Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1988, Qupperneq 48
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í slma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1988.
Þingembætti:
Kvennalista-
kona forseti
neðri deildar?
Nú er taliö næsta öruggt að Jón
Helgason veröi kosinn forseti sam-
einaðs þings þegar Alþingi kemur
saman og leysi því Þorvald Garðar
Kristjánsson af hólmi. Þá er einnig
talið víst að Karl Steinar Guðnason
haldi forsetaembætti sínu í efri deild
en ólíklegt er talið að Jón Kristjánson
haldi sæti sínu sem forseti neðri
deildar. Alþýðubandalagsmenn telja
sig eiga mestan rétt á því embætti
en heyrst hefur í þeirra röðum að
vel geti komið til greina að láta
kvennalistakona hafa það embætti.
Um leið og forsetar verða kosnir
verður gengið frá skipun nefndar-
formanna. Eru þar tvö embætti sem
athyglin beinist helst að: Formaður
fjárveitinganefndar Alþingis er nú
Sighvatur Björgvinsson en alþýðu-
bandalagsmenn telja rétt að þeir hafi
þetta embætti og er Margrét Frí-
mannsdóttir helst nefnd þar til.
Reyndar segja menn að það sé frá-
gengið að hún fái þetta embætti.
Að sama skapi munu alþýðuflokks-
menn vilja formannsembætti í utan-
^ ríkismálanefnd en þar situr nú Ey-
jólfur Konráð Jónsson. Er Kiartan
Jóhannsson talinn langlíklegasti
kandídatinn en þó ber að hafa í huga
að hann og Jón Baldvin hafa verið á
öndveröum meiði í ýmsum málum,
sérstaklega varðandi Evrópubanda-
lagið.
Ef þing situr aðeins í einn eða tvo
daga er ólíklegt að gengið verði frá
öllum nefndakosningum strax.
Brýnt er þó að kjósa formann fjár-
veitinganefndar enda fjárlagagerðin
á fullu.
Páll Pétursson, þingflokksformað-
ur framsóknarmanna, dvelst nú er-
lendis þannig að ekki er búið að
ganga fullkomlega frá skiptingu
— stjómarflokkanna á formannsemb-
ættum í nefndum Alþingis.
Þá er óljóst enn hver verður þing-
flokksformaður hjá alþýðubandalag-
inu þó talið sé líklegt að Guðrún
Helgadóttir taki það að sér enda fast
að henni lagt að gera það.
-SMJ
nici oiem&nmi
að ASÍ hafi beðið um breytíngar á lánskjaravísitölu
„Það er hrein og klár lygi þjá
Steingrími Hermannssyni að Al-
þýðusambandið hafi beðið um
þessar breytingar á lánskjaravisi-
tölunni. Það hefur ekki verið fjallað
um þetta í miðsijóminni. Það getur
vel verið að einstakir miðstjómar-
menn telji þetta til bóta. En það er
enginn hér á skrifstofunni og eng-
inn sem ég hef rætt við sem er þessa
sinnis," sagði Ari Skúlason, hag-
fræðingur Alþýðusambandsins.
Ari sagöist telja að mörgum
spumingum væri ósvaraö um
hvemig staöið yrði að því að tengja
lánskjaravísitöluna frekar við
launin. Hins vegar væri Jjóst að í ■
því fælist mikil áhætta. Kaupmátt-
ur væri nú á botninum og Ijóst
væri að hann myndi aukast í ná-
inni framtíð frá því sem nú er. Lán-
in myndu því hækka meö launun-
um í uppsveiflunni. Þaö væri því
ekki verið aö bæta misgengi með
þessum aðgerðum heldur þvert á
móti að auka það.
Þessi afstaða hagfræðings ASÍ er
viðbót við svipaða afstöðu hag-
fræðings BSRB sem fram kom i
kjallaragrein í DV. Þá hefur Seðla-
bankinn lýst efasemdum vegna fyr-
irhugaöra breytinga á lánskjara-
visitölunni.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur hins vegar lýst
því yfir að hann muni ekki bakka
með þessar breytingar.
Þessi myndarlega hrefna festist í bólfærum bátsins Kristjáns S frá Reykjavík þegar hann var að veiðum úti á
Faxaflóa. Hún vó 2,61 tonn og var 6,2 m á lengd. Hér sést þegar verið er að færa hana í verkun hjá Fiskverkun
Hafliða á Granda, þar sem hún verður bútuð sundur til neyslu, en hrefnukjöt þykir sérlega Ijúffengt á bragðið.
