Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Page 44
44
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1988.
LífsstHl
saman í jólaföndri
Nágrannarnir Þorgeir og Guðrún sátu saman og föndruðu með dætrunum, Ernu og Þóru.
er yfirleitt mjög góö, en það er ekki
mikið um að feöur komi með bömum
sínum, þeir mættu gjarnan vera
fleiri."
Baldur Örn var mjög áhugasamur
um föndriö, mátti vart vera að því
að líta upp úr jólakettinum sem hann
var að klippa út, og skemmti sér
greinilega mjög vel.
„Ég er aö búa til jólakort og serv-
éttuhringi og mér finnst það ofsa
gaman. Ég myndi vilja hafa fleiri
daga til að fondra með mömmu, en
ég held að pabbi gæti ekkert fondr-
að.“
Svo hló Baldur Örn dátt yfir til-
hugsuninni að sjá pabba sinn fóndra,
ekki var laust við að Ragnheiður
brosti líka viö hugmyndinni.
„Ætti aðvera liður
í skólastarfi
grunnskólanna"
Þorgeir Sigurösson kom með Þóru
dóttur sinni, enda finnst honum mjög
gaman að föndra. Þorgeir var einn
fárra feðra sem komu í jólafóndrið,
en eflaust á þátttaka þeirra eftir að
vaxa.
„Þessi föndurdagur er orðinn fast-
asta ári ætlar t.d. aö afhenda skólan-
um tölvu sem kemur örugglega í góð-
ar þarfir.“
í anddyri Ölduselsskóla seldu for-
eldrar úr fulltrúaráði efni til fóndur-
gerðar sem börn og foreldrar klipptu
og límdu síðan saman svo úr varð
myndarlegasta jólaskraut. Mest var
um börn úr yngri bekkjum grunn-
skólans, en unglingarnir mættu líka
nokkuð vel.
„Pabbikann
ekkert aðföndra"
Ragnheiður Baldursdóttir kom að
sjálfsögðu i jólafóndrið'ásamt syni
sínum. Snorra Páli, enda er það i
miklu uppáhaldi hjá honum að fá að
föndra með mömmu fyrir jólin.
„Mér finnst það mjög þarft að hafa
svona dag. Hann er líka mjög vin-
sæll hjá fjölskyldum. Þetta er frá-
bært framtak og á foreldrafélagiö
mestar þakkir skildar enda vinnur
það mikið starf við undirbúning.
Ég hef komið á hverju ári og föndr-
að með syninum síðan hann byrjaði
í skólanum, það er honum mjög mik-
ilvægt að ég komi með. Sjálfsagt er
alveg nóg að hafa einn svona föndur-
dag fyrir jólin, það má ekki vera of
oft til að þátttaka sé góð. Mætingin
Það er góður siður að allir fjöl-
skyldumeðlimir taki þátt í jólaundir-
búningnum og geri vinnuna þannig
skemmtilegri um leið og samheldni
fjölskyldunnar er styrkt. En á þess-
um tíma hraða og yfirvinnu vill
skemmtunin oft verða útundan og
jólaundirbúningnum hespað af á sem
stystum tíma. Það er því miður allt
of sjaldgæft að foreldrar setjist niður
með börnum sínum og þau fóndri
saman fyrir jólin, tíminn er naumur
og ílest taliö meira áríðandi en mark-
laust fóndur. En það er nú svo að það
ónauðsynlegasta er oftar en ekki það
mikilvægasta þegar upp er staðið og
tíminn sem fólk gefur sér með börn-
um sínum. sérstaklega við jólaundir-
búning. er ómetanlegur. Þetta er
einu sinni hátíö barnanna og fyrir
þau er jólastúss með pabba og
mömmu þaö besta til að þreyja lang-
an biðtímann fram að jólum.
Hátíðardagur
fyrirbörnin
Laugardaginn 26. nóvember var líf
og fjör í Ölduselsskóla í Breiðholti,
en þá komu saman foreldrar og börn
og föndruðu fyrir jólin. Þátttaka var
mjög góð, allar kennslustofur fylltust
af fólki og gott betur. Ekki vantaði
heldur jólastemninguna, jólalögin
spiluð og fólk gat fengiö sér drykki
og piparkökur. En það sem skapaði
mestu stemninguna var einlæg gleði
barna og foreldra.
