Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989.
3
x>v Viðtalið
Veuufiarmögnun
- ný þjónusta fyrir nútíma rekstur!
^ Glitnirhf
Ármúla 7,108 Reykjavík, sími: (91) 681040
Telex: 3003 ibank, Telefax: (91) 687784
-
Fluguveiðar
og
fjallaferðir
Nafn: Yngvi Örn Kristins-
son
Aidur: 32 ára
Staða: Formaður Sam-
bands íslenskra banka-
manna
„Forraaður Sambands banka-
manna leiðir starf félagsins í
sarnningamálum og félagsmálum
svipað og formenn annarra laun-
þegasamtaka," segir Yngvi Örn
Kristinsson sem nýverið var
kjörinn formaður íslenskra
bankamanna. Yngvi er forstöðu-
maður gagnavinnsludeildar
Seðlabankans en sú deild sér
meðal annars um að safna gögn-
um, vinna skýrslur og greinar-
gerðir. Hann hefur lengi verið
verið virkur innan sambandsins,
byrjaði fyrst sem reikningsmað-
ur fyrir samninganefndir og sat
í stjórn á árunum 85-87.
Skíðaganga á vetrum
Yngvi er mikill útivistarmaður
og áhugamaður um fjallaferðir,
stundar gönguskíði á vetrum en
íluguveiöar, aðallega siiung, á
sumrin.
„Eins og svo rnargir aðrir er ég í
Ferðafélagi fsiands og ferðast
svolítið með þvi. Hins vegar er
ég ekki í neinum Ijallaferða-
klúbbi; við erum lítil klíka af
gömlum vinum sem höfum gam-
an af þessu. Þvi miður gefst alltof
lítill tími í útivistina nú orðið.
Einnig hef ég ánægju af bóka-
lestri, helst íslenskum nútíma-
bókmenntum og enskum reyfur
um til aíþreyingar.“
Yngvi er fæddur á Sauðárkróki
en ólst upp í Reykjavík. Hann
gekk í Austurbæjarskóla, Breið-
holtsskóla og lauk stúdentsprófi
frá MT 1976. Þaðan lá leiðin til
Gautaborgar þar sem hann lagði
stund á hagfræði og stærðfræði.
Eftir eitt ár fluttí hann sig milli
landa og settist í University of
Essex í Bretlandi oglauk BA prófi
í hagfræði tveiinur árum síðar.
Mastersgráðuna tók Yngvi síðan
frá London árið 1980. Hann vann
síðan smátíma hjá Háskóla ís-
lands við sjávarútvegslíkanið. í
ársbytjun 1981 hóf Yngvi störf hjá
Seðlabankanum og hefur starfað
þar óslitið síðan.
Griöarstadur á eyðibýli
Yngvi Örn er að hluta ættaður
austan af Héraði og var þar í sveit
sem bam.
„Það má segja að þessi sveitavist
hafi haft örlagarík áhrif því núna
á fjölskyldan sér þar griðarstað á
gömlu eyðibýli. Við stundum
auðvitað engan búskap heldur
nýtum eingöngu húsin og höldum
þeim við. Þarna allt um kring eru
vötn og tjamir sem hægt er að
dýfa stöng í. Svo er auðvitað Lag-
arfljótiö ágætt tii veiða þó við
séum ekki að eltast við Orminn.“
Foreldrar Yngva eru Kristinn
Karlsson múrari og Hulda Pét-
ursdóttir sjúkraliði. Yngvi Örn
er yngstur í hópi þriggja bræðra
og tveggja systra. Hann er giftur
Guðrúnu H. Tuliníus mennta-
skólakennara og eiga þau þrjá
stráka, Torfa 8 ára, Atla 5 ára og
Hjalta 3 ára.
"•"t.... ■'............... -JJ
eltufjármögnun felur í sér að Glitnir annast innheimtu útistandandi
viðskiptakrafna seljenda og hefur eftirlit með þeim. Jafnframt býðst
seljendum lán gegn veði í kröfunum til að fjármagna lánsviðskiptin.
Markmiðið er að draga úr vinnu fyrirtækja við innheimtu svo að meiri
tími verði fyrir sölu og þjónustu við viðskiptavini.
jrlendis hefur notkun Veltufjármögnunar leitt til þess að útistandandi
kröfur hafa minnkað verulega vegna markvissra vinnubragða við inn-
heimtuna. Minni fjárbinding í útistandandi viðskiptakröfum stuðlar að
bættri lausafjárstöðu og lægri fjármagnskostnaði.
f|ijj|ækkun kostnaðar með aukinni hagræðingu er lykilatriði í íslensku
atvinnulífi. Verkaskiptingu þar sem sérhæfing og hagkvæmni vegna
stærðar nýtist til lækkunar á kostnaði er nú gefinn gaumur í vaxandi
mæli. Með þessari þjónustu Glitnis býðst þér slík sérhæfing
og hagkvæmni. Veltufjármögnun gefur, að auki
möguleika á sveigjanlegri fjármögnun.