Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Utlönd
Mótmælendur i Vojvodina-héraði
í Júgósiaviu náðu fram kröfum sín-
um þegar leiðtogar kommúnista-
flokks héraösins tilkynntu afsögn
sina i gær.
Simamynd Reuter
egjaaf sér
Leiðtogar kommúrastaflokksins i
Vojvodina-héraðinu í Júgóslavíu
tilkynntu í gær að þeir myndu segja
af sér í dag. Um hundrað þúsund
mótmælendur umkringdu aðal-
stöðvar flokksins í gær og kröföust
aföagnar leiðtoganna. Voru þeir
sakaöir um spillingu og hindrun
endurbóta.
Þegar meðlimur stjómarráðsins
las upp aföagnartilkynninguna í
gærkvöldi köstúðu mótmælendur
jógúrtdollum og fernum með
ávaxtasafa að honum og heimtuðu
aö hann hætti og lýstu jaftiframt
yfir stuðningi sínum við leiötoga
kommúnistaflokks Serba, Slobod-
an Milosevic, sem barist hefur fyrir
því aö Vojvodina- og Kosovo-héruð
falli undir yfirráð Serba.
Kúrdar til íraks
Kúrdar á telð frá Tyrklandi til íraks. Sknamynd Reuter
Nær eitt þúsund kúrdískir ílóttamenn sneru aftur til Iraks í gær frá
Tyrklandi þangað sem þeir höföu flúiö undan oföóknum íraskra her-
manna í sumar. Alls er talið aö fimmtíu þúsund Kúrdar hafi flúið til
Tyrklands.
Kúrdamir sögðust eklá vita hvaö biði þeirra í írak. í dag rennur út sá
frestur sem stjórnin í írak veitti til sakaruppgjafar en búist er við að
hann veröi framlengdur.
Ein af ástæðunum til þess að flóttamennimir snera aftur til íraks er
versnandi ástand í bráöabirgðaflóttamannabúöunum í Tyrklandi. Nætur-
kuldi er mikill á þessum slóðum og skortur á tjöldum. Reuter
Pétui L. PétuxsBon, DV, Barodcma;
Dönsku mjólkursamlögin era nú tilbúin að flytja inn ipjólk frá öðrum
Evrópubandalagslöndum. Er útlit fyrir að það mund veröa á næsta ári.
Strangur mjólkurkvóti hjá Evrópubandalaginu hefur leitt til mjólkur-
skorts undanfarin ár og hefúr innflutningur á mjólk veriö leyföur í ein-
staka tilvikum.
Vegna kvótans hafa margir kúabændur þurft að borga sekt fyrir að
leggja inn of mikla mjólk og eru þar af leiðandi undrandi á væntanlegum
innflutningi.
Talsmenn mjólkursamiaganna segja að innflutt mjólk verði eingöngu
notuð til framleiðslu á mjólkurdufti.
Spænska sijórnin hefur hækkað verðbólgumarkiö úr 3 prósentum í 5
prósent Þetta er gert í kjölfar mikillar hækkunar á framfærsluvísitölu
að undanförnu.
Stjómin haföi sett sér það takraark að veröbólga yröi ekki meiri en sera
nemur 3 prósentum á árinu. Er framfærsluvísitala hækkaði um 3,8 pró-
sent í ágústmánuði þótti sýnt að takmarkinu yrði ekki náð.
Sljómin ákvað þó aö reyna til þrautar. Gripiö var tfl aðgerða sem fólust
í þvi að aukinn var innflutningur á landbúnaðarvörum. Þannig átti að
knýja innlenda framleiðendur til að lækka verö. Einnig vora vextir hækk-
aðir um eitt prósent.
Þetta virðist ekki hafa dugað því nú á dögunum tilkynnti fjármálaráö-
herrann, Carlos Solchaga, að stefnt yrði að því að verðbólgan yrði ekki
meiri en sem nemur 5 prósentum á árinu. Samtímis voru lögð fram fjár-
iög næsta árs á þingi og sýná þau mikinn viðskiptahalla við útlönd og
stóraukningu í framkvæmdum hins opinbera.
Ólögleg vopn aflient
Simamynd Rouler
Bretar afhentu lögreglunni að minnsta kosti þtjátíu og fimm þúsund
skotvopn í síöasta mánuði Þá gaftt mönnum tæklfæri til aö losa sig við
ólögieg vopn án þess að eiga á hættu eftirmál. Einni milljón skothleöslna
var einnig skilað. Þyngsta reföing fyrir aö vera með skotvopn án leyfis
er þriggja ára fangelsisvist eöa ótakmarkaðar sektir. Reutcr
Danir ftytja inn mjólk
Chilebúar mynduöu langar biöraðir fyrir utan kjörstaöi eins og þessi mynd frá Santíagó sýnir. Kjörsókn var gífurleg.
