Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Viðskipti
Hátt verð á fiski í London
England:
MB. Lyngey landaöi afla sínum í
Hull 3.10.’88, alls 41,5 tonnum, og
seldi hann fyrir 3,07 milljónir króna.
Meðalverð 74,83 kr. kg.
Mb. Hrísey seldi afla sinn í Hull 4.
10., alls 37,7 lestir, fyrir 2,9 millj.
Meðalverð 78,76 kr.kg.
Þýskaland: Bremerhaven
Bv. Birtingur seldi afla sinn í Brem-
erhaven 3.10., alls 144,634, lestir fyrir
10,435 millj. króna. Meðalverð 72,15
kr. kílóið.
Bv. Hólmanes seldi afla sinn einnig
í Bremerhaven 4.10., alls 185,7 lestir,
fyrir 11,110 milljónir króna.
Cuxhaven
Bv. Happasæll seldi afla sinn í Cux-
haven, alls 82,4 lestir, fyrir 4,467
millj. króna. Meðalverð 54,16 kr.kg.
Hátt fiskverð í London
Fiskverð er gott á Billingsgate
markaðnum og ekki lát á verö-
hækkunum á einstökum tegundum
svo sem stórlúðu og öðrum flatfiski.
Talið er að þetta háa fiskverð stafi
meðal annars af því að allt að 27%
minni ferskur flskur sé á enska
markaðnum en í lok september á síð-
asta ári. Telja menn aö minnkandi
framboð veröi með haustinu þar sem
margir muni ljúka við kvóta sinn í
október-nóvember.
Verðið á Billings-
gate-markaðnum
Nokkur sýnishorn af verði frá Bill-
ingsgate:
Rauðspretta 114-156 krónur kílóið.
Þorskflök, 1. fl., 242 kr.kg., 2. flokkur
217 kr.kg. Skötubörð 228 kr.kg. Stór-
lúða 537-583 kr.kg. Meðalstór lúða
608-716 kr.kg. Smálúða 217-268 kr.
kílóið. Þorskur, hausaður og slægð-
ur, 190-217 kr. kílóið. Smáfiskur 256
kr. kflóið. Ufsaflök 108-128 kr. kílóið.
Síld 63-70 kr.kg. Lax frá 322 til 578
kr.kg.
Þorskur á 230 kr.kg. í París
Verðið á flski í París á Rungis-
markaðnum virðist vera gott um
þessar mundir. Verð á nokkrum teg-
undum er sem hér segir: Þorskur frá
innl. skip. 204-237 kr.kg. Þorskur frá
erlendum skipum er á sama verði.
Ekkert lát er á verðhækkunum á
stórlúöu og öórum flatfiski.
Fiskmarkaðir
Ingólfur Stefánsson
Ufsi 113-196 kr. fráinnl. skipum. Ufsi
frá erlendum skipum 107-123 kr.
kílóið. Skötuselur frá innlendum
skipum 497-567 krónur kílóið. Skötu-
selur erlendis frá 514-567 kr. kílóið.
Skötubörð frá innlendum skipum
189-264 kr. kílóið. Skötubörð erlendis
frá 151-252 kr. kílóið. Karfi frá inn-
lendum skipum 75-105 kr. kílóiö.
Karfi frá erlendum skipum 90-113
kr. kg. Norskur lax, óslægður, frá 241
til 491 kr.kg., stærsti laxinn. Skoskur
lax 342 til 415 kr.kg. írskur lax
342-415 kr.kg.
Skipasölur í Bretlandi 26.-30.9.’88
Skip Selt magnkg. Verðíerl.mynt Söluverðisl.kr. kr.pr.kg.
Álftafell SU 100 . - ‘ ,* " 91.955,00 l 81.953,40 6.388.841,20 69,48 1
Kolbeinsey ÞH 10 163.690,00 153.077,60 11.971.739,86 73,14
Sólborg SU 202 51.525,00 47.082,80 3.817.897,17 „ 74,10 !
