Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988. Fréttir Tugmilljóna tjón í bruna á Stöðvarfírði: Síldarvertíð lokið á staðnum vegna brunans Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Tugmilljóna tjón varö á Stöövar- firöi aðfaranótt síöasta laugardags þegar eldur kom upp í saltfiskverk- unarhúsi Hraöfrystihúss Stöðvar- fjarðar. Aö undanförnum hefur verið söltuö síld í húsinu. Eldurinn viröist hafa komið upp í hleðsluherbergi þar sem rafmagnslyftari er hlaöinn en annars eru eldsupptök ókunn. Bjarni Gíslason, slökkviliösstjóri á Stöövarfiröi, sagöi aö slökkviliðið heföi veriö kallað út um kl. tvö eftir miönætti. Þá var töluveröur eldur í húsinu. Slökkvistarf hófst þegar í staö og lauk því á sjötta tímanum. Að sögn Guöjóns Smára Agnars- sonar, framkvæmdastjóra Hrað- frystihússins, er ljóst aö tugmilljóna tjón hefur oröiö af völdum eldsvoð- ans. í húsinu voru um áttatíu tunnur af saltaðri sOd, auk þess töluvert af salti og áttatíu tonn af saltfiski. Óvíst er hversu mikið af framleiðslunni er ónýtt eftir brunann. er hve mikið af þessari framleiöslu er ónýtt fyrr en eftir skoöun. Alls var búið að salta í um 1700 tunnur af síld hjá Hraðfrystihúsinu og sagði Guöjón Smári að líklegast væri síldarvertíð lokið hjá þeim á þessari vertíð. Húsið, sem brann, var aðalhús fyrirtækisins fyrir utan sjálft frystihúsið. Úlfar Jónsson, lögregluvaröstjóri á Egilsstöðum, sagði aö lögreglan heföi verið komin á staöinn um hálfsjö um morguninn en boö um eldsvoöann fengu þeir á fjóröa tímanum um nótt- ina þegar þeir voru á leið til Eski- fjaröar. Lögreglan hélt vakt um hús- ið þangað til starfsmenn Brunamála- stofnunar komu á staðinn. Um atvinnuhorfur söltunarfólks sagði Guðjón Smári að einhverjir yrðu við hreinsun á húsinu og aörir yrðu í vinnu í frystihúsinu. Þó yrði sennilega að fækka fólki vegna brun- ans. Fiskverkunarhúsið er mjög mikið skemmt eins og myndin ber með sér. DV-myndir: Ægir Framkvæmdastjóra félagsheimllisins í Bolungarvik sagt upp: Hagnaður af áfengissólu minni en innkaup benda til - segir Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík Bæjarstjórinn í Bolungarvík hefur sagt framkvæmdastjóra félagsheim- ilisins á staðnum upp störfum vegna óreiðu sem verið hefur á rekstri hússins. Málið hefur ekki verið kært og sagði Ólafur Kristjánsson, bæjar- stjóri í Bolungarvík, að engin ákvörðun heföi verið tekin um fram- hald þess. „Það er rétt að áfengissala á bam- um átti að skfia meiri innkomu mið- að við innkaup en raunin hefur orð- ið. Framkvæmdastjórinn á eftir að gefa sínar skýringar og það er rétt að hann fái að gera það áður en farið er að bera sakir á menn. Skipting á milli einstakra rekstrarþátta er enn óljós,“ sagði Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í samtali við DV. Bæjarráð og bæjarstjóri sögðu framkvæmdastjóranum upp í síð- ustu viku en hann haföi þá rekið veitingaþjónustu í félagsheimOinu og annast skemmtanahald þar í tvo mánuði. Sá kvittur hefur komið upp að um fjárdrátt upp á nokkur hundruð þús- und sé að ræða en Ólafur Kristjáns- son vildi ekki staðfesta það. „Fram- kvæmdastjórinn á rétt á að gefa sínar skýringar fyrst,“ sagði Ólafur. Um- talsverður halli hefur verið á rekstr- inum í félagsheimilinu síðustu mán- uöi. Ólafur Kristjánsson staðfesti að halUnn væri á aðra mOljón. „Ég býst við aöframkvæmdastjór- inn hafi tekið rangar ákvarðanir í skemmtanahaldi en við það þarf ekk- ert að vera saknæmt,“ sagði Ólafur. „Bærinn sér um bókhald félags- heimilisins og ég gat því fylgst með framvindu mála. Ég var búinn að hafa reksturinn undir smásjánni undanfarinn hálfan mánuð og bar skylda til að grípa í taumana strax.“ Aður en reksturinn í félagsheimil- inu var leigöur út haföi Bolungarvík- urbær lagt sjö til átta miOjónir í end- urbætur á húsinu bæði utan og innan og til kaupa á búnaði í það. Nú er verið að leita að nýjum rekstraraðOa og sagði Ólafur að viðræður stæðu . yfir við nokkra menn. -GK ÞórhaHur AsmundsBon, DV, Sauðárkrólau í síðustu viku tók landhelgis- gajsluflugvélin TF-Sýn Blátind SK-88 að ólöglegum dragnótaveið- um í innanverðum Skagafirði, skammt undan Hegranesvita, en friðaða svæðiö nær firá Hegranestá í beinni línu út að Fagranesi á Reykjanesströnd. Dæmt var i mál- á raeðal skipstjórinn, eiga bátinn. inu hjá sýslumanni Skagfirðinga Þetta eru menn sem lengi eru bún- og var skipstjórinn á Blátindi ir aö vera tO sjós og hafa þeir haft dæmdur í 180 þúsund króna sekt að orði að þeir fari í úreldingu með ogafliog veiöarfæri gert upptækt. bátnum. Ekki er vitaö, né talið lík- Þess má geta að Blátindur átti að legt, að þeir séu landhelgisbrjótar fara í úreldingu fyrir nokkrum vik- að upplagi. um en fékk undanþágu til 1. desem- ber. Þrír af fjórum skipverjum, þar Gunnar Bender, veiðifréttamaður DV, tekur viö fjölmiðlabikarnum á laugar- dagskvöldið úr hendi Rafns Hafnfjörð, formanns L.S. Þetta er i fyrsta skipti sem bikarinn er afhentur. DV-mynd ÞE Fjölmiðlabikar til DV-manns Á aðalfundi Landssambands stangaveiðimanna um helgina var í fyrsta skipti afhentur fjölmiðlabikar og hlaut veiðifréttamaður DV, Gunn- ar Bender, bikarinn. Stjórn L.S. ákvað að afhenda bikar- inn þeim flölmiðlamanni er að henn- ar mati heföi gert hvað mest og best fyrir stangaveiðnþróttina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.