Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1988.
dv Menning
Þrælar f rá sælustað
Frá blómaskeiði þrælahaldsins.
Bókmenntir
Magdalena Schram
vissi alveg hvað hún átti viö: að kom-
ast á stað þar sem mátti elska hvað
sem manni sýndist - að þurfa ekki
leyfi fyrir ástríðu sinni - já, það var
frelsi." (bls. 150-151).
Toni Morrison er nú sögð einn
merkasti rithöfundur Bandaríkj-
anna. Hún er blökkukona, fædd í
Ohio, menntuð í virtum háskólum
og hefur lagt stund á kennslu, í það
minnsta þangað til henni varð unnt
að snúa sér alveg að skáldsagnagerð.
Hún hefur sent frá sér fimm skáld-
sögur, þ.á m. bækur sem heita
„Sula“, „Tar Baby“ og „Song of
Solomon" auk bókarinnar „Beloved"
sem hefur nú fyrst bóka Toni Morri-
son verið þýdd á íslensku og gefið
nafnið Ástkær.
Ástkær gerist í kringum lok þræla-
stríðsins í Bandaríkjunum og riíjar
upp daga þrælahaldsins sjálfs.
Blökkukonan Sethe býr ásamt dóttur
sinni í húsi tengdamóður sinnar sál-
ugu. Báðar höfðu þær í eina tíð veriö
þrælar á búgarðinum Sælustað.
Halle, maður Sethe, var þar líka
þræll en hann gat keypt móður sína
lausa. Sex karlþrælar, konurnar
tvær og þrjú börn Sethe og Halles
voru í Sælustaö en Sethe hefur tekist
að strjúka þaðan, þá ólétt að yngstu
dóttur sinni, hin börnin tókst henni
að senda á undan sér til tengdamóður
sinnar. í ráði hafði verið að allir
þrælarnir strykju saman en það mi-
stókst og aðeins einn þeirra, Paul
D„ komst undan. Strokuþrælar voru
dýr fengur þrælaveiðurum sem eltu
þá uppi langan veg og þegar eigendur
Sethe birtast skyndilega við hús
tengdamóðurinnar í því skyni að
færa hana og afkvæmi hennar aftur
á Sælustað grípur Sethe til þess ráðs
að myröa börnin sín fremur en að
sjá þau falia í hendur þrælahaldar-
ans. Henni tekst að drepa eitt - dótt-
ur sína, Ástkæra.
Ástkær afturgengin
Þegar bókin hefst býr Sethe ein
með Denver, yngstu dóttur sinni,
þeirri sem hún eignaðist á flóttanum.
Tengdamamma hennar er dáin fyrir
átta árum, húsið sem áður var sam-
komustaður svertingjanna, athvarf
flóttafólks, áningarstaður flakkara,
opið og rausnarlegt og hlýtt, er ofur-
selt Ástkærri - hún gengur aftur á
illkvittinn hátt. Hún hefnir sín mis-
kunnarlaust á Sethe, morðingja sín-
um. Ástkær var tveggja ára þegar
hún dó. Það eru nú liðin átján ár síð-
an Sethe tókst að strjúka og allt í
einu gengur Paui D. upp að húsinu
hennar. Smátt og smátt opnast saga
þeirra, fundur þeirra Sethe og Pauls
eftir svo langan tíma verður þeim
tilefni til að rifja upp veruna á Sælu-
stað, flóttann, afdrif hinna og sín eig-
in. Ekki síður verða þau hvort öðru
tilefni til að skoða eigin hug, minnast
þess sem var of sársaukafullt tú að
hugsa um, hvað þá að tala uppriátt
um. Þau hafa neitað sér um minning-
ar fortíðarinnar en nú bruna þær
fram. Paul D. rekur drauginn í hús-
inu á flótta en aðeins tímabundið -
Ástkær kemur aftur, að þessu sinni
holdgerö í líkama stúlku, jafngamall-
ar og Ástkær hefði verið hefði hún
lifað. Henni tekst að bola Paul D. frá
Sethe og brjála móður sína um
stundarsakir. Þó lýkur bókinni á
bjartsýnan hátt, Paul og Sethe sam-
an. Hann segir: „Við eigum meira af
fortíð en nokkur annar. Við þörfn-
umst einhvers konar framtíðar."
Voðalegt og fagurt
Þetta er ekki auðveld bók aflestrar.
Það sem hún hefur að segja er í senn
voðalegt-og fagurt og hún segir það
á fikrandi, flöktandi hátt, sagan er
toguð á sársaukafullan hátt fram í
dagsbirtuna og það eru þung tog.
