Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Blaðsíða 26
26.
íþróttir
Frétta-
stúfar
Iraklis tapar
Iraklis Saloniki,
gríska liðið sem Arn-
ljótur Davíðsson ger-
ist að öllum líkindum
leikmaður með, tapaöi útileik um
helgina gegn Diagoras, 2-1, og
féll fyrir bragðið niður um sæti.
AEK, sem er á toppnum, vann
Apolion, 4-2, og Paok, sem er í
2. sæti, lagði Doxa, 1-0. Staðan er
þessi:
AEK............12 8 2 2 19-7 18
PAOK...........12 8 1 3 20-12 17
Iraklis........12 6 4 2 22-13 16
Olympiakos.....12 6 3 3 23-11 15
Donadoni aftur með
Miðjumaðurinn Roberto Dona-
doni lék í gær sinn fyrsta leik
með ítölsku meisturunum AC
Milano, síðan hann var nær
dauða en lífi eftir slys í leik í
Evrópukeppni gegn Rauðu
stjörnunni frá Belgrad.
Endurkoma Donadoni hafði
mjög jákvæð áhrif á gang AC en
liðið féli saman er hann mátti
yfirgefa vöilinn eftir árekstur við
Corrado Verdelii. Lið hans tap-
aöi, 0-1, í slag við nágranna sína,
Inter Milano, og skoraði Aldo
Serena sigurmarkið. Inter er því
áfram efst, hefur 17 stig eftir 9
leiki, en Napoli vann Verona, 1-0,
úti og er með 15 stig. Juventus
og Sampdoria gerðu markalaust
jafnteQi og eru næst með 12 stig,
ásamt Atalanta sem vann Pisa,
1-0. '.
Eindhovenlá í Tokýo
Álfumeistarar okkar Evrópubúa
í knattspyrnu, PSV Eindhoven
frá Hollandi, máttu sætta sig við
ósigur gegn S-Ameríkumeistur-
unum, Nacionai frá Úrúgvæ, í
heimsbikarkeppni félagsliða.
Ameríkumennirnir réðu gangi
leiksins en staðan var þó 1-1 eftir
hefðbundinn tíma og 2-2 í kjölfar
framlengingar.
í vítaspyrnukeppninni voru
síðan Ameríkumennimir sterk-
ari á taugum og náðu að hampa
heimsbikar félagsliða.
Möltumenn koma á óvart
Tveir leikir voru í forkeppni
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu um helgina. Möltumenn
komu mjög á óvart og héldu jöíhu
gegn Ungverjum, 2-2.
Busuttil gerði bæði mörk
Möltubúa en Vincze og Kiprisch
skoruðu fyrir Ungverja.
Júgóslavar treystu stöðu sína í
sínum riðh með 4-0 sigri á Kýp-
ur. Dejan Savicevic gerði þrennu
og Faruk Hadzibegjc skoraði úr
víti.
T 2.deíld
f stadan /
ÍR - Þór ..32-16
Keflavík - Afturelding ..32-19
HK - Selfoss ..34-29
Haukar - Þór ..28-21
ÍH -Ármann ..24-25
Haukar......9 7 1 1 229-171 15
ÍR..........9 7 1 1 238-178 15
HK...........9 7 1 1 238-180 15
Ármann.......9 6 0 3 214-215 12
Selfoss......9 4 0 5 228-226 8
Njarðvík.....8 3 1 4 195-188 7
Keflavík.....9 2 0 7 205-213 6
ÍH...........9 2 0 7 165-239 4
Aftureld..9 2 0 7 197-234 4
Þór.......10 2 0 8 192-258 4
• Óskar Elvar Óskarsson fór á
kostum með HK og skoraði 18
mörk. Hann hefur nú gert 46 mörk
í þremur síðustu leikjum liðsins!
MÁhfÐDÁGÚiR'12. ’DESEMBER11988.-''
„Engin furða þó eld-
fjallaeyjan sé trjálaus“
- sögðu Svisslendingar eftir 16-15 sigur Amicitia á Valsmönnum
Pétur Guðmundsson, DV, Ziirich:
,,Það er engin furða þó eldfjallaeyj-
an í norðri sé trjálaus," skrifaði eitt
svissnesku blaðanna eftir Evrópu-
leik Amicitia og Vals á laugardaginn.
Þar var verið að tala um öll bylm-
ingsskotin sem Valsmenn áttu í
markstangir svissnesku meistar-
anna í leiknum en þau voru átta tals-
ins - þar af átti Sigurður Sveinsson
sex! Amicitia yann þarna sinn tólfta
sigur í þrettán heimaleikjum í-Evr-
ópukeppni en aðeins 16-15 og þann
mun ættu Valsmenn aö eiga góða
möguleika á að vinna upp og gott
betur í Laugardalshöllinni næsta
sunnudagskvöld.
