Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1989, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989.
61
Sviðsljós
Hún er einn metii á lengd
Astrid Solás er 25 ára gömul. Hún
býr í Haugesimd í Noregi þar sem
hún starfar sem útlitsteiknari hjá
bæjarblaöinu. Það er sem er sérstakt
við Astrid er að hún er aðeins 102,5
sm há. Vöxtur hennar stoppaði þegar
hún var aðeins þriggja ára gömul.
Astrid er ein af fimm hundruð
dvergvöxnum Norðmönnum. í þjóð-
félagi sem er byggt fyrir meðalháar
manneskjur þarf Astrid stundum
hjálp en hún reynir að komast í gegn-
um lífið án hennar.
- Ég þjáist ekki vegna hæðar
minnar enda hef ég vanið mig á að
gera allt sem aðrar manneskjur gera.
Kannski hefur líf mitt verið betra þar
sem ég bý í smábæ en ekki í stór-
borg, segir hún. Astrid er þó vön því
að böm og unglingar kalli til hennar
háðsyrðum og að fullorðið fólk stari
á hana. Hún segist ekki láta það á
sig fá.
Fullorðið fólk gerir grín
Hún varð þó fyrir aðkasti sl. sumar
ásamt fleirum smávöxnum er hún
mætti á ráöstefnu sem haldin var
fyrir þetta smávaxna fólk í bænum
Arendal. Fólk á götum úti hrópaði
„dvergar" á eftir fólkinu og ræddi
um að fjölleikahús væri komið í bæ-
inn. Astrid segir að það hafi í raun
verið hennar verstu stundir.
Hún telur að orðið dvergur sé háðs-
yrði yfir smávaxið fólk og það orð fer
mjög fyrir brjóstið á henni. - Það er
notað í fjölleikahúsum og ævintýr-
um. Við erum eins og aliir aðrir -
ekki einhvers konar trúðar, segir
hún.
Astrid hefur ferðast víða um heim,
m.a. farið til Bangkok og Túnis. Hún
segir það ekkert sérstaklega erfitt
fyrir sig. - Ég get ekki borið feröa-
töskur en ég er ekkert smeyk að biðja
fólk að hjálpa mér. í sumar ætlar hún
í ferðalag til Bandaríkjanna.
Verslar í barnafataversiunum
Astrid kaupir fatnaö á sig í bama-
fataverslunum og þegar hún var
spurð hvort ekki væri erfitt fyrir
hana að fá t.d. Lewis gailabuxur, seg-
ir hún þaö ekki vera. - Það versta
er að það em svo fáar verslanir hér
í Haugesund sem selja bamastærðir
í Lewis gallbuxmn. Hún segir að
þetta hafi lagast hin síðari ár en
Astrid saumar mikið á sig sjálf.
Skór em meira vandamál fyrir
hana. Astrid notar skó númer 28 og
það er ekki mikiö úrval af fallegum
og kvenlegum skóm í því númeri.
Astrid málar í frítíma sínum. Hún
hefur alltaf haft mikinn áhuga á
teikningu og listmálun. Hún ákvað
að nema myndlist. Reyndar fór
Astrid oft á skíöi hér á árum áður
en því hefur hún hætt. Hún á við
sjúkdóm að stríða í fótunum og má
ekki reyna mikið á sig. - Þessi bein-
sjúkdómur sem ég er með hefur einn-
ig komið í veg fyrir aö ég fari á diskó-
tek. Astrid er mikill dansáhugamað-
ur og hefur aldrei átt í vandræðum
með aö fá dansherra. - Mér líöur
samt ekki vel 1 margmenni, finnst
ég alltaf útundan.
Astrid líður best heima í íbúðinni
sinni. Hún fær heimilishjálp aðra
hvora viku því ekki er auðvelt fyrir
hana að þurrka af efstu hillum. En
það var ekki auövelt fyrir hana að
fá heimilishjálp og þótti reyndar
furðulegt hjá félagsmálastofnuninni
að manneskja í fullri vinnu þyrfd á
slíku að halda.
Þá hefur Astrid lent í margvísleg-
um erfiðleikum þegar hún hefur ætl-
að að skipa um bifreið. - Mér fannst
eins og þaö væri verið að refsa mér
fyrir að vera fötluð þegar ég keypti
mér nýjan bíl fyrir stuttu.
Erfitt að fá starf
Astrid bjó í Bomlo til nítján ára
aldurs. í skóla gekk hún í gegnum
allt það sama og aörir nemendur, þar
með talda leikfimi. Hún flutti síðan
til Voss þar sem hún nam í myndlist-
arskólanum þar. Eftir útskriftina
reyndi hún að sækja um starf. í
umsóknum sínum skrifaði Astrid aö
hún væri dvergvaxin. Hún fékk alltaf
neikvætt svar. Þá skrifaöi hún um-
sóknir sínar án þess að geta um hæð
og þá var hún kölluð í viðtöl. Þeir
horfðu á mig og sögðu því miður. Ég
sá að ég fengi aldrei vinnu 1 því sem
ég hafði menntað mig í og fór því á
ritaranámskeið, segir Astrid. Þá fékk
ég vinnu í Statoil í Bergen. Eftir það
varð ég ritari á blaðinu Degi, útskýr-
ir hún.
Stuttu síðar auglýsti dagblaðið í
Haugasund eftir teiknara. Umsækj-
endur voru allir prófaðir. Mér fannst
ég strax eiga heima í starfinu og það
hefur þeim einnig fundist. Ég fékk
þaö, segir hún.
Nú eru tvö ár síðan og Astrid hefur
verið aö finna sig betur og betur í
starfinu og vinnufélagamir hafa far-
ið að kunna betur við hana.
Hjónaband er engin fjarstæöa
Eftir að Astrid gekk í félag smávax-
inna, hefur hún eignast marga kimn-
ingja sem eiga við sama vandamál
að stríða og hún sjáif. - Okkur kemur
vel saman og það er oft þægilegt að
heyra að fleirum líður eins og manni
sjálfum.
Þótt manneskjan sé smávaxin þarf
það ekki að koma í veg fyrir að hún
giftist og eignist böm. Astrid á smá-
vaxna kunningjakonu sem er gift
dvergi og saman eiga þau bam sem
einnig er dvergvaxið. Önnur kona,
sem er í félaginu, á heilbrigt bam.
Astrid segir aö flestir sem em smá-
vaxnir giftist heilbrigðu fólki en þá
em fimm prósent líkur á þvi að þau
hjón eignist smávaxið bam.
Astrid dreymir ekki um giftingu
heldur um frekara nám í myndlist.
Það ætlar hún að láta eftir sér síðar.
Það er ekki auövelt fyrir Astrid aö fá á sig kvenlega og fallega skó. Hún
passar I barnastæröir og slikir skór henta ekki ungum konum.
■
:
's -í■;
Astrid er aðeins 102,5 sm og á stærð við þriggja ára barn. Það