Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Side 45
MÁNUDAGUR Í2. DÉSEMBER 1988.
Fréttir
Skuldbreytingar
leggjast þungt á
sveitarfélögin
ÞórhaJlur Asmundsson, DV, Sauöárkróki:
Allt útlit er fyrir að erfið staða fyr-
irtækja eigi eftir að leggjast meö
auknum þunga á bæjar- og sveitar-
sjóði á næstunni sökum þess að það
lendi á þeim að standa undir miklum
hluta þeirra skuldbreytinga sem
stjórnvöld áætla að framkvæma í
gegnum atvinnutryggingarsjóðinn.
Á fundi bæjarstjórnar Sauðárkróks
nýlega var samþykkt að veita 3 fyrir-
tækjum skuldbreytingu viö bæjar-
sjóð i gegnum Atvinnutryggingar-
sjóð ríkisins. Vitað er að slíkt er að
gerast viðar á landinu.
Skuldabréfin, sem út verða gefin,
eru til 6 ára og afborgunarlaus fyrstu
2 árin. Alls munu þessi þrjú fyrir-
tæki skulda bæjarsjóði tæplega 4
milljónir króna. 1 umræðum í bæjar-
stjórn kom fram að 8 fyrirtæki
skulda bæjarsjóði rúmlega 13 millj-
ónir og töldu bæjarfulltrúar það ekki
mikið miðað við það sem gerist ann-
ars staðar.
Við afgreiðslu málsins í bæjar-
stjórn taldi Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri þetta miður æskilegt og
bæjarsjóður ætti ekki að vera lána-
stofnun. En það væri vitað mál að
fyrirtækin gætu ekki greitt þessar
skuldir sínar og þetta hafi því þótt
vænlegri lausn en sú að breyta
skuldum fyrirtækjanna í hlutafé. Það
hefði sýnt sig að ekki kæmi mikið
út úr slíkum ráöstöfunum. Nokkrir
bæjarfulltrúar tóku til máls og höfðu
þeir svipaðar skoðanir á málinu og
bæjarstjóri.
Einn bæjarfulltrúi, Hörður Ingi-
marsson, var á móti samþykktinni
og færði fram bókun.
Eldur í íbúö á Höfn:
„Lokaðist
algjörlega af
hræðslu“
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Slökkvilið Hornafjarðar var kallað
út á miðvikudagskvöldið vegna elds
í íbúð á Höfn en búið var að slökkva
eldinn þegar slökkviliðið kom á stað-
inn. Skemmdir urðu litlar.
Tildrög þess að eldur braust út
voru þau aö húsmóöirin var að byija
að steikja á pönnu og búin að setja
feiti á og kveikja á hellunni þegar
síminn hringdi og pannan gleymdist
nokkur augnablik. Þegar konan kom
aftur logaði glatt á pönnunni. Nokk-
ur smábörn voru í íbúðinni og kpm
konan þeim út og hringdi á hjálp.
Þá var að reyna að eiga við eldinn.
Lítið slökkvitæki var við hendina og
hugðist skeflingu lostin konan nota
það en ekkert gerðist. Hún hafði afdr-
ei kynnt sér hvernig nota skyfdi tæk-
iö og í öllu fátinu leit hún ekki á þær
leiðbeiningar sem á tækinu eru. Þá
var að reyna að breiða stykki yfir en
þannig tókst ekki aö kæfa eldinn.
Eldvarnateppi var innan seifingar í
efdhúsinu en það bara gleymdist.
„Ég fokaðist algjörlega af hræðslu
en nú hef ég lært af reynslunni,“
sagði konan. Það er ábyggilega full
ástæða til að hvetja fólk til að kynna
sér notkun og meðferð slökkvitækja
áður en þarf að nota þau.
Ódýra O-kjötið
fæst enn
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Esther Hoffretz, innkaupastjóri í
kjötdeild KÁ, Selfossi, sagði mér að
hún heföi haldið um síðustu mánaða-
mót, samanber frétt hér í DV sl.
þriðjudag, að hún fengi ekki meira
af ódýra O-kjötinu sem selt hefur
verið á 169 kr. kílóið. Hins vegar
hefur orðið breyting þar á. SÍS fékk
miklar birgðir af kjötinu frá stöðum
úti á landi og verður því áframhald-
andi sala á því hjá KÁ á Selfossi svo
lengi sem birgðir endast.
Lono-UR
MEÐ SEX EIGINLEIKUM
FNormaltími • vekjari • annar heimstími • dagsetning • skeiðkiukka • timagjafi
Lottótölurnar eru unnar í tölvukerfi úrsins. Þær eru kallaðar fram á einfaldan hátt með
þvi að þrýsta á hnapp. Lottó 5/38.
Framtíðarlán þitt er komið undir tölunum sem þá birtast á skjá lottóúrsins.
Lottótölvan er einnig gerð fyrir aðra lottóleiki sem til eru I heiminum (s.s. kerfisleiki og
„Toto").
Úrið er með litíumraf hlöður sem eru sérhannaðar fyrir langtímanotkun.
Vatnsþétt er úrið niður á 30 m dýpi.
Kr. 4.380,- ATH., þeir sem panta fýrir 17. des. fá 25%
kynningarafslátt.
Afsláttarverð kr. 3.285,-
Póstverslunin Príma
Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga
vikunnar kl. 9.00-22.00.
© VISA © EUHOCABD
Fótóhúsið - Príma
- ljósmynda- og gjafavöruverslun, _
Bankastræti, sími 21556. l£.l
hangikjötið?
* * * ★ Það teljum við. * *
Enda eingöngu nýtt úrvalskjöt, *
taðreykt af reykingameisturum okkar. *
* Bragðmikið og gott hangikjöt um þessi jól.
★ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA AKUREYRI ★ *