Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Side 37
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
37
Lífsstm
ur hver kona sé meö svoleiðis eftir-
líkingu vegna þess hve þær eru ódýr-
ar og erfitt að sjá mismuninn. í
töskuheiminum segja þeir einfald-
lega að þessar töskur komi þeim ekki
við. Þær séu misheppnaðar tilraunir
hjá þessum frægu tískuhönnuðum
sem eru að gera aðra hluti. Þeir eru
frægir fyrir fatahönnun og margir
fyrir ilmvötn en töskugerð er hliðar-
grein hjá tískukóngunum.
klæðast frökkum eða jökkum hér á
landi.
Helstu skinnin í töskum eru lappa-
skinn, sem er geita- eða kindaskinn,
og buffalo, sem er nautshúð og mun
stífari. Mismunurinn á verði er
vegna þess að sumt er grófunnið á
ódýran hátt en annað á fínan og dýr-
an hátt. Töskur geta verið dýrar og
fínar og þá viðkvæmar og verður þá
að hugsa sérstaklega vel um þær. Þar
má sjá að ekki liggur verðið í styrk-
leika. Það má líkja vönduðum tösk-
um við fínan demantshring sem er
auöveldlega hægt að skemma þó að
dýr sé.
Krókódílaskinn
10 sinnum dýrara
Krókódílaskinnsáferðin er mjög
mikið í tísku í ár, ýmist í bryddingum
eða aUri töskunni. Krókódílaskinn
er um 10 sinnum dýrara en venjulegt
skinn og hefur veriö ómögulegt að
selja það íslendingum, enda skiptir
það ekki öllu því að töskur með
krókódílaskinnsáferð eru margar
hverjar mjög líkar ekta krókódíla-
skinnstöskum. Og jafnvel mjög erfitt
að sjá mismuninn.
Þau lönd sem höfða helst til íslend-
inga í töskugerð eru Danmörk,
Þýskaland og Holland vegna þess hve
þetta eru praktísk lönd en hins vegar
höfða ítalskar töskur ekki eins vel
til íslendinga.
Á myndunum hér með greininni
má sjá örhtið brot af sígildum tösk-
um og töskum sem tískan býöur nú
upp á.
-GKr
Ætlar að láta
framleiða
fyrir sig[ hanska
Víðir Þorgnínsson verður líklega
fyrstur íslepdinga til að láta fram-
leiða og hanna sérstaklega fyrir sig
hanska. Til þess ætlar hann að nota
eina stærstu hanskaverksmiðju
heims, sem er í Ungverjalandi, og
framleiðslan verður merkt hans
verslun. Einnig ætlar hann að nota
skinn sem enginn annar vih kaupa
vegna þess hve það er dýrt. En verk-
smiðjan í Ungverjalandi framleiðir
meðal annars fyrir Svía, Breta og
Þjóðverja. Hann verður sem sagt
einn með þessa hágæða skinnhanska
sem að hans sögn verða, þegar upp
er staðið, ekki dýrari en aðrir han-
skar. Inni í hönskunum verður ýmist
ekta silki, ekta gæra eða kanínu-
skinn „Ég er kominn í það mikinn
hágæðaflokk að það á enginn að
komast nálægt mér í hönnun og
merki. Þama ætti fólk aö njóta
minnar reynslu í hönskum. Að baki
þessu liggur margra ára vinna,“
sagði Víðir en hann er að verða einn
reyndasti tösku- og hanskakaup-
maður á landinu og þótt víðar væri
leitað.
Þessir hanskar koma sennilega th
með að kosta um 2500 krónur en það
verður bæði hægt að fá þá mun dýr-
ari og mun ódýrari.
Leirbrúnir litir
En áfram með töskutískuna. Litir
á þeim eru yfirleitt mhdir miðað við
fatnað. Síðustu þrjú árin hefur svarti
hturinn verið allsráöandi en brúni
liturinn verður áberandi í vetur. Það
verða milhbrúnir leirhtir, frá ljós-
brúnu niður í rauðbrúnt, og venju-
legar einlitar töskur, því að íslend-
ingum virðist ekki faha tvhitar tösk-
ur vel í geð. Þeir vhja heldur ekki
sjá gylltar skreytingar á töskum.
Fyrir vorið er spáð tveimur gráum.
htum í töskum ásamt leirbrúnum lit-
um.
Snið á töskum breytast með tísk-
unni en htir ekki. Það er helst ef phs-
in styttast að minni töskur komi í
kjölfarið. Það á hins vegar fremur
iha við ísland vegna þess að flestir
Dæmi um sígilda tösku sem jafnvel er hægt að nota í
skólann og kostar tæpar 2.500 krónur.
Litlar töskur sem henta með stutta pilsinu í samkvæmið
eða síða kjólnum.
Meðalstór taska úr mjúku leðri með krókódílaskinns-
munstri. Svona töskur eru mjög vinsælar í dag og kosta
tæpar 5.000 krónur.
RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI 12725
OPNUNARTÍMAR:
MÁNUDAGA-FIMMTUDAGA 9-17.55.
FÖSTUDAGA 9-18.30.
LAUGARDAGA 10-14.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
SÍMI 13010.
Hanskar með nýju sniði. Þessir hnepptu eru frá Pierre Cardin og kosta innan við
2.000 krónur. Flestir hanskar eru á verðbilinu 2.000 til 3.000 kr.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greióa
meó korti.
Þú gefur okkur upp:
1 ~ - Nafn þitt og heimilisfang,
síma, nafnnúmer og
gildistlma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
I slma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
aroAHC j _ - ., _____
SIMI 27022
■ - -
■ • •—riHiíjfiHi iiiTii^kinlriiirnii%«ifnir>ttTarirtimniihiiiiitH,nhfói éiín.v^tfiiiiáagliM4Mri>i>a