Amicitia kærði leikinn
Svissneska liðið hefur kært þann
úrskurð vestur-þýsku dómaranna í
lok leiksins að stöðva klukkuna 4
sekúndum fyrir leikslok. Þeir voru
þá að reka einn Svisslendinganna af
leikvelli og dæmdu Valsmönnum
aukakast. Upp úr því skoraði Júlíus
Jónasson síðasta mark leiksins sem
kann að reynast dýrmætt þegar upp
verður staðið.
Amicitia sendi mótmæli með leik-
skýrslunni til Alþjóða handknatt-
leikssambandsins en ólíklegt er að
þau skili félaginu einhverjum ár-
angri.
Slakur sóknarleikur
en sterk vörn
Valsliöið lék mjög vel, varnarlega
séð, í leiknum en sóknin var fálm-
kennd og mun slakari en fyrr í vet-
ur. Augljóst var að taugaóstyrkur
háði leikmönnum framan af en það
lagaðist og síðari hálfleikur var
ágætur af hálfu Valsmanna.
Amicitia komst í 2-0 og 4-1. Valur
minnkaði muninn í 4-3 og 6-5, Amic-
ita breytti því í 9-5 en staðan var 9-6
í hálfleik. Valur jafnaði, 13-13, en í
þeirri stöðu mistókst Valdimar
Grímssyni að skora úr hraðaupp-
hlaupi. í staðinn komst Amicitia í
15-13 og 16-14 en Júlíus átti lokaorð-
ið eins og áður sagði.
Dæmigert svissneskt lið
Amicitia leikur dæmigerðan sviss-
neskan handknattleik, langar sóknir
og sterka vörn, og það endurspeglast
vel í lágu skori beggja liða. Áö öllu
eðlilegu á Valur að vinna heimaleik-
inn örugglega, enda er árangur
Amicitia á útivelli í Evrópukeppni
fremur slakur en heima hefur það
sigrað lið á borð við CSKA Moskva
og Dukia Prag.
Sigurður Sveinsson og Páll Guðna-
son markvörður voru bestir Vals-
manna í leiknum ásamt Geir Sveins-
syni og Þorbirni Jenssyni sem báðir
léku mjög vel í vörn. Páll tók viö af
Einari Þorvarðarsyni í lok fyrri hálf-
leiks og stóð í markinu leikinn á
enda. Hann varði 14 skot, þar af þrjú
vítaköst í röð og stóð sig frábærlega.
Hjá Amicitia voru landsliðsmennirn-
ir Rene Barth og Stefan Scharer í
aðalhlutverkum.
Mörk Vals: Sigurður Sveinsson 6,
Júlíus Jónasson 4, Jakob Sigurðsson
3, Jón Kristjánsson 1, Valdimar
Grímsson 1.
Mörk Amicitia: Martin Glasaer 5,
Stefan Balmelli 5, Jens Meier 3, Rene
Barth 1, Stefan Schárer 1, Roger Kell-
er 1.
Dómarar voru frá Vestur-Þýska-
landi og stóðu sig ágætlega þó vafaat-
riði hafi flest fallið heimaliðinu í hag.
Sjötíu mörk í Rúmeníu
- FH tapaði, 31-39, fyrir Baia Mare í IHF-keppnirmi
FH-ingar og rúmensku IHF-meist-
ararnir Baia Mare deildu með sér
heilum 70 mörkum er liðin mættust
í fyrri ieik sínum í IHF-keppninni í
handknattleik í gær. Heldur hallaði
á FH í þessum mikla sóknarslag því
Rúmenarnir sigruðu með átta marka
mun, 39-31, og standa því ágætlega
að vígi fyrir síöari viðureign liðanna
sem fram fer i Hafnarfirði á fóstu-
dagskvöldið.
„Ég átti von á því aö rúmenska lið-
ið væri sterkara en raun bar vitni
og ég tel að við eigum möguleika á
að vinna þennan átta marka mun
upp í Firðinum ef við byrjum leikinn
vel,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjáifari
FH, í samtali við DV á þriðja tíman-
um í nótt. FH-liðið var þá nýkomið
inn á hótel í Vínarborg eftir 15
klukkutíma rútuferö frá Rúmeníu, í
gegnum Ungverjaland, en þess má
geta að ferð hðsins frá íslandi til
Rúmeníu tók heilan sólarhring. Hins
vegar voru móttökur í Rúmeníu allar
mjög góðar og aðstæður allar eins
og best varð á kosið, að sögn Viggós.
„Dómgæslan var okkur mjög óhag-
stæð, það voru Tékkar sem dæmdu
og heimaliðið komst upp meö allt.
Héðinn var t.d. sleginn í gólfið og fór
vankaður af leikvelli án þess að
nokkuð væri gert. Ég tel að dómar-
arnir hafi munað einum sex mörkum
fyrir rúmenska liöið,“ sagði Viggó.
FH byrjaði vel og komst í 6-3 en
Baia Mare jafnaði fljótlega og var
19-15 yfir í hléi. í seinni hálfleik
munaði lengi vel 4-5 mörkum en
þegar tíu mínútur voru eftir misstu
FH-ingar tökin á leiknum og Rúmen-
arnir komust átta mörkum yfir.
