Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989. Afmæli Vilborg Sigurðardóttir Vilborg Siguröardóttir, húsmóöir og ljósmóöir, Miötúni, Grímsey, varð sextug á mánudaginn. Vilborg fæddist í Hátúni í Grímsey og ólst þar upp. Hún lauk ljós- mæðraprófí frá LMSÍ1950 og hefur veriö ljósmóöir í Grímseyjarum- dæmi frá þeim tíma. Þá hefur hún veriö símstöðvarstjóri og veöurat- hugunarmaöur í Grímsey frá sama tíma. yilborg giftist 9.4.1954 Bjama Reykjalín, hreppstjóra, rafstöövar- stjóra og vitaverði í Grímsey, f. 30.6. 1930. Foreldrar Bjarna: Magnús S. Símonarson, b. og hreppstjóri í Grímsey, og kona hans, Siggerður Bjarnadóttir. Börn Vilborgar og Bjarna eru Sig- gerður Hulda, f. 16.6.1952, var gift Stefáni Þór Jónssyni, sjómanni á Akureyri, en þau skildu 1976 og var dóttir þeirra Díana Mjöll, f. 17.7. 1974, d. 25.8.1987, en sambýlismaður Siggeröar er Guömundur Júlíusson vélstjóri; Sigurður Ingi, f. 6.4.1956, vélstjóri í Grímsey, kvæntur Stein- unni Stefánsdóttur og eiga þau eina dóttur, Vilborgu, f. 19.12.1982, en sonur hans frá því fyrir hjónaband er Guðbjöm Þór, f. 21.5.1980; Krist- jana Bára, f. 4.10.1957, gift Héðni Jónssyni, sjómanni ogeru börn þeirra Bjarni Hrannar, f. 23.1.1976, Vilberg Ingi, f. 26.3.1979, og Margrét Rún, f. 18.2.1981; Magnús Þór, f. 29.11.1963, starfar á verkstæöi bróð- ur síns í Grímsey, en fyrrv. sambýl- iskona hans var Asgerður Arnar- dóttir og eiga þau einn son, Örn Inga, f. 8.12.1986, og Bryndís Anna, f. 20.1.1969, starfar á Akureyri. Bræöur Vilborgar eru Þorlákur, f. 5.1.1932, oddviti í Garði í Gríms- ey, kvæntur Huldu Reykjalín Vík- ingsdóttur, og Þorkell Árni, f. 22.8. 1934, húsasmíðameistari á Húsavík, kvæntur Bryndísi Alfreðsdóttur. Foreldrar Vilborgar: Sigurður Kristinsson, b. og sjómaður í Hátúni í Grímsey, f. 9.8.1894, d. 10.11.1937, og kona hans, Kristjana Jóna, f. 9.1. 1900, húsmóðir, en er nú elst núlif- andi Grímseyinga og dvelur á Dval- arheimilinu Skjaldarvík. Sigurður var sonur Kristins, pósts á Tjörnesi, Tómassonar, og konu hans, Indíönu Þorláksdóttur. Föð- ursystir Vilborgar var Kristín, móð- ir Sigurðar Benediktssonar hst- munasala. Kristjana var dóttir Þorkels, b. á Sjálandi í Grímsey, Ámasonar, b., hreppstjóra, ættfræðings og skálds í Neðri-Sandvík í Grímsey, Þorkels- sonar, b. á Núpum í Aðaldal, Þórð- arsonar, b. á Núpum, Þorkelssonar, b. á Melum í Svarfaðardal, Þórðar- sonar, bróður Ingibjargar, ömmu Þórðar Pálssonar, ættfoður Kjarna- ættarinnar, foður Páls, afa Friðriks Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga. Dóttir Þórðar var Þorbjörg, lang- amma Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. menntamálaráðherra. Önnur dóttir Þórðar var Björg, langamma Rögnvaldar