Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Síða 39
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
39
LífsstOl
Sætabrauð án sykurs
Mjög margir verða að gæta að
sykurinnihaldi matar vegna sjúk-
dóma en aðrir vilja takmarka syk-
umeyslu sína í hollustuskyni. Því
er oft ekki um auðugan garð að
gresja þegar kemur að sætabrauði
fyrir þetta fólk. Eftirfarandi upp-
skriftir að kaffibrauði eiga það
sammerkt að enginn sykur er í
deiginu. Gervisykur má síðan nota
til að sæta ávextina sem notaðir eru
til bragðbætis.
Lagterta með
eplamauki
150 g smjörlíki
150 g hveiti
150 g soðnar, stappaðar kartöflur
Brytjið smjörlíkið í hveitið og
hnoðið saman. Bætið stöppuðu
kartöflunum saman við. Látið deig-
ið bíða í kæliskáp í hálftíma. Deilið
því síðan í fjóra hluta.
Hver hluti er síðan flattur út í
hringlaga botn sem er pikkaður
með gaffli. Best er að nota disk til
að fá botnana sem jafnasta. Leggið
hvem botn á bökunarpappír og
bakið viö 225” í ca 10 mínútur.
Kæhð.
Leggið botnana saman með epla-
mauki sem sætt er með gervisykri
eða öðru ávaxtamauki, sérstaklega
ætlað sykursjúkum.
Epli í smjördeigi
3-400 g smjördeig
1 epli
kanill
Fletjið smjördeigið út og búið til
fjóra feminga (15x15). Afhýðið ep-
lið, takið kjarnann úr og skerið í
báta. Deilið bátunum á milli deig-
bitanna og stráiö kanil yfir. Ef vill
má sæta eplin með gervisykri.
Brjótið hornin upp aö miðju og
klemmið vel saman. Skreytið hver
samskeyti með deigafgöngum. Lá-
tið kökurnar kólna um stund. Bak-
ið við 210° þar til kökumar eru ljós-
brúnar. Kökurnar eru bornar fram
volgar með ijómatoppi.
Eplalengja
Eplalengja þessi er svipuð um-
slögunum nema hvaö magnið er
meira.
5-600 gr smjördeig
4 stór eph
kanill
Afhýðið eplin, takiö kjarnann úr
og skerið í báta. Leggið eplabátana
á miðja lengjuna og brjótið hliðarn-
ar yfir til hálfs. Stráið kanil yfir og
sykrið með gervisykri, ef vill. Látið
kökuna bíða í kæli um stund.
Bakið eplalengjuna við 210° þar
til hún er oröin gulbrún. Eplalengj-
an bragðast vel með þeyttum ijóma
eða ís.
Smjördeig fæst hjá bökumm
ýmist ferskt eða frosiö. Svo er ekki
nauðsynlegt að binda sig viö eph
til bragðbætis, heldur má nota aðra
ferska ávexti eða niðursoðna, sérs-
taklega ætlaða sykursjúkum.
Lagterta með eplamauki.
Vatnsdeigs-
hringur
125 g smjorUki
214 dl vatn
125 g hveiti
4 egg
Hitið vatnið að suðu í potti og
bræðið smjörUkið þar í. Sigtið hvei-
tið i pottinn og hrærið vel. Þegar
hræran er laus við pottinn er hann
tekinn af heUunni og hræran látin
kólna aðeins.
Eggin eru hrærð saman við, eitt
í einu, og hrært vel á mUli. Setjið
deigiö á smurða bökunarplötu með
tveim skeiðum. Deigið er sett í einn
hring eða mótaðar nokkrar bollur.
Bakið við 210° í ca 20 mínútur.
FyUið með þeyttum rjóma og
ferskum eða niðursoðnum ávöxt-
um (sérstaklega ætlaða sykursjúk-
um).
Ávaxtabaka
150 g hveiti
100 g smjörlíki
örUtið kalt vatn
oröinn ljósbrúnn. Kælið. HelUð
vanUlukreminu í botninn og skrey-
tið með ferskum jarðarberjasneið-
um eða öðrum ávöxtum.
Ávaxtabaka með vanillukremi og jarðarberjum.
Vatnsdeigshringur með ferskum
ávöxtum og rjóma.
Vanillukrem:
2!4 dl mjólk
1 egg
3 tsk. kartöflumjöl
nokkrir dropar fljótandi gervisyk-
ur
vanUludropar
1 dl ijómi
Myljið smjörlíkiö saman við
hveitið og setjið kalt vatn (1-2 msk.)
saman við og hnoðið vel. KæUð
deigið um stund.
Vanillukrem: Hrærið saman egg,
kartöflumjöl og nyólk í potti. Hitið
blönduna og hrærið stöðugt í á
meðan. Takið af hellunni og bragö-
bætið með sætuefninu og vaniUu-
dropum. Aðgætið að vanUlukremið
á aðeins að hita að suðu en ekki
sjóða. Þeytið rjómann og blandið
saman við kremið.
Þrýstiö deiginu innan í vel smurt
mót (ca 24 cm í þvermál). Bakið
botninn við 200” þar tU hann er
Hafrakex
2 dl hafragijón
3 dl mjólk
125 g sipjörlíki
54 tsk. salt
1 msk. hjartarsalt
4 dl hveiti
Blandið þurrefnum og mjólk
saman. Hnoöiö síðan smjörlUdð
saman við. Fletjið deigið út (ca 2
mm þykkt). Skerið út hringlaga
kökur og pikkið þær með gaffli og
bakiö við 200” hita þar tU kökumar
eru gulbrúnar.
Bragðast vel með alls konar
ávaxtamauki og/eða osti.
Sykurlausar
vöfflur
214 dl vatn
2 dl mjóUc
354 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
70 g bráðið smjörlíki
54-1 tsk. fljótandi gervisykur
1 egg
Blandið saman vatni, mjólk,
hveiti og lyftidufti. Sláið eggið
sundur og bætið í hræruna ásamt
bræddu smjörlíkinu. Smyijið
vöfflujárnið bara fyrir fyrstu kök-
una.
Berið nýbakaðar vöfflumar með
ávaxtamauki og þeyttum ijóma.
Einnig má leggja tvær vöfflur sam-
an og hafa niðursoðna ávexti (ætl-
aða sykursjúkum) á milli ásamt
ijóma.
-JJ
Sykurlausar vöfflur meö niöursoðnum ávöxtum.