Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989. íþróttir Stúfar frá Polar Cup Ægir Már Kárason, DV, Suðunœsjum; Teitur skoraði mest Teitur Örlygsspn skoraði flest stig ís- lands á mótinu, 68 talsins. Guðjón Skúlason skoraði 59, Magnús Guðfinnsson 36, Jón Kr. Gísla- son 35, Guðmundur Bragason 33, Guðni Guðnason 26, Birgir Mikaelsson 20, Tómas Holton 16, Axel Nikulásson 16, Valur Ingimundarson 15, Falur Harð- arson 2. Friðrik Ragnarsson var 12. leikmaður Islands í keppninni. Gott hjá Magnúsi Magnús Guðfinnsson tók ílest fráköst af íslensku leikmönnun- um, 36 talsins, og Guðmundur Bragason kom næstur með 29. Magnús hirti næstflest fráköst af öllum á mótinu, Pekka Markkan- en frá Finnlandi tók 37, aðeins einu meira en Magnús, en Magn- ús tók langflest varnarfráköst af öllum, alls 31. Þetta er frábær árangur hjá Magnúsi sem er „að- eins“ 1,94 m á hæð og var ávallt í báráttu við menn sem voru vél yflr tvo metrana. Markkanen er t.d. 2,07 metrar á hæð. Þrír með 100 prósent Guöni Guðnason, Tómas Holton og Guðjón Skúlason voru allir með 100 prósent vítahittni á mót- inu. Guðni og Tómas tóku 4 skot hvor og Guöjón 2, og öll rötuðu ofan í. Valur Ingimundarson hitti úr 4 af 5, Birgir Mikaelsson úr 7 af 9, Axel Nikulásson 8 af 11, Teit- ur Örlygsson 12 af 17, Jón Kr. Gíslason 12 af 18, Guðmundur Bragason 7 af 11, og Magnús Guð- fxnnsson úr 2 af 4. Einstaklingsverðlaun á Polar Cup: Teitur í úrvalsliði mótsins Ægir Max Karason, DV, Suöumesjura; Teitur Örlygsson var valinn í úr- valslið NorðUrlanda, Nike-liðið, að loknu Norðurlandamótinu í körfu- knattleik, Polar Cup, á Suðurnesjum á laugardaginn. Auk Teits skipuðu liðið þeir Tor- björn Gehrke og Orjan Andersson frá Svíþjóð, Haakon Austeríjord frá Noregi og Pekka Markkanen frá Finnlandi. Jón Kr. átti lang- flestar stoðsendingar Jón Kr. Gíslason fékk sérstök verö- laun fyrir að eiga flestar stoðsending- ar á mótinu eða sendingar sem leiddu til þess aö karfa var 'skoruð. Hann átti 35 slíkar og var langhæstur. Næstur var Svíinn Peter Hellström meö 25 stoðsendingar. Tómas Holton var þriðji með 18. Austerfjord bestur Fern önnur einstaklingsverðlaun voru afhent í lokahófi mótsins. Kari Pekka Klinga frá Finnlandi var víta- kóngur mótsins, hitti úr 16 vítaskot- um af 17 sem er frábær nýting. Pekka Markkanen frá Finnlandi tók flest fráköst, 37 talsins, og Haakon Aust- erfjord frá Noregi var stigahæstur, skoraði 94 stig. Austerfjord var jafn- framt útnefndur besti leikmaöur mótsins. • Verðlaunahafarnir og þeir sem komust í Nike-liðið. Aftari röð fró vinstri: k Austerfjord, Noregi, Pekka Markkanen, Finnlandi, Torbjöm Gehrke, Svíþjóð. Gfslason og Orjan Andersson. Sagt að loknu Norðurlandamótinu í körfuknattleik á Suðumesjum „Hefði aldrei látið vítaskot í svona sti Þriggja stiga skot Eyvind Gronil frá Noregi skoraði mest úr 3ja stiga skotum á mót- inu. Hann skoraöi 13 sinnum úr 23 tilraunum, eða 39 stig samtals. Næstur kom Henrik Norre Niel- sen frá Danmörku sem hitti 9 sinnum í 26 tilratmum. Síðan kom Teitur Örlygsson en hann skoraði 8 3ja stiga körfur úr 20 tilraunum. Guðjón Skúlason var fióröi - hann hitti 7 sinnum í 13 tilraunum fyrir utan 3ja stiga lín- ima. Tveir með16villur Flestar villur á mótinu fengu Mattias Sahlström frá Sviþjóö og Peter Nettil frá Noregi, 16 hvor 1 4 leikjum. Guðmundur Bragason fékk flestar viilur íslensku leik- mannanna, 12 taisins, og var í 8.-11. sæti yfir þá sem brutu mest af sér. Magnús og Guðmundur léku mest Magnús Guðfinnsson og Guö- mundur Bragason léku mest með íslenska iiðinu í mótinu, í 119 mínútur hvor af 165. Teitur Ör- lygsson iék í 110 mínútur og Jon Kr. Gíslason í 108, Guöjón Skúia- son í 94, Tómas Holton í 64, Axei Nikulásson í 64, Guðni Guðnason í 53, Valur Ingimundarson í 38, Birgir Mikaeisson í 36 og Falur Harðarson lék i 20 mínútur. Frið- rikRagnarsson kom aldrei inn á. Daninn mesti þjófurinn Henrik Norre Nieisen frá Dan- mörku „stal“ boltanum oftast af andstæðingi á mótinu, 14 sinnum. Guðmundur Bragason var bestur í þeirri iöju af íslensku leikmönn- unum, stal boltanum 8 sinnum af mótherja. Lars Bæk Jensen frá Dan- mörku tapaði boltanum hins veg- ar oftast allra, 15 sinnum. Jón Kr. Gíslason var í íjórða sæti á þeim lista, tapaði boltanum 13 sinnum. Ægir Már Karason, DV, Suöumesjum; „Ég hefði aldrei látið mitt lið taka vítaskot í svona stöðu. Ef íslenska landsliðið hefði tekið þá ákvörðun aö halda boltanum þegar 34 sekúndur voru eftir, sem það hefði hæglega getað vegna þess aö það er með fljóta og snögga leikmenn, hefði þaö farið létt með að halda honum. Meö því að skjóta á síðustu stundu heföu Norðmenn fengið boltann 2-3 sekúndum fyrir leikslok og það hefði aldrei dugað þeim til að jafna,“ sagði Eero Saarinen, þjálf- ari finnska landsliðsins, í samtali við DV eftir leik íslands og Noregs á laug- ardaginn. „Ég vii þakka íslendingum fyrir frá- bæra framkvæmd á mótinu. Það var í alla staði mjög vel skipulagt og mér fannst íslenska liðið koma mjög á óvart með góðum leikjum. Þaö spilar skemmtilegan körfubolta, leikmenn- irnir eru fljótir og snöggir og skytt- umar góðar. Þaö sem háir íslenska lið- inu er skortur á hávöxnum leikmönn- um,“ sagði Saarinen. Eins og Asíuþjóð „íslenska liðiö er mjög skemmtilegt og gott. Þaö er undravert hve mjög leikmennirnir leggja sig fram í hverj- um leik og það má taka þá til fyrir- myndar - þeir beijast um hvern ein- asta bolta og hætta ekki fyrr en leik- tíminn er liðinn. Þeir vom óheppnir gegn Norömönnum, þeir heföu átt að sigra þá, en þaö voru mikil mistök hjá þjálfaranum að láta taka bónusvíti þegar aðeins 34 sekúndur voru eftir. Ef íslendingarnir hefðu tekið innkast hefðu þeir haldið boltanum og unnið leikinnsagði Charles Barton, þjálfari sænska landsliðsins, við DV en hann hefur þjálfað þaö í sex ár. „íslenska liðið spilar eins og Asíu- þjóð, leikmennirnir eru lágvaxnir en snöggir og fljótir. Þegar við lékum gegn þeim var leikurinn mjög jafn og spenn- andi og um tíma réðum viö ekkert við íslenska liðið en náöum aö tryggja okkur sigur á lokamínútunum. Ef Is- land ætlar aö ná góðum árangri í Evr- ópu þarf liðið að fá tvo leikmenn sem em nokkuð yfir tvo metrá á hæð,“ sagöi Charles Barton. Hefði ekki viljað skjóta í þessari stöðu „Við tókum ekki leikinn gegn íslandi nógu alvarlega, við vomm búnir að horfa á þá spila við Svíana, en íslenska liðið er mjög gott og skemmtilegt," sagi Haakon Austerfjord, Norömaður- inn sem var kjörinn besti leikmaður Noröurlandamótsins og varð jafn- framt sá stigahæsti. „Þegar íslenska liðið er komiö á skrið er nær ómögulegt aö stöðva þaö. Skytt- urnar eru mjög góöar og geta skoraö nánast hvaðan sem er og mér fannst þessi númer 9 (Guðjón Skúlason) geta komiö inn á hvenær sem var og skoraö þegar hann vildi. En undir lokin, þegar 34 sekúndur vora eftir, hefði ég sem þjálfari látið íslenska liðið taka innk- astið í stað vítaskots. Ég hefði ekki viljað taka bónusskot sjálfur í þessari stöðu. Þessi ákvörðun íslenska þjálfar- ans bjargaði okkur. Möguleikarnir em 1 gegn 100 aö viö heföum náö boltanum af íslenska liðinu á þessum 30 sekúnd- um og við hefðum aldrei getað náö að jafna á 2-3 sekúndum eftir þaö. Ég vil þakka íslendingum fyrir góða framkvæmd á mótinu, þetta var mjög skemmtilegur tími,“ sagði Haakon Austerfjord. Bar of mikið traust til leikmannanna „Það voru 37 sekúndur eftir af leik- tímanum þegar Jón tók vítakastið,“ sagði Lazslo Nemeth, landshðsþjálfari íslands, við DV. Hann stóð fast á þess- ari fullyrðingu en allir aðrir eru sam- mála um að það hafi verið 34 sekúndur eftir. „Ég tók tvisvar leikhlé til að und- irbúa okkur betur ef vítaskotið geigaði en þetta var mér að kenna - ég bar sennilega of mikið traust til leikmann- anna. Það kostaði okkur bronsverð- launin," sagði Lazslo Nemeth. Hefði valið innkastið „Ég hefði frekar valið innkastið og reynt að halda boltanum út leiktímann • Bogi Þorsteinsson frá Njarðvík, „faðir körfuboltans á íslandi", var að loknu Norðurlandamótinu sæmdur gulikrossi KKÍ, fyrstur manna. Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ, afhenti honum viðurkenninguna. DV-mynd Ægir Már • Framkvæmdanefnd Norðurlandamótsins stóð sig með mikilli prýði og framkvæi mótsins var til fyrirmyndar. Nefndina skipuðu, frá vinstri, Björn Birgisson, Helgi Hó og Stefán Bjarkason. DV-mynd Ægir N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.