Sigurjónssonar píanó- leikara. Þriðja dóttir Þórðar var Kristbjörg, langamma Ragnars Halldórssonar, stjómarformanns Vilborg Sigurðardóttir. ísals. Móðir Kristjönu var Hólmfríður Guðmundsdóttir. Móðir Þorkels var Kristjana ljósmóðir Guðmundsdótt- ir, b. á Naustum á Höfðaströnd, Ei- ríkssonar, og konu hans, Hildar Nikulásdóttur, b. á Þönglaskála í Hofsóshreppi, Jónssonar. Óskar A. Guðjónsson Óskar Aðalsteinn Guðjónsson rit- höfundur, Reykjanesi, Hafnahreppi, Gullbringusýslu, varð sjötugur í gær. Óskar Áðalsteinn er fæddur á Isafirði og var í gagnfræðanámi á ísafirði í einn vetur. Hann var í ís- lenskunámi i þijá vetur hjá Haraldi Leóssyni, kennara og bókaverði, á ísafirði og var bókavörður við Bóka- safn ísafjarðar 1941-1946. Óskar var vitavörður á Hornbjargsvita í N- ísafjarðarsýslu 1947-1949 og var rit- höfundur og blaðamaður á Isafirði 1949-1950. Hann var vitavörður á Galtarvita í V-ísafiaröarsýslu 1953- 1977 og hafði á hendi veðurathugan- ir fyrir Veðurstofu íslands og rak smábúskap. Óskar var formaður KFUM á ísafirði 1934-1936 og í stjórn Leikfélags ísafiarðar 1950-1953. Rit Óskars eru Gísla saga Brimness (endurminningar Gísla Gíslasonar), 1951, Úr dagbók vitavarðarins, þáttasafn, 1968, ljóð: Vökuljóð fyrir alla, 1976, skáldsögur: Ljósið í kot- inu, 1939, Grjót og gróður, 1941, Húsið í hvamminum, 1944, Þeir brennandi brunnar, 1947, Högni vitasveinn(unglingasaga), 1950, Hlauparinn frá Malareyri, 1952, Vormenn íslands (unglingasaga), 1956, Ennþá gerast ævintýri (bama- saga), 1957, Kosningatöfrar, 1958, Vonglaðir veiðimenn, 1963, Lífsorr- ustan, 1964, Beyskar ástir, 1965, Epl- in í Eden, 1969, Dísir drauma minna, 1971, í röstinni, 1978 og Fyrirburðir áskálmöld, 1982. Óskar kvæntist 1943 fyrri konu sinni, Sigfríði Maríu Guðbjartsdótt- ur, f. 6. febrúar 1920, þau skildu. Faðir Sigfríðar er Guðbjartur Sig- urðsson, sjómaður í Bolungarvik. Dætur Óskars og Sigfríðar em Sig- ríður Ósk, f. 23. október 1940, gift Hermanni Sigfússyni, sjómanni í Rvík, og Halldóra Björt, f. 21. sept- ember 1943, gift Guðmundi Jóns- syni, rafvirkja í Rvík. Óskar kvænt- ist 10. ágúst 1950 seinni konu sinni, Valgerði Hönnu Jóhannsdóttur, f. 29. janúar 1922, vitaverði á Reykja- nesvita. Foreldrar Valgerðar eru Jóhann Bjarni Loftsson, útvegsb. á Eyrarbakka, og kona hans, Jónína Hannesdóttir. Synir Óskars og Val- gerðar eru Flosi, f. 30. desember 1946, vélstjóri í Rvík, Gylfi, f. 5. júní 1948, myndlistarmaöur í Rvík, sam- býliskona hans er Sigríður Konr- áðsdóttir, og Bragi, f. 11. janúar 1951, blaðamaöur á Morgunblaðinu. Systkini Óskars eru Sigurður Tryggvi, múrari á ísafirði, Valgeir, múrari á ísafirði, kvæntur Sigríði Sveinsdóttur, Kjartan, matsveinn í Rvík, kvæntur Bergþóru