Arnarnes ÍS 42 61.805,00 62.258,00 5.047.691,87 81,67
Eyborg EA59 38.880,00 39.750,20 3.222.826,97 82,89
Samtals: 407.855,00 384.122,00 30.448.997,07
Gámasölur í Bretlandi 3.10.’88
Sundurliðun eftir tegundum Selt magnkg. Verðíerl.mynt Meðalverð pr.kg. Söluverðisl.kr. kr.pr.kg.
Þorskur 138.950,00 151.783,20 1,09 12.324.492,27 88,70
Ýsa 51.550.00 60.367,80 1,17 4.901.744,62 95,09
Ufsi 5.605,00 4.146.80 0,74 336.711,87 60,07 |
Karfi 2.905,00 1.907,60 0,66 154.893,30 53,32
Koli 10,640,00 12.657,20 1.19 1.027.739,33 96,59 ’t
Grálúða 0,00 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 13.846,25 17.282,20 1,25 1.403.280,08 101.35 |
Samtals: 223.496,25 248.144,80 - 1,11 20.148.861,47 90,15
Hafnarey SU110,4.10.'88. Grimsby
Sundurliðun eftir tegundum Selt magn kg. Verðíerl.mynt Meðalverð pr.kg. Söluverð ísl.kr. kr.pr.kg.
Þorskur 42.245,00 50.665,50 1,20 4.112.619,97 97,35 1
Ýsa 16.765,00 21.738,20 1,30 1.764.533,17 105,25
Ufsi 6.350,00 3.410,00 0,54 276.796,52 43,59 |
Karfi 1.450,00 1.021,00 0,70 82.876,61 57,16
Kow-mm—íí 4,350,00 5.448,00 1,25 442.226,06 101,66
Grálúða 0.00 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 7.305,00 4.775,75 0,65 387.657,18 11153,07 f
Samtals: 78.465,00 87.058,45 1,11 7.066.708,50 90,06
Vísir SF 64,3.10.’88. Hull
Sundurliðun eftir tegundum Seltmagnkg. Verð í erl. mynt Meðalverð pr.kg. Söluverðísl.kr. kr.pr.kg.
Þorskur 15.000,00 18.688,80 B -V: 11,25 1.517.493,18 101.17
Ýsa 8.000,00 7.540,40 0,94 612.265,40 76,53
Ufsi 3.150,00 1.696,60 0,54 137.679,33 , 43,71 j|]
Karfi 3.300,00 1.874,00 0,57 152.165,05 46,11
Koli 160,00 185,00 1,16 15.021.63 93,89
Grálúða 0,00 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 3.583.00 4.808,40 1,34 390.432,46 108,97
Samtals: 33.193,00 34.792,20 1,05 2.825.057,06 85,11
í dag mælir Dagfari
Nú eru þeir farnir að tefla í Borgar-
leikhúsinu. Allir helstu stórmeist-
arar heimsins eru þar saman-
komnir, þökk sé þeim á Stöð tvö
sem standa fyrir þessu móti. Það
er ekki á íslendinga logið. Hingað
hópast skákmeistararnir vegna
þeirra verölauna sem í boði eru,
milljónir og aftur milljónir, fyrir
utan kostnaöinn af mótshaldinu
sjálfu. Þetta gera íslendingar eins
og að drekka vatn og lítil einkastöö
pungar út eins og það sé minnsta
mál í heimi. Þeir eru ekki á flæöi-
skeri staddir á Stöðinni og það á
meðan Ríkisútvarpið kvartar og
kveinar undan rekstrarhalla. Þar
er verið að boða samdrátt í dag-
skrárgerð og ríkissjónvarpið verð-
ur að gera sér það að góðu aö hiröa
upp molana af nægtaboröi Stöðvar
tvö. Nú eru þeir jafnvel farnir að
hafa' viötöl vð Pál Magnússon til
að fá fréttir af stóratburöunum í
bænum og hefði einhvem tímann
þótt saga til næsta bæjar.