Þessi föndurdagur var unninn og
skipulagður af foreldrafélagi Öldu-
selsskóla. Formaður félagsins heitir
Guðmundur Hjálmarsson og sagði
hann að þessi dagur hefði verið við
lýði í nokkur ár og notiö mikilla vin-
sælda.
„Þátttakan hefur verið mjög góð frá
upphafi og öll viðbrögð mjög jákvæð.
Það er hátíð hjá börnunum að fá að
vera með foreldrum sínum og fyrir
okkur er virkilega kærkomið í öllu
stressinu að setjast niður og föndra.
Það liggur að sjálfsögðu mikil undir-
búningsvinna að baki þessum degi
og annast foreldrar alla þá vinnu.
Þaö þarf að búa til sýnishorn, kaupa
efni sem er klippt niður og sett í poka
o.s.frv. Svo leggur nemendafélagið
sitt af mörkum með gossölu og að-
stöðu fyrir borðtennis.
Foreldrafélagið stendur einnig fyr-
ir grillveislu á vorin, en það er auð-
vitað háð veðri hvenær hún er hald-
in. Þénustan af þessu starfi fer öll í
að hjálpa við uppbyggingu skólans.
Fulltrúaráð foreldrafélagsins frá síð-
Baldur Öm skemmtir sér greinilega mjög vel i jólalöndrinu og mamma hans, Ragnheiöur, og Snorri Páll eru lika
i góAu skapi.
Katrín Torfadóttir sýnir hróðug afrakstur dagsins. Hún kom með syni sínum en hann staldraði stutt við og lét
móður sína um föndrið.
ur punktur í jólaundirbúningnum,
enda mjög góður og æskilegur siður,
og mikið tilhlökkunarefni hjá börn-
um og foreldrum. Svona nokkuð ætti
að vera liður í skólastarfi grunnskól-
anna. Nú á tímum þegar allir eru
alltaf að vinna þá gefur þetta foreldr-
um líka tækifæri til að hittast sem
er nauösynlegt til að styrkja böndin
milli heimila og skóla. Mér flnnst
tímasetningin á þessu góð, það er
ekki of snemmt að hafa þetta i upp-
hafi aðventu. í ár er jólaföndrið lika
mjög vel heppnað, alveg nógu ein-
falt, en stundum hefur það verið full-
flókið fyrir þau yngstu."
Þóra var ekki jafnspennt yfir
föndrinu og pabbinn, en fannst það
samt alveg ágætt.
Við sama borð og þau feðgin sátu
þær Guðrún Jónsdóttir og dóttir
hennar Erna Guðmundsdóttir. Guð-
rún lýsti yfir ánægju sinni með sam-
starf foreldra, kennara og barna í
Ölduselsskóla.
„Um daginn fór t.d. bekkur til Þor-
lákshafnar og heimsóttu frystihús,
skoðuöu fjöruna ogkynntust vel öllu
því er snýr að sjávarútvegi. Eftir að
þau höföu unnið úr þessari ferð buðu
þau foreldrum eitt kvöldið að sjá
hvaö þau höfðu verið að gera, svo
tróðu krakkarnir upp með skemmti-
atriði og foreldrar komu með kaffi
og kökur. Foreldrar komu og
skemmtu sér mjög vel og er þetta
samstarf til fyrirmyndar. Mér finnst
líka mikilvægur þáttur í uppeldi og
kennslu að láta krakkana koma
fram.“
Ernu fannst alveg frábært að fá
heilan dag til að föndra með mömmu,
en kvaðst annars ekkert föndra
heima við.
Það voru ánægðar fjölskyldur sem
fóru heim með jólaföndur í poka eft-
ir velheppnaðan dag. Allir komnir í
jólaskap enda stutt í hátíðarnar.
-Ade
Dægradvöl