Skarphéð- insdóttur, Einar, fisksali í Rvík, kvæntur Margréti Gunnlaugsdótt- ur, Þorlákur, matsveinn á ísafirði, kvæntur Ágústu Ebenharðsdóttur, Sigríður Ósk, lést ung, og Ásgeir, sjómaðuráísafirði. Foreldrar Óskars voru Guðjón Sigurðsson, fæddur á Skagaströnd, vélgæslumaður á ísafirði, og kona hans, Guðmundína Jónsdóttir, fædd í Miðhúsum í Gufudalssveit. Kristján Kristján Jónsson, Laugarnesvegi 85, Reykjavík, meistari í bifreiða- yfirbyggingum, er níræður í dag. Kristján er fæddur á Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundarfirði og ólst þar upp. Hann vann við bílayfir- byggingar í Danmörku 1921-1925 og hefur unnið við trésmíðar og bíla- yfirbyggingar á íslandi frá 1925. Kristján kvæntist 1954 Halldóru Jónsson Þórðardóttur, f. 23. október 1892, d. 1983. Systkini Kristján era Daníel Benediktsson, b. á Kirkjubóli, Vil- berg Jónsson, Flateyri, Guðrún Jónsdóttir, Hafnarfirði (öll látin), og Guðmunda Jónsdóttir á Þingeyri. Foreldrar Kristjáns voru Jón Guð- mundsson, b. og smiður á Kirkju- bóli í Valþjófsdal, og kona hans, Marsibil Guðbjörg Kristjánsdóttir. Axel Magnússon Axel Magnússon, Tryggvagötu 26, Selfossi, er sextugur í dag. Axel er fæddur í Rvík og lauk námi í pípu- lögnum í Iönskólanum í Rvík 1955. Hann var pípulagningamaður á Sel- fossi 1955-1965 og sjáifstæður at- vinnurekandi 1965-1984. Axel hefur verið pípulagningameistari hjá Kaupfélagi Amesinga frá 1984. Hann var einn af stofnendum Leik- félags Selfoss 1958, hefur verið for- maður þess og leikið með því flest árin. Axel hefur leikið meira en tutt- ugu og þijú hlutverk og er síðasta hlutverk hans í Mávnum eftir Tsékov í október 1988. Hann hefur sungið með Karlakór Selfoss frá 1972. Axel kvæntist 26. febrúar 1955 Sigríöi Einarsdóttur, f. 10. maí 1931. Foreldrar Sigríöar eru Einar Sig- urðsson, b. í Helli í Ölfusi, og kona hans, Pálína Benediktsdóttur. Son- ur Axels er Sigurður Axel, f. 1949, verkamður í Trelleborg í Svíþjóð, kvæntur Kobrúnu Sandholt Jóns- dóttur. Sonur Axels og Sigríðar er Benedikt Þór, f. 23. október 1965, nemi í Trelleborg, kvæntur Aðal- björgu Runólfsdóttur. Systir Axels er Sigurþóra, f. 1931, hjúkrunar- fræðingur í Hafnarfirði, var gift Pálma Magnússyni, útgeröarmanni á Patreksfirði, sem er látinn. Bróðir Axels er Guðni Ásgrímsson, f. 1918, bifreiðarstjóri í Rvík, kvæntur Huldu Ólafsdóttur. Foreldrar Axels vom Magnús Bjamason frá Skógum í Kolbeins- staðahreppi, verkamaður í Rvík, og kona hans, Þórey Brandsdóttir, b. í Amarstaðakoti í Hraungerðis- hreppi, Þorvaldssonar, af Víkings- lækjarættinni. 95 ára Pétur Finnbogasqn, Tangagötu 19 A, ísafirði. 85 ára Þórarinn Guðmundsson, írabakka 22, Reykjavík. Bragi Ásbjörnsson, Hjallabrekku 4, Kopavogi. Vigdís Birgisdóttir, Hnjúkaseli 2, Reykjavík. Ari Sigurjónsson, Melagötu 3, Neskaupstað. Pétur Þórðarson, Hveramörk 17, Hveragerði. Guðlaug H. Guðbjörnsdóttir, Stóragerði 5, Mosfellsbæ. Ellen Sigrið Emilsdóttir, Brúnalandi 38, Reykjavík. 80 ára 50 ára Halldór Þorsteinsson, Norðurbrún 1, Reykjavík. 60 ára Einar Sigurðsson, Hvassaleiti 22, Reykjavik. Hafliði Hjartarson, Asparlundi 7, Garðabæ. Ásbjörg Albertsdóttir, Mjölnisholti 4, Reykjavík. Kristin Guðmunda Halldórsdóttir, Hátúni 19, Reykjavík. Sigurður Bjamason, Njálsgötu 98, Reykjavík. 40 ára Bjarni G. Bjarnason, Njálsgötu 98, Reykjavík. íris Lilja Sigurðardóttir, Miðvangi 129, Hafnarfirði. Björgvin Ásbjörn Bjarnason, Frostaskjóli 15, Reykjavik. Gyða Maja Guðjónsdóttir, Hrauntungu 67, Kópavogi. Þorvaldur S. Hermannsson, Faxastíg 3, Vestmannaeyjum. Steinunn S. Káradóttir, Stífiu, Vestur-Landeyjum, Rangár- vallasýslu. Ágústína Jónsdóttir, Svarfaðarbraut 15, Dalvík. Margrét Lárasdóttir, Brimhólabraut 22A, Vestmanna- eyjum. Sigurður Bjarai Gislason, Vegamótum, Búlandshreppi, Suð- ur-Múlasýslu. Andlát Ólafur Þorgrímsson Ólafur Þorsteinn Þorgrímsson, hrl. og tónskáld, lést miðvikudags- morguninn 26. aprí sl. Hann veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 3. maí klukkan 15. Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Laugar- nesi. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1923, embættisprófi í lögfræði frá HÍ1928 og varð hæstaréttarlög- maður 1940. Ólafur stofnaði mál- flutningsskrifstofu 1928 ásamt G.A. Sveinssyni og starfrækti Ólafur skrifstofuna til dauðadags, síðustu árin með syni sínum, Kjartani Reyni. Á siðasta ári voru því liðin sextíu ár frá því málflutningsskrif- stofa Ólafs var stofnuð. Hann var einn af stofnendum Strætisvagna Reykjavíkur 1931 og formaður þar frá stofnun til 1938 en fram- kvæmdastjóri 1934-1938. Hann var einn af stofnendum Tónlistarfé- lagsins og hefur setið í stjórn þess frá upphafi og sem formaður síð- ustu árin. Hann hefur setið í skóla- nefnd og síöar skólaráði Tónlistar- skólans og hann var einn af stofn- endum Sambands íslenskra karla- kóra 1929. Ólafur var m.a. í stjórn Austur- bæjarbíós, Austurvers hf., Edda- film, Sambands smásöluverslana og síðar Kaupmannasamtaka ís- lands. Hann var heiðursfélagi Lúðrasveitar Reykjavíkur og Hreyfils. í tilefni af áttatíu og fimm ára afmæh Ólafs kom út nótnahefti með lögum hans. Kona Ólafs var Ásdís Ingiríöur, f. 27. nóvember 1909, sem lést 1987, Pétursdóttir, sjómanns í Reykja- vík, Sigurðssonar og konu hans, Guðrúnar Gróu Jónsdóttur. Börn Ólafs og Ásdísar eru: Erna Guðrún, giftist Einari Inga Jóns- syni prentsmiðjueiganda sem lést 1987, og Kjartan Reynir hrl., giftur Kristínu Önnu Sigurðardóttur. Systkini