Þetta heimsbikarmót í skákinni
verður áreiöanlega afskaplega
skemmtilegt. Spassky teflir fyrir
Olís, Kasparov fyrir Eimskip og svo
framvegis og þetta minnir mann á
firmakeppni og ekki er það verra
aö íslensk fyrirtæki leggja fram
Skákin á Stöðinni
drjúgan skerf til mótsins fyrir þann
heiður sem þeim er sýndur. Svo eru
menn aö segja að íslensk fyrirtæki
séu á hausnum! Ríkisstjómin er
jafnvel búin að stofna sérstakan
bjargráðasjóð til að halda þeim á
floti enda veitir víst ekki af þegar
peningamir fara í auglýsingar í
sjónvarpssal í raglaðri útsendingu.
En þaö eru fleiri en Stöð tvö og
stöndug fyrirtæki sem leggja sitt
af mörkum. Reykjavíkurborg
styrkir þetta mótshald með tæpum
fimm milljónum króna. Það mun
víst vera í þágu reykviskrar æsku
sem gefst kostur að virða fyrir sér
firmanöfnin á keppnisborðunum
fyrir fimm hundrað krónur í að-
gangseyri. Engan skal undra þótt
ReyKjavíkurborg styrki þennan at-
burð þegar selt er inn á hann fyrir
skid og ingenting. Reykjavik á nóg
af peningum, borgarstjóri fékk að
leika fyrsta leikinn og þar að auki
er Borgarleikhúsið tekiö í notkun.
Leikaramir í Iönó era svo glaðir
að þeir munu vera standgestir á
skákmótinu til að virða fyrir sér
leikhúsiö sitt fyrir fimm hundrað
kall. Enda er skák leikur og
ástæðulaust að hafa leikarana á
sviðinu meðan viö höfum aðra leik-
endur til sýnis og allt í beinni út-
sendingu.
Nú er bara að vita hvernig íslend-
ingunum tekst upp. Við eram ný-
búin aö fylgjast meö íslenskum
keppnismönnum í Seoul og því
miður höfðu þeir ekki erindi sem
erfiði. En það var ekki að marka.
Sumir voru illa upplagðir, aörir
guldu dómaranna, nokkrir misstu
meövitund og svo var það þjálfar-
inn sem leiddi handboltaliöið á
villigötur og spillti fyrir sigur-
möguleikum meö því að nota þá
menn í liðið sem hann taldi besta.
Þetta varö allt nokkurt áfall fyrir
þjóðina þangaö til ólympíufaramir
komu heim nú í vikunni og sögöu
okkur aö þeir hefðu staöið sig vel
- að minnsta kosti miöaö viö höfða-
tölu - og hvað éfum við íslendingar
líka að gera okkur vonir um sigra
á móti milljónaþjóðum? Þetta er
allt blöðunum að kenna sem hafa
skrifað illa um íslensku keppend-
urna og vakið falskar vonir. I raun
og veru megum við vera ákaflega
stolt af frammistöðu okkar manna
sem hefðu náð miklu lengra ef and-
stæðingarnir heföu ekki verið
svona góöir.
Formaður handknattleikssam-
bandsins bað þjóðina afsökunar á
því að íslendingar skyldu hafa tap-
að og var greinilega miður sín úti
í Seoul þegar úrsitin lágu fyrir. En
hann hefði áreiðanlega ekki beðist
afsökunar ef hann hefði vitað að
ósigrarnir vora ekki handbolta-
mönnunum að kenna heldur blaða-
mönnunum sem skrifuðu illa um
leikina. Þetta hefur hann uppgöt-
vað eftir að hann kom heim og er
þess vegna hættur við að afsaka
liöiö og hættur við að reka þjálfa-
rann. Hann vill reka blaðamennina
í staðinn.
íslensku keppendurnir í heims-
bikarmóti skákhstarinnar eiga
ekki viö þetta vandamál að stríöa.
Þeir era með fulla meðvitund eftir
því sem best verður vitað og enginn
reiknar með að þeir sigri. Þeir eiga
því góða sigurmöguleika.
Dagfari