrir sykursjúka sem verða að fylgjast grannt með daglegri kolvetnaneyslu sinni. Með tilkomu taflnanna em meiri líkur á að innihaldslýsingar á ís- lenskum matvælum verði ítarlegri. „Fagmennska í matvælaiðnaði er alltaf að aukast," sagði Guðjón. „Sí- fellt fleiri matvælafræöingar útskrif- ast frá háskólum, innanlands og ut- an. Flestir eru að störfum í iðnfyrir- tækjum eða stofnunum tengdum matvælaiðnaði. Mjólkurvömr hafa um langt árabil verið ítarlega merktar og fleiri vöm- flokkar bætast alltaf við. Töflumar verða hvatning til enn frekari aukn- ingar á innihaldsmerkingum.“ Eins og áður hefur verið minnst á er áætlun í gangi um gerð tölvufor- rits. Mikill áhugi er á slíku forriti í skólakerflnu. Með því er hægt að nýta áhuga unglinganna á tölvum og tengja hann kennslu í næringar- fræði. Árangurinn ætti að vera aukin þekking ungmenna á hollustu og óhollustu matvæla. Fitusýrutöflur Næringarefnatöflumar koma út í tveimur lausblaöamöppum. í ann- arri möppunni em hinar eiginlegu næringarefnatöflur, kallaðar aðal- töflur, ásamt inngangi og skýringum. í hinni möppunni em þrjár aðrar töflur, heimildaskrá, skýringar á ensku, íslensk-enskur hsti og ensk- íslenskur listi. Viðbótartöflumar innihalda m.a. töflur yfir nítrat og nítrit, DDT, blý og kadmium og fleira. Sérstakar kolvetnatöflur eru í seinni möppunni. Þar er getið um kolvetnainrúhald í nokkrum algeng- um fæðutegundum. Kolvetnainni- haldinu er skipt milli sterkju, sykra, og trefja. Sérstakar fltusýmtöflur em líka í seinni möppunni. Þar er getið um fitusýruinnihald í feitmeti og öörum fæðutegundum. Fitusýmnum er skipt upp í mettaðar, einómettaðar og fjölómettaðar. Eins og oft hefur komið fram þykja fjölómettaðar fitu- sýrur hollastar og getur leikmaður auðveldlega fundið fæöutegundir, sem innihalda mikið af fjölómettuð- um fitusýmm, í töflunum. Næringarefnatöflumar fást í Bók- sölu stúdenta og kosta báðar möpp- urnar 3000 krónur. -JJ Guðjón er hér við vökvagreini sem mælir vítamín. DV-myndir Brynjar Gauti Fomtið ákveður matseðilinn Kjörmorgunverður fyrir konur 25 ára Magn í% r 200 g súrmjólk hitaeiningar 96 L r 30 g morgunverðarkorn prótín 117 L r 30 g grófkornabrauó fita 87 101 I. 5 g smjörlíki kolvetni 15 g ostur A-vítamín 79 [ 611 E 15 g paprika C-vítamín 150 g appelsína þíamín 150 E 200 g kaff i ríbóflavín 239 [ 15 g mjólk 3% fita kalsíum 314 r 56 [ járn Töflurnar hér að ofan sýna þá möguleika sem íslensku næringarefnatöflurnar geta gefið þegar búið verður að tölvuvæða þær. Forritið er sænskt og stendur til að þýða það og staðfæra yfir á islensku. Morgunverður Magn Samtals Mælt með % Súrmjólk 1 di 200 g hitaein. kj 2040 2125 96 ■ Morgunkorn m/ávöxtum og hnetum 30 g prótín g 18,9 16,2 117 Grófbrauðsneið 30g fita 9 16,3 18,7 87 p Smjörlíki 5 g kolvetni g 65,8 65 101 Ostur 15"g A-vltamín ug 158 200 79 1 Paprika, græn 15g C-vítamín mg 91,6 15 611 Appelsína 150g þíamln mg 0,37 0,25 180 Kaffi 200 g riboflavín mg 0,72 0,3 239 Mjólk 3%feit 1 dl 16g mg 2,6 4,5 ■ 56 Eins og fram kemur í greininni um næringarefnatöflurnar er ákveðið að gera forrit fyrir skóla og heimili. í kynningu hefur verið sænskt forrit sem inniheldur sömu upplýsingar um efnainni- hald matvæla og næringarefna- taflan. Sænska forritiö þykir henta íslensku skólakerfi einkar vel. í skólakerfinu er mikill áhugi fyrir því að þýða þetta forrit og laga það að íslenskum aðstæð- um. í dag fer næringarfræðikennsl- an fram á hefðbundinn hátt með útreikningi í höndum. Á hraöa tölvualdar er kennslufyrirkomu- lagið seinvirkt og lítt áhugavekj- andi fyrir nemendur. Með tölvuvæðingu kennslunn- ar í næringarfræðum er auðvelt að nýta áhuga unglinga á tölvum. Þeir geta á einfaldan hátt rann- sakað sjálfir hvað þeir borða og hveiju þeir ættu jafnvel að sleppa. Með einföldum dæminn geta þeir metið sælgætisneysluna yfir daginn og séð hvað er hóflegt magn og hvenær þeir eru komnir yfir strikið. Forritið gerir nem- endum kleift að samræma nám og leik, því endalaust er hægt að velta tyrn- sér möguleikunum í fæðuvah. Kjörmorgun- verður Á meðfylgjandi töflum er sýnd samsetning morgunveröar fyrir 25 ára meðalkonu. Morgunverðinum er ætlað að uppfylla 25% af áætl- aðri orkuþörf dagsins. í efri dálki eru upplýsingar um næringarinni- hald og súlurit sem sýnir hlutfall af næringarþörf úr morgunverði. Gráu súlurnar eru hlutfall upp að 100% en svörtu súlurnar sýna það sem fer umfram. Neðri taflan sýnir sömu niður- stöðu en þar eru upplýsingamar gefnar í tölum í stað súlurits. Eins og áður hefur komið fram eru eingöngu notuð sænsk forrit enn sem komið er. Töflumar eins og þær birtast hér em unnar á DV en bein þýðing á sænsku upplýs- ingunum. Upplýsingamar em fengnar hjá Valgerði Hildibrands- dóttur, næringarráðgjafa á Landspítalanum. Næringarráð- gjafar Landspítalans hafa verið með sænska forritið í prófun um nokkurntíma. -JJ \J SJÁLFSTÆI DREGIÐ EFTIR 2 DAGA Dl ISMEf OPIÐTILKE IN .. 22. HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.