Ólafs voru Kristján, fram- Ólafur Þorsteinn Þorgrímsson. kvæmdastjóri Austurbæjarbíós; Pétur, forstjóri SVR; Ragnar, fyrrv. starfsmaður SVR; Guðrún Sigríð- ur, húsmóðir í Reykjavík; Þorbjörg, húsmóðir í Reykjavík, og Gestur myndlistamaður. Foreldrar Ólafs voru Þorgrímur Jónsson, söðlasmiður og veggfóðr- ari og síðar b. í Laugarnesi, og kona hans, Ingibjörg Þóra Kristjánsdótt- ir. Þorgrímur var sonur Jóns, b. í Skipholti í Hrunamannahreppi, Ingimundarsonar. Móðir Jóns var Guðfinna Halldórsdóttir, b. í Jötu, Jónssonar, ættföður Jötuættarinn- ar. Móðir Þorgríms var Þorbjörg Jónsdóttir, b. í Skipholti, Gríms- sonar, stúdents í Skipholti, Jóns- sonar, b. og hreppstjóra í Skip- holti, Jónssonar, bróður Fjalla- Eyvindar. Ingibjörg var dóttir Kristjáns, sjómanns í Rvík, Þorsteinssonar Kúld, kaupmanns í Rvík, Jónsson- ar, prófasts á Auðkúlu, Jónssonar, biskups á Hólum, Teitssonar. Móð- ir Jóns á Auðkúlu var Margrét Finnsdóttir, biskups í Skálholti, Jónssonar. Móðir Kristjáns var Vigdís Steindórsdóttir Waage, skipstjóra í Hafnarfirði. Móðir Steindórs var Rannveig Filippus- dóttir, síðar kona Bjarna Síverts- ens riddara. Móðir Vigdísar var Anna Kristjánsdóttir Welding, verslunarmanns í Hafnarfirði, ætt- foður Welding-ættarinnar. Móðir Ingibjargar var Guðrún Vigfúsdóttir Thorarensen, sýslu- manns á Borðeyri, Sigurðssonar Thorarensen, prests í Hraungerði, Gíslasonar, prófasts í Odda, Þórar- inssonar, sýslumanns á Grund í Eyjafirði, Jónssonar, ættföður Thorarensen-ættarinnar. Móöir Gísla var Sigríður Stefánsdóttir, systir Ólafs stiftamtmanns í Viðey, ættföður Stephensen-ættarinnar. Móðir Sigurðar var Jórunn Sigurð- ardóttir, alþingisskrifara á Hlíðar- enda í Fljótshlíð, Sigurðarsonar og konu hans, Helgu Brynjólfsdóttur Thorlacius, sýslumanns á Hlíðar- enda, Þórðarsonar, biskups í Skál- holti, Þorlákssonar, biskups á Hól- um, Skúlasonar, ættföður Thorla- ciusættarinnar. Móðir Vigfúsar var Guðrún Vigfúsdóttir, sýslu- manns á Hlíðarenda, Þórarinsson- ar, bróður Gísla í Odda. Móðir Guörúnar var Steinunn Bjarna- dóttir landlæknis Pálssonar og konu hans, Rannveigar Skúladótt- ur landfógeta Magnússonar. Móðir Guðrúnar Vigfúsdóttur Thorar- ensen á Borðeyri var Ragnheiður Pálsdóttir Melsteð, amtmanns í Stykkishólmi, ættföður Melsteð- ættarinnar, og konu hans Önnu Stefánsdóttur, amtmanns á Möðru- völlum, Þórarinssonar, bróður Gísla í Odda. Móðir Önnu var Ragnheiður Vigfúsdóttir Scheving, sýslumanns á Víðivöllum, Hans- sonar Scheving klausturhaldara á Möðruvöllum, Lárussonar Schev- ing, sýslumanns á Möðruvöllum, ættföður Scheving-ættarinnar. Móðir Ragnheiðar var Anna Stef- ánsdóttir, systir Sigríðar á Grund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.