„Voinea, sá stórkostlegi leikmaður,
er slasaður, með slitin krossbönd í
hné, og var því ekki með liði Baia
Mare. Án hans virtust Rúmenarnir
mjög taugaóstyrkir og við gætum
nýtt okkur þaö í heimaleiknum,"
sagði Viggó.
Að hans sögn áttu Guðjón Árnason,
Héðinn GOsson og Óskar Ármanns-
son mjög góðan leik með FH, Héðinn
einkum í fyrri hálfleik en hann var
tekinn úr umferð mestallan tímann.
Mörkin gerðu Guðjón Árnason 10,
Óskar Ármannsson 9/3, Héðinn Gils-
son 6, Þorgils Óttar Mathiesen 3 og
Gunnar Beinteinsson 3.
-VS
Framstúlkur í
engum vanda
- sigruðu Wakefield, 30-13, í Englandi
Heimir Ríkharösson, DV, Englandi:
Stúlkurnar úr Fram áttu í litlum
vandræðum meö ensku meistarana
Wakefield Metros í Evrópukeppni
meistaraliða í handknattleik á laug-
ardaginn. Fram sigraði 30-13 óg þar
með er seinni leikur liðanna í Laug-
ardalshöll næsta sunnudagskvöid
nánast formsatriði.
Staöan var 3-3 eftir 10 mínútur en
síðan tók Fram öll völd og var komið
í 14-6 fyrir hlé. Lið Wakefield er svip-
aö og slakari lið íslensku 1. deildar-
innar en hefur innanborðs nokkrar
sprækar stúlkur, þar af eina afburða-
góða sem spilar á línunni og skoraði
bróðurpart markanna.
Kolbrún Jóhannsdóttir markvörð-
ur og Arna Steinsen áttu bestan leik
hjá Fram. Arna skoraði 10 mörk, 5
úr vítum, Margrét Blöndal 6, Guðríð-
ur Guðjónsdóttir 4, Guðrún Gunn-
arsdóttir 4, Jóhanna Halldórsdóttir
3, Hafdís Guðjónsdóttir 1, Sigrún
Blomsterberg 1 og Björg Bergsteins-
dóttir 1.
Lesendur DV
velja íþróttamann
ársins 1988
Sem og í fyrra gefst lesendum DV kostur á því aö velja íþróttamann ársins
1988. Hér að ofan er atkvæðaseöill þar sem lesendur geta raðað þeim fimm
nöfnum íþróttamanna sem að þeirra mati hafa skarað fram úr á svo til liðnu
ári. Eins og kemur fram neðst á seðlinum á að senda hann til DV, Þverholti
11,105 Reykjavík. Seðlarnir þurfa að hafa borist til DV fyrir fóstudaginn 30.
desember. í fyrsta blaöi DV eftir áramótin verður síðan greint frá því hverj-
ir hafa orðið hlutskarpastir í kjörinu að þessu sinni. -SK
Stórsigur og stórtap
- hjá körfuboltalandsliðinu í Englandi
Landslið íslands í körfuknattleik máttií gær þola tap, 82-114, gegn enska
1. deildar liðinu Bracknell í æfingaleik í London. Á laugardag vann lands-
liðið hins vegar stórsigur á 2. deildar liði Oxford, 112-80. Lið Bracknell er
í ööru sæti 1. deildar en Oxford efst í 2. deildinni.
„Þessir leikir voru mjög góð æfing fyrir liðið. Leikurinn við Oxford var
jafn framan af en síðan sigldu okkar strákar fram úr. Gegn Bracknell
var við ofurefii að etja, enda í liði þeirra fiórir Bapdaríkjamenn og einn
Argentínumaður og allir yfir 2 metrar á hæö. Samt lék íslenska liðið
mjög vel í fyrri hálfleik og í hléi skildu aðeins níu stig liðin að en í síð-
ari hálfleik rúlluðu þeir okkur upp,“ sagði Gunnar Þorvarðarson farar-
sfióri i samtali við DV í gærkvöldi.
Jón Kr. Gíslason var stigahæstur gegn Oxford með 24 stig, Guðmundur
Bragason skoraði 21, ívar Ásgrímsson 16 og Valur Ingimundarson 14.
Gegn Bracknell skoraði Magnús Guðfinnsson 18 stig, Guðjón Skúlason
16, Valur Ingimundarson 13 og Henning Henningsson 12. íslenska liðið fer
í kvöld til Möltu þar sem það tekur þátt í smáþjóöamóti FIBA sem hefst
á miðvikudag.
-VS
íþróttamaður ársins 1988
Nafn íþróttamanns: íþróttagrein:
1.________________________________
2.
3.
4.
5.
Nafn: ____________________________________ Sími: ___________
Heimilisfang:_______________________________________________
Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11 - 105 Reykjavík.