Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Page 14
14
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1988.
Fréttir
Slökkviliðið í SÍS-verksmiðjurnar?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þaö er alltaf veriö að leita að
gömlu húsnæöi fyrir slökkviliðiö og
nú er verið að tala um það aftur að
flytja slökkvistööina í gömlu Sam-
bandsverksmiðjurnar;' sagði Tómas
Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á
Akureyri, i samtali við DV.
Húsnæðismál slökkviliðsins á Ak-
ureyri skjóta alltaf upp kollinum af
og til og eru nú þessa dagana til
umræðu hjá bæjarráði. Núverandi
húsnæði slökkviliðsins er ófullnægj-
andi fyrir liðið, mikil þrengsli og
aðstaöa öll of lítil.
Tómas Búi sagði að húsnæðið, sem
rætt er um aö slökkviliið fái í Sam-
bandsverksmiðjunum á Gleráreyr-
um, sé um 1000 fermetrar. „Þetta lít-
ur ekki illa út þannig séð, en því
miður myndi þetta húsnæði ekki
nýtast okkur vel. Þarna þyrftum við
t.d. að setja bílana inn í tveimur röð-
um sem er slæmt, og það sem verra
er, er að æfingaaðstaða er engin
þarna utanhúss. Við gætum því ekki
stundað æfingar á vöktunum.
Ég óttast að þetta verði dýrara en
að byggja nýtt húsnæði fyrir okkur.
Þetta húsnæði er byggt fyrir sér-
hæfðan iðnað og þarf miklar breyt-
ingar til að henta okkur vel og það
er verst af öllu aö þegar veriö er að
ræða um framtíðarhúsnæöi fyrir
slökkviliðið þá skuh ekki eiga að
vera þar æfingaaðstaða,“ sagði Tóm-
as Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri.
'íiiU i
þau sem
ísSSS ..
ósamt fiAagnusi
Ólafssyni vorutn.
K?fansSn ogWg^^ RaghangJj
fe|aGuð'|ónsdóÍ5 ^ratar
Moner, Rpsa ^ .'Hafnarkði.
úr Vesturbænurn Sfngi Skagíprð-
I Einni9: V''"Ynna& T9RUNTAN
úr hestamannatöag b.órvomb.
\
, \ \
*
t £ nn fpr á kostum
Magnus Okjjlegri hljómptötu.
á stórskenrnr Dreifmg:
Steinar
Nýbýlavegí 4, sími 46799
Þrír nemendur á Hallormsstað reisa hér upp það minnsta af þeim jólatrj-
ám, sem ætluö eru til skreytinga úti. Þau eru flest á bilinu 3-5 metrar á hæð.
Byrjað að fella jóla-
trén á Hallormsstað
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum:
Hjá Skógræktinni á Hallormsstað
var byrjaö að höggva jólatré um
mánaðamótin nóvember-desember.
Byrjað er að fella stóru trén, þessi
sem standa úti ljósum prýdd á þétt-
býlisstöðunum hér austanlands.
Mest er höggvið af rauðgreni sem var
lengi svo til eina tegundin sem notuð
var sem jólatré. Síðari árin hafa aðr-
ar tegundir mjög rutt sér til rúms.
Eru það einkum normannsþinur,
sem er innfluttur, og frá Hallorms-
stað fjallaþinur, blágreni og stafa-
fura.
Jón Loftsson, skógarvörður á Hall-
ormsátað, sagði að ef þeir heföu séö
fyrir breytinguna fyrir 15 árum hefði
eingöngu verið plantað blágreni þá.
Hér austanlands seljast um 1000
jólatré. Auk þess sendir skógræktin
allmikið til Reykjavíkursvæðisins og
eru það einkum fjallaþinur, blágreni
og stafafura. Skógarvörður gat þess
að nú væri sala á þessum tegundum
einnig að glæðast hér og yrði séð til
þess að ekki yrði skortur á þeim hér
eystra.
Þessar þrjár tegundir eru all-
nokkru dýrari en rauögrenið. Stafar
það fyrst og fremst af því að miklu
minna hlutfall þeirra verður að fal-
legum jóiatrjám en hjá rauðgreninu
og auk þess eru þetta mjög barr-
heldnar tegundir.
Jólatré felld á Hallormsstað en lítil var dagsbirtan. DV-myndir Sigrún
Meö BRIDGESTONE „ÍSGRIP4 vetrar-
hjólböröunum færö þú gripið, sem þú
þarft í vetur. Tryggöu öryggi þitt og þinna
í vetur, keyptu BRIDGESTONE „ÍSGRIP4
} undir bílinn — þeir fást hjá hjólbaröasöl-
I um um land allt.
Bjódd
vetrinum
byrginn!