Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
45
DV
Tyson
gengur
berserks-
gang
Það slettist heldur betur upp á vin-
skapinn hjá heiðurshjónunum Mike
Tyson og Robin Givens um síðustu
helgi. Reyndar fékk tengdamamma
Tysons þaö óþvegið hka.
SíðastUðið fóstudagskvöld komu
Tyson og Givens fram í sjónvarps-
þættinum 20/20 í viðtali hjá Barbara
Walters stjörnufréttamanni sem
þekkt er fyrir aö draga yfirlýsingar
upp úr fólki sem búið er að sverja
þagnareið.
Ekki varð nein breyting á í þetta
skiptið því að Givens gaf út alls kyns
yfirlýsingar um manninn sinn sem
jafnvel þekktustu aflraunamenn
þyrðu ekki að láta út úr sér, og er
hún þó ekki há í loftinu.
Givens sagði að hún væri hrædd
við Tyson og aö hann væri ógurlegur
í sambúö, ógnaði henni, ýtti við
Simamynd Reuter
Ólympíu-
frímerki
á Spáni
Ekki eru fyrr búnir einir ólympíu-
leikar en þeir næstu eru komnir af
stað. Reyndar eru ólympíuleikarnir
í Barcelona ekki byijaðir, og munu
ekki byrja fyrr en sumarið 1992, en
Spánverjar eru þegar farnir að
minna okkur á þá. Á mánudag gáfu
þeir út fyrstu ólympíufrímerkin sem
gefin veröa út í tengslum viö leikana.
Þeir ætla að gefa út fjöldann allan
af frímerkjum og fær hver íþrótta-
grein eitt merki fyrir sig.
Ni/
Prtf-ölíntpfca
i
4
4
'4
-4
á
4
Þrtí-Otonpk-a liurct‘kjna‘92
* Prc-Olimpica -«=** Batcekma'92 J
Sviðsljós
Sviðsljós neitar að trúa því að Tyson hafi reynt að lemja konuna sína og ekki tekist. Það er frúin sem sést fyrir
aftan hann. Simamynd Reuter
henni og að stundum reyndi hann
að slá til hennar. Maöur tekur nú
svona yfirlýsingum með varúð. Ef
Tyson hefði einhvern tíma reynt að
slá til konu sinnar væri hún varla
til frásagnar.
Tyson tók þessu meö jafnaðargeði
og sat brosandi við hlið konu sinnar
og hlustaði á yfirlýsingasúpuna.
Sjálfur sagðist hann þjást af of-
læti/fálæti, vera „ manio-depressi ve“,
og taldi það skýra ýmis atvik í einka-
lífinu, sem komið hafa upp á undan-
fómum vikum og mánuðum.
Það var síðan á sunnudagsmorgun,
einum og hálfum sólarhring eftir að
þátturinn var sendur í loftið, að
kappinn varð ósáttur við þessar yfir-
lýsingar konu sinnar. Rann þá á
hann mikið æði og tók hann til við
að henda húsmunum og ganga ber-
serksgang. Til að byija með voru
þetta smámunir, en svo fór áður en
yfir lauk að hann var farinn að henda
húsgögnum út um glugga, án þess
að opna þá.
Robin Givehs og móðir hennar
Ruth Roper, sem virðist eyöa öllum
stundum á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, sáu þá þann kost
vænstan að forða sér. Þær komust á
einum af glæsivögnum húsbóndans
á næstu bensínstöð þar sem þær
hringdu á lögregluna. Síðan fóru þær
aftur heim og biðu eftir iögreglunni
sem kom að vörmu spori. Þá var
Tyson orðinn hinn rólegasti og sagð-
ist ekki sjá ástæðu fyrir veru lögregl-
unnar á landareign sinni. Ekki kæröi
Robin, svo aö lögreglan lét sig hverfa
við svo húið.
Sama dag flugu Givens og mamma
hennar til Los Angeles, en þau hjón
búa í New Jersey skammt utan við
New Yorkborg.
Ætii lausnin hjá Tyson hjónunum yt
fehst ekki einfaldlega í því að reka
tengdamömmu á dyr? Það getur ekki
verið draumastaðan hjá ungum
hjónum að geta vart farið að sofa án
þess að hafa tengdamömmu með,
sérstaklega þegar sú tengdamamma
hefur það orð á sér að vera nokkuð
frek og ráðrík.
skemmtista&wnm
Danshúsið
Álfheimum 70, sími 686220
Ari Jónsson úr Roof Tops
verður gestasöngvari helgarinnar.
Hljómsveitin
í gegnum tíðina sér um danstónlistina.
Rúllugjald kr. 500. Snyrtilegur klæðnaður.
André
Bachmann
leikur föstudags-
og
laugardagskvöld
Mímisbar
/fl/n/IDEIJS
ÞÓRSC/IFÉ
Brautarholti 20
Símar:
23333 & 23335