Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Page 44
44
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Sviðsljós
I>V
Ólyginn
sagði...
Jackie
Collins
sem skrifaði um Hollywood-eig-
inkonumar og karlana og er auk
þess systir Joan Collins er nú aö
gera alla alvörugefna rithöfunda
í Bandaríkjunum brjálaða. Á
meðan þeir rembast eins og rjúp-
an við staurinn við að skrifa eitt-
hvað gáfulegt niður á blað, til
þess eins að komast að því aö
enginn viU borga svo mikið sem
túskilding með gati fyrir að lesa
verkin þeirra, þá var Jackie að
fá fjögur hundruð og fimmtíu
milljónir króna borgaöar inn á
næstu þrjár bækur. Jackie skrif-
ar aðaÚega um kynlíf og valda-
baráttu ríks og frægs fólks -
greinilega það sem fólkið vill lesa.
Andrew
Bretaprins
er flórði í röðinni að bresku krún-
unni en ekki er þar með sagt að
hann njóti þess vegna einhverra
sérréttinda í hernum þar sem
hann dvelur flestum sínum
stundum. Þar er hann ósköp
venjulegur Uðsforingi. Á dögun-
um héldu yfirmenn hans mikið
boð fyrir Margréti Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, og þá
mátti Andrew gera sér að góðu
að standa vörð á meðan aðrir
skemmtu sér.
Jamie Lee
Curtís
leikur í nýrri mynd með gamla
spaugaranum John Cleese. Þessi
mynd heitir „A Fish Called
Wanda“ og er um ástir, morð og
sjávarrétti. Cleese vildi krydda
myndina með fallegum mynda-
skotum og bað Curtis um að
fækka klæðum í myndinni. Hann
fékk svar við hæfi. Ungfrúin varð
trítilóð og gekk berserksgang og
sparkaði í lurk sem var við arin-
inn. Sá lenti í Cleese sem stóð
hokinn á eftir með báðar hendur
á milli fóta og tár í augum.
IIIIIIIIIJMM 1.1 M'
~ . '
Mike Tyson og Robin Givens sjást hér við komuna tii Moskvu fyrir tæpum mánuði en þangað þurftu þau að fara vegna þess að framhaldsmyndaflokkur,
sem Givens leikur í, var tekinn upp þar. Þarna fer nú bara nokkuð vel á með þeim. Símamynd Reuter
Stmg
á fullu í Aþenu
Breski rokkarinn Sting er nú á ferð um helminn að halda hljómleika
til stuðnings mannréttindum. Ekki er hann alveg einn á ferð, því að með
honum er Bruce Springsteen og fleiri góðir. Fyrr í vikunni voru kappam-
ir í Aþenu og vöktu þar mikla lukku eíns og hvarvetna. Eftir klæönaöin-
um að dæma var bara nokkuð kalt.
• /1 •••/» r r
- jolagjofm í ar
Þessi litla stúlka trúir á jólasveininn. Aðdáunin skín úr augum hennar.
Kannski er hún ekki alveg viss og vill fullvissa sig með því að toga í skeggið
á þeim gamla, enda er hún komin á þann aldur, orðin tuttugu og eins árs,
að skoða heiminn með gagnrýnum augum, hún Inez Soman sem er fyrir-
sæta hjá Dior. Hún var í London að kynna jólanærfatatiskuna í ár þegar hún
fékk að hitta jólasveininn.
Símamynd Reuter
Jóla hvað?