Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Blaðsíða 34
34
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1988.
Librcsse
kvenleguDÖMUBINDIN
GÓÐ HUGMYND
IMafnspjöfd og Bókalímmiðar ex-ums
Persónuleg og skemmtifeg
jólagjöf sem kemur á óvart
• Bjóðum uppá upphleypta prentun |Thermography) sem er nýjung á íslandi •
• Alhliða prentþjónusta •
Nánari upplýsingar og pantanir teknar í síma 30630 og 22876 á kvöldin og um helgar
LETURprent Síðumúla 22-Sími 30630
□□
NÝJAR
SENDINGAR
Reykjavíkurvegi 66 - sími 54100.
Teg. Scala
Litir: svart og hvítt
Verð aðeins kr. 66.150, stgr.
Teg. Asolo
Bæsuð eik
Verð kr. 71.200, stgr.
Fréttir
Netagerð á Hvammstanga:
Konurnar standa jaf nfætis
körlunum og f á sama kaup
Þórhallux Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Það kom manni óneitanlega
spánskt fyrir sjónir að sjá viö
Hvammstangabraut'skilti á húsi sem
á stóð: Netagerð Vestfjarða. Það þyk-
ir nefnilega nokkurn veginn klárt
mál að Hvammstangi tilheyri Norð-
urlandi vestra en ekki Vestfjörðum.
Það var því forvitnilegt að líta inn
á þennan vinnustað sem' reyndist
útiþú frá Netagerð Vestfjarða.
Strax og komið var inn úr dyrun-
um blöstu við net og aftur net út um
allt verkstæðið og fremur lágt er til
lofts þarna inni. Það vakti athygli áð
þrjár stúlkur hömuðust með net-
nálarnar og virtust ekki gefa karl-
peningnum neitt eftir. Olgeir Har-
aldsson heitir sá sem veitir verk-
stæðinu forstöðu nú, í stað Árna
Skúlasonar, félaga síns, sem stundar
í vetur tækninám syðra.
Olgeir, sem er vestan af ísafirði,
sagði að tildrög þess að Netagerð
Vestíjarða kom upp útibúi á Hvamm-
stanga fyrir 4 árum hefðu verið þau
að félagi sinn, Árni Skúlason frá
Hvammstanga, lærði fyrir vestan.
Árni hafði síðan fengið sig í lið með
sér og væri það alveg greinilegt að
menn væru ekki eins bundnir niður
þegar tveir væru við stjórnvölinn.
Að staðaldri vinna sex manns í neta-
gerðinni og þar af er helmingurinn
kvenfólk. „Já, þetta er algjört jafn-
rétti hjá okkur. Kvenfólkið hefur
reynst okkur mjög vel og við borgum
því alveg sama kaup og karlmönnun-
Starfsfólk netagerðarinnar, Olgeir
annar frá vinstri.
DV-mynd Þórhallur
um. Það er ekki spurningTað það á
það fyllilega skilið.“
- Hver er aðalmarkaður ykkar?
„Viðskiptin eru aðallega við inn-
íjarðarrækjubátana en einnig við
svolítinn hluta af úthafsrækjubátun-
um. Við fáumst sem sagt mestmegnis
við rækjutroll en þó er aðeins átt við
fiskitroll. Svo byrjuðum við í sumar
á því að gera við snurvoðina. Þá má
geta þess að við erum að gera tilraun
með að setja leggpoka á rækjutrolhð.
Með þvi móti eiga bátarnir að losna
frekar við smásíld, smærri rækju og
þorskseiði sem vilja koma í trollið,"
sagði Olgeir Haraldsson.
Unnið við netin.
DV-mynd Þórhallur
Hveragerði:
Verslunarhúsnæði KÁ ger-
breytt á 36 klukkustundum
nesinga í Hveragerði, KÁ, tók heldur
betur stakkaskiptum um mánaða-
mótin. Það var gjörbreytt verslun
sem var opnuð föstudaginn 2. desem-
ber. Húsnæðinu er skipt upp í tvær
einingar, söluturn og vörumark-
að.
Allar innréttingar voru endurnýj-
aðar og grænmetistorgi komið fyrir.
Breytingarnar voru allar unnar á
mjög skömmum tíma eða einum og
hálfum sólarhring af snjöllum iönað-
armönnum - málurum frá Þorláks-
höfn, trésmiðum Jrá Selfossi og raf-
virkjum frá KÁ. Starfslið verslunar-
innar vann einnig baki brotnu þenn-
an tíma. Gólfflötur verslunarinnar
með lager er 330 m2 en verslunin sjálf
220 m-. í söluturninum er einnig
videoleiga.
Verslunarstjóri er Friðrik Karls-
son og tók hann við versluninni í
október þegar hann og kona hans,
Inga Dóra Stefánsdóttir, fluttu heim
frá Danmörku. Starfsfólk KÁ í
Hveragerði er átta.
Folk i Hveragerði er ánægt með breytingarnar á versluninni.
DV-mynd SEG
SigriðurE. Gunnarsdóttir, DV, Hverageröi:
Verslunarhúsnæði Kaupfélags Ár-
Inga Dóra og Friðrik Karlsson versl-
unarstjóri. DV-mynd SEG
Landssamband iðnaðarmanna:
60 fyrirtæki fara á hausinn
Forsvarsmenn Landssambands
iðnaöarmanna telja aö á næsta ári
verði um 15 prósent samdráttur í
fjárfestingum en ekki 3,3 prósent eins
og Þjóðhagsstofnun spáir. Þessi sam-
dráttur muni leiða til þess að um 50
til 60 fyrirtæki af 300 í húsgagna- og
tréiðnaði fari á hausinn.
Sá samdráttur, sem Landssamband
iðnaðarmanna gerir ráð fyrir, jafn-
gildir um 5,8 milljörðum til viðbótar
við 1,5 milljarð í samdrátt sem Þjóð-
hagsstofnun áætlaði.
Landssambandiö telur það lýsa
vanþekkingu á þróun fjárfestinga hjá
íjármálaráðherra að leggja vörugjald
á byggingarefni sem sérstakan fjár-
festingaskatt. Áætlaðar íjárfestingar
á næsta ári séu ekki nema um 17,7
prósent af landsframleiöslu á meðan
aðildarríki Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu verji um 20,8 pró-
sent að meöaltali tH fjárfestinga.
Stórlega hafl dregið úr ijárfestingum
á íslandi að undanförnu og búist er
við að samdrátturinn á næsta ári
verði um 15 prósent. Þá sé ekki tekið
tillit til áhrifa vörugjalds á bygging-
arvörur.
Það er mat Landssambandsins að
fyrirtæki í iðnaði megi ekki við þeim
samdrætti sem fyrirsjáanlegur er og
enn síður ef áhrif vörugjaldsins bæt-
ast þar ofan á. Þar sem gjaldið leggst
einnig á aðföng íslenskra fyrirtækja
mun það veikja samkeppnisstöðu
þeirra gagnvart erlendum þó svo þau
fái þetta gjald endurgreitt eftir ein-
hverjamánuði. -gse