Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAI 1989. 13 Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður 1 Barðastrandarsýslu: Fengum áður jógúrt flesta fimmtudaga „Við erum sveitamenn, sem hér búum, og þurfum að sætta okkur við ýmislegt sem aðrir þurfa ekki að gera. Það er mikill munur hvað alla þjónustu snerfir að búa hér éða í Reykjavík. Þegar kaupfélagið var hér fengum við jógúrt flesta fimmtudaga. Nú er húið að loka kaupfélaginu og við göngum því ekki lengur að jóg- úrtinni á fímmtudögum. Þetta er nú bara lítið dæmi um hvað við verðum að sætta okkur við. Samgöngurnar eru sérkapítuli. Vegasambandið er lélegt. Héðan er ófært stóran hluta ársins. Það kostar okkur nærri tíu þúsund krónur að fljúga suður og aftur heim. Það má nefna fleira. Til dæmis fara áfengiskaup okkar fram gegnum pósthús og því verðum við að hafa fyrirhyggju ef við ætlum að gera okkur dagamun. Það hefur hent fólk hér að það hefur boðið til veislu og tilkynnt að vín verði veitt. Það hefur síðan brugðist þar sem vínið kemur ekki alltaf. Það eru samgöng- ur og fleira sem spilar þar inn í,“ Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður í Barðastrandarsýslu. sagði Stefán Skarphéðinsson, sýslu- maður í Barðastrandarsýslu. í Barðastrandarsýslu búa um 2400 íbúar. Flestir eru íbúarnir á Patreks- firði - eða tæplega 1000 manns. Fólksfjöldi í sýslunni hefur staðið nokkurn veginn í stað undanfarin ár. Um 30 manns hafa verið á at- vinnuleysisskrá. Stefán sagði að at- vinnuástandið hefði oftast verið betra en nú. „Það er fleira en þjónustan sem er öðruvísi hér hjá okkur. Það er fræg saga af manninum sem flutti frá yestfjörðum og keypti blokkaríbúð í Árbæjarhverfi. Hann var gerður að gjaldkera húsfélagsins strax og hann flutti. Eftir nokkra mánuði spurði einn íbúa stigagangsins hann hvort ekki hefðu komið reikningar fyrir hitann. Vestflrðingurinn hafði greitt hitann fyrir allar íbúðirnar úr eigin vasa og taldi sig aðeins vera að greiða fyrir eigin íbúð. Og honum þótti reikningurinn ekki hár. Það kostar um 15 þúsund krónur á mánuði að hita upp venjulegt íbúðarhús hér hjá okkur. íbúðarverð er mjög lágt eða um 50 prósent af brunabótamati," sagði Stefán Skarphéðinsson. -sme Egilsstaðir: Sumri heilsað í norðan- gjólu Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðiim; Sumardagurinn fyrsti var ekki sér- lega hlýr á Héraði, norðankaldi og hreytti snjó um morguninn. En vetur og sumar frusu saman svo um mun- aði og það á að vita á gott. Snjóinn sem setti niður laugardag síðastan í vetri hafði ekki tekið upp og var held- ur kuldalegt um að litast á Egilsstöð- um þennan fyrsta sumardag. Þegar kom fram á daginn sást til sólar. Hátíðahöld dagsins voru í höndum félagsmálaráðs, fjölbreytt að venju. Helgistund, skrúðganga, leikþættir, söngur, tónleikar og dans. Hestamenn fóru fyrir skrúðgöngunni og urðu að búa sig vel. DV-mynd Sigrún Fréttir Vinnuaðstaða á sýsluskrifstofunni er með eindæmum. Sýslumaður hefur ekki sérskrifstofu og vinnur oftast í dómsalnum. Þar er Ijósritunarvélin geymd og eins verður hluti starfsfólksins að ganga i gegnum dómsalinn þurfi það að fara á salerni. Verið er að byggja ofan á húsið og verður hæðin væntanlega tilbúin í ágúst. Þá mun sýslumaður fá einkaskrifstofu. DV-myndir GVA WFM rafstöðvar Traustar og vandaðar G.Á. PÉTURSSON HF, NÚTÍÐ FAXAFENI 14 SÍMI 685580 LUSMARKAÐIRNIR ERU HVERFISMARKAÐIR 6 • Grímsbæ • Vesturbergi 77 MEÐ PLUSMARKAÐSVERD...! Góð þjónusta í hverfi • heldur fasteign í verði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.