Símamynd Reuter
Pinochet
beið ósigur
Herforingjastjómin í Chile viður-
Teiknarinn Lurie sér Pinochet hershöföingja, sem tapaði kosningunum í
gær, ekki sem lýðræöisunnanda.
kenndi snemma í morgun ósigur
Augustos Pinochet forseta í forseta-
kosningunum sem fram fóru í
landinu í gær.
Stuttu eftir aö ríkisstjómin gerði
opinber bráðabirgðaúrslit, sem
sýndu aö Pinochet haföi tapað með
44% gegn 53%, þegar 71% atkvæða
höföu verið talin, viðurkenndi inn-
anríkisráðherra landsins, Sergio
Femandez, að herforinginn heföi
beðið lægri hlut.
„Við sættum okkur við þau úrslit
sem þjóðinni eru þegar kunn,“ sagði
Feraandez í sjónvarpsviðtali.
„í þessum fyrirmyndarkosningum,
sem herinn gætti af fullkomnu ör-
yggi, er það þjóðin sem er hinn stóri
sigurvegari," sagði Femandez.
Endaniegar niðurstöður kosning-
anna, sem era þær fyrstu í landinu
frá því Pinochet náði völdum árið
1973, verða ekki opinberar fyrr en
að nokkrum dögum liðnum.
Sljómarskráin kveður á um að
Pinochet geti haldið áfram sem for-
seti í fimmtán mánuði í viðbót, en
að hann verði að boða til kosninga,
þar sem allir flokkar fá að bjóða fram
sinn frambjóðanda, ekki síðar en í
desember 1989, áður en hann lætur
af embætti í mars árið 1990.
Stjómarandstaðan haföi hrósað
sigri í nokkrar klukkustundir, þar
sem fyrstu tölur bentu til þess að
Pinochet, sem er hatrammur and-
stæðingur kommúnisma, heföi beðið
lægri hlut.
„Yfirgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar hefur hafnað framboði Pinoc-
hets,“ sagði Patricio Aylwin, leiðtogi
stjómarandstööunnar.
Stjómarandstöðuleiðtogar sungu
þjóðsönginn og féllust í faðma þegar
þeirra tölur bentu til þess að þeir
væra að vinna sigur á hinum sjötíu
og tveggja ára gamla Pinochet með
58% gegn 42%.
í verri hverfum Santíagó-borgar
þyrptist fólk út á götur til að fagna,
en þar hefur andstaða við herstjóm-
ina ávailt verið mikil.
Annars staðar var rólegt andrúms-
loft, og fólk fór að ráðum stjórnar-
andstöðunnar og hélt sig innan dyra,
til að forðast það að átök gætu brot-
ist út.
Pinochet, sem treysti því að batn-
andi efnahagur landsins myndi
tryggja honum næg atkvæði til sig-
urs, tapaði illa í Santíagó og öðrum
borgum og stóð sig ekki eins vel og
búist haföi verið við í bæjum og sveit-
um.
„Framþróun þessa lands verður
ekki stöðvuð af neinni ástæðu. Lýð-
ræðið sem við byggjum upp er fyrir
alia þá sem raunverulega trúa á
það,“ sagöi Femandez.
Patricio Aylwin, leiötogi stjórnar-
andstöðunnar, greiðir atkvæöi sitt á
kjörstað í Santiago.
Símamynd Reuter
Herinn leit á þessar kosningar sem
skref á leið Chile til lýðræðis, en lýð-
ræðis, sem tryggir það að enginn
möguleiki er á að ný marxistastjórn
taki völdin í landinu.
Pinochet verður áfram æðsti for-
ingi hersins, sem í era fimmtíu og
sjö þúsund manns, og hann hefur
byggt völd sín á allan sinn valdaferil.
Þingkosningar fara fram um leið
og forsetakosningar á næsta ári, en
þriðjungur öldungadeildarinnar
verður skipaður en ekki kosinn.
Pinochet mun sitja ævilangt í öld-
ungadeildinni og einnig mun hann
sitja í þjóðaröryggisráðinu, þannig
að ítök hersins í stjóm landsins
hverfa ekki alveg.
Fyrir kosningarnar óttuðust marg-
ir, þar á meöal Bandaríkjamenn, að
herforingjastjórnin myndi hætta við
kosningarnar eða lýsa þær ógildar
ef niöurstööur yrðu henni ekki að
skapi, enda hefur þaö verið venjan
að herforingjastjórnir fara ekki frá í
kosningum.
Því hafa yfirlýsingar stjómarinnar
í morgun um ósigur síns frambjóö-
anda komið skemmtilega á óvart, og
allar líkur virðast nú vera á því að
lýðræði komist á í Chile innan
skamms meö friösamlegum hætti.
Reuter