Lýsingarnar á örlögum þrælanna
eru miskunnarlausar og sárar, bæði
líkamleg meðferð en þó ekki síður
áhrif þrælahaldaranna á sálarlíf
þrælanna. Sethe segir á einum staö
við Paul og er þá að segja honum frá
því að hún drap barnið sitt: „Ég var
stór, Paul D„ og ég var svona breið.
Það var eins og ég elskaði þau meira
eftir að ég kom hingað. Eða kannski
hefði ég ekki getað elskað þau al-
mennilega í Kentucky (þ.e. á Sælu-
stað) vegna þess að ég átti ekki með
það. En þegar ég kom hingaö, þegar
ég stökk af vagninum - þá var enginn
í heiminum sem ég gat ekki elskað
ef ég kærði mig um.“ Og Paul D.
veit hvað hún á við: „Því hann hafði
gætt sín og verið spar á ást sína.
Valdi sér minnstu stjörnuna á himn-
inum, lagðist út af með höfuðið reigt
aftur til þess að sjá þessa ástar-
stjörnu yfir gryfjubrúnina áður en
hann sofnaði. Gægðist feimnislega til
hennar milli tijánna og keðjunnar.
Grasstrá, salamöndrur, spætur,
bjöllur, konungsríki maura. Ekkert
stærra kom til greina. Kona, barn,
bróðir - svo mikil ást myndi tæta
mann á hol í Alfred, Georgia. Hann
Djúp, slungin og krefjandi
Þrælarnir voru barðir, tjóðraðir,
sveltir, pískaðir áfram í vinnu og
undirgefni, neitað um tilfinningar og
þeim gefin nöfn sem þeir þekktu ekki
sjálfir. Körlum var hleypt upp á kon-
ur eins og hrútum á fengitíma, börn-
in ræktuð og seld, barin, tjóöruð,
svelt... Sethe kynntist varla móður
sinni en var sagt að hún, Sethe, væri
sú eina sem mamma hennar „setti
á“, sú eina af börnunum sem hún
leyfði sér að halda lifandi.
Sagan er lystilega upp byggð og
Toni Morrison segir hana þannig, að
manni fmnst næstum hún hljóti að
hafa reynt allt sjálf. Sagan verður
merkilega raunsæisleg vegna þess
hvernig höfundinum tekst að nýta
sér það sem lesandinn þekkir til að
bregða ljósi á sviðið; notar hluti, verk
og reynslu sem við könnumst við -
kannski konur frekar en karlar -
sem brú á milli þess ímyndaða og
okkar. Og þrátt fyrir grimmd bókar-
innar tekst henni líka að lýsa vin-
áttu, ástarþrá, samhygð og sam-
heldni og skapa þannig fagurt mann-
líf í ljótleikanum.
Ég er að gera mér vonir um að
þessari bók verði tekið hér með kost-
um og kynjum, mér fmnst hún eiga
það skilið fyrir að vera djúp, slungin
og krefjandi á seiðmagnaöan hátt
sem getur haldið lesanda í greipum
sér löngu eftir að lestrinum lýkur.
Þýðing Úlfars Hjörvars er vel af
hendi léyst og oft snilldarlega en á
ensku virðist bókin oft og tíðum
næstum óþýöanleg á þjála íslensku!
Elisabet Cochran hefur hannað útlit
bókarinnar en aldrei þessu vant
fannst mér henni hafa mistekist með
kápumyndina sjálfa sem er alls ekki
nógu aðlaðandi.
Toni Morrison - Ástkær
Þýöing: Úlfar Hjörvar
Forlagið, Rvik 1988. MS
35
Meiriháttar stefnumót er um Svenna, 15 ára Akurnesing. Hann er
hrifinn af tveimur stelpum, sem báðar sýna honum áhuga. Hvora
þeirra á hann að velja?
Meiriháttar stefnumót er 7. unglingabók metsöluhöfundarins
Eðvarðs Ingólfssonar, höfundar „Fimmtán ára á föstu“, „Sextán ára
í sambúð" „Pottþétts vinar“ o.fl. pottþéttra unglingabóka.
Meiriháttar stefnumót er fjörlega sögð og skemmtileg saga, sem
vekur lesandann jafnframt til umhugsunaTum lífið og tilveruna.
Meiriháttar stefnumót — Meiriháttar unglingabók!
MEIRIHÁTTAR
UNGLINGABÚK!
BROSUM /
alltgengurbetur *
KR. 182.900
(Staögreiösluverö)
Við rýmum til fyrir '89 árgerðinni og seljum
það sem til er af Skoda 105 L, 120 L
og 1 30 L '88 á sérstöku útsöluverði.
Góö greiðslukjör: 25% útborgun og
afgangurinn á 12 mánuðum.
JÖFUR -ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL