Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1989, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1989, Qupperneq 45
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989. 61 Sviðsljós Hún er einn metii á lengd Astrid Solás er 25 ára gömul. Hún býr í Haugesimd í Noregi þar sem hún starfar sem útlitsteiknari hjá bæjarblaöinu. Það er sem er sérstakt við Astrid er að hún er aðeins 102,5 sm há. Vöxtur hennar stoppaði þegar hún var aðeins þriggja ára gömul. Astrid er ein af fimm hundruð dvergvöxnum Norðmönnum. í þjóð- félagi sem er byggt fyrir meðalháar manneskjur þarf Astrid stundum hjálp en hún reynir að komast í gegn- um lífið án hennar. - Ég þjáist ekki vegna hæðar minnar enda hef ég vanið mig á að gera allt sem aðrar manneskjur gera. Kannski hefur líf mitt verið betra þar sem ég bý í smábæ en ekki í stór- borg, segir hún. Astrid er þó vön því að böm og unglingar kalli til hennar háðsyrðum og að fullorðið fólk stari á hana. Hún segist ekki láta það á sig fá. Fullorðið fólk gerir grín Hún varð þó fyrir aðkasti sl. sumar ásamt fleirum smávöxnum er hún mætti á ráöstefnu sem haldin var fyrir þetta smávaxna fólk í bænum Arendal. Fólk á götum úti hrópaði „dvergar" á eftir fólkinu og ræddi um að fjölleikahús væri komið í bæ- inn. Astrid segir að það hafi í raun verið hennar verstu stundir. Hún telur að orðið dvergur sé háðs- yrði yfir smávaxið fólk og það orð fer mjög fyrir brjóstið á henni. - Það er notað í fjölleikahúsum og ævintýr- um. Við erum eins og aliir aðrir - ekki einhvers konar trúðar, segir hún. Astrid hefur ferðast víða um heim, m.a. farið til Bangkok og Túnis. Hún segir það ekkert sérstaklega erfitt fyrir sig. - Ég get ekki borið feröa- töskur en ég er ekkert smeyk að biðja fólk að hjálpa mér. í sumar ætlar hún í ferðalag til Bandaríkjanna. Verslar í barnafataversiunum Astrid kaupir fatnaö á sig í bama- fataverslunum og þegar hún var spurð hvort ekki væri erfitt fyrir hana að fá t.d. Lewis gailabuxur, seg- ir hún þaö ekki vera. - Það versta er að það em svo fáar verslanir hér í Haugesund sem selja bamastærðir í Lewis gallbuxmn. Hún segir að þetta hafi lagast hin síðari ár en Astrid saumar mikið á sig sjálf. Skór em meira vandamál fyrir hana. Astrid notar skó númer 28 og það er ekki mikiö úrval af fallegum og kvenlegum skóm í því númeri. Astrid málar í frítíma sínum. Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á teikningu og listmálun. Hún ákvað að nema myndlist. Reyndar fór Astrid oft á skíöi hér á árum áður en því hefur hún hætt. Hún á við sjúkdóm að stríða í fótunum og má ekki reyna mikið á sig. - Þessi bein- sjúkdómur sem ég er með hefur einn- ig komið í veg fyrir aö ég fari á diskó- tek. Astrid er mikill dansáhugamað- ur og hefur aldrei átt í vandræðum með aö fá dansherra. - Mér líöur samt ekki vel 1 margmenni, finnst ég alltaf útundan. Astrid líður best heima í íbúðinni sinni. Hún fær heimilishjálp aðra hvora viku því ekki er auðvelt fyrir hana að þurrka af efstu hillum. En það var ekki auövelt fyrir hana að fá heimilishjálp og þótti reyndar furðulegt hjá félagsmálastofnuninni að manneskja í fullri vinnu þyrfd á slíku að halda. Þá hefur Astrid lent í margvísleg- um erfiðleikum þegar hún hefur ætl- að að skipa um bifreið. - Mér fannst eins og þaö væri verið að refsa mér fyrir að vera fötluð þegar ég keypti mér nýjan bíl fyrir stuttu. Erfitt að fá starf Astrid bjó í Bomlo til nítján ára aldurs. í skóla gekk hún í gegnum allt það sama og aörir nemendur, þar með talda leikfimi. Hún flutti síðan til Voss þar sem hún nam í myndlist- arskólanum þar. Eftir útskriftina reyndi hún að sækja um starf. í umsóknum sínum skrifaði Astrid aö hún væri dvergvaxin. Hún fékk alltaf neikvætt svar. Þá skrifaöi hún um- sóknir sínar án þess að geta um hæð og þá var hún kölluð í viðtöl. Þeir horfðu á mig og sögðu því miður. Ég sá að ég fengi aldrei vinnu 1 því sem ég hafði menntað mig í og fór því á ritaranámskeið, segir Astrid. Þá fékk ég vinnu í Statoil í Bergen. Eftir það varð ég ritari á blaðinu Degi, útskýr- ir hún. Stuttu síðar auglýsti dagblaðið í Haugasund eftir teiknara. Umsækj- endur voru allir prófaðir. Mér fannst ég strax eiga heima í starfinu og það hefur þeim einnig fundist. Ég fékk þaö, segir hún. Nú eru tvö ár síðan og Astrid hefur verið aö finna sig betur og betur í starfinu og vinnufélagamir hafa far- ið að kunna betur við hana. Hjónaband er engin fjarstæöa Eftir að Astrid gekk í félag smávax- inna, hefur hún eignast marga kimn- ingja sem eiga við sama vandamál að stríða og hún sjáif. - Okkur kemur vel saman og það er oft þægilegt að heyra að fleirum líður eins og manni sjálfum. Þótt manneskjan sé smávaxin þarf það ekki að koma í veg fyrir að hún giftist og eignist böm. Astrid á smá- vaxna kunningjakonu sem er gift dvergi og saman eiga þau bam sem einnig er dvergvaxið. Önnur kona, sem er í félaginu, á heilbrigt bam. Astrid segir aö flestir sem em smá- vaxnir giftist heilbrigðu fólki en þá em fimm prósent líkur á þvi að þau hjón eignist smávaxið bam. Astrid dreymir ekki um giftingu heldur um frekara nám í myndlist. Það ætlar hún að láta eftir sér síðar. Það er ekki auövelt fyrir Astrid aö fá á sig kvenlega og fallega skó. Hún passar I barnastæröir og slikir skór henta ekki ungum konum. ■ : 's -í■; Astrid er aðeins 102,5 sm og á stærð við þriggja ára barn. Það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.