DV-mynd S
Nauöungaruppboö á Hótel Örk:
Helgi Þór átti hæsta boðið
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIR MENN
Þriðja og síðasta nauðungarupp-
boðið á Hótel Örk í Hveragerði fór
fram í morgun. Hæsta tilboðið, að
upphæð 230 milljónir króna, kom frá
Helga Þór Jónssyni, eiganda Hótel
Arkar hf., og fjölskyldu hans. Næst-
hæsta tilboðið nam 200 milljónum
króna. Það kom frá Framkvæmda-
sjóði íslands.
Uppboðshaldari vinnur nú að því
að athuga hæsta tilboðið og meta
hvort gengið verður að því.
-sme
-sjáeinnig bls.7
LOKI
Og ég sem hélt að Denni
væri svo grandvar!
Veður á morgun:
Slydduél
á Norður- og
Austuriandi
Norðan- og norðaustanátt verður
á landinu á morgun. Austanlands
verður sums staðar allhvasst, ann-
ars kaldi. Slydduél á Norðaustur-
landi, á annesjum noröanlands og
sennilega suður með Austfjörðum.
Víða verður léttskýjað á Suður- og
Vesturlandi. Hitinn verður 0-5 stig.
w/ Grimsey
Sæljónið EA 56 sökk
hér kl. 18:15 f gær.
s
Kortið sýnir staðinn þar sem Sæljón
EA sökk í gær.
Mannbjörg:
Sæljón EA sokk á
Skagafjarðardýpi
Sæljón EA 55, rúmlega sextíu tonna
eikarbátur frá Dalvík, sökk á Skaga-
íjarðardýpi, um 20 sjómílur norður
af Siglunesi, um klukkan sex í gær-
dag. Þrír menn voru um borð í Sæl-
jóni. Þeim var bjargað um borð í
Bjarma EA. Bátarnir voru báðir á
rækjuveiöum. Leki kom að Sæljón-
inu um klukkan hálftvö í gærdag.
Lensidælur hátsins biluöu. Skipveij-
um tókst ekki að komast fyrir lek-
ann.
Skipveijar á Sæljóni fóru ekki í
björgunarbát heldur stukku yfir í
Bjarma. Reynt var aö draga Sæljón
til hafnar. Það tókst ekki þar sem
báturinn fór á hhðina um klukkan
sex og sökk skömmu síðar. Þá voru
tveir menn nýkomnir úr Sæljóninu
þar sem þeir freistuðu þess aö ganga
frá vír sem var á milli bátanna.
Sæljón var 61 tonn að stærð, smíð-
aður úr eik í Danmörku áriö 1955.
Rán hf. á Dalvík átti bátinn. Bjarmi
kom með áhöfn Sæljónsins til Dal-
vfkur í gærkvöld. -sme
Átján ára piltur:
Játaði átök
við þann látna
Átján ára piltur hefur játaö átök
við manninn sem lést af völdum
áverka sem hann hlaut í átökum við
Bifreiðastöð Hafnaríjarðar aðfara-
nótt sunnudags. Ekki þótti ástæða til
að óska eftir gæsluvarðhaldsúr-
skurði yfir piltinum.
Áður var búið að úrskurða 47 ára
gamlan Hafhfirðing í gæsluvarðhald.
Hann hefur nú veriö látinn laus.
Lögreglan handtók piltinn eftir fram-
burö vitna sem gáfu sig fram.
Hinn látni lést á gjörgæsludeild
Borgarspítalans af völdum höfuö-
áverka sem hann fékk er hann skall
í götuna í eða eftir átökin.
Um helgar er oft mikið af drukknu
fólki við nætursölu Bifreiðastöðvar
Hafnarfiarðar og hefur oft komið til
þess að lögregla hafi þurft að hafa
afskipti af mönnum þar.
Sá sem lést hét Helgi Jónsson.
Hann var 37 ára gamall, ógiftur og
bamslaus. -sme
Seðlabankinn
ferfram á
vaxtalækkun
Seðlabankinn óskaði eftir því í gær
að bankar og sparisjóðir lækki út-
lánsvexti sína. Lækkunin verður
þann 11. þessa mánaöar, verði hún
samþykkt.
Fariö var fram á að nafnvextir
verði lækkaðir um 5 prósent en raun-
vextir um 0,75 prósent sem er þá
fyrsti áfanginn í því að raunvextir
lækki um 3 prósent fram aö áramót-
um. -JGH